Morgunblaðið - 03.04.1987, Qupperneq 30
30
MOKGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
Ný kynslóð IBM-tölva
afhjúpuð um allan heim
NÝ KYNSLÓÐ IBM einkatölva
var afhjúpuð í húsakynnum fyr-
irtækisins við Stakkahlíð klukk-
an half tvö í gærdag. Mikil leynd
hefur hvílt yfir þróun þessara
tölva sem ætlað er að taka við
af IBM PC. Fór afhjúpunin fram
samtímis um allan heim. Að sögn
Halldórs Friðrikssonar markaðs-
fulltrúa er hér um að ræða nýja
stefnu fyrirtækisins á sviði
einkatölva, sem byggð er á öðr-
um forsendum en „pésarnir".
Tölvurnar fylgja nýjum sam-
skiptastaðli sem tekinn verður
upp á öllum tölvum fyrirtækis-
ins. Þær eru þannig úr garði
gerðar að aðrir framleiðendur
geta ekki búið til samskonar vél-
ar án þess að brjóta einkaleyfi.
Nýju tölvurnar bera enska sam-
heitið „Personal System/2“, en á
íslensku verða þær kallaðar „ein-
valatölvur“. Þær nýjungar sem
kynntar voru í gær fylla raunar
hundraðið, í þeim flokki eru tölvur,
skjáir, prentarar, disklingadrif,
gagnaplötuspilarar og hugbúnaður.
Stýrikerfi einvalatölvanna er útgáfa
3.3 af PC-DOS, en í haust kemur
á markað nýtt stýrikerfi, „OS/2“
sem keyrt getur mörg forrit í einu.
Einvalatölvumar geta notað meg-
nið af hugbúnaði fyrir pésa, jafnt
þann sem skrifaður er fyrir einlita
og litaskjái.
Einvalatölvumar em byggðar
utan um þrjá misstóra örgjörva, en
svo nefnist miðstöð tölvunnar sem
tekur við skipunum og framkvæmir
þær. Kynntar vom fjórar tölvugerð-
ir sem greinast í átta undirgerðir.
Sú smæsta byggir á sama örgjörva
og pésamir. Tvær gerðir byggja á
sama örgjörva og IBM XT-286 en
sú stærsta Intel 80386 örgjörvanum
sem IBM hefur ekki áður notað.
Sameiginlegt einkenni tölvanna
er ný tengibraut, „Micro-Channel"
að nafni sem á að einfaida aðlögun
þeirra að sérstökum verkefnum og
viðbætur annarra framleiðenda. Þá
fylgja fjölskyldunni fjórir nýjir skjá-
ir. Miðað við tölvuskjái fyrir pésa
eru þeir með meiri myndupplausn,
sem gefur skýrari mynd, fleiri litum
og stærri fleti fyrir letur. Minnsti
skjárinn er svart-hvítur en þrír mis-
stórir litsjáir verða á boðsstólum.
Aðrar nýjungar em meðal annars
fjölþjóðlegt stafróf sem einvalatölv-
umar verða búnar. í því er gert ráð
fyrir öllum tungumálum sem nota
latneskt letur. Þetta mun meðal
annars flýta aðlögun erlends hug-
búnaðar að íslenskum aðstæðum,
því ekki verður lengur þörf á að
breyta skjástýringum og prenturum
vegna íslensks leturs.
Fjórar tölvugerðir sem
spanna vítt svið
Fjórar tölvugerðir heyra hinni
nýju kynslóð til sem greinast í átta
undirgerðir. Þær spanna að sögn
Halldórs sviðið frá pésunum sem
algengastir em á borðum notenda
í dag upp í fjölnotendakerfi sem
krefjast mikils hraða og geymslu-
rýmis.
Minnsta gerðin ber númerið 30
og er hún hugsuð sem arftaki IBM
PC XT. Hún er tvöfalt hraðvirkari,
með klukkuhraða 8 milljón rið
(Mhz) á sekúndu en notar sama
örgjörvan; Intel 8086 sem hefur 16
bita tengibrautir. Númer 30 verður
seld í tveimur útgáfum. Sú ódýrari
er með 3,5 þumlunga diskadrifum
sem geyma 750 kílóbæti (Kb), en
sú dýrari einu drifi og 20 mega-
bæta (Mb) hörðum diski. Eitt
kílóbæti er u.þ.b. 1024 stafir. Á
móðurborðinu er tengi og aðlögun-
arbúnaður sem áður var á sérstök-
um kortum. Minnið er stækkanlegt
í 640 kílóbæti.
