Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 Vantar 17 íslenska krakka til kynningar á vetrartískunni ENN á ný hyggst hollenski list- hönnuðurinn Martie Dekkers leita eftir fyrirsætum meðal íslenskra barna í tiskutímariti sem ætlað er ungu kynslóðinni í Evrópu. Tvær 7 ára fyrirsætur vantar og fimmtán á aldrinum 13 til 14 ára. Tímaritið er gefið út í 2 milljónum eintaka og dreift um alla Evrópu. „Eg var mjög ánægður með hvemig til tókst í fyrra og er því kominn aftur til að gera annan bækling og gefa um leið íslenskum krökkum tækifæri til að kynnast fyrirsætustörfum,“ sagði Martie. Hann sagðist verða á Hótel Sögu kl. 10, laugardaginn 4. mars og biður þá sem áhuga hafa á að reyna fyrir sér, sem fyrirsætur að gefa sig þar fram. „Það er alls ekki nauð- synlegt að hafa reynslu á þessu V öruskiptaj öf nuðurinn í janúar og febrúar: * Ohagstæður um 1,5 milljarða kr. Vöruskiptajöfnuðurinn við út- lönd var óhagstæður um 318 milljónir kr. í febrúarmánuði, en í febrúar 1986 var hann hagstæður um 591 milljónir kr., þegar miðað er við fast meðalgengi á viðskipta- vog. Ut voru fluttar vörur fyrir 3.124 milljónir en inn fyrir 3.442 milljónir kr. Fyrstu tvo mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 5.085 milljónir kr., en inn fyrir 6.634 milljónir og «ar vöruskiptajöfnuðurinn því óhag- stæður um 1.549 milljónir. A sama tima í fyrra var hann hagstæður um 486 milljónir kr. á sama gengi. Fyrstu tvo mánuði ársins var verð- mæti vöruútflutningsins 16% minna á föstu gengi en á sama tíma í fyrra. Sjávaraftirðir voru um 72% alls út- flutningsins og voru 19% minni en á sama tíma í fyrra. Útflutningur á áli var 15% meiri, en útflutningur kísil- jáms 16% minni. Útflutningsverð- mæti annarrar vöru var 21% minna á þessu tímabili, miðað við sama tíma í fyrra. Verðmæti vöruinnflutningsins var 19% meira en á sama tímabiii i fyrra. í tilkynningu Hagstofunnar um vöru- skiptin við útlönd kemur fram að hér skiptir talsverðu máli að rekstrar- vöruinnflutningur álverksmiðjunnar var mun meiri en í fyrra. Verðmæti innflutnings til stóriðju, svo og olíu- innflutnings, fyrstu tvo mánuði ársins, var samtals 12% minna en á sama tíma í fyrra, reiknað á föstu gengi. Þessir innflutningsliðir eru jafnan breytilegir frá einu tímabili til annars, en séu þeir frátaldir reyndist annar innflutningur hafa orðið um 27% meiri en í fyrra, reiknað á fiistu meðalgengi á viðskiptavog. Ein myndanna af íslensku krökk- unum sem prýddu tískutímaritið fyrir vetrartískuna 1987. sviði,“ sagði Martie. Ljósmyndirnar verða allar teknar í Reykjavík dag- anna 18. til 27. mars næstkomandi. Sóley Eiríksdóttir sýnir skúlptúr á Kjarvalsstöðum. Morgunbladið/Júlíus Kjarvalsstaðir: Sýmng á skúlptúr SÓLEY Eiríksdóttir opnar sýningn á skúlptúr unnum úr leir á gangi Kjarvalsstaða á laugardag 4. apríl. Þetta er fyrsta einkasýning hennar. Sóley lauk námi frá Mynd- lista- og handíðaskóla íslands 1981 og hefur tekið þátt í sam- sýningum hér heima og erlendis. Flest verkin á sýningu Sóleyjar eru unnin á þessu ári og í fyrra. Sýningin stendur til 20. apríl og er opin daglega frá kl. 14-22. Fjórir stjórnarmenn í yfirkjörstjórn Vestfjarðakjördæmis segja af sér: Málsmeðferðin brýtur í bága við gnmnreglur réttarfars í landinu - segir í bréfi til forseta sameinaðs þings að taka við slíkum fnimboðsKögn- Hinn 28. mars 1987 kvað yfirkjörstjórn Vestfjarðakjördæmis