Morgunblaðið - 25.04.1987, Síða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
M fik. i _______________________________—.
FIAT UNO stendur óumdeilanlega íramar
öðrum bílum í sama stærðarflokki - sannur braut-
ryöjandi sem sýnir aö nútíma hönnun eru lítil tak-
mörk sett.
Hann er lítill aö utan, en stór aö innan og býöur
upp á rými og þægindi sem nútímafólk kann aö
meta.
Þegar tekiö er tillit til útlits, aksturseiginleika,
þæginda, hagkvæmni, öryggis, notagildis og síðast
en ekki síst hversu mikið fæst fyrir peningana,
kemur í Ijós aö FIAT UNO er einfaldlega einstakur.
FIAT UNO 60S : 339.000 kr. FIAT UNO TURBO : 523.000 kr.
F I A T
FIAT UMBOÐIÐ
FAXAFEN110 108 REYKJAVÍK S: 91-68 88 50
: 283.000 kr.
: 312.000 kr.
FIATUNO 45
FIAT UNO 45S
MEBBNU
SÍMTALI
heimtuaðferðinni.
Eftir það verda
KELSJiíHHlilIillISilIiUUi
færð á viðkomandi
greiðslukortareikning
ffínn-nir
SIMINNER
691140-
691141
Gunbritt Lawrun
Kjarvalsstaðir:
„Reyni að mála ilm-
inn af blómunum“
- segir Gunbritt Lawrun, listmálari
SÆNSK listakona, Gunbrítt Láw-
run, opnar sýningn á málverkum
sínum á Kjarvalsstöðum í dag,
Laugardaginn 25. aprfl. Þetta er í
fyrsta skipti sem Gunbrítt Lawrun
sýnir verk sin hér á landi og jafn-
framt í fyrsta skipti sem hún
sækir ísland heim.
„Sjálf er ég frá lítilli eyju, eyjunni
Galtö, sem er við vesturströnd
Svíþjóðar. Ég hrífst sérstaklega af
mótsögnunum í náttúrunni sem eru
sérstaklega sterkar á eyjum eins og
íslandi. Náttúran setur mark sitt á
skapgerð fólks. Eybúar eru miklu
háðari og mótaðri af náttúrunni, en
þeir sem byggja meginlandið þar sem
óblíð náttúra setur manni litlar
skorður. Ég held að eybúar séu auð-
mjúkari vegna tengsla sinna við
náttúruna en þeir sem lítið verða
varir við strauma náttúrunnar,"
sagði Gunbritt Lawrun í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins. Hún er
búsett í Gautaborg og hefur haldið
Qölda einkasýninga þar og annars
staðar, listskreytt opinberar bygg-
ingar og hlotið fjölda viðurkenninga.
„Ég reyni að láta eyáhrifin, breyti-
leikann, _ koma fram í verkunum
mínum. Ég mála á ýmiss konar efni,
mikið á brúnan pappír og bylgju-
pappír. Bylgjupappírinn er í miklu
uppáhaldi hjá mér, hann er eins og
lífið með sínar öldur og dali. Óhjá-
kvæmilegur gangur lífsins og náttú-
runnar er að á eftir hæð kemur lægð,
Eitt verkanna
það er eilíf hringrás," sagði Gun-
britt. Það vekur athygli að myndir
hennar, sem eru bæði smáar og
fíngerðar, eru flestar óinnrammaðar
og aðspurð sagði hún að sér fyndist
að ef hún innrammaði myndimar
fyndist sér að hún setti á þær ákveð-
in höft, gæfi þeim stimpil, en það
vildi hún alls ekki gera. „Það er hluti '
af lífsskoðun minni. Ég mála ekki
blóm þannig að þú vitir að núna sértu
að horfa á túnfífil eða sóley. Ég reyni
að mála ilm blómanna og hreyfa
þannig við fmyndunarafli fólks, fá
það til að hreyfast með árstíðunum.
Án drauma og fmyndunarafls er lffið
líflaust," sagði Gunbritt Lawrun að
lokum.
Sýningin stendur til 10. maf.
tískuhús
Austurstræti lOa, 4. hæð. Sími 22226.