Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 Varast ber ítalskt stj órnarmynstur Sagði Þorsteinn Pálsson á fjölmennum baráttufundi sjálfstæðismanna á Selfossi Selfossi. HÚSFYLLIR og ríflega það var á fundi sjálfstæðismanna á Hótel Selfossi i fyrrakvöld. Um 600 manns sóttu fundinn og voru fundarmenn víða að af Suðurl- andi og er fundurinn einn sá fjölmennasti sem haldinn hefur verið á staðnum. Mikill áhugi var meðal fundarmanna fyrir öflugu starfi Sjálfstæðisflokksins og kom fram mikiil stuðningur við frambjóðendur flokksins. Fjórir efstu frambjóðendur fram- boðslistans fluttu ávörp og fjölluðu um stjórnmálaástandið eins og það blasir við og lögðu áherslu á stefnu flokksins og árangur í ríkisstjórn. Auk þess sem flutt voru ávörp sungu tveir kórar nokkur lög; kór Fjölbrautaskólans undir stjóm Jóns Inga Sigurmundssonar og kór Tón- listarskóla Rangæinga undir stjórn Sigríðar Sigurðardóttur. Auk þess komu fram á fundinum Ólöf Kol- brún Harðardóttir og Garðar Cortes og sungu nokkur lög við undirleik Ónnu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Þá söng Garðar Cortes eitt lag með kór Fjölbrautaskólans án þess það hefði verið æft sérstaklega. Ami Johnsen, Eggert Haukdal og Amdís Jónsdóttir, frambjóðend- ur Sjálfstæðisflokksins í Suður- landskjördæmi, lögðu áherslu á árangur ríkisstjómarinnar í ávörp- um sínum og lýstu yfir vonbrigðum með framboð Borgaraflokksins, einkum vegna þess að þar væru meðal annatra á ferð stuðnings- menn Sjálfstæðisflokksins. Þorsteinn Pálsson lagði í sínu ávarpi höfuðáherslu á góðan árang- ur ríkisstjómarinnar í efnahagsmál- um og sýndi myndir máli sínu til stuðnings. Hann varaði alvarlega við því að ríkjandi ástand gæti leitt til stjórnleysis, líkt og ér á Ítalíu, þar sem stjórnir sitja í skamman tíma og lítið tóm gefst til að stjórna. Slíkt ástand yrði að forðast. í lok máls síns hvatti hann flokksmenn til öflugs starfs fram að kosningum. Sig. Jóns. Kristín Þorkelsdóttir ásamt tveimur verka sinna. Krístín Þorkelsdóttir sýnir í Gallerí Borg KRISTÍN Þorkelsdóttir opnaði sýningu sína HRIF í Gallerí Borg sl. fimmtudag. A sýningunni eru vatnslitamyndir málaðar á síðastliðnu ári. Aðalviðfangsefni Kristínar er íslenskt landslag, sem hún máiar úti i náttúrunni. Kristín fæddist 193G. Hún útskrifaðist frá Myndlista- og handíðaskóla íslands 1954 og stofnsetti Auglýsingastofu Kristínar (Auk hf.) ásamt Herði Danielssyni 1967 og hafa þau starfrækt hana síðan. Þetta er þriðja einkasýning Kristínar en hún hefur einnig tekið þátt í samsýningum. Sýningin er opin virka daga kl. 10.00-18.00 nema mánudaga kl. 12.00-18.00 og um helgar kl. 14.00-18.00. Sýningunni lýkur þriðjudaginn 14. apríl. