Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
Júgóslavía:
Ekkert lát á
verkfölhmum
Belgrað. Reuter.
IIM 10.000 manns eru nú í verk-
falli í Montenegro eða Svartfjall-
alandi í Júgóslavíu og virðist
ekkert lát ætla að verða á ólg-
unni í landinu.
Tanjug-fréttastofan júgóslavn-
eska sagði í gær, að verkafólk á
20 vinnustöðum væri nú í verkfalli
í Svartfjallalandi og væri ástæðan
alls staðar sú sama, lækkandi laun
á tímum óðaverðbólgu. Sagt var,
að 600 verkamenn hefðu t.d. lagt
niður vinnu í byggingarfyrirtæki í
Titograd, höfuðborg héraðsins, og
höfðu þeir þá ekki ferigið launin sín
greidd í þijá mánuði.
Verðbólga í Júgóslavíu er um
100% og í febrúar gripu stjórnvöld
til launastöðvunar í þeirri von, að
með því tækist að ná tökum á efna-
hagsvandanum. Hafa verkföll verið
tíð í landinu síðan enda þýða þessar
aðgerðir í raun launalækkun. Lág-
markslaun í landinu eru 50.000
dinarar og samvarar það tæplega
4000 ísl. kr.
Indland:
Hryðjuverkamenn
PLO þar í felum?
Nýju Delhi, Reuter.
FJÓRIR skæruliðar Palestínu-
manna, sem eru grunaðir um að
vera félagar í samtökum þeim,
sem rændu bandarískri farþega-
vél á lcið til Pakistan í fyrra,
hafa verið á laun í Indlandi síðan.
Frá þessu sagði indverska frétta-
stofan í morgun, fimmtudag.
Fréttastofan kvaðst hafa þetta
eftir ábyrgum stjórnarerindareka-
heimildum sem ekki yrðu nafn-
greindar að sinni. í fréttinni sagði
að mennirnir tilheyrðu Abu Nidal
hópnum, sem sagði skilið við PLO
fyrir röskum tíu árum. Fyrr hafði
verið sagt frá því að frétzt hefði
af fímm hryðjuverkamönnum úr
þessum hópi, sem hefðu komið til
Indlands með fölsk skilríki í fyrra.
Pan American vélinni var rænt
þann S.september 1986 og tuttugu
manns létu lífið þegar pakistanskir
öryggisverðir gerðu árás á hana.
Auk þess er Abu Nidal hópurinn
talinn ábyrgur fyrir aðskiljanlegum
hryðjuverkum, víða um heim, meðal
annars árásir á flugstöðvarnir í
Róm og Vínarborg fyrir tveimur
ái-um. Þá dóu 20 manns og tugir
særðust.
Ekki kemur fram í fréttinni,
hvort einhveijar aðgerðir eru í und-
irbúningi um að koma höndum yfir
hiyðjuverkamennina, ef rétt er að
þeir hafist við í Indlandi.
Sprungiir í
stéli DC-10
Long Beach, AP.
DOUGLAS-flugvélaverksmiðj-
urnar hafa ráðlagt flugfélögum
að láta fara fram sérstaka skoð-
un á breiðþotum af gerðinni
Evrópubandalagið:
Ottast
hækkandi
lyfjaverð
Briissel, Reuter.
VERÐ á lyfjum kann að
hækka verulega i sumum að-
ildarlöndum Evrópubanda-
lagsins (EB), ef áætlanir um
eftirlit með lyfjaverði innan
bandalagsins verða sam-
þykktar. Var þessu haldið
fram að helztu neytendasam-
tökum EB í gær.
Samtök þessi (BEUC) telja, að
áform Framkvæmdaráðs EB
geti leitt til þess, að verð á lyfj-
um, sem nú er mismunandi frá
einu aðildarlandi EB til annars,
geti átt eftir að hækka til jafns
við lyf í Bretlandi. Þar er lyfja-
verð mjög hátt.
Áform framkvæmdaráðsins
miða að því að verðmismunurinn
hverfi og að dregið verði úr
opinberu eftirliti með verðlagn-
ingu lyfja.
DC-10 til að kanna hvort
sprungur kunni að leynast í stéli
þeirra.
Douglas sendi út viðvörun eftir
að sprungur fundust í stéli þriggja
flugvéla af gerðinni DC-10 í eigu
svissneska flugfélagsins Swissair.
Aðeins þarf þó að skoða þotur, sem
hefur verið flogið í yfir 40 þúsund
flugstundir eða hafa meira en 10
þúsund lendingar að baki.
Viðvörunin nær til 199 þotna
af gerðinni DC-10 í eigu 47 flugfé-
laga, en það er innan við helming-
ur flugvéla af þessari tegund.
Lögðu verksmiðjurnar áherzlu á
að skoðun flugvélanna yrði lokið
fyrir næstu helgi til þess að geri
megi ráðstafanir áður en sprung-
ur, sem hugsanlega kynnu að
leynast í þotunum, yrðu hættulega
stórar.
Gapandi hvoftar mannætukrókódíls í Ástralíu.
Reutxír
Mannætukrókódíl-
um fjölgar í Astralíu
Sydney, Reuter.
Mannætukrókódílum í Ástralíu, sem voru friðaðir fyrir tuttugu
árum vegna þess að þeir voru í útrýmingarhættu, hefur fjölgað
mikið í hitabeltisám og votlendi á norðurslóðum álfunnar. Undan-
farna fimmtán mánuði hafa krókódilarnir orðið a.m.k. átta manns
að bana og embættismenn segja að um fleiri fórnarlömb gæti
verið að ræða. Menn í ferðamannaþjónustu telja aftur á móti að
þeir gætu laðað að ferðamenn, sem haldnir eru ævintýraþrá.
