Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 1
96 SÍÐUR B STOFNAÐ 1913 92. tbl. 75. árg.___________________________________LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987 Prentsmiðja Morgimblaðsins Kosið til Alþingis í dag: Tíu listar eru í boði Kosningaaldur 18 ár í fyrsta sinn í þing- kosningum - Alþingismönnum fjölgar í 63 KOSNINGABARÁTTUNNI lauk í gærkvöldi með fundi í ríkissjón- varpinu. Þar ræddu forystumenn þeirra sjö flokka sem bjóða fram í kjördæmum um land allt kosningamálin. Snerust umræð- urnar að mestu leyti um efnahagsmál, fjármál ríkisins, húsnæðis- mál og kjaramál. Einnig gerðu fulltrúar flokkanna grein fyrir stefnu þeirra í öryggis- og varnarmálum. í kosningunum í dag er í fyrsta sinn kosið eftir nýjum kosningalögum. Samkvæmt þeim er kosningaréttur lækkaður úr 20 í 18 ár og þingmönnum fjölgað úr 60 í 63. í sjónvarpsumræðunum í gær- kvöldi gagnrýndu stjómarand- stæðingar einkum hallann á ríkissjóði, en Þorsteinn Pálsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, lagði áherslu á að pólitísk ákvörðun hefði verið tekin um þennan halla í því skyni að stuðla að jafnvægi og auka kaupmátt launa. Talsmenn stjóm- arflokkanna bentu á að ríkis- stjómin hefði unnið bug á verðbólgunni og bætt lqor manna. Fulltrúar stjómarandstöðunnar töldu að góðærið hefði ekki verið nýtt nægilega vel í þágu fólksins í landinu. Auk Þorsteins Pálssonar vora Steingrímur Hermannson, forsæt- isráðherra, frá Framsóknarflokki, Svavar Gestsson frá Alþýðu- bandalagi, Jón Baldvin Hannibals- son frá Alþýðuflokknum, Albert Guðmundsson frá Borgaraflokkn- um, Guðrún Agnarsdóttir frá Samtökum um kvennalista og Pétur Guðjónsson frá Flokki mannsins þátttakendur í sjón- varpsumræðunum, sem Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri, stýrði. Þegar stjómandi þáttarins lagði spumingu um öryggis og vamar- mál fyrir þátttakendur undir lok þáttarsins sagði Steingrímur Her- mannsson að Framsóknarflokkur- inn vildi að herinn færi sem fyrst úr landi. Á hinn bóginn ætti ekki að hrófla við honum á meðan af- vopnunarmál væra á jafn við- kvæmu stigi og nú. Á kjörskrá í kosningunum í dag eru rúmlega 171 þúsund manns, en það er 14% aukning frá því í kosningunum 1983. Flestir eru kjósendur í Reykjavík, rúmlega 67 þúsund. Nýir kjósendur eru um 26 þúsund, en þetta era fyrstu þingkosningamar eftir að kosn- ingaaldur var lækkaður úr 20 í 18 ár. Kjörstaðir í þéttbýli verða víðast hvar opnaðir klukkan 9 árdegis og ekki síðar en kl. 10-12 í dreifbýli. Kjörfundum lýkur ekki síðar en kl. 23 í kvöld og búast má við því að fyrstu tölur úr Reykjavík, frá Reykjanesi og úr Norðurlandskjördæmi vestra komi þegar á tólfta tímanum. í öðrum kjördæmum era aðdrættir kjör- gagna erfiðari og fyrstu tölur þaðan gætu dregist rram á þriðja Júgóslavía: Átök þjóðarbrota og lögreglumanna Belgxad, Reuter. UM ÞAÐ bil 10.000 Serbum og Svartfellingum laust saman við sveitir Iögreglumanna í Kosovo-héraði í Júgóslavíu í gær, að því er skýrt var frá í júgóslavneska ríkissjónvarp- inu. í fréttum sjónvarpsins sagði að fólkið hefði safnast saman fyrir framan menningarmiðstöðina í borginni Kosovo Polje en þar var Slobodan Milosevic, formaður serbneska kommúnistaflokksins, að halda ræðu. Sagði einnig að fólkið hefði hrópað „við krefjumst frelsis" og sungið þjóðsöng Júgó- slavíu. Að sögn sjónarvotta drógu lögreglumenn þá kylfur á loft og tók þá fólkið að grýta þá. Nokkr- ir voru sagðir hafa slasast lítillega. Milosevic róaði mótmælenduma og ávítaði lögreglumennina fyrir hörku þeirra. Mikil ólga hefur verið meðal hinna ýmsu þjóðarbrota sem byggja Kosovo að undanförnu. Á mánudag söfnuðust um 5.000 Serbar þar saman til að mótmæla yfirgangi Albana, sem era í meiri- hluta í Kosovo. 