Morgunblaðið - 03.04.1987, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 03.04.1987, Qupperneq 37
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 37 pitrgim Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri HaralJur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoðarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 550 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðinu snúið við Utgefð frá Reykjavík stend- ur nú traustari fótum en fyrir rúmu ári. Þá áttu tvö af stærstu útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtækjum borgarinnar við mikla erfiðleika að stríða. Um margra ára skeið var Bæjar- útgerð Reykjavíkur þungur baggi á borgarsjóði og þar með borgarbúum. Frá 1947, þegar Bæjarútgerðin var stofnuð og til 1985, greiddi borgarsjóður samtals 1.211 milljónir króna á verðlagi ársins 1985, vegna rekstrar fyrirtækisins. I þau 38 ár sem BUR var starfrækt varð borgarsjóður að leggja fram peninga öll árin, að undanskyld- um árunum 1967 og 1968. Síðasta árið kostaði BUR borg- arbúa 40 milljónir króna. Þrátt fyrir þessi útgjöld töldu stjórn- endur Reykjavíkurborgar nauðsynlegt að halda rekstri BÚR áfram, enda hefur fyrir- tækið alla tíð verið bakhjarl í atvinnulífi borgarinnar og mikil lyftistöng. Grandi hf. var stofnað í nóv- ember 1985 með sameiningu Bæjarútgerðar Reykjavíkur og Isbjarnarins. Liðið ár er því fyrsta fulla starfsár fyrirtækis- ins. Tilgangurinn með sameiningu fyrirtækjanna var tvíþættur. í fyrsta lagi að koma í veg fyrir að útgerð frá Reykjavík drægist meira saman en orðið var. I annan stað að borgarsjóður og þar með útsvarsgreiðendur í Reykjavík þyrftu ekki að leggja fram fjármuni í rekstur útgerð- arinnar. Á liðnu ári var 1,4 milljóna króna hagnaður af reglulegri starfsemi Granda, en þegar tekið hefur verið tillit til taps á dótturfyrirtæki og sölu eigna, varð 14,7 milljóna króna tap í heild. í viðtali við Brynjólf Bjarna- son, framkvæmdastjóra Granda hf., sem birtist hér í Morgun- blaðinu í gær, kemur fram að róttækar breytingar þurfti að gera á rekstri Granda á síðasta ári. Fyrsta verkefnið var fjár- hagsleg endurskipulagning og er henni lokið. Jafnframt henni varð að breyta skipulagi og stjórnun fyrirtækisins. Brynjólf- ur segir að fyrstu mánuðimir 1986 hafi verið sársaukafullur tími fyrir starfsfólk fyrirtækis- ins. 180 starfsmönnum var sent uppsagnarbréf, en af þeim voru 90 endurráðnir. Fyrstu mánuð- irnir voru _því erfiðir fyrir Granda hf. Akvörðunin um að sameina fyrirtækin var umdeild. Vinstri flokkarnir í borgarstjórn reyndu að gera hana að pólitísku bitbeini í borgarstjórnarkosn- ingunum á síðasta ári. Davíð Oddsson borgarstjóri hafði það pólitíska hugrekki sem þurfti til að sameiningin yrði að veni- leika. Andstæðingar höfðu uppi stór orð — orð sem þeir eiga erfitt með að standa við nú nokkrum misserum síðar. Hrak- spár um rekstur Granda rættust ekki, en höfðu mikil áhrif á starfsandann innan fyrirtækis- ins, eins og Brynjólfur bendir á. Þó of snemmt sé að fella dóma, eins og Brynjólfur segir réttilega, bendir allt til þess að framtíð Granda sé trygg. Á þessu ári er stefnt að því að grynnka nokkuð á skuldum fyr- irtækisins, en farið verður varlega í fjárfestingar. Þá eru uppi hugmyndir um að minnka eignarhlut Reykjavíkurborgar í Granda éða eins og Brynjólfur Bjarnason segir: „Ég tel að borgarsjóður eigi að heijast handa um sölu á einhverjum hluta á þessu ári... það er ekki markmið að borgin eigi stóran hluta í Granda.