Morgunblaðið - 25.04.1987, Page 87
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
87
VELVAKANDI ^
SVARAR f SÍMA
691100 KL. 13-14
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Svar til Regínu vegna
lífsverndarmála
Kæra Regína.
Af bréfí þínu, sem birtist hér á
skírdag, er svo að sjá sem ég hafi
valdið þér nokkru hugarvíli með þeirri
ákvörðun minni að ganga til liðs við
Borgaraflokkinn. En hvers vegna
móðgastu svo af þeirri ákvörðun? Jú,
ég hef verið einn af forsvarsmönnum
Lífsvonar (sem þú átt aðild að), og
nú fínnst þér, að ég hafi „bendlað
nafn Lífsvonar við lögbrot" (!) með
þvi að ég styð flokk Alberts Guð-
mundssonar I kosningabaráttunni. Þú
tekur ekki minna upp í þig en svo
að fullyrða, að hér láti ég tilganginn
helga meðalið!
Þú átt greinilega erfítt, Regína,
vegna alls þessa, og það kveður við
ónotalegan tón í bréfí þínu. Helzt vildi
ég nú líta fram hjá klaufalegri sneið
þinni í minn garð í tilefni af löngu
liðnum greinarskrifum mínum um
land hinum megin á hnettinum
(Chile). Ég fæ ekki séð, hvað það
kemur Borgaraflokknum eða
lífsvemdarmálunum við. En úr því að
þetta skiptir þig máli get ég svo sem
bent þér á, að ég hef í mörgum grein-
um fordæmt opinskátt grimmdarlega
stjómarhætti herforingjastjómarinn-
ar í Chile. Lestu t.d. grein mína
Harðstjóm hersins í Chile í Tímanum
Traustfólk
á fram-
boðslista
Til Velvakanda.
Ég undirritaður er búinn að
skoða framboðslista sjáifstæðis-
flokksins í Reykjavík vel og við
hann sé ég ekkert athugavert. Þar
er um gott og traust fólk að ræða
sem örugglega er betra en t.d.
framsóknarmenn þeir sem mikið er
hampað um þessar mundir. Ég hef
samúð með góðkunningum mínum
sem nú hafa yflrgefíð sinn eigin
flokk, Sjálfstæðisflokkinn, og með
því móti hjálpað andstæðingunum.
En Sjálfstaeðisflokkurinn mun
standast atlöguna og fylgi hans
verður óskert í þessum alþingis-
kosningum.
Þorgeir Kr. Magnússon
11.9. 1986 eða greinar mínar í Al-
þýðublaðinu 8.10. 1976 og Morgun-
blaðinu 24.8. 1983. Vonandi sérðu
þá, að ég er ekki aðeins skoðanabróð-
ir þinn um nauðsyn lagavemdar hinna
ófæddu, heldur einnig sammála þér
um það, að tilgangurinn, hversu
góður sem hann er, getur aldrei
helgað illt meðal (sú regla kemur
m.a. fram í Heilagri ritningu, sjá t.d.
Rómveijabr. 3.8). Þetta er einmitt ein
grundvallarástæðan til þess, að ég lít
á það sem óréttlætanlegt að eyða lífí
mannfósturs, af hvaða ástæðu sem
er, ekki aðeins félagslegri, heldur
einnig heilsufarslegri, t.a.m. af sk.
fósturskaðaástæðu. f hvert sinn, sem
læknir tekur lif hins ófædda vegna
erfðagalla, fötlunar eða sjúkdóms-
smits frá móðurinni, þá er það dæmi
um, að tilgangurinn sé látinn helga
meðalið. Og slíkt er aldrei siðlegt.
En hvað get ég gert til að hjálpa
þér með það vandamál, sem heftir
nýjast borið að höndum þínum,
Regína? Sem sé, að þér fínnst ég
bendla nafn Lífsvonar við „lögbrot"
Alberts. Nægir þér að vita, að þegar
ég gekk til liðs við Borgaraflokkinn,
þá gerði ég það ekki sem stjómarmað-
ur í Lifsvon, heldur sem einstaklingur?
