Morgunblaðið - 25.04.1987, Page 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
ÚTVARP / SJÓNVARP
Moldviðri
Þátturinn í takt við tímann var
að þessu sinni sviðsettur vestur
á Eiðistorgi svona í kveðjuskyni, en
þátturinn hverfur nú af öldum ljós-
vakans. Þær Ásdís Loftsdóttir og
Ásthildur E. Bemharðsdóttir sáu um
þennan lokaþátt og er skemmst frá
því að segja að þátturinn fór úr bönd-
unum; þannig var vart flóafriður fyrir
krökkum er ærsluðust í kringum Eið-
istorgið svo tónlistin í þættinum naut
sín vart. Þá var hann Ami Bjömsson
þjóðháttafræðingur dreginn uppá
svið að lýsa sumardeginum fyrsta en
Ámi hefir undanfama daga setið fyr-
ir framan hljóðnemann á nánast
öllum útvarpsstöðvum bæjarins við
að lýsa tímatalinu — of mikið má nú
af öllu gera. Svo voru einhver dansat-
riði, að vísu vel úr garði gerð en
einhvem veginn hæfðu þau ekki
þættinum. Þá ruddist inní miðjan
þátt auglýsingafígúra frá ónefndri
kaupstefnu.
Satt að segja bjóst ég við meiru
af lokaþætti þessa glansnúmers hinn-
ar innlendu dagskrárdeildar ríkissjón-
varpsins. Má kannski segja að
þáttaröðin í takt við tímann hafi
ætíð hvílt á brauðfótum reynsluleysis
þeirra er þar hafa farið með hlutverk
gestgjafa. Skil ég satt að segja ekk-
ert í yfirmönnum innlendu dagskrár-
deildarinnar að láta sér detta í hug
að hleypa slíkri þáttaröð af stokkun-
um án þess að leita til þaulvanra
þáttastjómenda á borð við Ómar
Ragnarsson er bjargaði á sínum tíma
þáttunum með þeim Agnesi og Sig-
mundi Emi. Legg ég hér með til að
þegar hafist verður handa að hausti
þá verði vanir menn og góðkunnir
fengnir sem þáttastjómendur og svo
verði þættimir á dagskrá aðra hveija
viku eða jafnvel bara einu sinni í
mánuði og þá verði vandað til verka
og þættimir teknir upp víðs vegar
um land í takt við þá landamæra-
lausu fjarskiptabyltingu er n(j
lifum.
Atkvœðið
Þjóðin hefír að undanfömu fylgst
með átökum stjómmálamannanna á
hinum úfna sæ ljósvakans. Ég hef
áður minnst á ágæta framboðsfundi
á rás 1 þar sem hinn gamli góði fram-
boðsfundaandi sveif yfir vötnunum
og einnig hefur Bylgjan efnt til um-
ræðufunda og rás 2 og Alfa spurt
frambjóðendur. Hjá ríkissjónvarpinu
hefir sá háttur verið hafður á að
gefa frambjóðendum stjómmála-
flokkanna kost á að flytja ávörp og
þykir nú sumum málæðið keyra úr
hófi. Síðastliðinn miðvikudag bauð
svo Stöð 2 til kosningafundar í Há-
skólabíói og voru þar mættir fulltrúar
flokkanna. Páll Magnússon stýrði
umræðum og fóru þær þannig fram
að fulltrúar fiokkanna fluttu ávörp
og svömðu fyrirspumum er gátu
jafnvel borist frá sessunautunum við
pallborðið. Kunni ég ágætlega við
þessa skipan mála og minni á loka-
fundinn í sölum ríkissjónvarpsins þar
sem Ingvi Hrafti stýrir umræðum.
Er ég persónulega þeirrar skoðunar,
eftir að hafa svelgt gullregn fram-
boðsræðnanna, að heppilegast sé að
hafa framboðsfundi f gamla stílnum
í útvarps- og sjónvarpssölum þar sem
menn skiptast á skoðunum í stað
þess að messa yfir fullsöddum lýðn-
um. Nú og hvert leiddi svo allt þetta
málæði sjónvarpsrýninn?
Eftir að hafa stútfyllt sálarkimuna
af fagurgala stjómmáiamannanna
komst ég að þeirri niðurstöðu að
blessaðir mennimir skiptust í tvo
hópa. Annarsvegar væru fagurgalar
er gripu í nálæg hálmstrá í von um
ráðherrastóla eða syðu saman áferð-
arfallegar stefnuskár í von um að
hreppa atkvæðin. Hins vegar væru
svo stjómmálamenn er bentu lqós-
endum á staðreyndir hins pólitíska
moldviðris og æsktu þess að menn
kysu um málefni fremur en mold-
viðri. Það verður spennandi að fylgj-
ast með því þegar tölvurisamir á
RÚV og Stöð 2 taka að spýta at-
kvæðaspánni og ljóst verður hvort
við sjáum út úr augunum næstu fjög-
ur árin. __ \
Ólafur M.