“ Það er forvitnilegt að fylgjast með starfsemi Granda og hvern- ig þar hefur verið haldið á málum. Annað fyrirtæki í sjáv- arútvegi sem áður var bæjarút- gerð, er Hvaleyri hf. í Hafnarfirði, sem keypti Bæjar- útgerð Hafnarfjarðar. Saga þessara fyrirtækja síðustu mán- uði er skólabókardæmi um að eignarhald og rekstrarform fyr- irtækja skiptir verulegu máli. Rekstur fyrirtækja í eigu sveit- arfélaga og/eða ríkisins verður aldrei sá sami og í höndum ein- staklinga og samtaka þeirra. Þau lúta ekki þeim lögmálum sem gilda um einkarekstur og markmið opinberra fyrirtækja eru ekki þau sömu, þ.e. arð- semi. Stjórnmálamenn eru of gjarnir á að nota slík fyrirtæki í eigin þágu — stunda greiða- semi á kostnað almennings. Við íslendingar höfum ekki efni á slíku. Einkavæðing sjávarútvegsins á höfuðborgarsvæðinu er af hinu góða. Sameining BÚR og ís- bjarnarins var skref í þá átt, en er ekki að fullu lokið. I Hafnar- firði var skrefið stigið til fulls. Á síðustu misserum hefur innlendur hlutabréfamarkaður verið í örri þróun. Viðhorf al- mennings til fyrirtækja er að breytast og jafnframt þykja hlutabréf betri kostur en áður sem leið til sparnaðar. Það færi vel á því að Reykjavíkurborg undir forystu Davíðs Oddssonar riði á vaðið og gæfi almenningi kost á að íjárfesta í vel reknu útgerðar- og fiskvinnslufyrir- tæki. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir PÉTUR PÉTURSSON Ólög-leg- vopnasala stórmál í Svíþjóð Áfall fyrir hugsjónir sænskrar utanríkisstef nu I nokkur ár hefur því öðru hvoru verið haldið fram að sænskir vopnaframleiðendur, og þá einkum Bofors-verksmiðj- urnar, selji útlendum aðilum vopn í trássi við sænsk lög. Sænsk löggjöf hefur þrengt mjög að kostum vopnaframleið- enda hvað þetta varðar og í orði er öll sala til erlendra aðila og útflutningur vopna bannaður frá Svíþjóð, en frá þessari reglu eru gerðar undantekningar. Vopnaframleiðendur verða þá að sækja um heimild til ríkisstjórnarinnar í hvert skipti sem þeir fá pöntun erlendis frá. Sérstök stofnun, vopnaeftir- litið, tekur á móti þessum pöntunum og fjallar um þær, metur þær og sendir síðan ríkisstjórninni til afgreiðslu. Þessi stofn- un á að vera ríkisstjórninni til ráðuneytis um allt er varðar sölu og útflutning sænskra vopna og hún á einnig að hafa eftirlit með því að lögum og reglum þar að lútandi sé fram- Eins og kunnugt er er Svíþjóð hlutlaust land og utan hern- aðarbandalaga, en sú stefna sem fylgt er, og hefur almennt fylgi meðal þjóðarinnar og stærstu þingflokkanna, kveður á um að hlutleysið skuli varið með vopna- valdi ef með þarf. Talið er að hlutleysið verði lítils virði ef ekki sé hægt að sýna fram á að fyrir sé í landinu vopnabúnaður, sem geti veitt viðnám ef til stríðsátaka og innrásar kæmi. Innlend vopna- framleiðsla, sem bæði byggist bæði á einkafyrirtækjum og ríkis- rekstri, er því talin ill nauðsyn, en engu að síður er lögð á það áhersla að þessi framleiðsla sé nýtískuleg á hverjum tíma og fylgi kröfum tækni og vísinda. Neyðast til að flytja út vopn Sænski herinn er ekki nægilega stór markaður