1,7 milljón Albana býr í Kosovo-héraði sem er við landamæri Albaníu, en Serbar og Svartfellingar era um 200.000 talsins. Níu manns létu lífið í átökum þjóðarbrota í Kosovo árið 1981 og þurfti herinn að stilla til frið- ar. í júní í fyrra kom til átaka milli þjóðarbrota og lögreglu- manna þar og hafa fulltrúar Serba kvartað yfir mismunun og yfir- gangi Albana við æðstu embættis- menn júgóslavneska kommúnista- flokksins. Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson Forystumenn flokkanna sem bjóða fram í öllum kjördæmum í kaffistofu ríkissjónvarpsins eftir sjón- varpsumræðurnar í gærkvöldi, þar sem kosningabaráttunni Iauk formlega. F.v. Ingvi Hrafn Jónsson fréttastjóri, Pétur Guðjónsson frá Flokki mannsins, Albert Guðmundsson frá Borgaraflokknum, Jón Baldvin Hannibalsson frá Alþýðuflokknum, Steingrímur Hermannsson frá Framsóknarflokknum, Þor- steinn Pálsson frá Sjálfstæðisflokknum, Guðrún Agnarsdóttir frá Samtökum um kvennalista og Svavar Gestsson frá Alþýðubandalaginu. tímann aðfaranótt sunnudags. Veðurspáin gerir ráð fyrir vax- andi sunnanátt og rigningu um landið vestanvert, en björtu veðri framan af degi á Norðausturlandi og Austurlandi. Síðdegis þykknar einnig upp í þeim kjördæmum og rignir eitthvað í kvöld. Þá tekur við suðvestanátt með skúram eða slydduéljum á Vesturlandi. Sjá nánar á bls. 48-49, 50 og 54 og forystugrein í miðopnu. Anatoly Koryagin við komuna til Sviss: Hætti ekki baráttu gegn hryllingi bolsévismans Umbótastefna Gorbachevs hefur engu breytt Zilrich, Reuter. SOVÉSKI andóf smaðurinr Anatoly Koryagin sagði við komu sína til ZUrich í gær að stjórnvöld í Sovétríkjunum héldu fast við þá stefnu að loka andófsmenn inni á geðveikra- hælum. Koryagin hét áfram- haldandi baráttu fyrir frelsi andófsmanna í Sovétríkjunum en hann var dæmdur til sex ára fangelsisvistar árið 1981 fyrir afskipti sín af þessum mála- flokki. Koryagin, sem er geðlæknir að mennt, kom til Sviss í gær ásamt konu sinni, móður og þremur son- um. Honum var sleppt úr vinnu- búðum í febrúar á þessu ári og tilkynnt að honum hefði verið veitt leyfi til að flytjast úr landi ásamt fjölskyldu sinni. Hann er einna þekktastur þeirra andófsmanna sem fengið hafa frelsi á undan- fömum mánuðum. „Svonefnd umbótastefna Gorbachevs Sovétleiðtoga hefur engu breytt fyrir þá andófsmenn sem vistaðir hafa verið á geð- veikrahælum," sagði Koryagin ftéttamönnum sem biðu hans á flugvellinum í Ziirich. „Enn hefur engum þeirra verið sleppt,“ bætti hann við. Sagðist hann ætla að halda áfram baráttu sinni gegn „hryllingi bolsévismans". Koryagin kvaðst hafa mátt þola mikið harðræði þau sex ár sem hann dvaldi í vinnubúðum. Sagð- ist hann hafa liðið hungur og svefnleysi. Koryagin kvaðst hafa mótmælt harðræðinu með því að fara í hungurverkföll og hefði það Wellington, Nýja Sjálandi, Reuter. STJÓRNVÖLD á Nýja Sjálandi skýrðu frá því í gær, að sov- éskum sendiráðsmanni og foringja I KGB, sovésku leyni- þjónustunni, hefði verið vísað úr landi fyrir athæfi, sem ekki samræmdist stöðu hans. Talsmaður sovéska sendiráðs- ins í Wellington lýsti „mikilli undran" með brottrekstur Sergeis Budnik, ráðgjafa í sendiráðinu, og sagði, að hann gæti haft alvar: leg áhrif á samskipti ríkjanna. í yfirlýsingu Davids Lange, forsæt- lengsta staðið í sex og hálfan mánuð. „Fjölskyldu minni var einnig ógnað,“ sagði hann. Elsti sonur hans, Ivan, var einnig dæmdur til fangelsisvistar í Sov- étríkjunum fyrir afskipti sín af mannréttindamálum og var hon- um sleppt í síðasta mánuði. isráðherra, sagði, að Budnik yrði að koma sér úr landi innan viku vegna athæfis, sem færi í bága við stöðu hans, og einnig, að ekki yrði meira um þetta mál sagt af hálfu stjórnvalda. Budnik er fjórði sovéski sendi- maðurinn, sem rekinn er frá Nýja Sjálandi á 25 árum. Síðasti brott- reksturinn var árið 1980 þegar sjálfur sendiherrann, Vsevelod Sofmsky, var gripinn glóðvolgur við að koma peningum til kom- múnistaflokks á Nýja Sjálandi. Nýja Sjáland: Sovéskum sendi- manni vísað brott
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.