Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 ! Afmæliskveðja: Anna Jónsdóttir frá Mýrarlóni 90 ára er í dag amma mín Anna Jónsdóttir frá Mýrarlóni. 90 ár er langur tími og engar smáræðis breytingar hafa átt sér stað í þjóð- félaginu á þessum tíma. Á fólk eðlilega misauðvelt með að fylgjast með og fylgja breytingunum eftir. Hún amma mín virðist aldrei hafa haft neitt fyrir þessu og skilur unga fólkið vel á hverjum tíma, það veit ég sem fékk aðeins að kynnast sveitasælunni hjá henni á sumrin iem lítil stelpa. Þar var ekkert ver- ið að æðrast yfir smáglappaskotum æskunnar heldur öllu tekið með ró. Það væri efni í heila bók að skrifa ævisögu ömmu og erfitt að setjast niður og ætla að hafa þetta stutt, en það skal reynt og stiklað á stóru. Ámma giftist ung afa mínum, Sigurjóni Kristjánssyni frá Stóru- Brekku í Fljótum, og bjuggu þau fyrstu árin á Molastöðum þar sem þeirra fyrsta barn, Sverrir, faðir minn, fæddist. Síðar flytja þau til Akureyrar þar sem fjögur börn bætast við. Aðeins tveir drengir komust upp, Sverrir og Rafn, en hann lést ungur, aðeins tæplega tvítugur. Amma mátti líka sjá á feftir afa á besta aldri en hann lést árið 1930. Það er því ýmislegt sem amma hefur mátt reyna í gegnum tíðina og satt best að segja veitist mér erfítt að skilja hvemig hægt er að bera svona byrðar, en amma á sterka trú sem hefur hjálpað henni í gegnum raunimar. Árið 1932 birtir aftur til hjá íimmu minni, þá flyst hún með drengina tvo að Mýrarlóni til yndis- gs manns, Guðmundar Jónssonar, '■m ég þekkti aldrei nema sem ^oðan afa. Hann var ekkjumaður með þrjá drengi, Svein, Víking og Vigni, sem var yngstur og var í fóstri annars staðar. Amma og afí giftust fljótlega og hefur eflaust oft verið Qörugt í kringum drengina fjóra og í nógu að snúast á stóru heimili. Ekki var nútímaþægindun- um fyrir að fara sem okkur þykja svo sjálfsögð og nauðsynleg í dag. Þegar amma og afi voru orðin ein í kotinu mörgum árum síðar tóku þau að sér litla stúlku, Rósu Leósdóttur, og ólu upp. Var hún þeim gleðigjafi og börnin hennar síðar. Árið 1973 bregða amma og afi búi og flytja til Akureyrar þá orðin þreytt á búskapnum og kominn tími til að hægja aðeins á. Keyptu þau íbúð í Skarðshlíðinni og undu sér vel þar. Alltaf er jafn gott að koma norður til ömmu hvar sem hún býr, alltaf sama hlýjan sem streymir á móti manni. Afí lést árið 1979 eftir veikindi og bjó amma ein í tvö ár, þá nánast orðin blind og veittist henni ekki auðvelt að þurfa að flytja á Dvalarheimilið Hlíð er hún dvelur nú á. Elsku amma, ég er viss um að þér fínnst þetta orðið alltof langt hjá mér, en þú veist nú að ég skrifa ekki stystu sendibréf sem um getur. Ég, Siggi og börnin sendum þér bestu kveðjur í Hlíð í dag þar sem ég veit að þú færð góða umönnum og bið Guð að lýsa veginn þinn á ævikvöldinu. Áslaug Sverrisdóttir Herbergi með útsýni sýnd í Regnboganum REGNBOGINN hefur hafið sýn- ingar á myndinni Herbergi með útsýni þar sem Maggie Smith, Denholm Elliott, Judi Dench og Julian Sands fara með aðalhlut- verkin. Leikstjóri myndarinnar er James Ivory. Myndin er byggð á sögu eftir E.M. Forster (höfund Ferðarinnar til Indlands) en höf- undur handrits er Ruth Prawer- Jhabvala. Myndin hlaut þrenn Óskarsverðlaun; fyrir besta hand- ritið eftir öðru efni, bestu bún- ingana og bestu listrænu stjórnina. Sagan gerist í byrjun aldarinnar og segir frá ungri stúlku, Luey Ho- neychurch, sem fer sína fyrstu ferð frá Englandi til Ítalíu. Með henni í ferðinni er fylgdarkona, miðaldra frænka hennar, Charlotte Bartlett. Þær lenda í ýmsum ævintýrum og Dalvík: Mikið fannfergi eftir þriggja daga snjókomu Dalvík. MIKIÐ fannfergi er nú á Dalvík eftir þriggja daga linnulausa snjókomu. Eins og víðar um Norðurland brast á iðulaus vest- an stórhríð um hádegi þriðjudags og var vindhraði allt að 12 vind- stigum. Eftir einn af snjóléttari vetrum, sem komið hefur, eru þetta mikil viðbrigði þar sem all- ar götur eru ófærar og mikið verk framundan að hreinsa snjó af þeim þegar upp styttir. Segja má að Dalvík og Svarfað- ardalur hafi sloppið vel við tjón af völdum fárviðrisins. Þó fuku nokkr- ar þakplötur af þremur húsum á Dalvík, en ollu ekki öðru tjóni. í Svarfaðardal fauk gamall braggi á rafmagnslínu og slitnaði hún við það og orsakaði það rafmagnsleysi í sveitinni um nokkurn tíma. Það kom berlega í Ijós í þessum veðraham að Dalvíkingar búa við alvarlegt ástand í símamálum. Oft hefur verið erfitt að eiga við símann bytjar á því að þær fá ekki, eins og þeim hafði