til þess að þessi framleiðsla beri sig og hefur því verið brugðið á það ráð að selja sænsk vopn á erlendum mörkuð- um og er töluverð eftirspurn eftir þeim, ekki síst á þeim svæðum þar sem vopnuð átök eiga sér stað. En um leið vill Svíþjóð slá vörð um og halda uppi heiðri sínum sem friðelskandi þjóð, sem beiti sér fyrir því á alþjóðavettvangi að deilumál séu leyst án vopnavalds. Það er því skýrt tekið fram í sænskum lögum að ekki megi selja vopn til þeirra landa, sem eiga í stríðsátökum, né þeirra svæða þar sem spenna ríkir og hætta er á að vopnuð átök brjót- ist út. Fullyrðingar þess eðlis að sænsk vopn rati engu að síður á blóðuga vígvelli, t.d. í Iran og Ir- ak, eru því afar viðkvæmt mál fyrir sænsk stjórnvöld og ekki síður þegar því er haldið fram að sænskir embættis- og stjórnmála- menn hafi vitað um þetta án þess að gn'pa til viðeigandi aðgerða. Carl Algernon, forstöðumaður sænska vopnaeftirlitsins, framdi sjálfsmorð fyrr á þessu ári, að talið er, vegna þeirra uppljóstr- ana sem rannsóknarlögreglan og fjölmiðlar hafa komið fram með undanfarna mánuði varðandi ólöglega vopnasölu. Þessar ásakanir hafa því leitt til þess að víðtæk lögreglurann- sókn hefur staðið yfir frá því 1984. Undanfarna mánuði hefur þetta mál verið ofarlega á baugi í Svíþjóð og ijölmiðlar fjalla um það daglega. Nýjai' vísbendingar koma fram og vitni eru leidd fram, sem hafa komið með vísbendingar sem ekki verður horft fram hjá, cnda viðurkenndi forstjóri Bo- fors-verksmiðjanna, Anders Calberg, það nú fyrst fyrir nokkr- um dögum að fyrirtæki hans hefði selt vopn til landa, sem voru á bannlista ríkisstjórnarinnar, en þá er eftir að vita hvort stjórnvöld hafi vitað um þessa sölu og jafn- Forstjóri sænska vopnafyrirtæk- isins, Bofors, hefur aðeins stjórn- að fyrirtækinu í tæp tvö ár og neitar að bera ábyrgð á ólög- legri vopnasöiu. Ráðherra utanríkisviðskipta í stjórn sænskra jafnaðarmanna, Matz Hellström, skipti um ráð- herrastól og tók að sér land- búnaðarmálin sem ekki teljast umdeildur málaflokkur eins og er í sænskum stjórnmálum. vel beint eða óbeint lagt blessun sína yfir hana. Ráðherrarnir þver- taka fyrir að svo sé. Sumir þættir þessa máls eru fremur í ætt við miðlungsgóðan reyfara, en hinn velskipulega og formfasta hvers- dagsleika opinbers lífs í Svíþjóð, enda birta blöðin nýjustu fréttir um framvindu málsins eins og um framhaldssögu væri að ræða. Abyrgðm og mannaskipti Tíð mannaskipti einkenna þær stöður þar sem eldur þessa máls brennur heitast og sýnir það eitt út af fyrir sig hversu viðkvæmt málið er. Menn sitja ekki lengi í ábyrgðarstöðum innan Bofors- fyrirtækisins. Sjálfur fram- kvæmdastjórinn, Anders Calberg, hefur aðeins gegnt því starfi frá því 1985 og neitar að bera ábyrgð á því sem gerst hefur í vopnasölu fyrir þann tíma. Fyrir nokkrum mánuðum skipti Matz Hellström, sem farið hefur með utanríkisvið- skipti í stjórn jafnaðarmanna frá 1982, um ráðherrastól og varð landbúnaðarráðherra, en sá ráð- herra sem fer með innflytjendamál bætti á sig utanríkisviðskiptum. Fjármálaráðherrann Kjell-Olof Feldt er ásakaður um að hafa lagt blessun sína yfir ólöglegar vopnasendingar frá Svíþjóð á árunum 1973—75 er hann var viðskiptaráðherra. Það var tekið til þess að Matz þessi Hellström var mjög gagn- rýninn á þær vopnasöluheimildir, sem stjórn borgaraflokkanna veitti þegar hann var í stjórnar- andstöðu á síðari hluta áttunda áratugarins, en hefur sem ráð- herra hvað eftir annað gefið heimild fyrir stórum vopnasend- ingum til landa þar sem sumir hafa talið hættu á átökum, svo sem í Indónesíu. Hefur hann rétt- lætt gerðir sínar með því að vísa til fyrri heimilda ráðherra borg- araflokkanna og talið sig bundinn af þeim. Forstjóri vopnaeftirlits- ins fremur sjálfsmorð En það sem mesta athygli hefur vakið er sviplegt fráfall forstöðu- manns vopnaeftirlitsins, Carls Algernon. Hann varð fyrir neðan- jarðarlest í miðborg Stokkhólms í janúar á þessu ári. Fyrst í stað var talið að hér hefði verið um að ræða morð af yfirlögðu ráði, en rannsóknarlögreglan er nú á þeirri skoðun að um sjálfsvíg hafi verið að ræða. Algernon var áður hátt settur yfirmaður í sænska hernum og átti þar að baki óflekk- aðan feril. Hann var rúmlega sextugur að aldri og naut hvar- vetna trausts, en var undir miklu álagi vegna þeirra ásakana sem hér um ræðir. Hann hafði verið yfirheyrður af rannsóknarlögi'egl- unni og átti von á framhaldsyfir- heyrslum rétt áður enhann framdi sjálfsmorð. Þá hefur það heyrst að iiryggislögreglan sænska (Sápo) hafi gert húsleit á skrif- stofu hans. Klukkutíma áður en hann tók þá örlagaríku ákvörðun að kasta sér fyrir lestina hafði hann átt viðræður við Anders Carlberg, forstjóra Bofors-verk- smiðjanna. Ekki hafa fjölmiðlar enn fengið vitneskju um það hvað þeim fór á milli, en vitni segja að Algernon hafi verið mjög brugðið eftir að viðtalinu lauk. Vopnin rata á vígfvöllinn Hinar ólöglegu vopnasendingar Bofors-verksmiðjanna virðast helst hafa farið í gegnum dóttur- fyrirtæki þeirra í löndum, sem ekki eru á bannlista hjá sænskum stjórnvöldum, eins og England, Júgóslavía og Singapore. Þangað eru vopnin seld og breytt um sölu- skýrslur án þess að sendingarnar séu opnaðar og síðan er góssið flutt á ákvörðunarstaði í löndum eins og Taiwan, Thailandi, íran og Líbýu. Handbækur hernaðar- sérfræðinga sýna að. sænsk vopn eru til í þessum löndum þrátt fyr- ir að þessi lönd eru á bannlista sænsku stjórnarinnar. Fyrir u.þ.b. mánuði síðan sté formaður sambands danskra far- manna fram í ljós fjölmiðla og fullyiti að dönsk skip hefðu flutt ólöglegar vopnasendingar fyrir sænska vopnaframleiðendur. Hann fullyiti einnig að Olof Palme, fyrrum forsætisráðherra Svíþjóðar, hefði fengið vitneskju um þessa flutninga og stöðvað a.m.k. einhveijar sendingar. Þá hefur það einnig komið fram að starfsmenn dótturfyriitækis Bo- fors í Englandi hafi sent Palme bréf árið 1985 og getið um grun- semdir sínar, um að sænsk vopn hafi verið send til bannlýstra landa. Bréf þetta á Paime að hafa sent vopnaeftirlitinu, en síðan hafi ekkert verið á það minnst og það aldrei komið í hendur lögregl- unnar. Einna ævintýralegust er þó frá- sögn forstjóra flutningafyriitækis eins sem komst undir manna hendur vegna gjaldþrots. Hann gat ekki gert grein fyrir milljóna- tekjum, sem hann hafði árin 1973—75 á annan hátt en þann, að hann hafi stjórnað um 100 vopnasendingum fyrir Bofors- verksmiðjurnar til Irans. Þessar sendingar máttu hvergi koma fram og vildi hann því fá trygg- ingu fyrir því hjá þáverandi viðskiptamálaráðherra sem er Kjell-Olof