Morgunblaðið - 03.04.1987, Qupperneq 6
6
MOHGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
Vagg og
velta
Að þessu sinni skruppu umsjón-
armenn þáttarins í takt við
tímann, þau Jón Hákon Magnússon,
Elísabet Þórisdóttir og Ólafur H.
Torfason um borð í hinn nýstofnaða
Slysavarnaskóla í Sæbjörgu. Fremur
var nú þröngt um kvikmyndatækin
í Sæbjörgu, en samt tókst mönnum
að mynda gestina er meðal annars
brugðu sér í sjómann. Þá söng Kar-
lakór Reykjavíkur alþekkt sjó-
mannalög út við Reykjanesvita; allir
í sínu fínasta pússi nema forsöngvar-
inn, Kristinn Sigmundsson, sem var
í gallabuxum. Og þar með er ekki
öll sagan sögð. Rétt þegar Jón Há-
kon var að kveðja áhorfendur úr
brúnni og sneri þar heldur ófag-
mannlega stýrishjólinu á Sæbjörgu,
en sneri nú samt og saltbragðið í
vitum áhorfenda — birtist þá ekki
popphljómsveit eins og skrattinn úr
sauðarleggnum, að vísu með slysa-
vamafélagshjálma. Einhvern veginn
hafði ég á tilfinningunni að stjóm-
endur Sæbjargarþáttarins hafi ekki
ráðið miklu um þennan heldur
ósmekklega lokapunkt skipsferðar-
innar því raunverulega hafði Jón
Hákon kvatt áhorfendur í brúnni þá
hann sneri stýrishjólinu. Hið stór-
kostlega átak, sem hefir verið gert
í slysavörnum sjómanna með stofn-
un Sæbjargarskólans, átti skilið
jafnvel ennþá ítarlegri umfjöllun en
rúmaðist í hinum stutta þætti
þríeykisins, en stefna sjónvarpsins
virðist nú einu sinni vera sú að
magn innlendrar dagskrár skipti
meira máli en gæði enda má svo sem
gera ráð fyrir því að við uppgjör
ársins verði vitnað í tölfræðileg rök
er sýni „gífurlega aukningu innlends
sjónvarpsefnis". Að mínu mati var
Sæbjargarskólaþátturinn allítarleg-
ur — svo langt sem hann náði —
og óþarfi að poppa þáttinn svona í
lokin, en ónefndir dagskárgerðar-
menn virðast telja lífsnauðsynlegt
að „rafmagna" innlenda þætti í tíma
og ótíma.
Happ í hendi
Nýjasta afkvæmi Stöðvar 2 nefn-
ist Happ í hendi, saklaus spuminga-
þáttur í umsjón Bryndísar Schram.
I þætti þessum snúa menn lukku-
hjóli og fara í orðaleiki og ef allt
gengur að óskum geta menn hreppt
ferð til Amsterdam nú eða í versta
falli ostaskerara. Starfsfólk Sólar
hf. þreytti frumraunina og fóru svo
leikar að einn ágætur maður sat
uppi með ostaskerara og ryksugu í
sárabætur; ekki hefði ég viljað
storma með þau tól til minnar ekta-
kvinnu. Þáttur Bryndísar er að því
er mér sýnist sniðinn að engilsax-
neskri fyrirmynd og getur svo sem
vakið bros og smáspennu í malla-
kútnum. Væri ekki upplagt fyrir
ríkissjónvarpið að efna til svipaðrar
keppni og leggja peninga undir og
þá meina ég seðlabúnt lögð til af
veðmöngurum.
Óhljóð
Ég vil beina þeim tilmælum til
morgunþáttarstjóra rásar 2 að þeir
endurskoði „óhljóðin", sem þeir
skjóta inní spurningaþættina,
óhugnanlegum hlátursrokum og
brothljóði. Raunar mættu dagskrár-
stjóramir athuga vel hin ýmsu
„hljóðmerki", sem skotið er inní dag-
skrána í tíma og ótíma. Þessi
hljóðmerki og reyndar líka hinar
endalausu dagskrárkynningar á
Bylgjunni geta hvekkt hlustendur.