upp þann úrskurð, að framboðslisti Borgaraflokksins í kjördæminu við kosningar til Alþingis 25. apríl 1987 væri ógildur. Byggt var á því, að aðeins hefðu borizt yfirlýsingar frá sex meðmælendum framboðs- listans fyrir lok framboðsfrests kl. 24.00 27. mars 1987. Umboðsmenn Borgaraflokksins kærðu úrskurð yfirkjörstjórnar Vestfjarðakjördæmis til landskjiir- stjómar, sem felldi hinn kærða úrskurð úr gildi 31. marz 1987 og mat framboðslista Borgaraflokks- ins í Vestfjarðakjördæmi gildan og merkir hann listabókstafnum S. I forsendum úrskurðar landskjör- stjómar kemur fram, að á fundi yfirkjörstjómar Vestfjarðakjör- dæmis laugardaginn 28. mars 1987 hafi legið fyrir meðmæli 54 manna með lista Borgaraflokksins en af þeim hafi 11 reynzt gölluð og ein verið afturkölluð. Síðan segir: „Samgöngur í Vestfjarðakjördæmi höfðu truflast vegna illviðris og meðal annars valdið því að yfirkjör- stjórnarmaður komst ekki frá Patreksfirði á fundinn á ísafirði. Við þessar aðstæður telur lands- kjörstjórn að veita hefði átt umboðsmanni Borgaraflokksins hæfilegan frest til að bæta úr ágöll- Félag íslenzkra hljómiistarmanna: Sverrir Garðarsson lætur af formennsku SVERRIR Garðarsson hefur nú látið af formennsku í Félagi íslenzkra hljómiistarmanna eftir 19 ára setu í þeirri stöðu. Björn Amason tekur við formennsk- unni, en Sverrir verður áfram í stjórn næsta árið, hið 25. í röð- inni. Félag íslenzkra hljómlistar- manna var 55 ára hinn 28. febrúar síðastliðinn, en vegna umfangsmik- illa hátíðahalda á 50 ára afmælinu, var ákveðið að fresta hátíðahöldum þar til á næsta stórafmæli eftir 5 ár. I stjóm FIH eru nú: Björn Áma- son, formaður, Sverrir Garðarsson, Hafliði .Jónsson, Ásdís Þorsteins- dóttir og Hallberg Svavarsson. ,, . _ „ Sverrir Garðarsson um þeim er vom á meðmælendalist- um.“ í framhaldi þessa segir frá því, að til viðbótar hinum 42 gildu meðmælum, er yfirkjörstjórn höfðu borizt á fundinum, hafi landskjör- stjóm borizt frá yfirkjörstjórn í lokuðu umslagi merktu landskjör- stjóm meðmælendalisti með 11 nöfnum, þar af 10 gildum. Þetta umslag hafi samkvæmt áritun á því verið afhent lögreglunni á ísafirði kl. 00.25 þann 29. marz. Síðan seg- ir: „Bárust því landskjörstjórn 51 gild meðmæli með framboði Borg- araflokksins frá yfirkjörstjórninni í Vestfjarðakjördæmi.“ Við þessar forsendur landskjörstjómar og málsmeðferð verður að gera mjög alvarlegar athugasemdir. í fyrsta lagi lá ekki fyrir yfirkjör- stjórn Vestfjarðakjördæmis á fundi hennar 28. marz 1987, að illviðri eða samgönguerfiðleikar hefðu valdið því, að meðmæli með fram- boðslista Borgaraflokksins bárust ekki til kjörstjórnarinnar í tæka tíð. Aðstandendur framboðslistans höfðu ekki samband við yfirkjör- stjórnarmenn fyrir lok framboðs- frests né síðar þeirra erinda, að meðmæli með listanum kæmust ekki til yfirkjörstjórnar af þessum sökum. Umboðsmenn framboðslist- ans á fundi yfirkjörstjórnar 28. marz létu þess í engu getið, að veðurfar og samgöngur ættu þátt í því, að tilskilinn meðmælendafjöldi hefði ekki borizt. í símskeyti efsta manns á framboðslista Borgara- flokksins, sem barst yfirkjörstjórn kl. 15.50 laugardaginn 28. marz með beiðni um frest til kl. 10.00 á mánudagsmorgun „til þess að ganga frá formsatriðum vegna lista þessa“, kom þessi mótbára heldur ekki fram. Hefðu athugasemdir komið um það til yfirkjörstjórnar fyrir lok framboðsfrests, að með- mæli