Morgunblaðið - 25.04.1987, Síða 88
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
72. Víðavangshlaup ÍR:
Már fyrstur í
MÁR Hermannsson úr Keflavík
sigraði örugglega í 72. Víða-
vangshlaupi IR á sumardaginn
fyrsta. FH-ingar hlutu Morgun-
blaðsbikarinn fyrir 3ja manna
sveitakeppnina f karlaflokki en
ÍR-ingar 5 og 10 manna sveita-
keppnina svo og sveit 30 ára og
eldri. Fyrst kvenna f mark varð
Steinunn Jónsdóttir Ármanni. Ár-
mann átti reyndar fyrstu þrjár
konur í mark og unnu þœr því
N^veitakeppni kvenna og Morgun-
blaðsbikarinn annað árið f röð.
Alls tóku 85 hlauparar þátt í
hlaupinu og komu allir í mark, en
hlaupin var um 4 kflómetra vega-
lengd, nær sú sama og undanfar-
in ár.
Már var nokkuö öruggur með
sigur í hlaupinu en næstu 8 menn
háðu jafna og tvísýna keppni nær
alla ieiðina. Jóhann Ingibergsson
var þeirra sterkastur þegar á leið.
Steinn, Kristján Skúli, Frímann og
Bessi hlupu allir vel og eru þar á
ferðinni ungir hlauparar í mikilli
framför.
Alls hlupu 19 konur og 66 karl-
ar. Jón Guðlaugsson HSK var elzti
keppandi í karlaflokki en hann er
61 árs. Hljóp Jón að þessu sinni
sitt 26. eða 27. hlaup og hefur
enginn hlaupið Víðavangshlaup ÍR
oftar. Oddgeir Sveinsson KR hljóp
25 sinnum. Hann hljóp þau í röð,
en Jón hefur misst tvö eða þrjú
ár úr frá því hann hljóp fyrst, en
það var árið 1959. í kvennaflokki
var Vigdís Jónsdóttir ÍR elzt, en
hún er 32 ára.
ÍR-ingar veittu þremur fyrstu
körlum, konum, sveinum og meyj-
um verðlaunapeninga. Már og
mark
Steinunn hlutu veglega sigurbik-
ara, báða gefna af Morgunblaðinu,
til varðveiziu. Þau voru einnig leyst
út með æfingaskóm og íþróttat-
öskum, sem LOTTO-umboðið á
íslandi gaf til hlaupsins. LOTTO-
vörur hlutu einnig fjölmargir aðrir
keppendur, m.a. var dregið um
fjölda aukaverðlauna úr keppnis-
númerum allra hlauparanna.
Allir bikarar utan einn, sem
keppt var um, 9 að tölu, eru gefn-
ir af Morgunblaðinu. Níundi bikar-
inn er gefinn af Júlíusi Hafstein,
formanni íþróttabandalags
Reykjavíkur, og er keppt um hann
í meyjaflokki. Vann sveit HSK
hann. Hörðust var keppnin um
sveinabikarinn en þar sigraði
þriggja sveina sveit UBK eftir
harða keppni við sveit FH.
ÍR-ingar unnu til eignar 10-manna
bikar í karlaflokki og bikar, sem
keppt er um í 3ja manna sveit
karla 30 ára og eldri.
Að þessu sinni tóku a.m.k. 6
erlendir ríkisborgarar þátt í Víða-
vangshlaupi ÍR, fjórir bandarískir
og tveir hollenzkir.