(þá nýkominn af aðalfundi Lifsvonar,
þar sem ég gaf ekki kost á mér til
endurkjörs í stjómina). Nei, vafalaust
nægir það ekki. Þvi að þér virðist
fyrst og fremst sviða það hróplega
rangiæti, að ég sniðgangi Sjálfstæðis-
flokkinn vegna lífsvemdarafetöðu
minnar og kjósi í staðinn flokk Al-
berts Guðmundssonar, sem þú, kæra
Regína, hefur megnustu skömm á.
Satt að segja flaug mér í hug, að
karlmaður hafi haldið um pennann
hjá þér, þegar ég las þinn harða áfell-
isdóm. Alltjent fannst mér hann ekki
byggjast á þínum kvenlegu, mildu til-
fínningum. Hyggur þú, að hórdóms-
konan ofsótta, sem Kristur sakfelldi
ekki, hefði tekið undir sakfellingu þína
yfír Albert Guðmundssyni? Hver emm
við að dæma hann sekan um „lög-
brot“ — mann, sem hefur ekki einu
sinni verið ákærður? Jafnvel Þorsteinn
Pálsson dirfist ekki að tala um mistök
Inga Bjöms Albertssonar sem „lög-
brot“ Alberts, heldur talar hann á
þeim nótum, að um „siðferðisbrot"
hafi verið að ræða, þótt ekkert verði
fullyrt um lagabrot. Þetta minnir á
orð Vilmundar „löglegt, en siðlaust".
Og vissulega tek ég undir, að fleira
er siðlaust en það, sem stríðir á móti
lögunum. En það er algert grundvall-
aratriði, þegar rætt er um siðferði,
að sá einn, sem gerir eitthvað með
vitund og vi(ja, getur kallazt sið-
ferðilega ábyrgur fyrir því verki. Þú
hefur enga forsendu fýrir því, Regína,
að bera það upp á Albert, að hann
ljúgi, þegar hann segir okkur, að hon-
um hafí gleymzt að hugsa út í
ávísunina, þegar hann setti nafn sitt
undir skattframtal heildsölunnar. Og
þá er heldur ekki forsenda til að kalla
yfirsjón hans „siðferðisbrot". Við
skulum því forðast alla dómhörku,
minnug þess, að með þeim dómi, sem
við dæmum, munum við dæmd verða.
En þér er væntanlega orðið það ljóst,
að ég hefði ekki svarizt í bandalagi
með Albert Guðmundssyni, ef ég hefði
talið, að hann hafí vitandi vits framið
lögbrot.
Þér virðist þykja vænt um Sjálf-
stæðisflokkinn, Regína. Það þótti mér
líka í eina tíð, en miklu vænna þykir
mér um kenningu kristindómsins og
grundvallargildi lífsins. Ég efast um,
að þú hafir áttað þig á því, að trú
mín leggur mér beinlínis þá skyldu
á herðar að lqósa ekki frambjóðendur
eins og Friðrik Sophusson, Geir Ha-
arde, Sólveigu Pétursdóttur, Svavar
Gestsson eða Kvennalistakonumar,
sem öll eru andstæðingar tillagna um
lagavemd fyrir hina ófæddu.
Þú virðir einnig og metur Þorvald
Garðar Kristjánsson fyrir áralanga
baráttu hans fyrir málstað ófæddra
bama. Það geri ég líka, Regfna —
betri málsvara líferéttarins get ég
ekki hugsað mér. Ég óska honum
velgengni og sigurs í sínu kjördæmi
í komandi kosningum. En það þýðir
ekki, að ég geti kosið flokk hans hér
í Reykjavík. Þá styddi ég fremur Jón
Baldvin Hannibalsson til að ná öruggu
kjöri — vegna hans heilbrigðu afstöðu
í fósturvemdarmálum.