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Mikill fjöldi fólks sótti baráttufund sjálfstæðismanna á Selfossi. Hagfræðingur ASÍ um tilboð og samninga ríkisins undanfarið: Hreyfa við markmiðum, sem sett voru í desember Staða fiskiðnaðarins leyfir ekki almennar launahækkanir, segir Gunnar Friðriksson Þorsteinn Pálsson í ræðustóli. ÞAÐ tilboð sem Starfsmannafé- lag ríkisstofnana fékk frá ríkinu felur í sér talsvert meiri meðal- launahækkanir en jólaföstu- samningarnir svokölluðu í desember síðastliðnum, sam- kvæmt upplýsingum hagfræð- inga hjá Þjóðhagsstofnun og ASI. Þeir treysta sér hins vegar ekki enn til að meta hvað miklu munar, en óttast að þeir samn- ingar sem verið er að gera af hálfu ríkisins komi til með að hafa veruleg áhrif á verðlags- forsendur þær sem samningar aðila vinnumarkaðarins byggðu á. Bjöm Bjömsson . hagfræðingur Alþýðusambands íslands sagði í samtali við Morgunblaðið að ASÍ hefði takmarkaða aðstöðu til að fylgjast með samningagerðinni nú en mat annara sem þekktu til væri að samningamir þýddu 23-24% hækkun á næstu tveimur ámm. Það skipti auðvitað máli að hve miklu leyti þessar hækkanir kæmu inn á árið í ár en það væri deginum ljós- ara að þessir samningar færu töluvert langt útfyrir það sem um var' samið í jólaföstusamningunum. Björn sagðist telja að þetta hljóti að hreyfa við þeim verðlagsmark- miðum sem sett voru þá. Þarna væri ekki lengur einangraður samn- ingur við kennara, eins og fyrst hefði verið haldið fram, heldur væri verið að tala um af hálfu stjórn- valda að aðrir opinberir starfsmenn, sem enn er ósamið við, fái svipaðar hækkanir. „Það smitar auðvitað útfrá sér, hefur áhrif á almenna markaðinn, og hlýtur að hafa áhrif á verðlagsþróunina innanlands. Það eru þó ekki að svo stöddu nein efni til að leggja mat á hve mikið það kemur til með að hreyfa þær við- miðanir," sagði Björn. Aðspurður sagðist Björn ekki telja að samkomulagið frá í vetur væri sprungið, en menn yrðu að gera sér það ljóst að sarnningar af þessu tagi hefðu ekki einangruð áhrif. „Það er ljóst að hafi menn gert þessa samninga með hliðsjón af þeim verðlagsforsendum sem lagðar voru í desembersamningun- um þá hafa þeir verið að nota rangar forsendur, því menn hafa áhrif á forsendurnar með sínum samningum," sagði Björn. Gunnar J. Friðriksson formaður Vinnuveitendasambands Islands sagði við Morgunblaðið að hann óttaðist að samkomulagið frá í haust væri að gefa sig með samn- ingum ríkisins því þar væri farið verulega útfyrir rammann sem sett- ur var í jólaföstusamningunum. „Það vakti fyrir okkur að koma í veg fyrir síendurteknar gengisfell- ingar svo verðbólgan elti okkur ekki alltaf uppi og reyna að komast út úr vítahringnum. Það er hætt við að tækifærið til þess komi ekki aftur og það er tómt mál að tala um almennar launahækkanir nú því fiskiðnaðurinn er farinn að kveinka sér verulega vegna falls dollarans og slíkt myndi aðeins þýða hrun fastgengisstefnunnar," sagði Gunn- ar. Gunnar sagði að þenslan á vinnu- markaðnum ylli vinnuveitendum Ferðamarkaður og fjölskylduhá- tíð í Broadway á laugardaginn FERÐALÖG eru orðin svo sjálf- sagður þáttur í lífi almennings að nauðsynlegt er að gefa fólki kost á að afla sér vitneskju um hvað er á boðstólnum með að- gengilegum upplýsingum og ferðaráðgjöf. Á morgun, laugardag, hefur Ferðaskrifstofan Utsýn opið hús í Broadway kl. 13.30—16.30 og veitir hvers konar upplýsingar um ferðalög til um 20 landa. Þátttak- endur í „Ferðamarkaðnum" koma frá Portúgal, Spáni, Ítalíu, for- stjórar og fulltrúar stórra gisti- staða og ferðaskrifstofa, en auk þess verða Flugleiðir, Arnarflug, SAS