Gerð 50 er einnig borðtölva. Hún
er búin Intel 80286 örgjörva og
klukkuhraða 10 Mhz. Undir PC-
DOS stýrikerfinu er hægt að keyra
m
öll forrit fyrir eldri gerðir pésa en
einnig verður hægt að nota eigin-
leika OS/2. Hún mun verða seld
með 3,5 þumlunga diskadrifi sem
rúmar 1,44 Mb og 20 Mb hörðum
diski. Undir OS/2 getur 16 Mb
minni inni í tölvunni, en fræðilega
getur minni hennar orðið 1 gíga-
bæti, eða eitt þúsund milljón bæti.
Gerð 60 hefur líka eiginleika og
gerð 50. Henni er ætlað að standa
á gólfi og undirgerðirnar tvær eru
búnar misstórum hörðum diskum,
44 Mb eða 70 Mb.
Stærsta einvalatölvan, gerð 80
stendur einnig á gólfi. Hún notar
Intel 80386 örgjörvan sem er 32
bita. Þijár undirgerðir eru í boði
með hörðum diskum frá 44 Mb upp
í 115 Mb. Klukkuhraði verðurýmist
16 Mhz eða 20 Mhz. Allar gerðirn-
ar eru búnar 3,5 þumlunga drifi
með 1,44 Mb geysmlurými. Með
viðeigandi stýrikerfi gefst mögu-
leiki á því að keyra mörg PC-DOS
forrit í einu í tölvunni. Orgjörvinn
getur notað 4 gígabæti af vinnslu-
minni, en „sýndarminni“ er allt að
65.536.000.000.000 bæti.
Gagnaspilarinn, geisladisklinga-
lesari og skrifari fyrir 130 mm
skífur, er einnig nýr af nálinni. Með
honum er hægt að skrifa einu sinni
á geisladiskling en lesa ótakmark-
að. Þessi tækni hefur verið nefnd
einritun-marglestur (Write-Once-
Read-Many) Hver diskur getur
innihaldið 200 megabæti gagna.
Þingeyri.
LÍTIÐ var um samskipti milli
fólks í snjóþyngslunum á mánu;
dag, nema við vinnufélaga. I
kvöldfréttum útvarps og sjón-
varps mátti heyra að mann hefði
tekið út af báti frá Patreks-
firði, Framnesinu, og um erfið-
leika þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar við það að sækja hann og
koma honum á sjúkrahús í
Reykjavík.
Þriðjudagsmorgun lá Framnes
ÍS 708, skuttogarinn frá Þingeyri,
hér við bryggju. Skúli Elíasson,
stýrimaður, baðst undan því að
skýra frá málsatvikum vegna slyss
þessa, fyrr en hann hefði gefið
skýrslu um atburðinn. Honum
sagðist síðan svo frá: Þegar þetta
gerðist um klukkan þijú aðfarar-
nótt 1. apríl var norð norðvestan
5-6 vindstig og gekk á með þéttum
éljum. Verið var að láta trollið fara
og fór þá einn skipvetjanna, Hrólf-
ur Elíasson, út með því. Á leiðinni
í sjóinn flæktist hann í spotta sem
er áfastur byssukrók skipsins og
hékk þar fastur fram undir það
að tekist hafði að ná trollinu inn,
en spotti þessi var einnig flæktur
í trollinu sjálfu. Þegar maðurinn
átti eftir um það bil tvo metra í
skutrennu skipsins losnaði hann
frá spottanum, en barst samt með
trollinu að skutrennunni, þar sem
skipveijar náðu honum. Við athug-
un kom í ljós að hann var með
oþið brot á vinstri upphandlegg og
mjög illa marinn. Komið var með
manninn til Patreksfjarðar klukk-
an 7.45 en þar tóku læknar við
honum og gerðu á honum bráða-
birgðaaðgerð fyrir flutning til
Reykjavíkur.
Hrólfur Elíasson, sem er bróðir
stýrimannsins, reyndist vera alvar-
lcga slasaður og liggur nú á
gjörgæsludeild Borgarspítalans, en
líður eftir atvikum samkvæmt
síðustu fréttum. Mikil mildi var að
ekki skyldi fara enn verr.