Jóhanna
Ég vil svona að lokum minnast á
Flóamarkaðinn er Jóhanna Harðar-
dóttir stýrir á Bylgjunni. Jóhanna
stýrir þætti þessum einstaklega lip-
urlega, en í mörg hom er að líta
þegar hlustendur auglýsa jafnvel til
sölu . . . konur . . . það er ham-
strakellingu og . . . fimm böm.
Ólafur M.
Jöhannesson
ÚTVARP/SJÓNYARP
Einskis
manns
land
■■■■ Einskis manns
QQIO 'and, sviss-
“ð nesk-frönsk
bíómynd frá árinu 1984 er
á dagskrá sjónvarps í
kvöld. Myndin fjallar um
einstaklinga sem búa rétt
við landamæri Frakklands
og Sviss. Þetta fólk unir
ekki hag sínum af ýmsum
ástæðum og leiðist út í
smygl. Milli tollstöðva er
skógivaxið einskis manns
land og þar er vettvangur
smyglaranna að næturlagi.
Kvikmyndin Einskis manns land er á dagskrá sjón-
varps í kvöld
Bylgjan:
Chico
de Barge
1 A 00 Pétur Steinn
A mun taka
söngvarann og lagasmið-
inn Chico de Barge tali í
beinni útsendingu éftir há-
degið en Barge er nú
staddur hér á landi. Lagið
hans „Talk to me“ hefur
notið mikilla vinsælda víða
um heim að undanfömu.
Kl. 16.30 er viðtal í beinni
ntsendingu við meðlimi
hljómsveitarinnar „Paper
lace“ en hljómsveitin kem-
ur nú fram í fyrsta sinn á
íslandi. Þeir félagar hafa
slegið í gegn með lögunum
„Billy don’t be að hero“ og
„The night Chicago died“.
Þá verður einnig rætt við
liðsmenn hljómsveitanna
sem komust í úrslit Músíkt-
ilrauna Bylgjunnar og
Tonabæjar í gærkvöldi.
UTVARP
©
FOSTUDAGUR
3. apríl
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin — Jón
Baldvin Halldórsson og Jón
Guðni Kristjánsson. Fréttir
eru sagðar kl. 7.30 og 8.00
og veöurtregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25. Erlingur
Siguröarson talar um dag-
legt mál kl. 7.20.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
9.05 Morgunstund barn-
anna: „Enn af Jóni Oddi og
Jóni Bjarna", eftir Guðrúnu
Helgadóttur. Steinunn Jó-
hannesdóttir les (4).
9.20 Morguntrimm. Lesið úr
forystugreinum dagblað-
anna. Tónleikar.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.30 Sögusteinn. Umsjón
Haraldur Ingi Haraldsson.
(Frá Akureyri.)
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur. Umsjón:
Siguröur Einarsson.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Áfram
veginn", sagan um Stefán
íslandi. Indríðí G. Þorsteins-
son skráði. Sigríður Schiöth
les (30).
14.30 Nýtt undir nálinni. Elín
Kristinsdóttir kynnir lög af
nýjum hljómplötum.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tonleikar.
15.20 Landpósturinn. Lesið úr
forystugreinum landsmála-
blaða.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.05 Dagbókin — Jóhanna
Hafliðadóttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Fréttir. Tilkynningar.
17.03 Síödegistónleikar.
a. Giuseppe di Stefano
syngur lög frá Napólí.
b. Varsjárkonsertinn eftir
Richard Addinsell. Isador
Goodman leikur á píanó
með Sinfóníuhljómsveitinni
í Melbourne; Patrick Thom-
as stjórnar.
17.40 Torgið. Viðburðir helg-
arinnar. Umsjón: Þorgeir
Ólafsson.
18.00 Fréttir. Tilkynningar.
18.05 Torgið, framhald. Til-
kynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar. Daglegt
mál. Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Erlingur Sigurð-
arson flytur.
19.35 Bein lina til stjórnmála-
flokkanna. Annar þáttur:
Fulltrúar Flokks mannsins
svara spurningum hlust-
enda.
20.00 Tónskáldatimi
Leifur Þórarinsson kynnir
íslenska samtímatónlist.
20.40 Framboðskynning
stjórnmálaflokkanna
Þriðji þáttur: Framsóknar-
flokkurinn kynnir stefnu
sína.
