Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
Kína:
Harðlínumenn
hefta fjölmiðla
Peking, Reuter.
KÍNVERSKI kommúnistaflokkurinn hyggst herða enn frekar en
nú er eftirlit með fjölmiðlum í landinu. Vestrænir sljórnarerindrek-
ar telja að með þessu hyggist harðlínumenn treysta stöðu sína
áður en breytingar verða gerðar á forystuliði flokksins, sem búist
er við að verði síðar á þessu ári.
Björgunarmenn bera á brott lík eins þeirra sem fórst er byggingin hrundi. ReuU
Bandaríkin:
28 fórust er 12 hæða
fjölbýlishús hrundi
Bridgeport, Conneticut, Reuter.
ÓTTAST er að 28 verkamenn
hafi látið lífið á fimmtudag er
bygging sem þeir unnu við
hrundi skyndilega . Björgunar-
menn leituðu enn í rústunum
síðla dags í gær en töldu útilokað
að einhver kynni að reynast á lifi.
Thomas Bucci, borgarstjóri
Bridgeport í Conneticut-fylki sagði
að lík fjögurra byggingarverka-
manna hefðu fundist í rústunum,
vitað væri hvar önnur fímm lægju
en 19 manna væri enn saknað.
Sérþjálfaðar björgunarsveitir komu
til Bridgeport, sem er tæpa 99 kíló-
metra norðaustur af New York, frá
Miami og Pittsburg. Leitarmenn
notuðu mjög nákvæma hljóðnema
til að auðvelda leitina auk sérþjálf-
aðra hunda.
Byggingin, sem var 12 hæða fjöl-
býlishús, hrundi skömmu eftir
hádegi á fímmtudag er verið var
að koma fyrir gólfplötu á einni
hæðinni. Að sögn sjónarvotta
hrundi húsið til grunna á innan við
þremur sekúndum. „Ég var í þá
mund að ganga út úr húsinu þegar
ég heyrði ósakplegan hávaða. Hann
minnti mest á jarðskjálfta eða
þrumur. eg sagði við sjálfan mig;
byggingin er að hrynja," sagði
Charles Lorello sem slapp án telj-
andi meiðsla. Verkamaður sem var
aðeins nokkra metra fyrir
hann beið hins vegar bana.
aftan
Öll dagblöð og tímarit sem ekki
eru á skrá stjómvalda hafa fengið
fyrirskipun um að hætta útgáfu.
Þá hefur opinberum tímaritum og
blöðum verið gert skylt að leita
leyfis til áframhaldandi útgáfu og
mun ráðamönnum þannig gefast
tækifæri til að hefta starfsemi
þeirra. Blöðum og tímaritum hefur
fjölgað ört í Kína hin síðustu ár
og á flokkurinn í mestu erfíðleik-
um með að fylgjast með skrifum
starfsmanna þeirra. Sérstök skrif-
stofa hefur verið sett á stofn innan
áróðursdeildar kommúnistaflokks-
ins og er starfsmönnum hennar
ætlað að fylgjast með útgáfu blaða
og tímarita. í kjölfar þessa hefur
verið látið til skarar skríða gegn
þeim sem þykja full „borgaralega
þenkjandi" í skrifum sínum.
Að undanfömu hafa birst fjöl-
margar greinar í hinum opinberu
málgögnum þar sem flokkurinn
er hvattur til að halda uppi ströngu
eftirliti til að fyrirbyggja að blaða-
menn og ritstjórar víki frá yfir-
lýstri stefnu stjómvalda í skrifum
sínum. „Harðlínumenn innan
flokksforystunnar vilja auka áhrif
sín og því er mikilvægt fyrir þá
að ráða miðlun upplýsinga," sagði
ónefndur vestrænn stjómarerind-
reki í viðtali við Reuters-frétta-
stofuna. Fréttir herma að
háttsettum embættismönnum á
sviði útgáfumála hafi verið vikið
úr starfí frá því að kommúnista-
flokkurinn hóf herferð sína gegn
„borgaralegum lýðræðishugmynd-
um“ í janúar á þessu ári.
ERLENT
Sviss:
Stjórn Alusuisse
hotað málshöfðun
Mótmælaganga
í Washington
Washington, Reuter. ^
BÚIST var við, að 100.000 manns myndu í dag safnast saman í Was-
ZUrich, frá önnu Bjarnadóttur, fréttaritara Morgimblaðsins.
HLUTHAFAR Alusuisse samþykktu tillögu stjómar svissneska álfyr-
irtækisins um að skera höfuðstól þess niður um helming og nota
lögbundna varasjóði til að létta skuldabagga þess á aðalfundi fyrir-
tækisins í Ziirich nú í vikunni. Alusuisse var rekið með 565 milljóna
sv. fr. (yfir 14 milljarðar ísl. kr.) halla árið 1986 en 648 milljóna sv.
fr. halla 1985. Samþykkt aðalfundarins gerir fyrirtækinu kleift að
færa 3 milljónir (um 75 milljónir ísl. kr.) í stað 724 milljóna (rúm-
lega 18 milljarðar ísl. kr.) f skuld á nýjum ársreikningi. Nýtt nafnverð
hlutabréfa verður nú svipað raunverulegu virði þeirra á verðbréfa-
mörkuðum.
hington til að mótmæla stefnu
Mið-Ameríku og Suður-Afríku.
