Morgunblaðið - 25.04.1987, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
49
efni til að ræða kosningamar á
skemmtilegum nótum.“ Vel flestir
starfsmenn stöðvarinnar taka þátt
í útsendingunni og munu þeir Páll
Þorsteinsson og Pétur Steinn Guð-
mundsson dagskrárgerðamenn sjá
um tónlistina sem skotið er inn á
milii frétta og viðtala.
Kosningaútvarp á báð-
um rásum
„Útsending okkar nær um allt
land og miðin,“ sagði Kári Jónasson
fréttastjóri ríkisútvarpsins, en bein-
ar útsendingar hefjast kl. 22 og
verður sent frá tíu stöðum á
landinu. Útvarpað verður á báðum
rásum en áhersla lögð á tölur og
viðtöl við stjómmálamenn á rás eitt.
„Við byggjum á gömlum merg og
beinar útsendingar em ekkert ný-
mæli hjá okkur. Við emm með gott
og gamalt tölvuforrit sem sér um
alla útreikninga og munum kapp-
kosta að birta tölur um leið og þær
liggja fyrir. Að þessu sinni verður
samkeppni milli fjögurra lqordæma
um að verða fyrst með tölumar og
ef fer sem horfir verða megin línur
varðandi úrslitin komnar fyrir mið-
nætti."
Þorkell Helgason prófessor verð-
ur í talstofu og reiknar út kosning-
arspá á gmndvelli forrita sem gerð
hafa verið vegna nýju kosningalag-
anna. Eftir að fyrstu tölur hafa
birst úr Reykjavík verður talað við
efstu menn á listum flokkanna í
samtengdri útsendingu hljóðvarps
og sjónvarps. Fréttamenn munu
síðan ræða við frambjóðendur úti á
landi eftir því sem tölur berast og
tilefni er til. í Reykjavík og á Akur-
eyri verða fréttamenn á ferðinni og
koma við á kosningavökum flokk-
anna.
Morgunútvarp hefst kl. 8 á
sunnudagsmorgun en haldið verður
áfram að útvarpa tölum þar til nið-
urstöður liggja fyrir í öllum kjör-
dæmum. „A sunnudag verða viðtöl
við leiðtoga flokkanna um niður-
stöður kosninganna," sagði Kári. A
rás 2 verður talað við unga og nýja
alþingismenn um kosningaúrslitin
og á rás eitt verður talað við gamla
og reynda stjómmálamenn um nið-
urstöðumar. í hádegisútvarpi
verður sagt frá úrslitum í þeim kjör-
dæmum þar sem talningu er lokið
og í sérstökum fréttaþætti verða
viðtöl við reiknimeistara og stjóm-
málaforingja. Að loknum kvöld-
fréttum verður sérstakur frétta-
þáttur um úrslit kosninganna.
J—/esiö af
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er224 80
Morgunblaðið/Emilía
Starfsmenn Stöðvar-2 æfðu kosningarsjónvarpið í gær. Frá vinstri tölvusérfræðingarinir Friðrik Sigurðsson og Bjarni Júlíusson, Páll
Magnússon fréttastjóri og Sigurveig Jónsdóttir fréttamaður.
BRETLAND
Viltu bregða þér með?
Dreymir þig stundum að þú liggir á strönd og
borðir góðan mat, að þú siglir á fallegum bát, spilir
golf, akir um grænt landslag, stundir leikhús, tónleika,
diskótek og hver veit hvað? Við þekkjum drauminn og
bjóðum þér að upplifa skemmtilega og fjölbreytta
daga hjá góðum grönnum okkar, Bretum. Flugleiðir
fljúga adlt að átta sinnum í viku til London í sumar og
þrisvar í viku til Glasgow. Hér koma örfá dæmi um
ljúfa „breska daga“.
fara hreinlega í „golfferð" um Skotland, aka milli
spennandi golfvaila og góðra hótela.
Flug og bátur
Þú lætur þig líða um kyrrlátt landslag Norfolk á
bát eftir síkjum og ám, leggur að bryggjum lítilla bæja
eða freistandi veitingastaða og kráa sem liggja víða
meðfram bökkunum. Norfolk er náttúruvemdarsvæði
ríkt af fuglalífi og vatnagróðri.
Flug, bfll, hús og golf
Á bíl ertu pinn eiginn fararstjóri, heimsækir þá
staði sem þig hefur dreymt um og hagar tímanum
eftir þínum hentugleika. Skemmtilegt væri t.d. líka að
leigja eitt af rómantískum BLAKES-SUMARHÚSUNUM
í nokkra daga og aka stuttar ferðir í nágrenninu eða
BLAKES-BATAR
Flug+bátur f 1 viku kr. 20.824 á mann. Verð miðað við 2
fullorðna og Cciribou bát. Mjög margir aðrir möguleikar.
LONDON
Flug+bíll í 2 vikur kr. 14.605 á mann. Verð miðað við 2 fullorðna
og 2 böm, 2-11 ára, í Ford Fiesta.
GLASGOW
Flug+bíll í2vikurkr. 13.169 á mcinn. Verð miðað við 2 fullorðna
og 2 böm, 2-11 ára, í Ford Fiesta.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða,
umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofumcir.
Ath. Öll flugumferd Flugleiða til og frá Heathrow
fer um Terminal 1.
FLUGLEIDIR
öluskrifstofur Flugleida: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Álfabakka 10. Upplýsingasími 25 100