Morgunblaðið - 25.04.1987, Side 89
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. APRÍL 1987
89
Andrésar andar-leikarnir á skíðum:
Akureyringar
sigursælir
FJÖLMENNASTA skfðamót
landsins, Andrósar andar-leik-
arnir, hófst hér á Akureyri á
fimmtudaginn. Þetta er f 12. sinn
sem mótið er haldið og keppend-
ur eru að þessu sinni 419 talsins
frá 8 fólögum. Keppt er f aldurs-
flokkum allt niður f 7—9 ára en
aldursforsetar mótsins eru 12
ára.
Heimamenn voru sigursælir á
opnunardegi mótsins, alls komu 7
gullverðlaun af 15 í þeirra hlut.
Siglfirðingar létu einnig mikið að
sér kveða. Þeir áttu sigurvegara í
4 af 5 greinum göngunnar.
Aðstæður skíðafólksins eru eins
og best verður á kosið í Hlíðar-
fjalli og sumarið heilsaði keppnis-
fólkinu á eftirminnilegan máta með
blíðviðri.
Vegleg verðlaun
Keppt er um glæsilega verð-
launabikara og mikið er af auka-
verðlaunum. Sigurvegarar í 12 ára
flokki í svigi, stórsvigi og göngu fá
til að mynda skíði í verðlaun. Skipa-
deild Sambandsins gefur verðlaun
til mótsins ásamt versluninni Út-
ilífi sem veitir aukaverðlaun til allra
flokka. Hver einasti keppandi á
mótinu er síðan leystur út í móts-
lok með gjöf frá bókaforlaginu sem
gefur úr Andrésblöðin.
• Teitur Ólafur Marshall úr Reykjavfk er hór á fullri farð í stórsvigi
7 ára drengja. Hann hafnaði í 9. sæti af 38 keppendum.
Morgunblaöiö/Þorkell
• Kári JóhannGsson frá Akureyri vann nauman sigur í göngu með
hefðbundinni aðferð f flokki 12 ára. Hann hvílir hór lúinn bein eftir
sigurinn.
Spennandi
ganga
„Ég hélt að þetta myndi ekki
takast hjá mór, ég var búinn að
vera á eftir honum svo lengi,"
sagði Kári Jónasson, Akureyri, eft-
ir nauman sigur sinn í göngu 12
ára pilta með heföbundinni aðferð.
Alls voru gengnir tveir og hálfur
km og úrslitin réðust ekki fyrr en
á síðustu metrunum. Aðeins þrem-
ur sekúndum munaði á Kára og
Ólafsfirðingnum, Kristjáni Hauks-
syni, sem hafnaði í öðru sæti eftir
að hafa leitt gönguna framan af.
Margt er sértil
gamans gert
Það er mikið um að vera hjá
yngstu kynslóðinni á mótinu og
tíminn er vel nýttur. Keppni hefst
klukkan 10 árdegis flesta dagana
og stendur fram á eftirmiðdag. Á
kvöldin eru síðan verðlaunaaf-
hendingar auk skemmtiatriða í
íþróttahöllinni. í fyrrakvöld sá Val-
geir Guðjónsson Stuðmaður um
að tryggja keppnisfólkinu betri
svefn með fjölbreyttri skemmti-
dagskrá.
Það er mikill undirbúningur sem
liggur að baki stórmóti sem þessu.
Veg og vanda af skipulagningu
mótsins eiga þeir Gísli Lórentsson,
Óðinn Árnason, Sigurður Aðal-
steinsson og Magnús Gíslason en
þeir eru í mótsstjórn. Fjöldi ann-
arra hefur lagt hönd á plóg og sem
dæmi má nefna að um 100 manns
eru í farar- og liðsstjórnum félag-
anna.
MorgunblaöiÖ/Þorkell
# Bjartmar Guömundsson frá ÓlafsfirÖi keppti í göngu 12 ára drengja
þar sem hann hafnaði f 3. sæti.
Ottó Freyrfrá Daivík:
Ottó var
óheppinn
„Þetta var náttúrulega mjög
svekkjandi. Þó að ég hafi ekki átt
neina möguleika á að vinna, þá er
alltaf gaman að vera með,“ sagði
Ottó Freyr Ottósson frá Dalvík,
sem varö fyrir því óláni að meiðast
á fæti í keppni 12 ára flokksins
stórsvigi.
Þó að meiðsl Ottós séu ekki
alvarleg þá gat hann ekki keppt í
sviginu. Hann var þó hinn hress-
asti á skemmtuninni í iþróttahöll-
inni og fékk örlitlar sárabætur,
myndabók um Andrés önd og fé-
laga.
• Hildur Ösp Þorsteinsdóttir fró
Akureyri sigraði í svigi f flokki 11
ára stúlkna.
Lítill
munur
„Ég myndi ekki segja að þetta
hafi verið léttur sigur því að það
var lítill munurá okkur," sagði Hild-
ur Ösp Þorsteinsdóttir frá Akureyri
sem vann í svigi í flokki 11 ára
stúlkna.
„Það var ágætt færi á fjallinu í
dag og ég stefni á að vinna líka í
stórsvigi," sagði Hildur sem lærði
á skíðum þegar hún var aðeins
fjögurra ára.
Morgunblaðiö/Þorkell
• Sveinn Bjarnason fré
Húsavfk.
Byrjaði
keppni
fjögurra
ára
„Þetta er sjötta Andrésar
andar-mótið sem ég tek
þátt í, ég byrjaði að keppa
þegar ég var fjögurra ára,“
sagði Sveinn Björnsson, 9
ára gutti sem hélt uppi
heiðri Húsvíkinga fyrsta
keppnisdaginn með því að
sigra í stórsvigi í sínum
flokki. „Ég ætla Ifka að
reyna að vinna í sviginu á
laugardaginn og ég held að
okkar liði takist að vinna
fleiri verðlaun á mótinu. Það
verður þó erfitt því Akur-
eyringarnir eru svo sterkir."