Morgunblaðið - 03.04.1987, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
Reiður ungur maður
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Blue City. Sýnd í Tónabíói.
Stjörnugjöf: ☆ ‘/z.
Bandarísk. Leikstjóri:
Michelle Manning. Handrit:
Lukas Heller og Walter Hill
eftir sögu Ross Macdonald.
Framleiðendur: William Hay-
ward og Walter Hill. Tónlist:
Ry Cooder. Helstu hlutverk:
Judd Nelson, Ally Sheedy.
Á milli þess sem Walter Hill
leikstýrir sjálfur þeim myndum
sem hann hefur áhuga á með
mestum ágætum yfirleitt setur
hann aðra í leikstjórasætið og
gegnir starfí framleiðandans eða
jafnvel handritshöfundarins á
meðan. Það fer t.d. ekki hátt
að hann var annar af framleið-
endum geimhrollvekjunnar
Alien árið 1979. Blue City, sem
sýnd er í Tónabíói og hann skrif-
ar handrit að með Lucas Heller
og framleiðir líka í samvinnu við
William Hyward, sýnir aðeins
að hann ætti helst ekki að láta
neinn í leikstjórastólinn nema
sjálfan sig. Jú, hún sýnir líka
að Pauline Kael hafði rétt fyrir
sér þegar hún sagði um Nætur-
vörðinn eftir Liliani Cavani, að
konur gætu líka gert slæmar
myndir.
Annars er það kannski ekki
aðeins leikstjóranum Michelle
Manning, sem er ein af fáum
kvenleikstjórum í Hollywood, að
kenna hvemig fer fyrir Blue
City með þeim unglingastjömum
Judd Nelson og AUy Sheedy í
aðalhlutverkum af því handritið
er ómögulegt á stómm pörtum.
Myndin er lítt athyglisverð for-
múlumynd sem vantar rökrænt
samhengi og það sem bráðvant-
ar er tilfínning fyrir persónum
og leikendum og efniviðnum frá
upphafí til enda. Það er ekki til-
fínning í þessari mynd frekar
en tjaldinu sem hún er sýnd á.
Dæmi um afdankaðan húmor-
inn og yfírborðsmennskuna er
atriðið þegar Judd Nelson fréttir
að faðir hans í myndinni hafi
verið myrtur, en Nelson hafði
ætlað að hitta og sættast við
hann eftir fímm ára aðskilnað.
Það eina sem hann hefur að
segja er eitthvað á þá leið að
hann sé búinn að ferðast alla
þessa leið og þá þurfi kallinn
endilega að vera dauður. Upp
úr því á maður í miklum erfið-
leikum með að skilja hvernig
hann nennir að hefna föður síns
yfírleitt.
Sögusviðið er smábær í
Flórída þar sem hverskyns spill-
ing á að viðgangast. Eina spill-
ingin sem maður verður var við
í „spillingarbælinu" er spilavíti
og það er ekkert til að roðna
yfír. Það er mikið lagt upp úr
því að sýna hetjuna Nelson
brenna eitthvert einn síns liðs á
stóra mótorhjólinu sínu, sem
beið hans heima öll þessi ár eins
og tryggur gæðingur, og Nelson
er mikið að reyna að leika reiðan
ungan mann í leit að föðurmorð-
ingja sínum og um leið fyndinn
og kaldan töffara. Það fer ein-
hvem veginn ekki saman í þessu
tilviki.
Hann kemst að því pabbi hans
var plataður í hjónaband af fólki
sem svo tók yfir eignir hans og
Judd Nelson mundar byssuna í
Nelson einbeitir sér að því að
hrella það ásamt æskuvini
sínum. Vinurinn er drepinn og
í hápunktinum í lokin kemur
allt í einu í ljós að allt sem á
undan er gengið vai' byggt á
Blue City.
misskilningi.
Það eru einstaka atriði ágæt
í Blue City en hún er metnaðar-
laus færibandamynd eins og
raunar flestir hennar líkar.
Stoupa
steínn
Opið öll kvöld.
Jónas Hreinsson
frá Vestmannaeyjum skemmtir
gestum.
Ekkert rúllugjald
Y-bar
Smiðjuvegi 14d, Kópavogi, s: 78630.
Félaesvist
kl, 9.00___
Gömlu dansarnir
kl. 10.30
Hljomsveitin
I iylíir
ÍT Miáasala opnarkl. 8.30
★ Góó kvöld veröla un
it Stuó og stemmning á Gúttógleði
S.G.T._____________________
Templarahöllin
Eiriksgötu 5 - Simi 20010
Staður allra sem vilja skemmta sér án áfengis.
Keflavík
MIVGMAIVTVA KVABIErniVA
MATTHIAS A. MATHIESEIV,
Ljósmvndari Gunnar V. Andrésson.
ásamt stórhljómsveitinni
PAPER LACE
skemmta á stórdansleik ungra sjálfstæðismanna
í Reykjaneskjördæmi í Glaumbergi
í kvöld kl. 21:00 - 03:00
Hljómsveitin PÓNiK leikur fyrir dansi.
Skemmtistjóri:
ELLERT EIRÍKSSON
Gestir kvöldsins:
VÍGLUNDUR ÞORSTEINSSON
ÞORGILS ÓTTAR MATHIESEN
Miðaverð kr. 600.-
Fríar rútuferðir kl. 20:30 frá sjálfstæðishúsunum
í Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði.