Morgunblaðið - 03.04.1987, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
39
Bátseigandi hætt kominn í óveðrinu á Raufarhöfn:
Skreið inn í vigtarskúr og
öskraði þar til hjálp barst
Raufarhöfn.
BÁTSEIGENDUR áttu í miklum
crfiðleikum með báta sína í höfn-
inni i óveðrinu oem hér var á
þriðjudag, og lentu sumir i
lirakningum. Mikil ísing hlóðst á
bátana og lá við að sumum þeirra
hvolfdi. Sem dæmi má nefna að
einn bátseigandinn, Jón Guð-
mundsson, sem var að verja bát
sinn áföllum, dæla úr lionum sjó
og berja af honum isingu, var
orðinn gegnblautur af ágjöf og
snjókomu þegar leið á daginn.
Kuldinn færðist upp eftir líkama
hans og siðan fór hann að finna
VEGIR á Norðurlandi og Vest-
fjörðum voru ófærir í gær vegna
snjókomu og skafrennings. Flug
til áætlunarstaða í þessum lands-
hlutum lá einnig að mestu niðri.
Á Vestfjörðum og Norðurlandi,
austur fyrir Eyjafjörð, var snjókoma
og skafrenningur í gær og var víða
mikil ófærð og blinda. Á Norðaust-
urlandi og Suðausturlandi var
skýjað en úrkomulaust um miðjan
dag í gær, en einhver úrkoma á
Austfjörðum. Heiðskírt var að
mestu á Suður- og Suðvesturlandi.
Ófært var um alla Vestfirði og
Norðurland austur fyrir Akureyri,
samkvæmt upplýsingum vegaeftir-
lits Vegagerðar ríkisins. Skárra
færi var austan Akureyrar og var
opnað til Þórshafnar og Vopna-
fjarðar. Fært var frá Reykjavík
fyrir einkennum í höfðinu. Þá
fór hann í land, skreið á fjórum
fótum að vigtarskúr, sem er á
bryggjunni, braut þar rúðu og
renndi sér á maganum inn um
gluggann.
Eftir stutta stund áttaði Jón sig
á því að hans yrði ekki vitjað í þess-
um skúr og tók þá að arga annað
slagið. Að einhverjum tím.v liðnum
kom bróðir hans, Eiríkur, til að
athuga með Jón og bát þeirra.
Heyrði hann öskrin í Jóni þegar
hann kom niður að hiifninni. Var
þá farið með Jón upp á saumstofu
vestur á Snæfellsnes og Dali, og
með suðurströndinni austur á Firði.
Þó var ófært um tíma vegna hvass-
viðris undir Eyjafjöllum og í Mýrdal.
Síðdegis í gær hafði ekki verið
flogið neitt á áætlunarstaði á óveð-
urssvæðinu, og lítið um flug til
annarra staða. Á vegum Flugleiða
var búið að fljúga til Vestmanna-
eyja og Egilsstaða, síðdegis í gær,
og á vegum Arnarflugs til Snæfells-
ness. Tvær vélar Flugleiða lokuðust
inni á Akureyri í fyrradag og átti
að reyna að ná þeim suður í gær,
en ekki bar búist við að mögulegt
yrði að flúga meira á þeirri leið.
Ekki hefur verið flogið til Vest-
fjarða síðan á mánudag og í
gærkvöldi biðu um 500 manns eftir
fari fram og til baka hjá Flugleið-
sem þarna er skammt frá. Þar fékk
hann góða aðhlynningu og náði sér
fljótt.
Klukkan 14 á þriðjudaginn brast
á með hvassri suðvestanátt, frá 30
hnútum í 60, sem fór vaxandi þeg-
ar á daginn leið. Jafnframt gekk
áttin meira til norðurs. Um klukkan
16 var komið norðvestan hávaða-
rok, með tilheyrandi snjókomu.
Allar götur í þorpinu voru þá orðn-
ar ófærar, símasambandslaust út
úr þorpinu og innan þess og raf-
magn fór af öðru hvoru.
Váltýr Hólmgeirsson veðurat-
hugunarmaður segir að vindhraði
hafi mælst upp í 70 hnúta. Það
geti þó verið að vindhraði hafi ve-
rið meiri, en vindhraðamælirinn
ritar ekki í rafmagnsleysi. 64 hnút-
ar eru 12 vindstig, eins og kunnugt
er. Þetta veður stóð til klukkan 21
með 60 til 66 hnúta hraða en þá
lægði niður í 30 hnúta. Mikill snjór
er nú í þorpinu, sumsstaðar upp á
eina húshæð, og muna menn ekki
eftir jafn miklum snjó á svo skömm-
um tíma, eða sjö klukkustundum.
Skólafólk átti í vandræðum með
að komast til síns heima og fólk
átti yfirleitt í erfiðleikum með að
komast heim til sín. Sumir fóru
ekki af vinnustað fyrr en klukkan
22 um kvöldið þegar veðrið var
gengið niður. Plötur fuku af þaki
verkstæðishúss hjá SR. Einnig rúll-
uðust upp þakplötur á verksmiðju-
húsi SR, en fuku ekki burt. Rúður
brotnuðu í húsum og einn 3,5 tonna
bátur, Þröstur ÞH, sökk í höfninni.
