Morgunblaðið - 25.04.1987, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
Noregur:
Síðasta hvalver-
tíðin að hefjast
Grænfriðungar undirbúa mótmælaaðgerðir
Ósló. Frá Áslaugu Þormóðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins.
NORSK stjórnvöld hafa heimilað
veiðar á alls 375 hvölum á síðustu
hvalvertíðinni, sem hefst 27.
april nk., 325 í Barentshafi og
50 á Jan Mayen-svæðinu. Ríflega
50 bátar hafa fengið leyfi til
veiðanna. Grænfriðungar hyggj-
ast efna til mótmælaaðgerða
gegn hvalveiðimönnum, svo og
gegn Gro Harlem Brundtland,
forsætisráðherra Noregs, þegar
hún kemur til Lundúna eftir
helgina.
Ríkisstjómin ætlar að draga fram
á sumarið að kunngera framtíðar-
stefnu sína í hvalveiðimálum. í
fyrrasumar var ákveðið, að dregið
skyldi smám saman úr veiðunum
og þeim hætt eftir vertíðina, sem
nú er að hefjast. Bjame Mörk
Eidem sjávarútvegsráðherra hefur
sagt, að Norðmenn hafi_ áhuga á
rannsóknasamstarfi við íslendinga
í hvalveiðimálum. í fyrrasumar
skipaði Eidem nefnd vísindamanna
með Lars Wallöe, prófessor við
Óslóarháskóla, í fararbroddi, og er
verkefni hennar að leggja mat á
ástand hvalveiðistofnsins í Norð-
austur-Atlantshafi og hugsanlegar
framtíðarveiðar úr honum. Wallöe
hefur ekki viljað láta uppi, í hverju
ráðleggingar nefndarinnar verða
fólgnar, en nefndin mun skila áliti
snemmsumars.
Pólland:
Jakob Lagerkrantz, fulltrúi
Grænfriðunga í Sviþjóð, segir, að
samtökin muni fylgjast grannt með
því, þegar norskir hvalveiðimenn
haldi á miðin. Lagerkrantz hefur
enn fremur látið eftir sér hafa, að
mótmælaaðgerðum verði haldið
uppi gegn Gro Harlem Brundtland
forsætisráðherra, meðan hún dvelst
í Lundúnum. Þar mun Brundtland
sitja fund til að kynna skýrslu al-
þjóðlegrar nefndar um umhverfis-
vemd í heiminum. Fundurin hefst
sama dag og hvalvertíðin í Noregi,
eða 27. apríl, eins og fyrr sagði.
Grænfriðungum þykir mótsagna-
kennt, að Brundtland leyfi hvalveið-
ar heima fyrir í krafti embættis
síns, en sem formaður alþjóðlegrar
umhverfisvemdar standi hún að því
að leggja fram umfangsmikla
skýrslu, sem nefni hvalveiðar sem
sorglegt dæmi um ofnýtingu á dýra-
stofni.
Samkvæmt upplýsingum, sem
norska blaðið Aftenposten hefur
orðið sér úti um, stangast hvalveiði-
stefna Norðmanna í engu á við
fyrmefnda skýrslu umhverfísvemd-
amefndarinnar. í skýrslunni er
aðeins tekið fram, að ekki hafí alls
staðar tekist að koma í veg fyrir
ofnýtingu hvalastofna og lagt til
að fundnar verði ömggar stjómun-
arleiðir til að ráða bót á því.
Saka Bandaríkja-
mann um njósnir
Varsjá, Reuter.
YFIRVÖLD í Póllandi hafa sakað
bandarískan sendiráðsmann um
njósnir og sýnt myndband því til
sönnunar. Þar á maðurinn að
sjást afhenda pólskum aðstoðar-
manni peninga og skrifleg
fyrirmæli.
Jerzy Urban, talsmaður pólsku
stjómarinnar, sagði, að Albert Mu-
eller, annar sendiráðsritari í stjóm-
máladeild bandaríska sendiráðsins,
hefði verið „gripinn glóðvolgur" sl.
laugardagskvöld og færður á lög-
reglustöð til yfírheyrslu. Nú væri
hann hins vegar farinn úr landi.
Pólska utanríkisráðuneytið hefur
komið mótmælum á framfæri við
bandaríska sendiráðið og talsmaður
þess hefur staðfest, að Mueller hafí
farið úr landi. Hann sagði þó, að
Mueller hefði ekki verið vísað brott
og kæmi brátt aftur. Hefði hand-
töku hans og yfírheyrslu í sex og
hálfan tíma verið mótmælt við pólsk
stjómvöld enda um að ræða brot á
friðhelgi sendiráðsmanna.
Mueller, sem talar pólsku reip-
rennandi, hafði verið í Varsjá í tvö
ár og átti skammt eftir af dvölinni
þar. Á myndbandinu, sem sýnt var
fréttamönnum, sást maður með
poka vera á tali við annan í skógar-
rjóðri en myrkur var á og ekki
hægt að sjá á myndinni hverjir
þama voru á ferð.
Florida:
Myrti sex manns í
tveimur verslunum
Reuter.
Lögreglumenn forða ungum dreng undan kúlnahríðinni. Rúmlega
100 lögreglumenn umkringdu verslunina auk sjúkraliðs og víkinga-
sveitar frá nálægri herstöð.
Palm Bay, Florida, Reuter.
MAÐUR vopnaður hálfsjálfvirk-
um riffli myrti í gær sex menn
og særði 14 í tveimur verslana-
miðstöðvum í strandbænum
Palm Bay á Florida í Banda-
ríkjunum. Var hann loks svældur
út með táragassprengjum og
handtekinn þegar hann reyndi
að komast undan.
„Ég vissi ekki fyrri til en ég
heyrði skothvelli og sá fólk falla til
jarðar allt í kringum mig. Neyð-
arópin kváðu við úr öllum áttum
og það var ekkert lát á skot-
hríðinni," sagði Joe Camavale, sem
staddur var í annarri versluninni,
en að sögn lögreglunnar létu sex
menn lífið, þar af tveir lögreglu-
menn. Ekki er vitað hvers vegna
morðæðið rann á manninn en hann
var drykkjusjúkur og sást mjög ölv-
aður fyrr um daginn.
Maðurinn hóf skothríðina á bíla-
stæði fyrir utan verslanamiðstöð en
hljóp síðan jrfír að annarri handan
götunnar og iét kúlunum rigna yfír
fólkið, sem þar var statt. Kom hann
sér síðan upp eins konar vígi í versl-
unni og hafði þar um stund þijá
gísla á valdi sínu. Lögreglan fékk
talið hann á sleppa þeim og skaut
að því búnu táragassprengjum inn
í verslunina. Reyndi morðinginn þá
að komast undan bakdyramegin en
var strax yfírbugaður.
Lögreglan segir, að morðinginn
heiti William Cmise, á sjötugsaldri
og búsettur í Palm Bay, sem er um
18.000 manna bær. í gær var talið
eins líklegt, að einhverjir hinna
særðu létust af sámm sínum.
Þegar þú
biður um
ríssúkkulaði
meinarðu
örugglega
þetta hér
P«»YJA 8ÆMÆTISÖ6WJ,
KAfl6WeSe#(AiJT 104, KOflAVOÖI