Morgunblaðið - 03.04.1987, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
35
Skammdrægar kjarnorkuflaugar:
Atlantshafsbandalagið
á um tvo kosti að velja
Hvorugur þeirra er fýsilegur
James M. Markham, Ncw York Times.
SAMNINGAMENN stórveldanna í Genf hafa gert hlé á viðræðum
um útrýmingu meðaldrægra kjarnorkuflauga í Evrópu. Yfirburðir
Sovctmanna á sviði skammdrægra flauga eru helsta ágreiningsefn-
ið. Ríki Atlantshafsbandalagsins geta brugðist við þessu á tvennan
hátt en hvorugur kosturinn er góður.
Þótt fyrir liggi
vilji stjórna
Bandaríkjanna og
Sovétríkjanna að
semja um útrým-
ingu meðal-
drægra kjarn-
orkuflauga í
Evrópu er bjöm-
inn hvergi nærri
unninn. Eftir
standa skamm-
drægar flaugar
Sovétmanna og
Bandaríkin og
aðildarríki Atl-
antshafsbanda-
lagsins standa
frammi fyrir þeim
vanda hvernig
unnt er að vinna
upp yfírburði
þeirra. Svo virðist
sem um tvo kosti
sé að ræða og
verður ekki betur
séð en að hvorug-
ur þeirra sé fýsi-
legur. Annað
hvort koma Atln-
atshafsbanda-
lagsiríkin sér upp
skammdrægum kjarnorkuflaugum
í Evrópu til mótvægis við vopnabún-
að Sovétmanna eða slík vopnakerfi
verða látin lönd og leið.
Stjórnmálaólga eða
öryggisleysi
Ef fyrri kosturinn yrði fyrir val-
inu gæti hann haft í för með sér
mótmæli ,deilur og stjórnmálaólgu
líkt og gerðist þegar hafin var upp-
setning bandarískra Pershing II-
flauga og stýriflauga árið 1983.
Stjómir Vestur-Þýskalands, Bret-
lands og Hollands kæra sig ekki
um að þeir atburðir endurtaki sig.
Pershing
kjarnorku-
eldflaug.
II
Frá sjónarmiði Evrópuríkjanna
er seinni kosturinn jafnvel verri.
Ef einnig yrði samið um útrýmingu
skammdrægra flauga stæðu ríki.
Evrópu berskjölduð frammi fyrir
árás Sovétmanna, sem hafa mikla
yfírburði á sviði hefðbundins her-
afla og efnavopna. Hernaðarsér-
fræðingar Atlantshafsbandalagsins
óttast að vígstaðan myndi breytast
mjög til hins verra ef skammdræg-
um flaugum yrði úthýst í Evrópu.
Þar með væri hmninn ein gmnd-
vallarkenning herfræðinganna um
sveigjanleg viðbrögð við árás aust-
antjaldsríkjanna.
Sama staða og 1977
Háttsettur bandarískur embætt-
ismaður hefur líkt stöðunni innan
Atlantshafsbandalagsins við þá sem
skapaðist árið 1977 þegar Helmut
Sehmidt, þáverandi kanslari Vest-
ur-Þýskalands, varaði við stórfelldri
fjölgun meðaldrægra sovéskra SS-
20-flauga. Ræða Sehmidts, sem
hann flutti í Londón, varð til þess
að vekja menn af væmm blundi og
tveimur ámm síðar var ákveðið að
koma fyrir Pershing Il-flaugum og
stýriflaugum í fimm Evrópuríkjum.