Úrslit voru þessi:
1. MárHermannsson, UMFK 13:24
2. Jóhann Ingibergsson, FH 13:30
3. Steinn Jóhannsson, FH 13:37
4. Kristján Skúli Ásgeirsson, ÍR 13:39
5. Frímann Hreinsson, FH 13:43
6. Bessi Jóhannesson, [R 13:46
7. Hannes Hrafnkelsson, UBK 13:46
8. Daníel Guðmundss., USAH 13:49
9. Ágúst Þorsteinsson, UMSB 13:57
10. Sighvatur Dýri Guöm.s., ÍR 14:16
11. GunnarPállJóakimsson, ÍR 14:29
12. Steinar Friðgeirsson, |R 14:31
13. Jakob Bragi Hannesson, ÍR 14:33
14. Philip Robles, USA 14:36
15. Garðar Sigurðsson, ÍR 14:39
16. Mirly Spoulding, USA 15:12
17. Fred Schalk, (R 15:35
18. Baldur Hermannsson, SSS 15:41
19. Ingvar Garðarsson, HSK 15:43
20. isleifur Karlsson, UBK 15:56
21. BjörnTraustason, FH 16:12
22. Bragi Smith, USU 16:15
23. Helgi Gústafsson, T 16:21
24. Kári Þorsteinsson, UMSB 16:27
25. Jón Guðmundsson, ÍR 16:29
26. Ágúst Böðvarsson, ÍR 16:29
27. Orri Pétursson, UMFA 16:42
28. Steinunn Jónsdóttir, Á 16:47
29. Cor DeJung, UMFK 16:47
30. Remi Spiliaert, SR 16:54
31. Jón Pótursson, Fram 17:01
32. Högni Bergþórsson, FH 17:07
33. Hulda Björk Pálsdóttir, Á 17:19
34. Sigurjón Andrósson, ÍR 17:25
35. Hildur Inga Björnsdóttir, Á 17:30
36. ÆgirGeirdal, (K 17:42
37. GuðmundurÓlafsson, ÍR 17:42
38. ÓlafurÓlafsson, Ösp 17:57
• Stúlkurnar úr Ármanni, Steinunn Jónsdóttir og Hulda Björk Páls-
dóttir, urðu f tveimur efstu sætunum í kvennaflokki.
• Það var fólk á öllum aldri sem hjóp f Vfðavangshiaupinu þrátt
vyrir kalsaveður.
Morgunblaöiö/Bjarni Eiríksson
• Már Hermannsson úr Keflavfk sigraði með nokkrum yfirburðum
f 72. Víðavangshlaupi ÍR sem fram fór á sumardaginn fyrsta.
39. Ingvar Baldursson, T 18:02
40. Einar Guðmundsson, FH 18:05
41. Guöbjörg Sigvaldadóttir, T 18:05
42. BrynjólfurGíslason.T 18:10
43. Úlfur Aðalsteinsson, ÍR 18:12
44. Eiríkur Þorsteinsson, T 18:17
45. HöskuldurGuðmundsson.T 18:19
46. Aðalbjörg Hafsteinsd., HSK 18:24
47. EinarGuðmundsson.T 18:31
48. Guðrún Erla Gíslad., HSK 18:32
49. Ingimundur Birnir, 02 18:32
50. BirgirÞ. Jóakimsson, ÍR 18:44
51. Þorvaldur Kristjánsson, T 78:55
52. Fríða Rún Þórðardóttir, UBK 18:57
53. Viggó Benediktsson, T 18:57
54. Sverrir Hákonarson, TDK 19:00
55. Ingibjörg ivarsdóttir, HSK 19:01
56. Ásta Ásmundsdóttir, 02 19:08
57. Jón Guðlaugsson, HSK 19:16
58. Debbie Bruster, USA 19:21
59. Jón Guðmundsson, T 19:26
60. ÁsgeirÁsgeirsson, TDK 19:45
61. Saevar Þór Magnúss., UMSB 19:45
62. Páll Höskuldsson, 02 19:57
63. AronTómasHaraldss., UBK 20:08
64. Anný Ingimarsdóttir, HSK 20:29
65. HilmarB.Janusson, 02 20:35
66. Guðmundur Stefánsson, 02 20:51
67. Haukur Hergeirsson, T 20:52
68. Guðmundur Brynjólfsson, ÍR 20:52
69. Helen Robles, USA 20:52
70. Sigurbjörg Edvaldsdóttir, SR 20:53
71. Þuríður Ingvarsdóttir, HSK 21:17
72. Linda Larsen, HSK 21:19
73. ÞorlákurJónsson, 02 21:31
74. Örn Almarsson, 02 21:33
75. Þórey Gylfadóttir, T 21:47
76. Ólafur Brynjólfsson, ÍR 21:58
77. GunnarSvavarsson, TDK 22:21
78. ÓlafurÖrn Jósepsson, ÍR 23:15
79. Vigdís Jónsdóttir, ÍR 23:39
80. GrímurGrímsson,02 24:44
81. Geir Brynjólfsson, ÍR 25:18
82. Gísli Valdimarsson, T 25:41
83. Guðrún Linda Guðm.d., (R 26:48
84. lngaSteinunnBjörgvinsd.,T 26:52
85. Reynir Kristjánsson, 02 26:53
NM íkörfubolta
Skytturnar brugðust
og INIorðmenn unnu
Frá Skúla Unnari Sveinssyni, blaöamanní í
ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem
þremur af lykilmönnum okkar f
körfubolta bregst bogalistin þeg-
ar á reynir. Sú varð þvf miður
raunin er ísiand lák fyrsta leik
sinn á Norðurlandamótinu á
fimmtudaginn. Leikið var við
Norðmenn og tapaðist leikurinn
með fimm stigum, 70:75, þrátt
fyrir að lykilmenn okkar brygðust.
