Morgunblaðið - 03.04.1987, Page 72
OBRunnBóT -aföryggisastædum Nýjungar í 70 ár V Líkamsrækt
S JSB 3 20 ára
FÖSTUDAGUR 3. APRÍL 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR.
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmsmmmmmmmmKmmmmmmmmmmmm^mmmmmmm^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Snjóflóðið um
100 metra fyrir
ofan efstu húsin
^ Morgunblaðið/Rúnar
4-500 MANNS BIÐA FLUGS
Veður og verkfall veðurfræðinga hafa hamlað öllum öðrum ferðum var aflýst. Þá komu tvær
flugi undanfarna daga og bíða nú 4-500 manns vélar frá Akureyri í gær, en þær höfðu verið
eftir flugi. Aðeins var flogin ein ferð til Vest- þar veðurtepptar frá því á miðvikudag og sýnir
mannaeyja og önnur til Egilsstaða í gær, en myndin vélarnar á Akureyrarflugvelli.
Semja um hlutdeild í 4-600 milljóna framkvæmdum í Kenya:
I athugun að leigja
Jötun til tveggja ára
SNJÓFLÓÐ féll á Flateyri í fyrra-
kvöld og stöðvaðist rétt fyrir ofan
efstu húsin í bænum. Ekkert tjón
hlaust af, en snjóruðningur valt
alveg niður undir hús. Að sögn
Kristjáns Jóhannssonar, sveitar-
stjóra á Flateyri, má búast við
snjóflóðum á þessu svæði, en
vamir era fyrir ofan byggðina
sem draga verulega úr hættunni.
Tvisvar í vetur hefur þurft að
flytja fólk úr húsum sínum efst í
Annríki hjá
sáttasemjara
ANNRIKI var hjá ríkissáttasemj-
ara í gær, eins og verið hefur
undanfarna daga, og var í gær-
kvöldi jafnvel búist við að fundir
með fulltrúum ríkisins og hinum
stéttum starfsmanna innan BSRB
og BHM stæðu fram eftir nóttu.
Hreyfing komst á viðræður ríkis-
ins við náttúrufræðinga seint í
gærkvöldi.
Fundur með fulltrúum Starfs-
fnannafélags ríkisins og ríkisvaldsins
stóð í allan gærdag og var ekki lokið
í gærkveldi er Morgunblaðið fór í
prentun. Sama gilti um fundi með
Starfsmannafélagi Reykjavíkurborg-
ar og Félagi íslenskra náttúrufræð-
inga, en það félag hefur verið í
verkfalli frá 31. mars. Þá voru heilsu-
gæslulæknar og háskólakennarar
einnig hjá ríkissáttasemjara í gær-
kveldi og ræddu við samninganefnd
ríkisins. I dag er gert ráð fyrir fund-
um með fleiri félögum ríkisstarfs-
manna.
í gær tókust svipaðir samningar
við Kennarasamband íslands og áður
höfðu tekist við Hið íslenska kenn-
arafélag. Hjúkrunarkonur í Hjúkr-
unarfélagi Islands, sem starfa hjá
Reykjavíkurborg og á Landakoti,
feildu nýgerðan samning félagsins,
en félagar þeirra, sem starfa hjá
ríkisstofnunum, samþykktu hann
naumlega.
Sjá fréttir um kennarasamninga
á bls. 4 og atkvæðagreiðslu
hjúkrunarfræðinga á bls. 2.
bænum. Blindhríð var á Flateyri
og því erfitt að meta hættuna á
öðru flóði, að sögn fulltrúa al-
mannavarnanefndar. Nokkrír
íbúanna við Ólafstún hafa yfir-
gefið hús sín. Annað minna
snjóflóð féll fyrir ofan byggðina
á Flateyri í gærkvöldi, en það
stöðvaðist á varaagirðingu.
Snjóflóðið á Flateyri féll úr Eyrar-
fjalli og stöðvaðist ekki fyrr en um
100 metra fyrir ofan húsin við Ól-
afstún, sem er efsta gata bæjarins.