Jóhannesson
Rás 1 og 2:
14 tíma kosn-
ingaútvarp
00
22
báðum
Á kosninganótt
verður kosnin-
gaútvarp á
rásum Ríkisút-
með ólíkum
varpsins en
hætti þó. Á Rás 1 verður
lögð áhersla á tölur og við-
töl við stjómmálamenn, en
inn á milli verður leikin
tónlist og flutt skemmti-
efni. Á Rás 2 verða lesnar
tölur á háltíma fresti, en
þess á milli verður leikin
tónlist.
Kosningaútvarpið á Rás
1 hefst kl. 22 í kvöld og
verður þá greint frá kjör-
sókn og undirbúningu
talningar. Kl. 23 hefst svo
útvarp frá öllum talningar-
stöðum á landinu. Að venju
verður útvarpað beint frá
þessum stöðum: Austur-
Fréttamenn, tæknimenn og reiknimeistarar í kosningaútvarpi á báðum rásum á
kosninganótt.
bæjarskóla í Reykjavík,
Hafnarfirði, Borgamesi,
ísafirði, Sauðárkróki, Ak-
ureyri, Seyðisfirði og
Selfossi. Fréttamenn og
tæknimenn verða á öllum
þessum stöðum og greina
jafnharðan frá talningu og
flutningi kjörgagna.
UTVARP
©
LAUGARDAGUR
25. apríl
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 „Góðan dag, góðir
hlustendur". Pétur Péturs-
son sér um þáttinn. Fréttir
eru sagðar kl. 8.00, þá lesin
dagskré og veðurfregnir
sagðar kl. 8.15. Að þeim
loknum eru lesnar tilkynn-
ingar og lesiö úr forustu-
greinum dágblaðanna en
síðan heldur Pétur Péturs-
son áfram að kynna
morgunlögin.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.30 ( morgunmund. Þáttur
fyrir böm í tali og tónum.
Umsjón: Heiödís Norðfjörð.
(Frá Akureyri.)
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.26 Óskalög sjúklinga.
Helga Þ. Stephensen kynn-
ir. Tilkynningar.
11.00 Vísindaþátturinn. Um-
sjón: Stefán Jökulsson.
11.40 Næst á dagskrá. Stiklað
á stóru í dagskrá útvarps
um helgina og næstu viku.
Umsjón: Trausti Þór Sverris-
son.
12.00 Hér og nú. Fréttir og
fréttaþáttur i vikulokin f um-
sjá fréttamanna útvarps.
12.45 Veðurfregnir.
12.48 Hér og nú, framhald.
13.00 Tilkynningar. Dagskrá.
Tónleikar.
14.00 Sinna. Þáttur um listir
og menningarmál. Umsjón:
Þorgeir Ólafsson.
15.00 Tónspegill. Þáttur um
tónlist og tónmenntir á
líöandi stund. Umsjón:
Magnús Einarsson og Olaf-
ur Þórðarson.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
Dagskrá.
16.16 Veöurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið.
17.00 Að hlusta á tónlist. 29.
og lokaþáttur. Enn um kon-
serta. Umsjón: Atli Heimir
Sveinsson.
18.00 Islenskt mál. Jón Aðal-
steinn Jónsson flytur þátt-
inn.
18.16 Tónleikar. Tilkynningar.
18.46 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.36 öðruvísi var það ekki.
Þáttur í umsjá Guörúnar
Þórðardóttur og Sögu Jóns-
dóttur.
20.00 Harmoníkuþáttur. Um-
sjón: Högni Jónsson.
20.30 Ókunn afrek — Sjötta
skilningarvitiö. Ævar R.
Kvaran segir frá.
21.00 Islenskir einsöngvarar.
Magnús Jónsson syngur lög
eftir Árna Thorsteinsson,
Sigfús Einarsson, Markús
Kristjánsson, Sigurö Þórðar-
son og Sigvalda Kaldalóns.
SJÓNVARP
Ty
LAUGARDAGUR
25. apríl
16.00 Kosningafréttir og
íþróttir
Fréttir af kosningum og kjör-
sókn á klukkutíma fresti, en
þess á milli verða fþróttir:
Napoli — Juventus f itölsku
knattspyrnunni, golf, ball-
skák og fleira.