einhvers framboðslista kæmust ekki í hennar hendur vegna veðurfars eða ófærðar, hefði hún að sjálfsögðu getað skipað ein- hveija menn sem umboðsmenn sína annars staðar í kjördæminu til þess um. Það er í öðru lagi rangt að yfir- kjörstjórnarmaður hafi ekki komizt frá Patreksfirði á fundinn á ísafirði vegna illviðris. Þegar formaðuryfir- kjörstjórnar boðaði þennan mann á fund hennar, sem haldinn var 11. marz 1987, kvaðst hann ekki myndu koma á kjörstjórnarfund fyrr en á kjördegi en óskaði þess að varamaður sinn, sem búsettur er á Isafirði, kæmi til fundar í sinn stað fram að því. Þetta áréttaði hann í símtali við formann yfirkjör- stjómar 26. marz 1987. Það lá því fyrir, að þessi yfirkjörstjórnarmað- ur reyndi ekki að komast frá Patreksfirði til fundar yfirkjör- stjórnar á ísafirði laugardaginn 28. marz 1987. I þriðja lagi er þess að geta að yfirkjörstjórn Vestíjarðakjördæmis fjallaði að sjálfsögðu aldrei um þau meðmæli með lista Borgaraflokks- ins, sem afhent voru á lögreglustöð- inni á ísafirði í lokuðu umslagi merktu landskjörstjórn aðfaranótt 29. mars kl. 00.25 — átta klukku- stundum eftir að hún kvað upp úrskurð sinn. Þótt þetta lokaða umslag hafi verið lagt með gögnum frá yfirkjörstjórn til landskjör- stjórnar er það beinlínis rangt og villandi að segja, að landskjörstjórn hafi borizt 51 gild meðmæli með framboði Borgaraflokksins „frá yfirkjörstjórninni í Vestfjarðauni- dæmi“, eins og fram kemur í forsendum úrskurðar landskjör- stjórnar. Það er ljóst, að úrskurður lands- kjörstjórnar er í meginatriðum byggður á forsendum, sem ekki lágu fyrir yfirkjörstjórn Vestfjarða- kjördæmis, þegar hún kvað upp úrskurð sinn um ógildi framboðs- lista Borgaraflokksins. Þær ástæð- ur, sem hún telur hafa átt að valda því að yfírkjörstjórn Vestfjarðakjör- dæmis hefði átt að gefa umboðs- manni framboðslista Borgara- flokksins hæfílegan frest til að bæta úr ágöllum á meðmælendalist- um — illviðri og samgönguerfíðleik- ar —, eru til fundnar eftir að yfírkjörstjórn kvað upp úrskurð sinn. Slík málsmeðferð brýtur í bága við grunnreglur réttarfars í landinu sem ætla verður að halda beri í heiðri ekki síður við málskot milli tveggja úrskurðaraðila sam- kvæmt kosningalögum en endra- nær. Við þetta verður ekki unað né heldur þá gáleysislegu leiðsögn landskjörstjómar við framkvæmd kosninga, sem þessi afgreiðsla hennar ber vott um. Fyrir því sjáum við ekki annan kost, virðulegi þingforseti, en að segja af okkur störfum í yfírkjör- stjórn Vestfjarðakjördæmis. Pétur Kr. Hafstein, Guðmundur Kristjánsson, Björn Teitsson, Sturla Halldórsson. Stjórn BSRB: Stjórnvöid gangi þegar til samninga „Stjórn BSRB skorar á stjórn- völd ríkis og Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga, sem ekki hafa samið, að ganga nú þegar til samninga við aðildarfé- lög BSRB,“ segir meðal annars í samþykkt stjórnar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja síðast- iiðinn þriðjudag. Ennfremur segir í samþyktinni: „Félagsmenn í aðildarfélögum BSRB eiga siðferðiskröfu á því að fulls réttlætis sé gætt í samskiptum hins opinbera við starfsmenn sína. Bandalagsstjórnin lýsir fullri ábyrgð á hendur stjórnvöldum vegna þeirrar tregðu sem verið hef- ur á samningaviðræðum. Framhald þeirrar afstöðu hlýtur að kalla á verkfallsaðgerðir, sem sýnist vera það sem stjórnvöld skilji“.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.