Morgunblaðið - 25.04.1987, Page 62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
Frú Reagan í hópi barnanna, henni til hægri handar er Oddf ríður Helgadóttir og við hlið hennar Katla Guðrún Harðardóttir.
Morgunblaðið/Kristján Jónsson
Eitt verksmiðjuskipanna á sigiingu suðvestur af Reykjanesi
Austantjaldsfloti á
karfa út af Reykjanesi
STÓR floti verksmiðjuskipa frá Austur-Evrópu er nú á karfaveið-
um suðvestur af Reykjanesi. Skipin eru frá Rússlandi, Búlgaríu
og Austur-Þýzkalandi.
Landhelgisgæzlan flaug yfír
veiðisvæðið og voru þá 44 skip á
þessum slóðum, rétt utan 200 mílna
markanna. Ekki sást til þeirra hífa
trollið um borð og ókunnugt er um
aflabrögð. Skip frá Austur-Evrópu
hafa nýtt sér þessi mið undan farin
ár á svipuðum árstíma. Islendingar
hafa til þessa ekki talið það borga
sig að veiða þennan karfa, sem
sagður er mun lakari en sá sem er
á grynnri sæ og innan landhelginn-
Boð í Hvítahúsinu
ARLEGA er haldið jólaboð í Hvítahúsinu í Washington, sem bðrn-
um sendiráðsstarfsmanna þar í borg er boðið til. Félagsskapur
er nefnist „The Hospitality and Information Service“ og hefur
það að markmiði að kynna erlendum sendiráðsstarfsmönnum og
fjölskyldum þeirra bandarískt
þessu boði.
Um síðustu jól var 375 bömum
á aldrinum 6-10 ára boðið til
Hvíta hússins. Mættu þau á
nokkrum stöðum í borginni og var
síðan ekið til forsetabústaðarins.
Tvær íslenskar stúlkur, Katla
Guðrún Harðardóttir og Oddfríður
Helgadóttir voru í þessum hóp og
sögðu þær við blaðamann Morg-
unblaðsins, að tekið hefði verið á
móti þeim í anddyri Hvítahússins
og þeim leyft að skoða sig um
áður en skemmtiatriði hófust og
forsetafrúin Nancy Reagan kom
og bauð bömin velkomin. Frú
Reagan hefði síðan látið kalla á
þær og boðið þeim að sitja hjá
sér, hefði hún spjallað við þær
m.a. sagt að henni hefði þótt leið-
inilegt að komast ekki með manni
sínum til íslands síðastliðið haust.
Eftir að hafa horft á skemmtiat-
riði þ.á m. búktalarann, Shary
Lewis, með bömunum kvaddi frú
Reagan, en bömunum var boðið
upp á veitingar áður en þau voru
leyst út með gjöfum er þau héldu
heim á leið.
Katla Guðrún og Oddfríður
sögðu að mörg bamanna hefðu
verið í þjóðbúningum, heldur fleiri
en í fyrra, en þá fóm þær líka í
jólaboð í Hvítahúsið. Þær sögðust
vera mikið saman þó ekki væru
þær í sama skóla, því þær væru
svo heppnar að búa skammt frá
hvor annarri.
þjóðlíf, hefur veg og vanda af
Áróra Sigurgeirsdóttir, kona
Harðar Bjamasonar, sendiráðu-
nauts, og móðir Kötlu Guðrúnar
sagði að „The Hospitality and
Information Service" væri mjög
merkur félagsskapur, er stofnað-
ur hefði verið árið 1961 fyrir
forgöngu aðila úr stjóm John F.
Kennedy, forseta og væri allt starf
á hans vegum unnið af sjálf-
boðaliðum. Sagði hún að þegar
nýtt fólk kæmi til starfa í sendi-
ráðunum væri því boðið til te-
drykkju á vegum félagsins þar
sem starfsemi þess væri kynnt.
Síðan væm sendir bæklingar
nokkmm sinnum á ári til fólksins
þar sem fram kæmi hvað til stæði
s.s. skoðunar- og skemmtiferðir
og margt fleira. Hefði félagið
unnið ómetanlegt gagn við að efla
kynni og auka skilning milli
heimamanna og erlendra sendi-
ráðsmanna.
Fulltrúar íslenskrar æsku í
jólaboðinu í Hvítahúsinu, þær
Katla Guðrún (t.h.) og Odd-
fríður. Myndin er tekin á
heilmili Kötlu.
Vk
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Guðbjörg Hjaltadóttir með vinn-
ingsmiðann og vinninginn.
Selfoss;
Fékk svona
hálfgert
sjokk
Selfossi.
„ÉG FÉKK svona hálfgert sjokk
við þetta. Það er auðvitað gott
að fá svona vinning en maður
er bara ekki viðbúinn þessu,“
sagði Guðbjörg Hjaltadóttir frá
Laugarási í Biskupstungum sem
fékk nýlega 500 þúsund í skyndi-
happdrætti Háskóla íslands.
Guðbjörg keypti miðann í Foss-
nesti á Selfossi og var þetta fyrsti
miðinn sem keyptur var úr fyrsta
bunkanum sem fór í verslanir úr
fyrstu sendingunni sem umboðið
pantaði. Guðbjörg keypti tvo miða,
merkti sér strax annan og vinnufé-
laga sínum hinn en á honum var
enginn vinningur.
„Ég geymi þetta svona til að
byija með á meðan maður er að
átta sig á þessu," sagði Guðbjörg.
Þessi vinningur Guðbjargar er fyrsti
500 þúsund króna vinningurinn sem
kemur upp af átta í milljón miða
sendingu.
Sig. Jóns.
Fyrirlestur
um mann-
réttinda-
baráttu
blökku-
manna
DR. THOMAS Howell prófessor
í sagnfræði við Louisiana College
í Bandaríkjunum flytur opin-
beran fyrirlestur í boði heim-
spekideildar Háskóla íslands
mánudaginn 27. apríl kl. 17.15 í
stofu 101 í Odda. Fyrirlesturinn
nefnist „The Civil Rights Move-
ment in the United States“ og
fjallar um mannréttindabaráttu
blökkumanna síðustu áratugina.
Prófessor Howell hefur verið
Fulbright-sendikennari í sagnfræði
í heimspekideild þetta misseri.
Rannsóknasvið hans er bandarísk
þjóðfélagssaga á 20. öld og vinnur
hann nú að rannsóknum á ýmsum
þáttum mannréttindahreyfingar
blökkumanna í Louisiana-ríki.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og er öllum heimill aðgangur.
^^pglýsinga-
síminn er 2 24 80