Morgunblaðið - 25.04.1987, Síða 19
v»or Tfrrq.A <nmArrff aotta.t aTaA TjTMTTrTírn]
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
Kjarvalsstaðir:
Keramiksýning
Rögnu Ingimundardóttiir
RAGNA Ingimundardóttir
opnar í dag keramiksýn-
ingu á vesturgangi Kjarv-
alsstaða. Þetta er önnur
einkasýning Rögnu, en hún
hefur áður tekið þátt í sam-
sýningum bæði hér heima
og í Hollandi.
vegna er það óskaplega spenn-
andi að sjá hvemig endanlega
tekst til. Ég sef ekki þá tvo
daga sem brennslan tekur,“
sagði Ragna í samtali við Morg-
unblaðið þegar hún var að setja
upp sýningu sína.
Ragna Ingimundardóttir
lauk prófí frá Keramikdeild
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands árið 1981 og stundaði
síðan framhaldsnám við Gerrit
Rietveld Academi í Hollandi
1982-84.
Sýningin er opin daglega frá
kl. 14.00-22.00 og stendur til
10. maí.
Ragna sýnir á Kjarvalsstöð-
um hluta þeirra verka sem hún
hefur unnið á síðastliðnu ári.
„Ég er hér með eintóm pör, tvo
samstæða hluti sem heyra sam-
an. Hver skál, vasi eða kúla og
annað sem ég geri er eitthvað
ákveðið fyrir mér, hefur
ákveðna þýðingu og er oft tengt
ákveðinni manneskju. Þess
vegna er það oft að ég get ekki
hugsað mér að láta frá mér
hluti sem ég hef búið til, nema
til fólks sem ég þekki og get
séð þá hjá aftur. Vinnslan á
hveijum hlut tekur langan tíma.
Ég bý til glerungana sjálf og
blanda alla Iiti sjálf. Það er
heilmikið mál að prófa sig
áfram og fínna réttu litina,
blanda þá eins og maður vill
hafa þá. Ég vil hafa litina matta
og þurra. En hvemig litur kem-
ur út að brennslu lokinni veit
maður aldrei fyrirfram og þess
Ragna Ingimundardóttir
Morgunblaðið/Emilía
Frá stofnfundi félags ungra sjálfstæðismanna í Mosfellssveit, Kjalar-
nesi og Kjós, sem haldinn var á sumardaginn fyrsta.
Félag ungra sjálf-
stæðismanna stofn-
að í Mosfellssveit
A SUMARDAGINN fyrsta var
stofnað félag ungra sjálfstæðis-
manna í Mosfellssveit, Kjalamesi
og Kjós.
Komið var á fót sérstakri kosn-
ingaskrifstofu fyrir unga fólkið í
Sjálfstæðisflokknum í Mosfells-
sveit. Innan raða þeirra sem þar
hafa starfað var kosin undirbún-
ingsnefnd að stofnun félags fyrir
unga sjálfstæðismenn í Mosfells-
sveit, Kjalamesi og Kjós.
Á stofnfundinn komu 43 sem
skráðu sig sem stofnfélagar, auk
annarra gesta, en þeir sem ganga
í félagið næsta mánuðinn teljast
stofnfélagar. Allir sem styðja vilja
stefnu Sjálfstæðisflokksins geta
gerst félagar í 'félagi ungra sjálf-
stæðismanna í Mosfellssveit, Kjal-
amesi og Kjós. Aldurstakmörk eru
frá 16 ára upp í 35 ára.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hvað þetta nýja félag kemur til með
að heita, en á fyrsta aðalfundi
munu koma fram tillögur um nafn.
Sérstakur gestur þessa stofn-
fundar var Gunnar G. Schram
alþingismaður, en hann ávarpaði
fundarmenn og ræddi um stjóm-
málaviðhorfíð og svaraði spuming-
um. Einnig fluttu ávörp formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðisfélaganna í
Kjósarsýslu, Þórarinn Jónsson,
Svala Amadóttir formaður Sjálf-
stæðisfélags Mosfellinga og
Magnús Jónsson formaður Sjálf-
stæðisfélags Kjalnesinga.
í fyrstu stjóm þessa nýja félags
vom kosnir eftirfarandi: Gunnar
Páll Pálsson formaður, aðrir í stjóm
em Guðlaug Amardóttir, Dagný
Davíðsdóttir, Guðbjörg Guðmunds-
dóttir, Thelma Hermannsdóttir,
Bjöm Jónsson og ívar Benedikts-
son.
,3agan af brauðinu dýra“
eftir Halldór Laxness:
Skáldið áritar bókiiia
í dag, laugardag
milli kl. 11 og 12.
Sagan um villu GuðrúnarJónsdótturáMosfellsheiði með brauðprestsins
í tréskjólu varpar Ijósi á hugsunarhátt alþýðunnar
sem byggði landið á fyrri tíð.
Sagan er meistaralega sögð og á brýnt erindi við fólk á öllum tímum.
„Sagan af brauðinu dýra“ er nú gefin út í nýjum búningi
í tilefni af afmæli skáldsins 23. apríl 1987.
Snorri Sveinn Friðriksson listmálari gerði myndir í bókina sem lýsa
einkar vel andblæ þessarar sérstæðu sögu.
Kosningakaffi, Kosningahandbók
opiðídag tilkl. 16. ri/Sl\/ÍC
Veriðvelkomin, rJvJLV Ii3
þiggið kaffi og með því. verður til sölu.
i—Itfl—
Bókabúð
LMÁLS & MENNINGAR J
Laugavegi 18 ■ Sími: 24240