Helgi
Kökubasar í
Hvítasunnu-
kirkjunni
KÖKUBASAR og kaffisala verð-
ur í Hvitasunnukirkjunni Fílad-
elfíu, Hátúni 2, nk. laugardag 4.
apríl. Það er systrafélag Fílad-
elfiu sem heldur basarinn og
hefst hann kl. 14.00 í neðri sal
kirkjunnar.
Fólki gefst einnig kostur á að
setjast niður yfir kaffibolla og
ijómapönnukökum sem verður á
boðstólum. Allur ágóði af sölunni
rennur til starfsemi systrafélagsins.
Kynningardagur
Stýrimannaskól-
ans á laugardag
Stýrimannaskólinn í Reykjavík
heldur sérstakan kynningardag
laugardaginn 4. april nk. Dag-
skráin hefst með ávarpi skóla-
stjóra og varaformanns
skólafélags Stýrimannaskólans
kl. 14.00. Skólinn verður opinn
gestum frá kl. 14.00 til kl. 17.00
og munu kennarar og nemendur
sýna notkun siglinga- og f iskileit-
artækja og veita upplýsingar um
námið.
Meðal dagskráratriða verður
sýning á öryggis- og björgunar-
tækjum, kvikmynda- og mynd-
bandasýningar um sjómennsku,
veiðarfæri og slysavamir, kynnt
verða fiskileitar- og siglingatæki
og björgunametið Markús verður
sýnt.
Kvenfélagið Hrönn verður með
veitingasölu í matsal Sjómanna-
skólans allan daginn.
Skipting atkvæða og þingsæta samkvæmt skoðanakönn-
unum Helgarpóstsins og DV (þeir sem tóku afstöðu)
HP DV Kosningar 1983
Alþýðuflokkur 15,5% 10 16,9% 11 11,7% 6
Framsóknarflokkur 9,7% 6 13,6% 9 19,0% 14
Sjálfstæðisflokkur 25,2% 17 29,8% 19 39,2% 23
Alþýðubandalag 16,1% 10 12,3% 8 17,3% 10
Borgaraflokkur 22,1% 15 17,1% 11
Samtök um kvennalista 8,7% 5 8,1% 5 5,5% 3
í þingmannafjöldann 1983 vantar fjóra þingmenn Bandalags jafn-
aðarmanna, en samkvæmt könnunum fær sá flokkur nú engan
mann kjörinn. I töflunni eru þvi þeir flokkar sem spáð er að nái
þingmönnum nú, því í niðurstöðum Helgarpóstsins er ekki getið
um fylgi annarra flokka á landinu öllu.
Skoðanakönnun SKÁIS um fylgi flokkanna:
Borgaraflokknum er
spáð 15 þingmönnum
í skoðanakönnun sem SKAIS
vann fyrir Helgarpóstinn sl.
sunnudag er Borgaraflokknum
spáð 15 þingmönnum í komandi
kosningum, með 22,1% at-
kvæða. I einu kjördæmi,
Suðurlandi, hefur Borgara-
flokkurinn meira fylgi en
Sjálfstæðisflokkurinn, eða
25,4% á móti 24,0%, og fengi
þar tvo þingmcnn, en Sjálfstæð-
isflokkurinn fengi einn. í
könnun DV, sem birt var á
mánudag, var Borgaraflokkn-
um spáð 11 þingmönnum, með
17,1% atkvæða. Mjög stór hóp-
ur kjósenda virðist ekki búinn
að gera upp hug sinn fyrir
kosningarnarj því samkvæmt
könnun SKÁIS eru 34,8% óá-
kveðnir eða neita að svara og
samkvæmt könnun DV voru
það 33,8%. Þegar menn vclta
fyrir sér tölum um þingsæti ber
að hafa í huga að í þetta sinn
verða þingmennirnir 63, i stað
60 áður.
Ef úrslit kosninga verða í sam-
ræmi við könnun SKAIS munu
22 nýir þingmenn taka sæti á
Alþingi næsta haust, en 12 þing-
menn sem eru í framboði til
endurkjörs munu ekki halda þing-
sæti sínu. Þar á meðal er formað-
ur Alþýðuflokksins, Jón Baldvin
Hannibalsson, sem er í framboði
í Reykjavík, og formaður Fram-
sóknarflokksins, Steingrímur
Hermannsson, sem er í framboði
á Reykjanesi. I könnun sem Stöð
2 lét vinna um síðustu helgi eru
niðurstöður á sömu lund hvað
varðar flokksformennina tvo, en
sú könnun náði aðeins til þessara
tveggja kjördæma.
Samkvæmt niðurstöðum SKÁ-
ÍS fá Flokkur mannsins, Bandalag
jafnaðarmanna og Þjóðarflokkur-
inn engan þingmann kjörinn.
