Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
OO
33
Noregur:
10 menn biðu bana
Reuter
Góðviðrisgöngutúr
Japönsku kirsuberjatrén í Washingtou D.C. eru nú í fullum
skrúða, eins og myndin ber með sér. Ibúar höfuðborgarinnnar
njóta g-öngutúrs meðal trjánna í góðviðrinu.
í flugslysi við Skien
Osló, Reuter.
TIU menn biðu bana er
tveggja hreyfla flugvél af
gerðinni Beechcraft-90 fórst
í gærkvöldi við bæinn Skien,
sem er suðvestur af Osló.
Flugvélin brotlenti í skóglendi
skammt frá Skien í svarta þoku
og votviðri. Kviknaði eldur í henni
í lendingunni. Orsakir slyssins eru
ókunnar.
Flugvélin var í eigu norska
leiguflugfélagsins Scanex Air.
Um borð voru átta farþegar og
tveggja manna áhöfn. Flugvélin
var í þann mund að ljúka leigu-
flugi frá Hanvoer í Vestur-Þýzk-
alandi er hún fórst.
Flugmaður flugvélarinnar var
norskur en þjóðerni annarra, sem
um borð voru, lá ekki fyrir í
gærkvöldi, og ekki heldur hveijir
tóku vélina á leigu.
Yaxtahækkun í
Bandaríkjunum
ERLENT
New York. Reuter.
HELSTU viðskiptabankarnir í
Bandaríkjunum hækkuðu í gær
vexti og létu þar með undan mikl-
um þrýstingi á fjármagnsmark-
aði. Fjármálasérfræðingum ber
saman um, að með þessari hækk-
un hafi verið bundinn endi á
vaxtalækkunarskeiðið.
Nokkrir stærstu bankanna hækk-
uðu vextina, þá, sem þeir taka af
lánum til bestu viðskiptavina sinna
og jafnan eru hafðir til viðmiðunar,
úr 7,5% í 7,75% og er hér um að
ræða fyrstu vaxtahækkunina síðan
í júní árið 1984 þegar vextir voru
hækkaðir úr 12,5% í 13%.
Það, sem einkum knúði á um
vaxtahækkun nú, voru horfur á au-
kinni verðbólgu og allnokkur
hækkun skammtímavaxta, sem hafa
verið bönkunum þungir í skauti.
Þegar gengi dollarans lækkar rýrast
innstæður erlendra fjármagnseig-
enda og reyna þá bankarnir að bæta
þeirn upp missinn með því að hækka
innlánsvextina.
Forseti íslands í óopinberri heimsókn í Finnlandi:
Vigdís fagnar útgáfu
Islendingasagnanna
Hclsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaösins.
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, segir, að hún sé stolt
af því, að íslendingar skuli nú
hafa gefið Finnum það besta,
sem þeir eiga, íslendingasögurn-
ar. Forsetinn lét svo um mælt í
Helsinki í gær í tilefni þess, að
fyrsta bindi af íslendingasögum
í finnskri þýðingu var gefið út,
en fyrsta eintakið var afhent
henni.
Vigdís vakti einnig athygli á því,
að of lítið væri um, að Islendingar
og Finnar lærðu tungu hvors ann-
ars og gætu þýtt bókmenntir
þessara þjóða beint úr frummálinu.
Einkum væri þörf á að skáld og
rithöfundar yrðu færir um þetta til
að þýðingarnar yrðu lifandi bók-
menntir en ekki einungis fræðilega
réttar.
Vigdís kvaðst einnig óska þess,
að fleiri finnskir rithöfundar fengju
bækur sinar þýddar á íslensku. Nú
mætti það heita tilviljun ef íslenskt
forlag gæfi út finnska bók eða
finnskt forlag bók eftir íslenskan
höfund. Tungumálavandamálið ylli
því, að forlögin gætu ekki einu sinni
metið bækur, sem þeim byðust frá
hinu landinu.
Forsetinn lagði áherslu á, að lest-
ur góðra bókmennta væri besta
leiðin til að kynnast hugsunarhætti
annarra þjóða. Einkum vegna þess,
að bækurnar væru alltaf tiltækar,
þær væru ekki stundarfyrirbrigði
eins og kvikmyndin.
Bókaforlagið Otava mun gefa út
íslendingasögurnar allar á næstu
árum. Fyrsta bindið er í raun endur-
útgáfa Eiríks sögu rauða, Laxdæla
sögu og Fóstbræðra sögu. Þýðandi
er Jyrki heitinn Mántylá, fyrrum
lektor í finnsku við Háskóla ís-
lands. Þessar þrjár sögur voru
upphaflega gefnar út í byijun átt-
unda áratugarins. Næsta bindi
verður ný þýðing Njálu og mun
koma út á næsta ári. Þýðandi er
Jarkko Láine, sem er ungt finnskt
skáld.
Það sést því miður einnig á útgáf-
unni, að tungumálavandinn er
mikill milli íslendinga og Finna.
Sögurnar eru að vísu prentaðar á
finnsku, en nöfn þeirra eru einnig sókn í Finnlandi. Hyggst hún kynna
á íslensku. Þegar á fyrsta titilblaði
stendur t.d.: „Fríks saga ravða.“
Það mætti spyija hvort þetta Frík
sé einhver nútíma hetja frá íslandi.
Vigdís er þessa viku í einkaheim-
sér finnskt menningarlíf, fyrst og
fremst leiklist. I gær hitti hún for-
seta Finnlands, Mauno Koivisto í
hádegisverðarboði í forsetahöllinni.
Hussein
í Hollandi
Haag, Reuter.
HUSSEIN Jórdaníukonungur er
væntanlegur í einkaheimsókn til
HoIIands á sunnudag og mun hann
eiga viðræður við utanríkisráð-
herrann Hans van der Broek um
ráðstefnu um Miðausturlönd. Ta-
lið er að Hussein muni leita eftir
þvi við Hollendinga, að þeir beiti
áhrifum sínum sem smáþjóð, er
njóti virðingar hvarvetna, til að
ráðstefnan verði að veruleika.
Fram hefur komið margsinnis, að
Hollendingar eru því fýsandi að
PLO-fulltrúar fái á einn eða annan
hátt að eiga aðild að slíkri ráðstefnu.
Raunar hefur fylgi við málstað Pa-
lestínumanna aukizt í Hollandi allra
síðustu ár, samhliða því að borið
hefur á gyðingaofsóknum, ríkis-
stjórninni til sárrar hrellingar.
í þessari heimsókn er Hussein og
frú hans sérstakir gestir Beatrice
drottningar, segir í Reuterskeyti.
Farsími fyrir athafnamenn
í FARARBRODDI
ALLSTAÐAR!
• Léttastur (3,1 kg).
• Minnstur (12,3x5,7x22,7).
• Vatnsþéttur (sá eini).
• Sterkur.
• Öruggur.
• Góð greiðslukjör.
• 2 ára ábyrgð.
P.s.: Að sjálfsögðu tökum við á móti
pöntunum og veitum upplýsingar í
Simonsen farsíma 985-23500.
BENCOhf
Lágmúla 7, sími 91-84077.