Talsmenn Landssamtakanna fyrir
friði og réttlæti í Mið-Ameríku og
Suður-Afríku sögðu í gær, að fólkið
yrði flutt til Washington í 1200 lang-
ferðabflum auk sérstakrar lestar frá
Boston með 18 vagna. Meðal ræðu-
manna verða séra Jesse Jackson,
sem sóttist eftir að verða forsetaefni
demókrata í síðustu kosningum,
Eleanor Smeal, formaður banda-
rísku kvennasamtakanna, og John
Conyers, fulltrúadeildarþingmaður
demókrata frá Michigan.
Fyrirhugað er að efna til mót-
mæla við aðalstöðvar bandarísku
Reagan-stjórnarinnar í málefnum
leyniþjónustunnar, CLA, og gerðu
skipuleggjendumir ráð fyrir, að 500
manns yrðu handteknir. Dagblaðið
Washington Times hafði það eftir
Carlos Rondon, fyrrum foringja í her
sandinista í Nicaragua, að stjómin
þar hefði stutt mótmælin með
þriggja milljóna dollara framlagi.
Rondon, sem sneri baki við sandin-
istum og býr nú í Bandaríkjunum,
kvaðst hafa þessar upplýsingar eftir
heimildamönnum í Nicaragua.
Sendiráð Nicaragua hefur neitað
fréttinni.
Rúmlega 1400 hluthafar sóttu
aðalfundinn. Aðeins 12 þeirra tóku
til máls en flestir gagmýndu stjóm
Alusuisse harðlega og lýstu yfír
óánægju með svissnesku bankana.
Þótti mörgum sárt að hallarekstur
fyrirtækisins kæmi niður á hluthöf-
unum en bankamir, sem em reknir
með miklum gróða, léttu ekkert á
vaxtakröfum sínum. Nokkrir stjóm-
armeðlimir Alusuisse eiga einnig
sæti í bankastjómum en dr. Nello
Celio, fráfarandi stjómarformaður,
sagði þó að aðalfundur Alusuisse
væri ekki rétti staðurinn til að ræða
málefni bankanna.
Lögfræðingur nokkur bar fram
alvarlegustu ásökunina á hendur
sjtjóminni. Hann sagðist hafa skjöl
undir höndum sem sýndu, að stjóm-
in hefði samþykkt í árslok 1982 að
greiða offjár í ellilífeyri fyrir
Emanuel Meyer, þv. stjómarform-
ann, dr. Paul Muller, þv. forstjóra,
og dr. Bmno Sorato, þv. varafor-
stjóra og eftirmann Mullers.
Upphæðimar, 441.525 sv. fr. (rúm-
ar 11 milljónir ísl. kr.) fyrir Meyer,
281.530 (rúmar 7 milljónir) fyrir
Muller og 274.457 (tæpar 7 milljón-
ir) fyrir Sorato, vom greiddar í júli
1983 en Alusuisse var rekið með
217 milljóna sv. fr. tapi það ár.
Lögfræðingurinn taldi þessar
greiðslur sanna vanrækslu stjómar-
innar og hótaði málsókn ef hún
endurgreiddi fyrirtækinu ekki 10
milljónir sv. fr. fyrir 1. júlí nk. eða
semdi á ný við þremenningana. Dr.
Celio vildi ekki tjá sig um ásökun-
ina á fundinum vegna yfírvofandi
málsóknar.
Nýir stjómendur tóku við Alu-
suisse fyrir rúmu ári þegar gífurlegt
tap fyrirtækisins lá fyrir. Þeir
ákváðu þá að draga vemlega úr
álframleiðslu en auka efna- og
markaðsvöruframleiðslu. Alusuisse
framleiðir nú um 400.000 tonn af
áli á ári en stefnir að því að minnka
framleiðsluna niður í 280-260.000
tonn. Álverið í Straumsvík framleið-
ir um 88.000 tonn á ári. Dr. Hans
Jucker tók fram á aðalfundinum
að orkuverðið á íslandi væri nógu
lágt til að halda álframleiðslu ÍSAL
áfram.
Rekstur Alusuisse það sem af er
þessu ári hefur gengið vel og stjóm-
endur þess em bjartsýnir á framtíð-
ina svo framarlega sem eftirspum
eftir áli dregst ekki saman, verð á
áli lækkar ekki og gengi dollarans
fellur ekki frekar. Aðalfundurinn
kaus tvo nýja fulltrúa í stjómina,
þá Pius Binkert og dr. Albert Bodm-
er. Binkert mun væntanlega taka
við formennskunni af dr. Celio sem
hætti í stjóminni fyrir aldurs sakir.
FREKJM HF. S®USCT(SGEIf»,
KWSMZSBfmjr 4M„ KÖPAVOGf
:s