verið lofað, herbergi með útsýni. en á þriðjudaginn var gjörsamlega ómögulegt að nota hann þó líf lægi við og hending að hægt væri að ná sambandi á milli húsa. Ástand sem þetta er bagalegt því síminn gegnir ríku hlutverki í öryggismál- um. Björgunarveit Slysavarnarfé- lagsins og Hjálparsveit skáta voru í viðbragðsstöðu allan tímann og skipulögðu sólarhringsvaktir. Að- stoðuðu þær íjölda fólks til og frá vinnu og fluttu börn af leikskóla til síns heima. Allir bátar komu í höfn nema Baldur sem lá í vari sunnan við Langanes. Fréttaritarar. Danskynn- ing í Frosta- skjóli í kvöld FÉLAGSMIÐSTÖÐIN í Frosta- skjóli heldur í kvöld, 3. apríl, danskynningarkvöld þar sem allflestir dansskólar borgarinnar sýna og kynna starfsemi sína. Meðal þeirra dansskóla sem sýna eru Blitz, íslandsmeistarar ungl- inga í „freestyle“-dansi frá Jass- ballettskóla Báru, Kramhúsið, Dansskóli Auðar Haralds, Ballett- skóli Guðbjargar, Ballettskóli Sigríðar Ármanns, Dansnýjung Kollu, Dansstúdíó Sóleyjar, Dans- skóli Sigurðar Hákonarsonar og Dansskóli Heiðars Ástvaldssonar. Dagskráin byijar kl. 21.00 og verður dansað á eftir til kl. 00.30. raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar Borgarnes — Mýrarsýsla Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er i Sjálfstaeðishúsinu Borg- arbraut 1. Opið frá kl. 14.00-17.00 og frá kl. 20.00-22.00 alla daga fyrst um sinn. Sími 93-7460. Forstööumaöur skrifstofunnar er Örn Símonarsson. ------------------------------------------------ í I Seltirningar Kosningaskrifstofa sjálfstaeðisfélaganna á Seltjarnarnesi, Austur- strönd 3, er opin daglega frá kl. 16.30-19.30. Vinsamlegast tilkynnið fjarvistir á kjördag. Komið og ræðið málin. Stjórnin. \ Sjálfstæðismenn — Langholti — Opið hús — Opið hús í kosningarskrifstofunni Langholtsvegi 124, laugardaginn 4. april kl. 14.00-17.00. Frambjóöendur líta við. Kaffiveitingar. Stjórnin. Kópavogur — kosningaskrifstofa Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins i Kópavogi er í Sjálfstæöis- húsinu Hamraborg 1,3. hæð. Skrifstofan verður opin alla virka daga I frá kl. 9.00-19.00. Símsvari er opinn allan sólarhringinn, sími 40708. Kosningasímar eru 44017 og 44018. Sjálfstæðisflokkurinn. Hafnarfjörður — föstudagskvöld Áður en fariö verður á dansleik suður i Keflavik föstudagskvöldiö 3. april eru allir ungir Hafnfirðingar hvattir til að mæta á opið hús (party með veitingum) í Sjálfstæðishúsiö við Strandgötu sem búið er að sanna gildi sitt sem slíkt. Veigar verða ekki af skornum skammti. Flensborgarar eru sérstaklega velkomnir og takið með ykkur gesti. P.s. Opið hús er fyrir alla hvort sem þeir fara á ball eða eigi, og ókeypis verður í rúturnar til og frá Keflavík. Stefnir — B.Ó. Kópavogur — kosningaskrifstofa Kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins i Kópavogi er í Sjálfstæðis- húsinu Hamraborg 1, 3. hæð. Skrifstofan verður opin alla virka daga frá kl. 9.00-19.00. Símsvari er opinn allan sólarhringinn, simi 40708. Kosningasímar eru 44017 og 44018. Sjáifstæðisflokkurinn. Vörður — F.li.S. — Akureyri Varðarfélagar! Rétta leiðin er á lllugastaði um helgina þar sem safn- að veröur kröftum fyrir komandi kosningar. Skráið ykkur sem fyrst hjá stjórnarmeölimum. Stjórnin. Akranes — fulltrúaráð Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna á Akranesi heldur fund laugardaginn 4. apríl kl. 14.00 i Sjálfstæðishúsinu við Heiöarbraut. Fundarefni: Kosningavinnan. Frambjóðendur mæta á fundinn. Fjölmennum. Stjórn fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Akranesi. Seltirningar Kosningaskrifstofa sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi, Austur- strönd 3, er opin daglega frá kl. 16.30-19.30. Vinsamlegast tilkynnið fjarvistir á kjördag. Komið og ræðið málin. Stjórnin. Norðlendingar í Reykjavík Rabbfundur um byggðastefnu unga fólks- ins, stjórnmálaástandið og kosningarnar. Frummælandi Vilhjálmur Egilsson. Fundar- staður veitingahúsiö Hrafninn, kjallari. Fundartími kl. 20.00 föstudaginn 3. april. Allir velkomnir. Ungir sjálfstæðismenn Norðurlandi vestra. | --------------------------------------!------------------------- | Húsvíkingar á réttri leið Almennur stjórnmálafundur sunnudag 5. apríl í félagsheimilinu. Frummælendur: Efstu menn á lista Sjálf- stæðisflokksins i kjördæminu. Hríseyingar á réttri leið Almennur stjórn- málafundur í Brekku sunnudagskvöld 5. april kl. 21.00. Frummælendur: Halldór Blöndal og Tómas Ingi Olrich.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.