Morgunblaðið - 25.04.1987, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
51
Akureyri:
Eldurí
Dalborgu EA
ELDUR kom upp í skuttogaran-
um Dalborgu EA 317 frá Dalvík
í Slippstöðinni á Akureyri í gær-
morgun.
Unnið hefur verið að hækkun á brú
skipsins að undanfömu og kom eld-
urinn upp í íbúð skipverja þegar
verið var að rafsjóða stál, sem of-
heitnaði. Greiðlega gekk að ráða
niðurlögum eldsins og urðu aðeins
skemmdir á einni skipsíbúðinni.
Vegskáli í Óshlíð:
Lægsta tilboð
12,3 milljónir
VEGAGERÐ rikisins fékk fjögur
tilboð i gerð vegskála á Hvanngjá
ytri í Óshlíð og voru þau öll yfir
kostnaðaráætlun. Lægsta tilboð-
ið átti verktakafyrirtækið
Gunnar og Guðmundur i Reykja-
vik, 12,3 milljónir kr., sem er
13,4% yfir áætlun.
Kostnaðaráætlun Vegagerðar-
innar var 10,8 milljónir kr. Næst-
lægsta tilboðið var frá Hagvirki í
Hafnarfírði, 12,8 milljónir kr. Hin
tilboðin vom frá Ömólfí Guðmunds-
syni í Bolungarvík, 13,5 milljónir
og Vesttaki á ísafirði, 14,4 milljón-
ir kr.
I útboði er talað um að verkinu
eigi að ljúka fyrir 1. september
næstkomandi. Sem dæmi um um-
fang verksins eru helstu magntölur
þessar: Malar- og gijótfylling er
800 rúmmetrar, mótafletir 1.300
fermetrar, steypustyrktarjám 41
tonn og steypa 460 rúmmetrar.
Hljómsveitin Völundur, heimsfræg á Austurlandi í eina tíð, talið frá vinstri: Stefán Braga- Fokheld sundlaugarbygging við Vonarland.
son, Friðrik Lúðvíksson, Helgi Arngrímsson, Bjarni Helgason og Jón Arngrimsson.
Egilsstaðir:
Egilsstöðum.
Á MILLI250 og 300 þúsund krón-
ur söfnuðust á tónlistarhátíð sem
haldin var á Egilsstöðum fyrir
skömmu. Ágóði af hátíðinni
rennur til styrktar sundlaugar-
byggingar við Vonarland, heimili
þroskaheftra á Austurlandi. Um
þrjátíu tónlistarmenn af Austur-
landi, einkum Héraði, settu
saman fjölbreytta tónlistar- og
skemmtidagskrá sem flutt var í
Valaskjálf fyrir fullu húsi, alls
um 600 manns.
Að sögn Þorvarðar Bessa Einars-
sonar, aðalhvatamanns að tónlistar-
hátíðinni, lætur allt þetta tónlistar-
fólk vinnu sína í té endurgjalds-
laust, en þrjár hljómsveitir skiptust
á um að leika fyrir dansi fram eft-
ir nóttu. Tónlistardagskráin var
síðan endurtekin á sunnudag.
Endanlegt fjárhagsuppgjör af
þessari hátíð hefur enn ekki farið
fram, en hagnaður er talin nema á
milli 250 og 300 þúsundum króna.
Soffía Lárusdóttir, forstöðukona
Vonarlands, kvað brýna þörf fyrir
að ljúka við sundlaugarbygginguna,
en hún er nú fokheld.
Vonarland er heimili 9 einstakl-
inga, mismunandi mikið fatlaðra,
og kemur sundlaug að miklu gagni
við endurhæfingu þeirra.
— Björn
Tónlistarhátíð tíl styrkt-
ar sundlaugarbygg-
ingu við Vonarland
Morgunblaðið/Bjöm
Vonarland, vistheimili þroskaheftra á Austurl-
andi.