Morgunblaðið - 25.04.1987, Page 9

Morgunblaðið - 25.04.1987, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987 9 Verkamannafélagið Dagsbrún Orðsending Tekið verður á móti umsóknum um dvöl í orlofshúsum félags- ins í sumar frá og með mánudeginum 27. apríl 1987 á skrifstofu félagsins á Lindargötu 9, 2. hæð. Þeir sem ekki hafa áður dvalið í húsunum, ganga fyrir með úthlutun til og með 30. april. Húsin eru: 5 hús í Ölfusborgum. 2 hús á lllugastöðum. 2 hús í Svignaskarði. 2 hús á Einarsstöðum. 1 hús í Vatnsfirði. 2 íbúðir á Akureyri. Vikuleigan er kr. 4000,- sem greiðist við pöntun. fcimhjálp Af marggefnu tilefni og ábendingum frá ótalmörgum vinum Samhjálpar um land allt, sjáum við okkur ekki annað fært en vekja athygli á því, að allar vörur Sam- hjálpar eru áprentaðar með Samhjálparmerkinu og aðeins slíkar eru frá Samhjálp, hvað svo sem bjóðend- ur varnings gefa í skyn. Þá bendum við einnig á, að allir starfsmenn Samhjálp- ar bera starfsmannapassa, sem þeir sýna mjög fúslega. Með von um áframhaldandi stuðning við málefni okkar. Virðingarfyllst, Samhjálp Óli Ágústsson. Norski listmálarinn KARL ERIK HARR sýnir myndskreytingar við skáldverk KNUTS HAMSUN í anddyri Norræna hússins. OPIÐ DAGLEGA kl. 9.00-19.00, sunnud. kl. 12.00-19.00. NORRÍNA HÖSID POHJOLAN TAID NORDENS HUS Félag ^ ^7 járniönaöarmanna Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 27. apríl 1987 kl. 20.00 á Suðurlandsbraut 30, 4. hæð. Dagskrá 1. Félagsmál. 2. Önnur mál. 3. Erindi: Um ný skatta- og orlofslög. Björn Björnsson, hagfr. A.S.Í. flytur. Mætið vel og stundvíslega. Stjórn Félags járniðnaðarmanna. Nýr flokkur á Reykjanesi? Það vekur athygli að Ólafur Ragnar Grímsson og félagar hans á Reykjanesi forðast að nefna Alþýðubandalagið á nafn í kosningabaráttunni. Þess í stað tala þeir aðeins um „G-listann“. í tólf síðna kosningablaði þeirra, sem dreift hefur verið um allt kjördæmið, er nafn Alþýðubandalagsins aðeins nefnt einu sinni! Augljóslega ætlar Ólafur Ragnar að reyna að ná til kjósenda sem vilja ekki heyra Alþýðubandalagið nefnt á nafn. Um þetta er fjallað í Staksteinum í dag. Þar er einnig vikið að ríkisstyrktum kosningaáróðri Framsóknarflokksins og sérkennilegum málatilbúnaði Alberts Guðmundssonar um frjálshyggju, en fyrir nokkrum áreum taldi Albert sig helsta málsvara frjálshyggjunnar í flokknum. Nýr flokkur á Reykjanesi? Það hefur vakið milda athygii að Ólafur Ragnar Grímsson og félagar hans á Reykjanesi hafa forðast að nefna Al- þýðubandalagið á nafn i kosningabaráttunni að undanfðmu. Ágætt dæmi um þetta er tólf siðna kosningablað þeirra sem dreift var í tugþúsunda upplagi í kjördæminu í þessari viku. Þar er að- eins einu sinni t«l«ð um Alþýðubandalagið, en „G-listanum“ óspart hampað. Menn þurfa ekki að fara í grafgötur um það hvað hér býr að baki. Ólafur Ragnar veit að Alþýðubandalagið nýtur lítilla vinsælda um þessar mundir, þykir neikvæður nöldurflokkur, og það er því ekki skynsamlegt að hafa nafn þess í hámæli. Þess f stað er lögð áhersla á listabókstafinn og einstaka frambjóð- endur með þeim hætti að halda mætti að um sér- stakt framboð, óháð Alþýðubandalaginu, væri að ræða. Það em heldur ekki hin hef ðbundnu bar- áttumál Alþýðubanda- lagsins sem kynnt em i blaði G-listans á Reykja- nesi. Sósialisminn er ekki nefndur á nafn, ekki tal- að um skattahækkanir, þjóðnýtingu eða höft og hömlur. Þess í stað er að finna dýrðaróð um afrek Ólafs Ragnars á alþjóða- vettvangi, með sérstakri áherslu á það að hann hafi þegið verðlaun úr hendi Yoko Ono! Ríkisstyrktur áróður Alþýðublaðið vakti at- hygli á þvi á fimmtudag- ínn, að Jón Helgason, landbúnaðarráðherra, hefði látdð ríkissjóð borga hluta af kosn- ingaáróðri Framsóknar- flokksins. Hann hefði nú á dögunum látið land- búnaðarráðuneytið gefa út bækling um ástand og horfur í landbúnaði á kjörtimabili ríkisstjóm- arinnar og látið senda hann á hvert sveitaheim- ili á landinu. Bæklingur þessi væri þó fyrst og fremst áróður fyrir land- búnaðarstefnu Fram- sóknarflokksins og lofgjörð um verk ráð- herrans. Taldi blaðið þetta gagnrýnisverða misnotkun á almannafé. Undir þessa gagnrýni skal tekið. Ráðherrar eins og aðrir verða að skilja glögglega á milli opinberra starfa sinna og flokkspólitískra. Ef Framsóknarflokloirinn vill auglýsa afrek sfn í landbúnaðarmálum ætti hann að gera það á eigin kostnað en ekki kostnað skattborgaranna. Hlynntur frjálshyggju Á landsfundi Sjálf- stæðisflokksins árið 1979 bauð Albert Guðmunds- son sig fram gegn Geir Hallgrimssyni til emb- ættis formanns flokksins. Albert beið mikinn ósig- ur í kosningunni, fékk aðeins 208 atkvæði en Geir 594. Fyrir landsfundinn sendi Albert fjölmiðlum yfirlýsingu þar sem hann skýrði ástæðumar fyrir framboði sinu gegn Geir Hallgrímssyni. Hann kvaðst m.a. hafa verið óánægður með frammi- stöðu forystu Sjálfstæðis- flokksins í ríkisstjóminni 1974-1978. „Ég hefði vi\j- að sjá fijálshyggjuna ríkja, ekki aðeins í orði, heldur einnig í verki,“ sagði hann orðrétt. Þessi ununæli Alberts fyrir átta ánun em for- vitnileg í ljósi ummæla hans í kosningabarátt- unni að undanfömu, þar sem hann hefur mjög beint spjótum sínum að fijálshyggju. fttoggtm* í Kaupmannahöfn FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTA- STÖÐINNI, KASTRUPFLUGVELLI OG Á RÁÐHÚSTORGI Akstur á kjördag Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík vantar sjálfboðaliða á bifreiðum til aksturs í dag, kjördag. Upplýsingarveittar í símum 689648 og 689649, í sjálfstæð- ishúsinu Valhöll. Sjálfstæðisfiokkurinn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.