Bandarískir embættismenn segja
að Sovétmenn hafi horfið frá fyrri
yfirlýsingum um að semja beri sam-
hliða um skammdrægar og meðal-
drægar flaugar. Þann 28. febrúar
lýsti Mikhails S. Gorbaehev því yfir
að semja bæri sérstaklega um út-
rýmingu meðaldrægra flauga í
Evrópu án tillits til langrægra
kjamorkuflauga og geimvopna. Þar
með féllst Sovétleiðtoginn raunar á
tillögu Ronalds Reagans Banda-
ríkjaforseti um útrýmingu þess
háttar flauga, sem nefnd hefur ver-
ið „núlllausnin“. Bandarísku
embættismennirnir segja að
skömmu síðar hafi samningamenn
Sovétstjórnarinnar í Genf tekið að
skilja á milli meðaldrægra og
skammdrægra flauga í vopnabúri
Sovétmanna. Viktor Karpov, for-
stöðumaður afvopnunardeildar
sovéska utanríkisráðuneytisins,
sagði skömmu eftir að hlé var gert
á viðræðunum í Genf að Banda-
ríkjastjóm hefði óvænt krafist þess
að samið yrði um bæði meðaldræg-
ar og skammdrægar flaugar og að
Sovétstjórnin hefði ævinlega litið
svo á að um þær bæri að semja
sérstaklega.
ÁgreiningTir í
V-Þýskalandi
Því næst tóku talsmenn Sovét-
stjórnarinnar að fullyrða að
Bandaríkjamenn hygðust breyta
Pershing Il-flaugunum á þann veg
að þær yrðu framvegis skamm-
drægar með því að ij'arlægja eitt
skotþrepið. Viktor Karpov sakaði
Bandaríkjastjórn um tvískinnung
og sagði það aldrei hafa verið ætlun
ráðamanna að fjarlægja Evrópu-
flaugarnar. Yfirlýsingum þessum
var einkum beint að Vestur-Þjóð-
veijum því vitað er að ágreiningur
er innan stjórnar Helmuts Kohl,
kanslara Vestur-Þýskalands, um
hvort breyta beri Pershing-flaugun-
um. Frjálsir demókratar, flokkur
Hans-Dietrich Gensrher utanríkis-
ráðherra, hafa þegar lýst yfir
andstöðu við þessa hugmynd og
Jafnaðarmenn, stærsti stjórnarand-
stöðuflokkurinn, eru henni alger-
lega mótfallnir. Hins vegar hefur
Horst Teltschik, öryggisráðgjafi
Kohls kanslara, sagt að vel komi
til greina að breyta flaugunum.
Vestur-Þjóðveijar hafa jafnan
verið mótfallnir því að tilteknum
vopnabúnaði verði einungis komið
fyrir á þeirra landssvæði. Því myndi
Kohl kanslari vafalaust krefjast
þess að hið sama yrði látið ganga
yfir önnur ríki Atlantshafsbanda-
lagsins. Að þessu gefnu þyrfti því
að flytja hluta Pershing-flauganna
til annarra landa ef ákveðið yrði
að breyta þeim í skammdrægar
kjarnorkuflaugar. Og þá vaknar
aftur spuming um viðbrögð al-
mennings og stjórnvalda í viðkom-
andi ríkjum.
*
Ikonungs-
garði
EINS og flestum er i
fersku minni urðu miklar
náttúruhamfarir í
Kólombíu í Suður-
Ameríku á árinu 1985.
Eldgos í fjallinu Nevado
del Ruiz olli þvi, að gifur-
leg aurskriða færði i kaf
bæi og þorp og fórust þá
mörg hundruð manna.
Onnur myndin var tekin
meðan á hjálparstarfinu
stóð og sýnir þegar Guill-
ermo Paez, dreng á
fimmta ári, var bjargað
upp úr eðjunni.
A Spáni var þessi mynd
valin besta fréttamynd
ársins 1985 og ljósmyndar-
inn særndur „Konungs-
verðlaununum" svoköll-
uðu. Nú í vikunni kom
Guillermo til Spánar í boði
konungshjónanna og
leystu þau hann út með
mörgum og góðum gjöf-
um, t.d. þessu hjóli, sem
Soffía drottning er að
kenna honum á.
f „ HHHHMHBHB Sál ÆJ ai a
* f J I
mmmbarœáJl • •
m öötJmsa
tia.B.u.osiUíaaaiaaacJSJ
uuajiSiijisaaailOBa
'i ■ i.. _ ** i
HUNDRAD OG FIMMTÁN ÁRt
nmmmi
Austurstræti 18, símar 18880 og 13135
og í Nýja bæ, Eiðistorgi 11, sími 611700