og Almennar tryggingar rneð sölukynningar. Myndbönd verða í gangi frá ýmsum stöðum og mik- ið úrval prentaðra upplýsinga frá mörgum löndum um víða veröld, sem fólk getur tekið með sér til frekari fróðleiks. Nokkur önnur fyrirtæki kynna vörur sínar og gefa gestum að smakka ókeypis, t.d. pylsur frá Goða hf. og Svala frá Sól hf. Skemmtiatriði verða um miðjan daginn á sviðinu í Bro- adway og veitingar fást keyptar á vegum hússins. Við komuna fá allir gestir ókeypis happdrætti- smiða og í lokin verður dregið í leikfangahappdrætti fyrir börn og ferðahappdrætti fyrir fullorðna. Vinningar eru flugfarseðlar, gisti- vinningur og sumarleyfisferðir til útlanda. Verðmæti vinninganna er um 300 þúsund krónur. Þetta er í annað sinn sem Útsýn heldur slíkan ferðamarkað. í fyrra komu um 3.000 gestir á slíkan ferðadag í Broadway. Ástæða er til að ætla að aðöóknin verði ekki minni í ár, því að pantanir eru meiri en nokkru sinni miðað við árstíma. Nærri 80% af heildarsætamagni Útsýnar í sumar eru þegar seld og biðlistar í margar ferðir. Til að anna eftlrspurn hefur Útsýn því í huga að bæta við nokkrum ferðum á hánnatímanum. Tekist hefur að auka við gistirými á vin- sælustu gististöðunum á Costa del Sol. (Fréttatilkynning frá Útsýn) miklum áhyggjum. Þar væri mikil pressa, sem væri að kenna halla- rekstri ríkissjóðs. Vissar starfs- greinar væru á uppboði, ef svo- mætti segja, og þegar allir væru að bera sig saman og heyra háar launatölur væri von að launþegar ókyrrðust. Síðan hefðu horfur um trausta ríkisstjórn eftir kosningar, og að tekið verði með festu á málun- um þá, versnað. Jóngeir Hlinason hagfræðingur Vinnumálasambands samvinnufé- laganna sagði það ljóst að samning- arnir nú væru langt umfram jólaföstusamningana og veruleg hætta á að áhrifin yrðu víðtæk.„Það er spurning hvort þetta valdi ekki launasprengingu innanlands, ekki síst vegna þess hvað þetta er blásið upp í fjölmiðlum. Vinnumarkaður- inn er illa í stakk búinn til að mæta launahækkunum. Útflutn- ingsgreinar, og sérstaklega iðnað- urinn, myndu efalaust lenda í vandræðum þar sem þær hafa ekki fengið neinar verðhækkanir vegna þess hve mikið er selt í dollurum, og dollarinn hefur lækkað úr 42 krónum í 39 krónur frá jólaföstu- samningunum," sagði Jóngeir. Bolli Þór Bollason hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofunun sagði í sam- tali við Morgunblaðið að of snemmt væri að meta þau áfhrif sem yfir- standandi samningalota hefði. Hinsvegar setti allt sem færi fram- úr jólaföstusamningunum vissa pressu á efnahagslífið þótt erfitt væri að meta hvað væru beinar launahækkanir og hvað kæmi fram sem launaskrið. „Hættan er að ef samið er um beinar launahækkanir umfram desembersamninganna hafi það fordæmisáhrif. Slíkt virðist ekki vera fyrir hendi í nýju samn- ingunum við fyrstu sýn og önnur áhrif eru meira langtímaáhrif,“ sagði Bolli. Bolli sagði að ekkert hefði gerst á síðustu vikum sem breyti þeirri verðlagsspá sem gerð var í byrjun mars. Þjóðhagsstofnun myndi síðan bíða eftir að þessi kjarasamninga- lota gangi yfir og reyna að meta stöðuna eftir það.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.