Bandarísk kona að nafni Ginger
Fay Meadows varð krókódíl að
bráð þegar hún var að synda í
afskekktri á í norð-vesturhluta
Ástrálíu fyrir skemmstu. Tveimur
vikum áður varð bandarískur
ferðamannahópur vitni að því
þegar krókódíll greip ástralskan
veiðimann milli skolta sér og drap
hann í þjóðgarði á norðurslóðum.
Ástríalíubúar segja að krókódíl-
arnir séu einfaldlega hluti af
vistkerfinu og embættismenn,
sem hafa umsjón með villtu dýr-
alífi, segja að ekki komi til greina
að hefja linnuleisar veiðar á
krókódílunum þrátt fyrir að Me-
adows hafi beðið bana.
Hættulegustu krókódílar í
Ástralíu lifa í söltu vatni og kalla
innfæddir þá „salties". Þeir drepa
og goyma fórnarlömb sín undir
mjúkum árbakkanum dögum
saman áður en þeir éta þau.
Frumbyggjar Ástralíu, sem marg-
ir hverjir tengja skriðdýrið trúar-
brögðum sínum og greina sjaldan
frá árásum þess, segja að
krókódílarnir geti gleypt mann í
heilu lagi.
Mannætukrókódíllinn og ætt-
ingi hans, sem lifir í ferskvatni
og er ekki talinn hættulegur
mönnum, voru í útrýmingarhættu
vegna hinna eftirsóttu skinna
þeirra. Árið 1969 var bannað að
drepa þá. Síðan hefur krókódílun-
um fjölgað hratt og er talið að
þeir séu nú milli sextíu og sjötíu
þúsund.
Að sögn eftrlitsmanna hefur
friðunin hleypt kjarki í mannætu-
krókódílinn. Mörg karldýr hafa
nú náð fullorðinsaldri og eru að
marka sér yfirráðasvæði. Á því
skeiði eru krókódílarnir hættuleg-
astir.
Embættismenn segja að
lífshættir krókódílanna hafi ekki
verið brotnir til mergjar og lítið
um þá vitað. Erfitt sé að segja á
hvaða svæðum er óhætt að at-
hafna sig því ekki er vitað á hve
stóru svæði þeir halda sig. Þá sé
ekki hægt að merkja vatnasvæði,
sem krókódílarnir flnnast á, með
viðvörunarskiltum annars vegar
vegna kostanaðar, hins vegar
vegna víðfemi og almenningur
komist ekki þangað nema á bát-
um.
Graeme Webb, ráðgjafi Nátt-
úruverndarráðs norðursvæðanna,
segir að krókódílarnir hafi ekki
náð sama fjölda og rétt fyrir
heimsstyijöldinna síðari. Talið er
að þeir hafi þá verið um 250 þús-
und. „Útrýming er fráleitur
kostur,“ segir Webb. „Einu gildir
hvort við fimm eða tíu krókódíla
er að etja, við viljum ekki að fólk
syndi þarna.“ Krókódílar, sem lifa
í söltu vatni, þrífast við sjóinn og
þar sem árósar teygja sig langt
inn í land. „Fólk verður einfald-
lega að gera sér grein fyrir
hættunni, sem fylgir því að synda,
þar sem flóðs og fjöru gætir,"
segir Webb.
Hækka benzín til að mæta
útgjöldum til varnarmála
Stokkhólmi, Rcuter.
SÆNSKA stjórnin ákvað í gær
að hækka skatta á benzíni og
olíu til húshitunar. Hækkunin
tekur gildi 1. júlí nk. og er til-
gangur hennar að fjármagna
aukningu á útgjöldum til varn-
Charter 77:
Sovétmenn kalli herinn heim
Vínarborg, Reuter.
Mannréttindahópurinn Charter 77 skoraði í dag á Ieiðtoga Sov-
étríkjanna Mikhail Gorbasjev, að kalia alla sovézka hermenn brott
af tékknesku landi og það fyrr en síðar. Gorbasjev kemur í heim-
sókn til Prag í næstu viku. Undir áskorunina skrifar tuttugu og
einn forsvarsmanna Charter 77.
Bréfið var birt í Vínarborg í
morgun og sagði þar meðal annars:
Með því að kalla hersveitirnar heim
myndi Mikhail Gorbasjev sýna í
verki að hann gerði sér grein fyrir
þeim ómælanlega skaða sem innrás
Sovéthetjanna á sínum tíma hafði
í för með sér. í bréfinu er einnig
bent á, að þar með sýndi leiðtoginn
svo að ekki væri um villzt, að hon-
um væri alvara með yfirlýsingum
sínum um breytingar sem miðuðu
að opnara þjóðfélagi.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum eru nú áttatíu þúsund
sovézkir hermenn í Tékkóslóvakíu.
Meðal þeirra sem skrifa undir er
leikritahöfundurinn Vaclav Havel
og fyrverandi utanríkisráðherra Jiri
Hajek.
armála.
Nýlega ákvað ríkisstjórnin að
auka hlutfall útgjalda til varnar-
mála um 1,7% á ári næstu fimm
árin. Til þess að mæta þeirri út-
gjaldaaukningu ákvað stjórnin að
hækka skatta á benzíni og olíu.
Samkvæmt upplýsingum fjár-
málaráðuneytisins hefur það í för
með sér 13 aura hækkun, 80 ísl.
aura, á líter, sem kostar að jafn-
aði 4,21 krónu eftir hækkunina.
Ráðuneytið sagði að olíufyrirtækin
yrðu að bera sjálf hluta hækkunar-
innar í stað þess að láta neytendur
bera hana alla, þar sem þau myndu
njóta þess á móti að ákveðið hefur
verið að minnka þær benzínbirgð-
ir, sem þeim er gert að halda öllum
stundum.