18.30 Þytur f laufi
Tólfti þáttur í breskum
brúðumyndaflokki. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
18.60 Kosningafréttir
19.00 Háskaslóðir
(Danger Bay) 11. Fálkaflug.
Kanadfskur myndaflokkur
fyrir börn og unglinga um
ævintýri við verndun dýra i
sjó og á landi. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
19.26 Fréttaágrip á táknmáli
19.30 Stóra stundin okkar
Umsjón: Elísabet Brekkan
og Erla Rafnsdóttir.
20.00 Fréttir og veöur
20.45 Lottó
20.60 Fyrirmyndarfaöir
(The Cosby Show) 15. þátt-
ur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur með Bill Cosby í
titilhlutverki. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
21.20 David Bowie
Frá hljómleikum 1983.
Meðal laga sem Bowie
syngur eru Heroes, China
Girl, Fashion og Fame.
22.20 Kosningavaka sjón-
varpsins
Ingvi Hrafn Jónsson, frétta-
menn og Hermann Gunn-
arsson stjórna dagskrá með
kosningafréttum og
skemmtiatriðum fram undir
morgun. Beinar sendingar
frá Austurbæjarskólanum f
Reykjavfk og frá Borgarnesi,
Sauðárkróki, Akureyri, Sel-
fossi og Hafnarfirði. Þá
verður litið inn í herbúðir
flokkanna. I sjónvarpssal sjá
hinir færustu sérfræðingar
um upplýsingamiðlun og
tölvuspár en umræðuhópur
skoðar stöðuna jafnóöum.
Meðal skemmtikrafa verða
stjörnumar úr Hljómum og
sfðar Lonely Blue Boys.
Söngvarar: Bubbi Mort-
hens, Shady Owens, Eiríkur
Hauksson, Sigríður Bein-
teinsdóttir og Ragnar
Bjarnason. Einnig syngur
Kristinn Sigmundsson
óperusöngvari. Jóhannes
Kristjánsson fer með gam-
anmál og eftirhermur og
leitaö verður fanga f safni
sjónvarpsiris. Jón Kjeld
stjómar tónlistarflutningi.
Mikill gestagangur verður
um nóttina, ritstjórar, stjórn-
málamenn og kjósendur,
ungir og gamlir. Stjórn út-
sendingar: Guðbergur
Davíðsson.
Dagskrárlok óákveðln.
(t
!)
STOÐ-2
og
LAUGARDAGUR
25. apríl
S09.00-12.00 Barna-
unglingaefni.
§16.00 Ættarveldið (Dyn-
asty). Eiginkonur Blake
Carrington's eiga f útistöð-
um.
§16.46 Morðiö á Olof Palme.
28. febrúar 1986 var Olof
Palme myrtur í Stokkhólmi.
Hvers vegna var hann myrt-
ur? í þéssari sovésku
sjónvarpsmynd er talað við
þá sem stóöu honum næst
og varpað fram tilgátum um
orsök ódæðisins.
§17.40 NBA — Körfuboltinn.
Umsjónarmaður er Heimir
Karlsson.
19.06 Teiknimynd
19.30 Fréttir.
20.00 Meistari. Keppt er til
úrslita um titilinn meistari
'87. Kynnir er Helgi Péturs-
son.
20.20 Undirheimar Miami
(Miami Vice).
Bandariskur framhaldsþátt-
ur með Don Johnson og
Philip Michael Thomson f
aðalhlutverkum.
21.06 Bráðum kemur betri
tíð.
(We'll meet again). í seinni
heimsstyrjöldinni vofðu
þungbúin ófriöarský yfir
bækistöðvum bandaríska
flughersins í Suffolk á Eng-
landi. En þar, eins og hér,
settu ástandsmálin sinn
svip á tilveruna. I þessum
nýja breska framhalds-
myndaflokki er fylgst með
daglegu lífl hermanna og
heimamana og samskiptum
þeirra.
22.00 Stöð tvö — Kosninga-
sjónvarp.
Fréttamenn Stöðvar tvö
með nýjustu kosningatölur
af öllu landinu í beinni út-
sendingu. Með aöstoö
fullkominnar tölvutækni birt-
ast nýjustu tölvuspár jafn-
óðum. Til að létta mönnum
biöina mæta Stuömenn f
sjónvarpssal, Gysbræður
kitla hláturtaugarnar og
sýndir verða valdir þættir
úr Spé.spegli. Ennfremur
veröur dregiö í verðlauna-
getraun Stöðvar tvö.
. . .Dagskrárlok.
Ólafur Vignir Albertsson
leikur með á píanó.
