Morgunblaðið - 25.04.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRlL 1987
35
í sambandslaganefndinni varð
samkomulag um að Danmörk
legði fram í eitt skipti fyrir öll 2
milljónir upp í skuldaskil sín við
ísland. Önnur milljónin rann til
Kaupmannahafnarháskóla, hon-
um til eignar og umráða, og hin
til Háskóla íslands með sömu skil-
málum. Tilgangur sjóðsins er m.a.
að styðja útgáfu vísindarita um
ísland og Danmörku, að styðja
vísindastarfsemi og styrkja há-
skólakennara til utanfara í
vísindaskyni. Er sjóðurinn kom til
felldi ríkisstjómin hins vegar
nokkra kostnaðarliði úr fjárlögum
og velti þeim yfír á sjóðinn sem
skiljanlega takmarkaði nokkuð
getu hans til að styrkja vísinda-
starfsemi háskólans. En með
stofnun bíósins efldist sjóðurinn
að mun og hefur sú ráðstöfun
unnið skólanum ómælt gagn.
Til gamans má loks nefna að
upphaflega stóð til að byggja
kvikmyndahús á lóðinni Austur-
stræti 5 í Reykjavík, en þar eð
engin innflutningsleyfí fengust til
bygginga stórhýsa í bænum árið
1941 varð ekkert af því; var lóðin
seld Búnaðarbankanum fáeinum
árum síðar sem byggði þar hús
sitt. í staðinn leigði háskólinn
húsið í Tjamargötu 10D, sem
áður var isgeymskj og stofnsetti
Tjamarbíó 1942. Arið 1958 var
svo hafín á vegum Sáttmálasjóðs
bygging Háskólabíós við Hagat-
org, sem tekið var í notkun haustið
1961. Salurinn þar rúmar 1.000
manns og er nú í deiglunni að
byggja viðbótarsali sem einnig
verði notaðir sem kennslusalir; en
í vetur hefur verið kennt í bíóinu
alla virka daga og svo er einnig
í 'Ijarnarbíói.
Höfundur er prófstjóri við Há-
skóla íslands.
...
Það er stutt að ná í sandinn á Akranesi, aðeins niður fyrir bakkann
á væntanlegnm velli.
Akranes:
Stórvirkar vinnuvélar hafa unnið dögum saman við gerð nýs knatt-
spyrnuvallar á Akranesi.
Nýr íþróttavöllur byggður
Stefnt að notkun í sumar
Akranes.
Knattspyrnufélag ÍA á Akra-
nesi stendur nú í stórfram-
kvæmdum við gerð nýs
knattspyrnuvallar og er ætlunin
að hraða svo framkvæmdum að
hugsanlega verði hægt að nota
völlinn síðari hluta sumars.
Félagið fékk úthlutað svæði inn-
an íþróttasvæðisins á Jaðarsbökk-
um, en samkvæmt skipulagi á þar
að byggja nokkra grasæfíngavelli
og er þetta fyrsti áfangi þessa
framtíðarskipulags. í þessum
áfanga er ætlunin að byggja gras-
æfíngasvæði að stærð sem svarar
til tveggja knattspymuvalla í fullri
stærð. Astæður þess að félagið
sjálft hefst handa við þessar fram-
kvæmdir eru þær, að mjög brýnt
er að auka æfíngaaðstöðu knatt-
spymumanna og ekki síður að
skapa unga fólkinu betri keppnisað-
stöðu. Fyrirsjáanlegt er að Akra-
neskaupstaður, sem hingað til hefur
séð um uppbyggingu íþróttavall-
anna, er ekki í stakk búinn til að
heija framkvæmdir við íþróttavelli
sökum þess, að hann á eins og sak-
ir standa í stórframkvæmdum við
byggingu íþróttamannvirkja. Nú
stendur yfír á hans vegum bygging
sundlaugar og síðan tekur við bygg-
ing búningsklefahúss við íþróttvöll-
inn sem einnig nær til hins nýja
íþróttahúss ÍA. Þar verður í náinni
framtíð byggt stórhýsi, sem tengj-
ast mun alhliða íþróttamiðstöð.