Hulda
Kökusala
Kvenfélags
Hallgríms-
kirkju
KÖKUSALA verður á vegum
Kvenfélags Hallgrímskirkju
laugardaginn 4. apríl og hefst
kl. 15.00 i safnaðarheimilinu.
Kvenfélag Hallgrímskirkju hefur
um dagana unnið mikið og gott
starf fyrir kirkjuna og stóran hluta
af búnaði hennar hefur það gefið.
Hallgrímskirkja væri ekki svo á veg
komin sem raun er á, ef Kvenfélags-
ins hefði ekki notið við.
Morgunblaðið/Bjami
Litaskjár með hárri upplausn, tengdur IBM einvalatölvu af gerðinni
80, sýnir hér flækinginn sem verið hefur tákn IBM-pésanna. Skjár-
inn getur birt 256 liti í einu, valda úr um 256.000 mögulegum.
Schubert-
tónleikar
hjá Tón-
listarfé-
laginu
WILLIAM Parker og Dalton
Baldwin munu flytja lög eftir
Franz Schubert í Austurbæj-
arbíói laugardaginn 4. april kl.
14.30. Fyrir þremur vikum fluttu
Kristinn Sigmundsson og Jónas
Ingimundarson lagaflokkinn
Vetrarferðin og á laugardaginn
gefst tækifæri til að heyra annan
lagaflokk eftir Schuhert, Die
Schöne Miillerin.
Þetta er í þriðja skipti sem Will-
iam Parker heldur tónleika fyrir
Tónlistarfélagið, en Dalton Bald-
win hefur verið tíður gestur hér á
landi.
Auk tónleikanna á laugardag
halda listamennirnir námskeið fyrir
söngvara og píanóleikara. Dalton
Baldwin heldur námskeið í sal Tón-
William Parker
listarskólans við Skipholt á sunnu-
daginn nk. kl. 10.00-13.00 og
16.00-19.00 og William Parker á
mánudaginn í Norræna húsinu kl.
10.00-13.00 og 14.00-17.00.
Miðar á tónleikana á laugardag-
inn fást í Bókabúð Lárusar Blöndal,
í Ístóni og við innganginn.
Morgunblaðið/Júlíus
Bragi Ásgeirsson, listmálari, við verk sem hann kallar „Sjóir
íslands".
Kjarvalsstaðir:
„Hughrif “ í
Vestursal
Bragi Ásgeirsson sýnir olíumyndir
BRAGI Ásgeirsson opnar á
morgun sýningu á 88 oliumynd-
um í Vestursal Kjarvalsstaða.
Sýninguna nefnir Bragi „Hug-
hrif“ og er það 9. stóra einka-
sýningin sem hann heldur. Sína
fyrstu einkasýningu hélt hann
i Listmunahúsinu gamla árið
1955. Auk þess hefur hann
haldið fjölda smærri sýninga
bæði á grafíkverkum og olíu-
verkum.
„Hughrif eru jafn margvísleg
hveiju sinni og skaphöfnin er
breytileg," sagði Bragi í samtali
við Morgunblaðið. Flestar mynd-
imar á sýningunni sagðist hann
hafa málað á síðustu tveimur
árum, eftir þeim hughrifum sem
hann hefði orðið fyrir. Þess vegna
væru margvíslegar myndir á sýn-
ingunni og ekkert ákveðið,
einangrað þema. Hann sagðist
hafa hug á að snúa sér aftur að
grafík innan skamms og þá vildi
hann fást eingörgu við grafíkina
í ákveðinn tíma, þvi þessi tvö list-
form, grafík og olíumálun, væru
afar ólík tæknilega séð og farsæl-
ast að einbeita sér að einu hveiju
sinni.
Bragi hélt sína stærstu sýningu
1980 í tilefni 50 ára afmælis síns
og sýndi þá í öllum sölum Kjarv-
alsstaða. Það var jafnframt
stærsta sýningin sem einn lista-
maður hefur staðið að hér á landi,
þótt engan veginn væri að því
stefnt, að sögn Braga. Þar sýndi
hann 366 verk. Aðspurður sagði
Bragi að þessi sýning hans væri
ekki haldin af neinu sérstöku til-
efni. „Að halda sýningu er
nauðsyn og að hluta til ill nauð-
syn, en það verður maður að gera
svo endar nái sarnan."
Sýningin er opin daglega frá
kl. 14—22 ogstendurtil 20. apríl.
Sjómaðurinn, sem fluttur var með þyrlu Landhelgisgæslunnar:
Fór út með trollinu