21.20 Á réttri hillu. Umsjón:
örn Ingi. (Frá Akureyri).
22.00 Kosningaútvarp vegna
Alþingiskosninganna. (Einn-
ig útvarpaö á stuttbylgju.)
Talað við frambjóðendur,
lesnar tölur um fylgi og kjör-
sókn í öllum kjördæmum
landsins og þess á milli leik-
in tónlist og reiknimeistarar
spá í spilin. Umsjón: Kári
Jónasson. Veðurfregnir
lesnar kl. 22.15 og kl.
01.00. Óvíst hvenær dag-
skrá lýkur.
UB
LAUGARDAGUR
25. apríl
00.10 Næturútvarp. Andrea
Guðmundsdóttir stendur
vaktina.
6.00 (bftið. Erla B. Skúladótt-
ir kynnir notalega tónlist f
morgunsárið.
9.03 Tíu dropar. Helgi Már
Barðason kynnir dægurlög
af ýmsu tagi og upp úr kl.
10.00 drekka gestlr hans
morgunkaffið hlustendum til
samlætis.
11.00 Lukkupotturinn. Bjarni
Dagur Jónsson sér um þátt-
inn.
12.46 Listapopp í umsjá
Gunnars Salvarssonar.
14.00 Poppgátan. Gunnlaug-
ur Ingvi Sigfússon og
Jónatan Garðarsson stýra
spurningaþætti um dægur-
tónlist. (Þátturinn verður
endurtekinn nk. þriðjudags-
kvöld kl. 21.00.)
16.00 Viö rásmarkið. Þáttur
um tónlist, Iþróttir og sitt-
hvað fleira f umsjá Siguröar
Sverrissonar og fþrótta-
fréttamannanna Ingólfs
Hannessonar og Samúels
Arnar Eriingssonar. Lýst
veröur leik fslendinga og
Finna á Norðurlandamótinu
í körfuknattleik f Horsens f
Danmörku.
17.00 Savanna, Ríó og hin
trfóin. Svavar Gests rekur
sögu íslenskra söngflokka f
tali og tónum.
18.00 Fréttir á ensku
18.10 Tilbrigði. Þáttur i umsjá
Hönnu G. Sigurðardóttur.
(Þátturinn verður endurtek-
inn aöfaranótt miðvikudags
kl. 02.00.)
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Með sínu lagi. Umsjón:
Guðrún Gunnarsdóttir.
20.00 Rokkbomsan — Þor-
steinn G. Gunnarsson.
21.00 Á mörkunum. — Sverrir
Páll Eriendsson (Frá Akur-
eyri.)
22.05 Snúningur. Vignir
Sveinsson kynnir gömul og
ný dægurlög.
23.00 Kosningaútvarp. Nýj-
ustu tölur og tölvuspár á
hálftíma fresti. Georg Magn-
ússon stendur næturvakt-
ina til morguns og leikur
létt lög á milli kosninga-
frétta.
Fréttir kl. 7.00, 8.00, 9.00,
10.00, 12.00, 16.00, 19.00,
22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæöisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5.
Fréttamenn fjalla um kosn
ingarnar.
989
BYLGJAN,
LAUGARDAGUR
25. apríl
8.00-12.00 Valdfs Gunnars-
dóttir. Valdís leikur tónlist
úr ýmsum áttum, Iftur á það
sem framundan er hér og
þar um helgina og tekur á
móti gestum. Fréttir kl.
08.00 og 10.00.
12.00—16.00 Ásgeir Tómas-
son á léttum laugardegi.
öll gömlu uppáhaldslögin á
slnum stað. Fréttir kl. 12.00
og 14.00.
16.00—17.00 Vinsældalisti
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
leikur 40 vinsælustu lög vik-
unnar. Fréttir kl. 16.00.
17.00—19.00 Laugardags-
popp á Bylgjunni með
Þorsteini Asgeiresyni. Frétt-
ir kl. 18.00.
19.00-21.00 Rósa Guð-
bjartsdóttir lítur á atburði
sföustu daga, leikur tónlist
og spjallar við gesti. Fréttir
kl. 19.00.
21.00—23.00 Anna Þorláks-
dóttir i laugardagsskapi
Anna trekkir upp fyrir helg-
ina.
23.00—04.00 Þorsteinn Ás-
geireson, nátthrafn Bylgj-
unnar, heldur uppi
helgarstuöi.
4.00— 8.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Haraldur Gfsla
son með tónlist fyrir þá sem
fara seint f háttinn og hina
sem fara snemma á fætur.
Sjá dagskrá útvarps og sjónvarps
næstu viku á bls. 55, 56 og 57.