Talið er að flóðið sé um 400 metra
breitt. Snjóflóð hefur áður fallið á
svipuðum slóðum, fyrir 10-15 árum,
og tók þá með sér fískhjalla fyrir
ofan bæinn. Engin varð var við flóð-
ið fyrr en í gærmorgun þegar
veðurofsann lægði, en þreifandi byl-
ur hefur verið á Flateyri síðan á
mánudag. Almannavamanefnd stað-
arins fór í gærdag á snjóbíl upp í
fjallið, en að sögn þeirra Kristjáns
Jóhannssonar, sveitarstjóra, og
Steinars Guðmundssonar, fulltrúa í
almannavamanefnd, var erfitt að
átta sig á ástandinu í fjallinu vegna
dimmviðris. Þeir telja að byggð stafi
ekki frekari hætta af snjóflóðum,
þótt erfitt sé um slíkt að segja.
Annað flóð féll fyrir skömmu fyrir
innan byggðina, en þar var fólki
engin hætta búin. Veginum milli
Flateyrar og Sólbakkasvæðisins hef-
ur verið lokað vegna hættu á þeirri
leið.
Morgunblaðið ræddi við Magneu
Guðmundsdóttur í gærkvöldi, en hún
og fjölskylda hennar yfirgáfu þá hús
sitt við Ólafstún. Hún sagði að þau
hefðu ekki verið beðin að fara, en
núorðið myndi hún sjálf meta hvort
ráðlegt væri að vera í húsinu. „Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem við yfirgef-
um húsið, það gerðum við síðast
fyrir 2 vikum, en þá féllu snjóflóð
úr hreinlega öllum giljum nerna gil-
inu fyrir ofan húsið okkar. Eg þarf
engan annan til að segja mér hvenær
okkur er hætta búin. Þetta er búinn
að vera óvenjulegur og mjög þreyt-
andi vetur. Það er erfítt að búa við
sífeildan ótta við snjóflóð," sagði
Magnea.
ÍSLENSK sendinefnd er nú í
Kenýa til að semja við stjórnvöld
þar um tæknilega framkvæmd
við verk, sem áætlað er að kosti
um 10 til 15 milljónir dala eða
um 400 til 600 milljónir isl. króna.
Að sögn Páls Flygenring í iðnað-
arráðuneytinu verður samið um
verkefni tengd jarðhita í Kenýa,
tæknilega ráðgjöf og umsjón með
borframkvæmdum. Jarðboranir eru
stærsti verkþátturinn og hefur
komið til greina að jarðborinn „Jöt-
unn“ verði leigður til Kenýa í tvö
ár. Önnur verkefni sem til greina
kemur að íslendingar semji um eru
meðal annars dreifing á raforku í
stijálbýli og nýtingu á jarðvarma
til annars en beinnar raforkufram-
leiðslu.
Ferðin er farin í framhaldi af
opinberri heimsókn Biwotts orku-
málaráðherra Kenýa hingað til
lands. í sendinefndinni eru meðal
annarra Jónas Elíasson aðstoðar-
maður iðnaðarráðherra og Halldór
J. Kristjánsson fulltrúi í iðnaðar-
ráðuneytinu, Einar Tjörvi Elíasson
frá Orkustofnun, Karl Ragnars for-
stjóri Jarðborana hf. og Andrés
Svanbjörnsson framkvæmdastjóri
Virkis hf.
Meirihluti
yfirkjör-
sljórnar
Vestfjarða
segir af sér
FJÓRIR fulltrúar af fimm í yfir-
kjörstjórn Vestfjarðakjördæmis
hafa sagt sig úr nefndinni í kjöl-
far þess að landskjörstjórn
hnekkti þeim úrskurði yfirkjör-
stjórnarinnar að S-listi Borg-
araflokksins í Vestfjarðakjör-
dæmi væri ógildur. Segja
stjórnarmennirnir i bréfi til for-
seta Sameinaðs þings að
málsmeðferð landskjörstjórnar-
innar brjóti í bága við grunn-
reglur réttarfars í landinu og
við það verði ekki unað.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson,
forseti Sameinaðs þings, sendi
dómsmálaráðherra bréf í gær-
kv'óldi þar sem hann tilkynnti
honum um afsögn kjörstjórnar-
mannanna og óskaði eftir að hann
skipaði menn í yfirkjörstjórn Vest-
fjarðakjördæmis eftir tillögu
þeirra flokka sem kusu stjórnar-
mennina á Alþingi í stað þeirra
sem sögðu af sér .