Feldt, núverandi fjár- málaráðherra. Átti hann að hafa hitt ráðherrann í gamla bænum í Stokkhólmi og segir hann óhugs- andi að ráðherrann hafi ekki vitað af þessum sendingum. Ráðherr- ann sver aftur á móti og sáit við leggur að hann hafi aldrei hitt þennan mann, hvað þá átt við hann tal einslega um annað eins mál og þetta. En friðarsamtök, sem lagt hafa á sig mikla vinnu við að kanna ólöglegar vopnasendingar frá Svíþjóð, hafa fengið það staðfest hjá fyrrverandi ráðherrum í stjórn Iranskeisara að íranski herinn hafi keypt vopn frá Svíþjóð á þess- um tíma. Ákærandi forstjóra flutningafyriitækisins telur að eitthvað geti verið hæft í fullyrð- ingum hans. Þessum fyrrverandi forstjóra, sjálfum ákærandanum, friðarrannsóknarmönnum og ýmsum af þeim, sem gefið hafa upplýsingar í þessu máli, hefur verið hótað lífláti í nafnlausum bréfum og upphringingum. Ákær- andinn og forstjórinn hafa fengið sérstaka lögregluvernd vegna þessara hótana. Allar þessar umræður, fullyrð- ingar og getgátur um ólöglega vopnasölu sænskra fyriitækja hafa þegar skaðað álit Svíþjóðar út á við og hætt er við að þetta mál eigi eftir að draga enn frek- ari dilk á eftir sér innanlands. Það eiga örugglega eftir að verða fleiri mannaskipti á háum stöðum, þeg- ar öll kurl eru komin til grafar og rannsóknarlögreglan hefur lok- ið rannsókn sinni sem nú hefur tekið þtjú ár. Höfundur er fréttaritari Morgun- blaðsins í Lundi í Svíþjóð. Reykjavík; •• Oryggis- mál olíu- tanka könnuð BORGARRÁÐ hefur samþykkt í heild, tillögu Sigurjóns Péturs- sonar um öryggisráðstafanir vegna olíutanka við EUiðaár, en samþykkt síðari hluti tillög- unnar var frestað á fundi borgarráðs 10. mars. I tillögunni segir: „Borgarráð samþykkir að fela borgarverkfræð- ingi að láta kanna nú þegar ástand og öryggismál allra olíutanka í borginni og skila niðurstöðum til borgarráðs innan tveggja mánaða. Þá samþykkir borgarráð að krefj- ast þess af Landsvirkjun, að nú þegar verði gengið frá fullnægjandi öiyggisráðstöfunum við olíutanka hennar í Elliðaárdal." Reykjavík: Gjald við stæðissjálf- sala hækk- ar um 50% BORGARRÁÐ hefur samþykk að hækka gjald fyrir bifreiö.i stæði á stæðum þar sem er.i sjálfsalar um 50%. Á bifreiðastæðum við Grettisgötu 7 til 9 og við Laugaveg 77 eru sjálf- salar. í bréfi Inga Ú. Magnússonar gatpamálastjóra segir að hér sé um -amræmingu gjalda að ræða og því •r lagt til að þau verði hækkuð. Gjaldið var 10 kr. fyrir hveijar byr- iaðar 30 mín., en verður 10 kr. fyrir hveijar byijaðar 20 mín. Ilám- arksstöðutími verður eftir sem áður 2 klukkustundir. Skoðanakannanir í sviðsljósi Skoðanakannanir þykja orðið svo sjálf- sagður fylgihnöttur almennra kosn- inga hér á landi að líklega fyndist mörgum það nánast óbærileg tilhugsun ef þær væru ekki framkvæmdar. Um hvað ættu menn þá að tala?! Samt er ekki nema tæpur áratugur frá því kannanir af þessu tagi fóru að skipta verulegu máli — a.m.k. frá sjónarmiði stjórnmálamanna — og ráða einhveiju um „umræðuna“ marg- frægu í þjóðfélaginu. Það eru ekki nema fjögur ár frá því Morgunblaðið hóf að taka þátt í þessum leik — þá í samstarfi við fyrirtækið Hagvang — og það varð tilefni fréttar yfir þvera forsíðu blaðsins. Að undanförnu höfum við birt nokkuð reglu- lega kannanir frá Hagvangi og Félagsvís- indastofnun