Morgunblaðið - 03.04.1987, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987
Stjörnu
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
„Kæri stjömuspekingur.
Hvað getur þú sagt mér um
persónuleika minn og árið
framundan. Ég er fædd á
laugardegi kl. 18.53 þann 27.
apríl 1968 í Reykjavík. Með
fýrirfram þökk.“
Svar:
Þú hefur Sól, Tungl, Merkúr
og Mars í Nauti, Venus í
Hrút, Vog Rísandi og Krabba
* á Miðhimni. Júpíter í Ljóni
er einnig sterkur í korti þinu.
Öryggi
Það að hafa Sól í Nauti tákn-
ar að til að viðhalda lifsorku
þinni og lífsgleði þarft þú
öryggi og varanleika í líf þitt.
Það hentar þér t.d. ekki að
vera blönk eða í óvissu með
starf og heimili. Slíkt er
reyndar ekki gott fyrir nokk-
um mann en sérstaklega ekki
fyrir Naut. Þess vegna er
æskilegt að þú aflir þér
menntunar sem gefur örugga
afkomu.
HiÖ likamlega
Sennilega ert þú eins og
mörg Naut leið á endalausum
lýsingum á peningum og
jarðbundnum málum þegar
Nautið er annars vegar. Þó
slík lýsing eigi rétt á sér,
Nautið er jarðbundið merki,
er margt annað til sem oft
vill gleymast. Næmleiki fyrir
náttúrunni er til staðar, svo
og líkamlegur næmleiki.
Nautið hefur t.d. hæfíleika
sem nuddari. Áhugi á mat
er einnjg til staðar, svo og
. þægindum almennt. Stund-
um svo úr hófi gegnir.
Listir
Önnur hlið er einnig á Naut-
inu. Stjómandi þess er Venus
og því hafa mörg Naut list-
ræna hæfíleika. Áhugi á
fögrum munum er oft áber-
andi, á listum og fegurð
almennt. Margir góðir söngv-
arar eru t.d. í Nautinu. Þar
sem þú hefur Vog Rísandi
og Ljónið sterkt 1 korti þínu
ættu hin listrænu svið að
höfða til þín. Sterkur Júpíter
bendir einnig til áhuga á
ferðalögum, á þörf fyrir að
víkka sjóndeildarhring þinn.
Mjúk
í heild má segja að þú sért
mjúkur persónuleiki. Þú vilt
samvinnu við fólk, ekki
keppni eða deilur. Þú getur
því þurft að varast að vera
of eftirgefanleg. Þú ert róleg
og hæg, þrautseig, þolinmóð
og að öllu jöfnu góðlynd.
Stórtcek
Það sem þú þarft helsta að
varast er spennuþríhymingur
milli Mars, Júpíters og Nept-
únusar. Það táknar að þú átt
til að vera of stórtæk í áætl-
anagerð og byggja áætlanir
á ótraustum grunni. í stuttu
máli átt þú til að láta drauma
ráða ferðinni. Ef þú ferð rétt
með þessa orku má á hinn
bóginn segja að þú sért orku-
mikil, hugmyndarík og
stórhuga.
Samskipti
Júpíter er á leið inn í 7. hús
þitt og yfir Venus. Það tákn-
ar að þú finnur fyrir aukinni
þörf til að taka þátt í félags-
málum á næstunni og því að
deila lífí þínu með öðrum.
Það gæti m.a. bent til ástar-
sambands, ef svo er ekki
þegar.
Víöari sjón-
deildarhringur
Júpíter fer síðan inn í Nauts-
merkið 1988 og þá má segja
að þörf fyrir ferðalög og nýja
reynslu verði sterk. Þegar á
heildina er litið er líklegt að
næstu ár verði viðburðarík
og skemmtileg.
?T!”!T!TT!TTf!?f!nT?l!!!!!!!!!!!?!!!!l!!!il
GARPUR
/^DCTTI D
unt 1 1 IK
GR.STTIR, f¥\t> ERJJ KATTAR-
H'AR ÍIT Uðé ALLT HÚS
7-TÁ,'E.R tV\E> EKJCI
IPÁ9A/VJ LEST? pAU
ERU EINS OS FJÖL-
DÝRAGLENS
SMÁFÓLK
HALLEY’S COMET 15
ACTUALLY A LAR6E CHUNK
OF PIRTY ice...
Halley-halastjarnan er í Árið 2062 fer hún næst
rauninni stór og skítugur framhjá okkar jörð ...
ísklumpur.
Auðvitað verðum við öll Nema þú, fröken_______
orðin áttræð þá ...
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Það er talið gott að trompa
út í vöminni þegar sagnir gefa
til kynna stuttlit í blindum. Eng-
inn hefur sýnt jafn ótvírætt fram
á gildi þessarar reglu og ítalinn
Bellentani í eftirfarandi spili,
sem kom upp á EM í Dyflinni
1967, í leik Itala og Svía.
Austur gefur; AV á hættu.
Norður
♦ D1097542
¥-
♦ 1072
+ ÁD5
Austur
„Hll ♦G63
II JK82
♦ 84
* 109643
Suður
4 —
V DG7543
♦ ÁDG9653
♦
Vestur Norður Austur Suður
Vestur Norður Austur Suður
— — Pass 1 tígull
Dobl 4 spaðar Pass 5 tíglar
Pass 6 tíglar Pass Pass
PassH
Vestur
♦ ÁK8
+ Á1096
♦ K
♦ KG872
Bellentani sýndi mikla still-
ingu í sögnum að dobla ekki
fimm eða sex tígla, en hann
gerði sér grein fyrir því að skipt-
ingin hlyti að vera villt í NS,
úr því að andstæðingamir létu
svo illa.
En snilldina kórónaði hann
með þvi að spila út tígulkóngn-
um!!! Það útskot reyndist
banvænt. Sagnhafí gat aðeins
trompað tvö hjörtu í borðinu, svo
vömin fékk slagi á tvo efstu í
hjarta. Með einhvejju öðru út
nýtast trompin þrjú í blindum
til að stinga hjörtu, og þá er
heldur ekkert eftir til að taka
tígulsvíninguna. Svo kóngurinn
verður að vera blankur!
Þetta sögulega spil var rifjað
upp í nýlegri bók eftir Banda-
ríkjamanninn dr. George Rosen-
kranz, „Allt sem þú hefur viljað
vita um trompútspil, og verið
óragur við að spyija". Sérkenni-
legt nafn, en bókin er ágæt.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Skákþing Sovétríkjanna 1987
stendur nú yfír í Minsk. Þessi
staða kom upp á mótinu í viður-
eign hins kunna stórmeistara
Beljavsky, sem hafði hvítt og
átti Ieik, og hins unga meistara
Bareev.
30. Bf7! og svartur gafst upp, því
hann getur ekki varist báðum
hótunum hvíts, 31. Dxf6+ og 31.
Rg6+. Eftir 11 umferðir á mótinu
er Ehlvest efstur með 9 v. af 11
mögulegum, en Beljavsky hefur
7'h v. og biðskák. Salov og Ein-
gom hafa einnig Vh v.