Stefán Valgeirsson nær ekki kjöri
samkvæmt þessum niðurstöðum.
*
Ofært um Norður-
land og Vestfirði
Chico í
Evrópu
BANDARÍSKI söngvarinn
Chico DeBarge skemmtir í veit-
ingahúsinu Evrópu, Borgartúni
32, dagana 2., 3. og 4. apríl nk.
Chico DeBarge er þekktastur
fyrir veru sína í hljómsveitinni
„DeBarge" sem hann skipar
ásamt systkinum sínum. Hljóm-
sveitin hefur sent frá sér fjölmarg-
ar hljómplötur sem allar hafa
notið mikilla vinsælda, sérstak-
lega í Bandaríkjunum. Þekktustu
lög sveitarinnar eru „Rhythm Of
The Night" og „Who’s Holding
Donna Now“. Þau komust á topp-
inn á bandarísku og bresku
vinsældalistunum. Hið fyrrnefnda
varð jafnframt mjög vinsælt hér
á landi og var lengi á vinsælda-
lista rásar 2.
%
Suðurland:
„Fólk er fegið því
að geta gefið and-
svar við flokksræði“
- sagði ÓIi Þ. Guðbjartsson, efsti maður á S-lista
„ÉG HEF fundið góðan byr und-
anfarna daga, það er líkt og hafi
losnað um hömlur hjá fólki sem
virðist því fegið að geta látið í
ljós heilbrigt andsvar við flokks-
ræði sem er okkur ekki að
skapi,“ sagði Oli Þ. Guðbjartsson,
efsti maður á S-lista í Suður-
landskjördæmi. Hann var áður
fimmti maður á lista Sjálfstæðis-
flokksins en sagði sig úr Sjálf-
stæðisflokknum og gekk til liðs
við Borgaraflokkinn þegar hann
var stofnaður.
„Mér ofbauð það tvöfalda sið-
gæði sem sýnt var með þvi að knýja
Albert til afsagnar á sama tíma og
flokkurinn taldi hann fullboðlegan
til að leiða framboð í höfuðvíginu,
Reykjavík. Dropinn sem fyllti mæl-
inn var þó án efa þau ummæli að
þrátt fyrir þetta væri Albert ekki
hæfur til að gegna ráðherraemb-
ætti,“ sagði Óli aðspurður um
ástæðu ákvörðunar sinnar. „Grund-
vallarskoðanir mínar í stjórnmálum
hafa þó ekki breyst. Ég tók afstöðu
á grundvelli samvisku minnar og á
meðan ég er sáttur við hana líður
mér vel,“ bætti hann við.
Óli taldi að stefna Borgaraflokks-
ins í byggðamálum væri ákveðnari
en Sjálfstæðisflokksins. „Við urðum
undir á síðasta landsfundi sem vild-
um skarpari stefnu í þessum
málum. Ég er ánægður með árang-
ur þessarar ríkisstjórnar að öðru
leyti en því að ekki hafi verið reist
rönd við byggðaröskun. Mjn skoðun
er að færa þurfi vald frá ríkinu til
héraðanna en þar þarf jafnframt
að vera fyrir hendi einhver aðili sem
Oli I*. Guóbjartsson
getur tekið við þessu valdi. Hann
gæti verið misstór eftir málaflokk-
um og getum við litið til annarra
landa um fyrirmyndir að því. Á
stefnuskrá hins komunga Borgara-
flokks tel ég mig eygja þessa sömu
hugsun," sagði Öli Þ. Guðbjartsson.
INNLENTj
„Gleðiglæta“ á fjölunum hjá
Ungmennafélagi Reykdæla
Kleppjárnsreykjum.
FASTUR liður í starfsemi Ung-
mennafélags Reykdæla í
Borgarfirði hefur verið upp-
færsla á einu leikriti á hverjum
vetri. Að þessu sinni var hafður
nokkur annar háttur á því í
kvöld 3. apríl kl. 21.00 verður
skemmtun í Logalandi sem hlo-
tið hefur nafnið „Gleðiglæta".
„Gleðiglæta" er sýning á fimm
völdum köflum úr íslenskum leik-
ritum sem félagið hefur áður sýnt.
Þættirnir eru úr eftirtöldum verk-
um: Pilti og stúlku eftir Jón
Tlioroddsen, Blómarósir eftir Ólaf
Hauk Símonarson, Skjaldhamrar
eftir Jónas Árnason, Saumastofan
eftir Kjartan Ragnarsson og Mað-
ur og kona eftir Jón Thoroddsen.
Leikstjóri er Bjarni Ingvarsson.
Bjartmar Hannesson hefur gert
söngtexta við upphafs og loka-
söng, kynnir er séra Geir Waage.
Um 20 manns taka þátt í sýning-
unni. Sérstök athygli er vakin á
að aðeins verða tvær sýningar,
sú síðari verður í Logalandi þriðju-
daginn 7. apríl kl. 21.00.
- Bernhard