Háskólans. Ein slík er væntanleg og verður vafalaust tilefni mik- illa bollalegginga um stjórnmálaástandið. Skoðanir manna um gildi og áhrif kann- ana eru mjög skiptar. Sumum finnst ótrúlegt að hægt sé að draga ályktanir um viðhorf tugþúsunda — erlendis milljóna — kjósenda af viðtölum við 600 til 1.500 manns. Framhjá því verður þó ekki horft að þetta er gerlegt ef viðmælendurnir — úrtakið — eru smækkuð mynd af þjóð- inni. Könnun sem bundin er við ákveðinn þjóðfélagshóp, aldurshóp, atvinnu, mennt- un eða kyn o.s.frv. dugar hins vegar ekki nema þegar hún fjallar um hópinn sjálfan. Það er þess vegna afar hæpið að skoðana- könnun á vinnustað — svo dæmi sé tekið — gefi markverðar upplýsingar um við- horf í þjóðfélaginu almennt. En menn þurfa ekki einu sinni að taka mark á vönd- uðum skoðanakönnunum til að átta sig á því að eftir þeim er tekið og um þær er mikið talað. ☆ ÞAÐ ætti ekki að þurfa að rifja upp þau einföldu sannindi að niðurstöður kann- ana og kosninga eru tveir gerólíkir hlutir. Á hinu virðast margir ekki átta sig að skoðanakönnun er heldur ekki kosninga- spá. Spá um úrslit kosninga getur að vísu farið býsna nærri niðurstöðum könnunar en stundum getur líka verið nokkur mun- ur á. Til þessa liggja ýmsar ástæður og breytilegar. Það liggur til dæmis í augum uppi að skoðanakönnun segir okkur fyrst og fremst hver viðhorf þátttakenda eru þegar könnunin er gerð — ekki hver þau verða í framtíðinni, hvort sem er degi síðar, viku, mánuði, ári eða eftir lengri tíma. Og aðstæður breytast og viðhorf breytast. í öllum könnunum verður líka að gera ráð fyrir ákveðnum skekkjum sem geta breytt fylgi flokka um svo sem 2-5% til eða frá. Skekkjumörkin sem svo eru nefnd á fagmál eru misjöfn eftir stærð úrtaks og viðmiðunartölum í niðurstöðum. Ef flokkur fær 40% fylgi í könnun sem nær til 1.500 rnanna má gera ráð fyrir því að skekkian geti verið plús eða mínus 2,5% Einnig ber að nefna í þessu sambandi að tilefni getur verið til þess að ætla að stuðningsmenn einhvers flokks séu tregari að láta skoðanir sfnar í ljós en stuðnings- menn annarra flokka. Reynslan hér á landi er sú að Sjálfstæðisflokknum vegnar að jafnaði betur í könnunum en kosningum en þveröfugt gildir um Framsóknarflokk- inn og Alþýðubandalagið. Það getur líka reynst erfitt fyrir þá sem standa að könn- unum að ná sambandi við einhvern stuðningshóp stjómmálaflokks þótt hann sé inni í úrtakinu. Ef til að mynda þúsund Heimdellingar eða þúsund ríkisstarfsmenn eru veðurtepptir og símasambandslausir á Öræfajökli getur það skekkt niðurstöður skoðanakönnunar um fylgi Sjálfstæðis- flokks annars vegar og Alþýðubandalags og Kvennalista hins vegar. Þijár síðustu skoðanakannanirnar — könnun Skáís fyrir Stöð 2 sem birt var á sunnudaginn, könnun sama fyrirtækis fyr- ir Helgarpóstinn sem birt var í gær og könnun DV á mánudaginn — hafa eðlilega vakið mikla athygli því ef niðurstöður þeirra gengju eftir yrðu gífurlegar breyt- ingar á Alþingi. En auðvitað eru þetta ekki kosningaspár. Og þessar kannanir eru líka ýmsum annmörkum háðar sem gefa tilefni til varfærnislegra ályktana. Hlutfall þeirra sem óráðnir em í afstöðu sinni er óvenju hátt eða milli 30 og 35%. Könnun Skáís fyrir Stöð 2 er bundin við Reykjavík og Reykjanes og vægi Reykjavíkursvæðisins í