Valur Ingimundarson, fyrirliði og
einn besti körfuboltamaður lands-
ins um langt skeið, skoraði til
dæmis ekki nema fjögur stig í
leiknum þó svo hann væri inná í
29 mínútur. Guðna Guðnasyni
-Voru einnig mislagðar hendur.
Hann skoraði 8 stig og lék í 27
mínútur. Þriðji maðurinn sem brást
var Pálmar Sigurðsson. Hann lék
í 28 mínútur og skoraði tíu stig en
það sem brást fyrst og fremst hjá
honum var að reyna skot, hann
Danmörku.
ísland — Noregur
70 : 75
Norðurlandamótlð l körfubolta 1
Horsens I Danmörku. Sumardagur-
inn fyrsti 1987.
0:5, 1:8, 7:10, 17:18, 20:20, 22:26, 24:26,
24:35, 26:35, 30:43, 40:43, 40:48, 44:48,
44:55, 48:55, 57:63, 70:75.
Stig islands: Jóhannes Krístbjömsson
16, ívar Webster 13, Pálmar Sigurðsson
10, Hreinn Þorkelsson 9, Guðni Guðnason
8, Guðmundur Bragason 8, Valur Ingi-
mundarson 4, Gylfi Þorkelsson 2.
Stigahæstir Norðmanna: Haakon Au-
stefjord 19, Eivind Grönli 14, Chris
Fahrbach 10, Arild Beck 9.
kom sér ekki í skotfæri eins og
hans er vani.
Jóhannes Kristbjörnsson átti
mjög góðan leik. Hann kom inn á
í síðari hálfleik og skoraði þá 16
stig á skömmum tfma. Var í miklum
ham og réðu hinir hávöxnu Norð-
menn ekkert við snerpu hans og
léttleika. Jóhannes, Guðmundur
Bragason og Hreinn Þorkelsson
voru bestu menn liðsins og ívar
Webster átti einnig ágætan dag,
tók meðal annars 13 fráköst.
Þó svo leikurinn hafi tapast er
engin ástæða til að örvænta. Allir
leikmenn léku mjög vel í vörninni
og sem dæmi um það gall 30 sek-
úndna klukkan nokkrum sinnum í
lok sókna Norðmanna og í síðari
hálfleik skoruöu þeir sína fyrstu
körfu þegar 6 mínútur og 45 sek-
úndur voru liðnar af leiknum. Mjög
mikil barátta og skemmtileg vörn.
í rauninni léku strákarnir vel ali-
an ieikinn en það eina sem vantaði
var að koma tuðrunni niður í körf-
una. Það er að vísu dálítið mikil-
vægt atriði en allt annað var í góðu
lagi.
• Jóhannes Kristbjörnsson var besti leimaður íslands gegn Norð-
mönnum í fyrsta leik landsliðsins gegh Norðmönnum. Hann skoraði
þá 16 sitg á skömmum tfma f seinni hálfleik.