21.00 Kvöldvaka •
a. Athafnamenn við Eyja-
fjörð. Bragi Sigurjónsson
flytur þriðja þátt sinn: Eng-
inn meðalmaður á ferð, um
útgerðarsögu Ásgeirs Pét-
urssonar.
SJÓNVARP
’ö?
FÖSTUDAGUR
3. apríl
18.00 Nilli Hólmgeirsson.
Tíundi þáttur í þýskum
teiknimyndaflokki. Sögu-
maður Örn Árnason.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
18.25 Stundin okkar — Endur-
sýning. Endursýndur þáttur
frá 29. mars.
19.00Á döfinni. Umsjón: Anna
Hinriksdóttir.
19.10 í deiglunni — endursýn-
ing. Mynd um Hel ;a Gísla-
son myndhöggve a og list
hans. Helgi hlaut í vetur
verðlaun fyrir tillögu sína að
listaverki við nýja útvarps-
húsið við Efstaleiti.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Poppkorn. Umsjónar-
menn: Guðmundur Bjarni
Haröarson og Ragnar Hall-
dórssön.
20.00 Fréttir og veður.
20.35 Auglýsingar og dag-
skrá.
20.40 Göngum í reyklausa lið-
ið.
20.50 Unglingarnir í frum-
skóginum. Frá islands-
meistarakeppninni í dansi
með frjálsri aðferö sem háð
var í Tónabæ á dögunum:
Einstaklingskeppni. Stjórn
upptöku: Gunnlaugur Jón-
asson.
21.35 Mike Hammer. Tíundi
þáttur í bandarískum saka-
málamyndaflokki. Þýðandi
Stefán Jökulsson.
22.25 Kastljós. Þáttur um inn-
lend málefni. Umsjón: Helgi
E. Helgason.
23.00 Seinni fréttir.
23.10 Einskis manns land. (No
Man's Land). Svissnesk-
frönsk bíómynd frá árinu
1984. Leikstjóri Alain Tann-
er. Aöalhlutverk Hugues
Quester, Myriam Méziéres,
Jean-Philippe Ecoffey og
Betty Berr. Beggja vegna
landamæra Frakklands og
Sviss búa einstaklingar sem
ekki una hag sínum af ýms-
um ástæðum. I von um
betri tíð leiðist þettá fólk út
í að smygla varningi, fólki
og peningum milli land-
anna. Milli tollstöðva land-
anna liggur skógi vaxið
eiskis manns land og er þar
vettvangur smyglaranna að
næturlagi. Þýðandi Ólöf
Pétursdóttir.
1.00 Dagskrárlok.
6
0:
STOÐ2
FÖSTUDAGUR
3. apríl
§ 18.00 Einstök vinátta (Spec-
ial Friendship). Ný
bandarísk sjónvarpsmynd
með Tracy Bollan og
Akosua Busia í aðalhlut-
verkum. Mynd þessi, sem
byggð er á sannsögulegum
heimildum, segir sögu
tveggja stúlkna sem gerast
njósnarar í þrælastríðinu.
19.45 Viðkvæma vofan.
Teiknimynd.
20.10 Opin lína. Á milli kl.
20.00 og 20.15 gefst áhorf-
endum Stöðvar 2 kostur á
að hringja í síma 673888
og bera upp spurningar. I
þessum þætti fjallar Bryndis
Schram um brjóstagjöf.
20.30 Klassapíur (Golden
Girls). Bandarískur gaman-
þáttur um hressar konur á
besta aldri. í þessum þætti
ákveða Klassapíurnar að nú
sé tími til Kominn að læra
steppdans.
§21.00 Geimálfurinn. Það
er líf og fjör á heimili Tanner
fjölskyldunnar eftir að geim-
veran Alf bættist í hópinn.
§21.30 Endurfundir (In-
timate Strangers).
Bandarísk sjónvarpsmynd
með Teri Garr, Stacy Keach
og Cathy Lee Crosby í aöal-
hlutverkum. l’ lok Vfetnam-
stríösins verða læknishjón
viðskila og konan verður
eftir i Víetnam. Tiu árum
síðar tekst henni að komast
heim á ný og verða þá fagn-
aðarfundir.