könnun DV er meira en í kosningum. Úrtakið er heldur ekki nægilega stórt til þess að með ein- hverri vissu sé hægt að reikna út skiptingu þingsæta eins og gert hefur verið og blás- ið út. Svo er annað — og hér er komið að þýðingarmiklu atriði: Aldur kjósenda getur ráðið úrslitum um það hvort þeir kjósa Borgaraflokkinn eða Sjálfstæðis- flokkinn. I könnunum Skáís og DV er þess ekki gætt að þátttakendur skiptist rétt í aldurshópa. Þetta er í lagi ef aldur ræður engu um afstöðu kjósenda eins og stundum má vera. En ef sú tilfinning er rétt — sem ég heyri víða — að verulegur munur sé á afstöðu ungs fólks og hinna sem eldri em til Alberts Guðmundssonar þá er hér ferð atriði sem valdið getur mikilli skekkju í fyrrnefndum könnunum. Það er tilgáta mín að meirihluti ungs fólks hafni Albert og Borgaraflokknum. Niður- stöður Félagsvísindastofnunar ættu að geta sýnt hvort eitthvað er hæft í þessu en þar er þess gætt að þátttakendur skipt- ist rétt í aldurshópa. v ☆ TIL em þeir sem halda að niðurstöður skoðanakannana geti ráðið úrslitum um niðurstöður kosninga. Þess vegna segja sumir að að setja beri þeim takmörk og banna þær í svo sem eina til tvær vikur fyrir kosningar. Hugmyndir í þessa vem hafa verið ræddar á Alþingi en engar til- lögur um efnið hafa verið afgreiddar. Hér er mikið álitamál á ferðinni og menn ættu að hugsa sig vandlega um áður en þeir taka afstöðu. Ég held að óhætt sé að fullyrða að niður- stöður kannana Skáís og DV um fylgi hins nýja Borgaraflokks Alberts Guð- mundssonar hafi þegar haft áhrif á vinnubrögð í öðrum stjórnmálaflokkum. Tilvera þessa flokks og hinn mikli stuðn- ingur við hann hefur á vissan hátt ýtt til hliðar flestum þeim málefnum sem menn héldu að kosningarnar myndu snúast um. Það má jafnvel taka svo djúpt í árinni að segja að margra vikna eða mánaða undir- búningsvinna sé að engu orðin. Þarna er dæmi — sem ekki verður dregið í efa — um raunvemleg áhrif skoðanakannana á stjórnmálamenn. En hitt er meira álitaefni hvernig kjósendur bregðast við. Þjappar þetta væntanlegum kjósendum Borgara- flokksins saman og sannfærir þá um að þeir eru ekki að kasta atkvæði sínu á glæ? Eða álíta þeir sem samúð hafa með Al- berti að þeir þurfi ekki að styðja hann úr því svo margir aðrir ætli að gera það? Renna tvær grímur á þetta sama fólk þegar það sér að kannski leiðir svona mikið fylgi Borgaraflokksins — ef það yrði að vemleika — yfír okkur upplausn i þjóðfélaginu, margflokkastjórn eða stjórnarkreppu? Þannig mætti halda áfram að spytja. Ég hygg að engin augljós eða einhlít rétt svör séu til við svona spurning- um. Og í reyndinni eru svörin væntanlega breytileg frá einum manni til annars. Sú þversögn virðist líka blasa við að oft megi með góðum rökum draga gagnstæðar ályktanir — en báðar jafn gildar að því er virðist — um þessi efni. Á endanum er það þá niðurstaðan af þessum vangaveltum að við vitum ekki og getum líklega ekki vitað neitt með vissu um það hver áhrif skoðanakannana em á kjósendur þegar til kosninga kemur. Kann- anirnar lifa þetta af enda er hugmyndin að þeim ekki að hafa áhrif á kjósendur heldur gefa mönnum áreiðanlegar vísbend- ingar um það hvaða viðhorf em uppi í þjóðfélaginu hveiju sinni. Guðmundur Magnússon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.