Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
19
samtökum þeirra ábyrgð á sinni
framleiðslu. Þau hús sem og sá hlut
framleiðslunnar sem neitendur
vildu, seldist þá fyrst. Samkeppnin
um sölu neyddi sláturhúsin til að
leggja meira kapp á sölumennsku
og vinnslu. Það kjöt sem eftir yrði,
yrði ríkið að kaupa, en eðlilegt
væri að fyrir það kjöt fengist lægra
verð og niðurfelldur geymslukostn-
aður. Það er þannig að það gæti
vantað kindakjöt af þeirri gerð sem
fólk helst vill þó frystigeymslur séu
yfirfullar af kjöti. Það er engin
ástæða til að hafa fleiri við kjöt-
framleiðslu en tækni og aðstæður
gefa tilefni til. Það liggja fyrir
gríðarleg verkefni sem taka þarf
til við strax. Hér á ég við skógrækt
og ekki síður uppgræðslu. Það eru
víða gríðarleg flæmi sem girða þarf
og eins þarf að sá lúpínu þar sem
hún á við, melgresi annars staðar,
birki og nytjaskógi þar sem það á
við. Verkefnið er svo stórt að áburð-
ardreifing á aðeins við á takmörk-
uðum svæðum. Það mætti hugsa
sér að bændur fengju ákveðið á
hektrara fyrir að girða hann og
síðan fyrir uppræktun. Það þarf að
beina styrkjunum til landbúnaðar-
ins inn á þessa braut. Bændur verða
að hafa stefnu sem þorri fólks get-
ur sætt sig við. Það er miklu
vænlegra en að reiða sig á ein-
hveija ákveðna stjómmálaflokka.
Stjórnmálamenn hafa verið að
hræra í málefnum okkar stéttar og
margt hefur verið til bölvunar. Það
að hlúa að ræktun landsins okkar
getur aldrei orðið annað en innlegg
í banka framtíðarinnar. Einn rnillj-
arður á ári væri sú tala sem ég
teldi raunhæfa til landgræðslu og
skógræktar. Landið á það inni hjá
þjóðinni að tekið verði til hendinni.
Byggðastefna sem skattur á kjöt
stenst ekki.
Höfundur er bóndi á Daðastöðum
í Norður-Þingeyjarsýslu.
Sýning á gluggaskreyting-
um í Du Pont-skólanum
Jónshúsi, Kaupmannahöfn.
NEMENDUR Du Pont-skólans héldu hina árlegai sýningu
sína 19. mars sl. í skólanum er kennt allt það er glugga-
útstillingar varðar og er hann einn af örfáum sinnar
tegundar á Norðurlöndum. Du Pont-skólinn er vel þekkt-
ur heima þar sem fjölmargir íslendingar hafa stundað
þar nám þessi 27 ár, sem hann hefur starfað.
Gluggi Steinunnar Ólafsdóttur og Diljár Einarsdóttur varð nr. 1.
í vetur eru alls 27 nemendur í
skólanum, þar af 7 íslendingar,
og láta þeir vel af náminu undir
stjórn skólastjórahjónanna Du
Pont. Fimm Norðmenn eru meðal
nemenda og einn Færeyingur, en
10 íslenzkir nemendur hafa þegar
látið skrá sig fyrir næsta vetur.
Á sýningunni sl. fimmtudag
Gluggi Gunnhildar Þórarins-
dóttur og Elínar B. Ingólfs-
dóttur varð nr. 3.
Gluggi Brynju Hauksdóttur og
Þórunnar Pétursdóttur varð
nr. 5.
voru 12 stórir gluggar og dæmdu
sýningargestir um röðun á þeim
skriflega. Flest atkvæði fékk
gluggi Steinunnar Ólafsdóttur og
Diljár Einarsdóttur, en í honum
var glösum af mismunandi stærð-
um raðað sem taflmönnum á
skákborð. Næstflest atkvæði fékk
norsk stúlka og tvær danskar
stöllur hennar, en þriðju urðu
íslenzku stúlkurnar Gunnhildur
Þórarinsdóttir og Elín Björg In-
gólfsdóttir og var gluggi þeirra
umgjörð um Salvador Dali-ilm-
vatnið. Auk framangreindra eru
íslenzkir nemendur Du Pont-skól-
ans Brynja Hauksdóttir og
Þórunn Pétursdóttir, gluggi þeirra
nr. 5, og íris Jensen. Munu þær
allar ljúka prófi í vor en skólinn
stendur út júnímánuð og eru tek-
in próf í öllum kennslugreinum
skólans, sem eru fjölmargar.
Flestir íslenzkir nemendur skól-
ans hafa farið heim til starfa, en
nokkrir farið í starfsþjálfun hér
hjá útlærðum gluggaskreytingar-
manni, sem tekur tvö ár og gefur
meiri réttindi.
— G.L. Ásg.
TOYOTA
• VESTMANNAEYJAR • VESTMANNAEYJAR
Víð eruni á leiðinni til vkkir með
ThvotafiöHin!
Um helgina verða Toyota Land Cruiser og Hi Ace 4X4 áþreifanlegir
hjá Fjölverki s/f, reiðubúnir til skoðunar og reynsluaksturs.
Við rennum í hlað kl. 10.00 á laugardag en leggjum aftur í hann
kl. 17.00.
Við vonumst til að sjá ykkur í góðu bílaskapi
v
TOYOTA LAND CRUISER STW. „torfærutröllið"
með 100% læsingu á drifum, 4 lítra, 6 strokka
dísil turbo, 5 gíra beinskiptur.. .
TOYOTA LAND CRUISER II, beinskiptur 5 gira,
vökva- og veltistýri, 2.4 lítra bensínvél eða dísil
turbo, breið dekk, driflokur...
Hl ACE 4X4, 8 manna með „de luxe" innrétt-
ingu, vökvastýri, 5 gíra beinskiptur, 2.4 lítra dísil-
vél... sjón er sögu ríkari!
TOYOTA
AUK h(. 109.6/SlA