Sjá bréf kjörstjórnarmanna
til forseta Sameinaðs þings
blaðsiðu 38.
Fatlaður maður rændur
o g honum hótað lífláti
RÁÐIST var á rúmlega sjötug-
an, fatlaðan mann í gær og hann
rændur. Arásarmennimir hót-
uðu honum lífláti ef hann gerði
lögreglu viðvart. Þessi árás er
sú þríðja sem maðurínn hefur
orðið fyrir á nokkrum mánuð-
um.
Maðurinn rekur forngripaversl-
un á Grettisgötu og var einn í
versluninni þegar tveir menn réð-
ust á hann síðdegis í gær. Maður
nokkur kom inn í verslunina og
kvaðst hafa áhuga á að kaupa
svefnsófa. Eftir að hafa litast um
í versluninni sagðist hann ætla að
ná í ökumann sendibifreiðar sem
biði fyrir utan, því ökumaðurinn
yrði að hjálpa sér við að bera sóf-
ann. Hann fór út stutta stund og
kom til baka með félaga sínum.
Þeir lokuðu dyrum verslunarinnar
að baki sér og annar þeirra sló
verslunareigandann í andlitið svo
hanr. féll á gólfíð. Hann er með
gervifót og gat ekki risið hjálpar-
laust á rætur. Annar mannanna
rétti honum höndina og hjálpaði
honum við að standa upp. Síðan
skipuðu þeir honum að setjast í
stól og hótuðu að kyrkja hann með
leðuról ef hann hreyfði sig. Þá
hótuðu þeir einnig að brjóta gler-
augu mannsins og slitu armbands-
úrið af honum. Litla peninga höfðu
mennimir upp úr krafsinu, aðeins
nokkur þúsund, auk ávísana. Áður
en þeir héldu á brott slitu þeir
símann úr sambandi og sögðu
verslunareigandanum að ef hann
hefði samband við lögregluna inn-
an tíu mínútna kæmu þeir aftur
og myrtu hann.
Verslunareigandinn gerði lög-
reglu viðvart um leið og mennimir
vom famir og gat gefíð góða lýs-
ingu á þeim. Lögreglan leitaði í
hverfmu og 20 mínútum eftir árás-
ina voru mennimir tveir hand-
teknir. Þeir voru þá með peningana
og ávísanimar á sér.
Eins og áður sagði er þetta í
þriðja sinn sem ráðist er á verslun-
areigandann. Fyrst var það
skömmu eftir áramót og þá voru
einnig tveir menn að verki. Þeir
höfðu 80 þúsund krónur upp úr
krafsinu, en náðust skömmu síðar,
m.a. með aðstoð föður annars
þeirra. Síðan sú árás var gerð hef-
ur verslunareigandinn gætt þess
að hafa ekki háar upphæðir í verls-
uninni, ekki nema skiptimynt. Á
þriðjudag sl. var ráðist aftur á
manninn og bám árásarmenninir,
sem vom tveir, sig eins að og í
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
I þessarí verslun var í gær ráð-
ist á fatlaðan mann um sjötugt.
Hann var sleginn niður og höfðu
árásarmennirnir nokkrar þús-
undir króna á brott með sér.
Þeir náðust skömmu síðar.
janúar. Þeir tóku með sér nokkrar
þúsundir króna og hafa ekki náðst
enn.
Maðurinn hefur nú þungar
áhyggjur af því að geta ekki sinnt
versluninni lengur sjálfur og íhug-
ar að fá yngri og hraustari mann
til að taka við rekstrinum.