§ 23.05 Náttfari (Midnight
Man). Bandarisk biómynd
með Burt Lancaster i aðal-
hlutverki. Lögreglumaður
við háskóla nokkurn fer að
grennslast fyrir um dauða
eins nemandans.
00.35 Dagskrárlok.
b. Þrir mansöngvar. Svein-
björn Beinteinsson kveður
úr frumortum rímum.
21.30 Sígild dægurlög.
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passiusálma.
Andrés Sjörnsson les 33.
sálm.
22.30 Vísnakvöld. Aðalsteinn
^1
FOSTUDAGUR
3. april
00.10 Næturútvarp.
6.00 I bitið. Erla B. Skúladótt-
ir léttir mönnum morgun
verkin, segir m.a. frá veöri,
færð og samgöngum og
kynnir notalega tónlist í
morgunsárið.
9.05 Morgunþáttur í umsjá
Kolbrúnar Halldórsdóttur og
Kristjáns Sigurjónssonar.
Meðal efnis: Óskalög hlust-
enda á landsbyggöinni og
getraun.
12.20 Hádegisfréttir.
12.46 Á milli mála. Leifur
Hauksson kynnir létt lög við
vinnuna og spjallar við
hlustendur. Afmæliskveöj-
ur, bréf frá hlustendum o.fl,
o.fl.
16.05 Hringiðan. Umsjón:
Broddi Broddason og
Margrét Blöndal.
Síðdegisútvarp rásar 2,
fréttatengt efni og tónlist.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Lög unga fólksins. Val-
týr Björn Valtýsson kynnir.
21.00 Merkisberar. Skúli
Helgason kynnir tónlislar-
menn sem fara ekki troðnar
slóðir.
22.05 Fjörkippir. Erna Arnar-
dóttir kynnir dans- og
skemmtitónlist.
23.00 Á hinni hliöinni. Albert
Jónsson fréttamaöur velur
lögin.
00.10 Næturútvarp.
02.30 Ungæöi. Hreinn Valdi-
marsson og Siguröur
Gröndal senda hlustendum
tóninn og láta flest flakka.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 11.00, 15.00, 16.00,
17.00, 18.00, 22.00 og
24.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
daga vikunnar
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Asberg Sigurðsson sér um
þáttinn.
23.10 Andvaka. Þáttur í um-
sjá Pálma Matthiassonar.
(Frá Akureyri.)
24.00 Fréttir
00.10 Næturstund í dúr og
moll með Knúti R. Magnús-
syni.
01.00 Dagskrárlok. Næturút-
varp á rás 2 til morguns.
Inga Eydal rabbar við hlust-
endur og les kveðjur frá
þeim, leikur létta tónlist og
greinir frá helstu viðburðum
helgarinnar.
FOSTUDAGUR
3. apríl
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður litur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti. Fréttir kl. 7.00, 8.00
og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Föstu-
dagspoppið allsráðandi,
bein lína til hlustenda, af-
mæliskveðjur, kveðjur til
brúðhjóna og matarupp-
skriftir. Fréttir kl. 10.00,
11.00.
12.00-12.10 Fréttir.
12.10—14.00 Á hádegismark-
aði með Þorsteini J. Vil-
hjálmssyni. Fréttapakkinn,
Þorsteinn og fréttamenn
Bylgjunnar fylgjást með því
sem helst er í fréttum, segja
frá og spjalla viö fólk. Frétt-
ir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—16.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar síðdegispoppið og spjall
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Fréttir kl.
15.00, 16.00 og 17.00.
17.00—19.00 Ásta R. Jóhann-
esdóttir í Reykjavík síðdeg
is. Þægileg tónlist hjá Ástu,
hún litur yfir fréttirnar og
spjallar við fólkið sem kemur
við sögu. Fréttir kl. 18.00.
19.00—22.00 Tónlist úr ýms-
um áttum. Bylgjan kannar
hvað næturlífið hefur upp á
að bjóða.
22.00—03.00 Haraldur Gísla
son nátthrafn Bylgjunnar
kemur okkur í helgarstuð
með góðri tónlist.
03.00—08.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Hörður Arnar
son leikur tónlist fyrir þá
sem fara seint í háttinn og
hina sem fara snemma á
fætur.