Það eru málefnin, en ekki flokkur-
inn, sem ráða mínu atkvæði. Því kýs
ég Borgaraflokkinn, sem einn flokka
hefur gert umhyggju fyrir ófæddum
bömum að stefnuskráratriði. Og
vegna ótta þíns, Regína, við að sú
stefna kunni að reynast „orðin tóm“,
þegar til kastanna kemur, þá get ég
upplýst þig um, að stefnan nýtur ein-
drengins fylgis í flokknum og að ég
myndi ekki styðja hann stundinni
lengur, ef hann stæði ekki við þessi
markmið sin. Þess vegna hvet ég þig
af heilum hug til að kjósa Borgara-
flokkinn nk. laugardag.
Með bróðurkveðju á útlíðandi pásk-
um. Jón Valur Jensson
Borgaraflokkurinn: *
Ættarveldið í ís-
lenskum stjómmálum
7244-2377 skrifan
Borgaraflokksmönnum verður
tíðrætt þessa dagana um valdið.
Tala þeir um „flokkseigendaklíku"
Sjálfstæðisflokksins og „ættarveld-
ið“ í Sjálfstæðisflokknum og segja
að stofnun Borgaraflokksins sé
andsvar við þessu „valdi". Hámark
alls þessa segja þeir svokallaða „að-
för“ að Albert Guðmundssyni.
En lítum á þetta nánar. Við
stofnun Borgaraflokksins er risið
upp eina raunverulega ættarveldið
í íslenskum stjómmálum. Fjölskylda
Alberts Guðmundssonar er þar í
lykilstöðum strax í upphafi sögu
flokksins. Þessi fjölskylda hefur
ekki verið kosin til forystu í flokkn-
um, ekki einu sinni að nafninu til.
Nei, flokkurinn er beinlínis stofnað-
ur utan um hana. Fyrst kemur
Albert, „fómarlamb valdsins", og
svo kemur Helena dóttir hans. Ingi
Bjöm sonur hans er í framboði á
Vesturlandi og fleiri frændur Qöl-
skyldunnar em á listum. Og hvað
snertir „klíku" þá eru listamir mik-
ið til samsettir af nánum vinum
fjölskyldunnar.
Hvemig stendur á því að „flokks-
eigendaklíkan" í hinum formlega
óstofnaða Borgaraflokki er ekki til
umræðu heldur aðeins ímyndaðáf"'
„flokkseigendaklíkur" annarra
flokka? Er hún kannski hafín yfir
gagnrýni á sama hátt og Albert
Guðmundsson? Talað er um „rússn-
eska" kosningu Þorsteins Pálssonar
á síðastliðnum landsfundi sjálfstæð-
ismanna. En hvað er þá persónu-
dýrkun á Albert Guðmundssyni?
Albert virðist telja sig fómarlamb
valdsins þegar einhver annar beitir
því en hann sjálfur. Það verður
gaman að sjá hvemig hann og
„flokkseigendaklíkan" hans bregð-
ast við þegar þar að kemur að
einhver veitir þeim andstöðu í Borg-
araflokknum.
Við skulum heldur ekki gleyma
því að „aðförin" að Albert Guð-
mundssyni skapaðist upphaflega af
því að átrúnaiðargoðið vildi ekki
segja af sér tímabundið meðan mál
þess væri í rannsókn.
H
h HOTEL & TOURISM
H STUDIES IN
H SWITZERLAND
FOUNDED 1959 HOSTR
^ Prófskírteini f lok námskeiðs. Kennsla hefst 23. ágúst
H og fer hún fram á ensku.
1. 21/z árs fullnaðarnám í hótelstjórnun
H 2. 9 mánaöa alþjóölegt feröamálanámskeiö viðurkennt
H af IATA/UFTAA.
Fullkomin fþróttaaöstaða, sórstaklega til skíða- og
H tennisiðkunar.
. , Skrifið til að fá ítarlegri upplýsingar til:
^ HOSTA; CH-1854, Leysin
H Sími: 9041/25-34-18-14 — Telex 456-152 crto ch
HHHHHHHHHHHH H H H H H
Heimsending-
arþjónusta
Hafsjór góðra rétta
dagognótt
‘kimj
Ármúla 34,
sími 31381.