Framkvæmdir við hinn nýja
knattspymuvöll hófust fyrir mánuði
og eru þeir félagar Gunnar Sigurðs-
son og Haraldur Sturlaugsson í
forsvari fyrir framkvæmdum. Þar
sem hækka þarf talsvert upp landið,
sem völlurinn stendur á, og eins
að skipta um jarðveg er farin sú
leið að nota sand til uppfyllingar
og eru þar hæg heimatökin því nóg
er af sandinum á Langasandi, að-
eins steinsnar frá íþróttasvæðinu.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar
hafa framkvæmdir gengið mjög vel
og hafa margir lagt hönd á plóg-
inn. Ætlun okkar er sú að skipta
um jarðveg á svæðinu og síðan að
jafna það. Við notum til þess sand
og þurfum að flytja yfír 12.000
rúmm. af honum. Því er nú að
mestu lokið. Því næst þurfum við
að þurrka svæðið og koma fyrir
drenlögnum. Að því loknu setjum
við moldarlag yfír og tyrfum síðan
og við ætlum okkur að ljúka því í
maí og ef ekkert óvænt kemur fyr-
ir tökum við svæðið í notkun í júlí.
Gunnar sagði að öll vinna sem unn-
in hefur verið sé sjálfboðavinna og
þar koma margir aðilar við sögu.
Til marks um það voru þegar mest
lét 9 vörubflar og 2 stórar gröfur
auk jarðýtu að störfum. Við höfum
leitað til margra og alls staðar feng-
ið góðar undirtektir sem við erum
mjög þakklátir fyrir. Ég vil sérstak-
lega nefna Helga Þorsteinsson á
Ósi, sem hefur verið með jarðýtu
sína að störfum meira og minna
síðasta mánuðinn. Svona fram-
kvæmdir þurfa að gangamjög hratt
fyrir sig og því er það sérstaklega
ánægjulegt að eiga marga slíka
áhugamenn um þetta verkefni.
Gunnar sagði að lokum að ef þessi
framkvæmt gengi samkvæmt áætl-
un yrði það liðin tíð hjá knatt-
spymufólki á Akranesi að leika og
æfa á malarvöllum yfír sumartím-
ann og slfld ætti að verða okkur
enn meiri lyftistöng á næstu árum.
- JG
Þóra Dal, auglýslngastofa
Um helgina sýnum við DODGE ARIES LE og
CHRYSLER LeBARON GTS TURBO árg. 1987.
Framdrifnir AMERÍSKIR lúxusvagnar, hlaðnir auka-
búnaði, á ómótstæðilegu verði.
INNIFALIÐ í VERÐI:
Framhjóladrif • Sjálfskipting • Aflstýri • Afl-
hemlar • Bein innspýting á vél • Tölvustýrð
kveikja® „Central“ læsingar® Litað gler • Fjarstillt-
ir útispeglar • AM/FM stereo útvarp og kassettu-
tæki með fjórum hátölurum og stöðvaleitara • Loft-
kæling (air conditioning) sem um leið er fullkomn-
asta og öflugasta miðstöð sem völ er á • Teppalögð
farangursgeymsla • Læst hanskahólf • Kortaljós •
Digital klukka • Þurrkur með stillanlegum biðtíma •
Hituð afturrúða® Lúxus velour innrétting með stól-
um að framan • Stokkur á milli framsæta • „De
luxe“ hjólakoppar • Hjólbarðar 14'' með hvítum
hring • Varahjólbarði í fullri stærð • Og í Aries
Wagon: krómuð toppgrind • Þurrka og sprauta á
afturrúðu • Auk þess í LeBARON GTS: 2.2 L 146
DIN hö TURBO-vél • Rafmagnsrúður • Rafstilltir
útispeglar • Þurrka og rúðusprauta á afturrúðu.
GE ARIES LE WAGON 2,2 1987 CHRYSLER LeBARON GTSTURBO 1987
D KR. 698.600 VERÐ KR. 887.300
OPIÐ LAUGARDAG OG
SUNNUDAG KL.13-17
P1
—uJ-------
JÖFUR HF
NÝBÝLAVEGI 2
KÓPAVOGI
SÍMI42600