Morgunblaðið - 24.06.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. JÚNÍ 1987
33
i
Stoltir veiðimenn eftir velheppnaða veiði í Vatnsdalsá: Talið frá vinstri: Jón Á. Jónsson með 23ja
punda lax, Gísli Erlendsson með 20 punda lax, Sveinbjörn Eyjólfsson með 18 og 25 punda laxa og
loks er það veiðiklóin sjálf, Sigurður Einarsson, með 29 punda metlaxinn.
29 punda risi
úr Vatnsdalsá
„Veiðin hefur aðeins dofnað en
hún er samt góð, því hún var al-
deilis frábær í byrjun. Það veidd-
ust til dæmis 10 laxar í gær á 6
stangir og þá voru 208 laxar
komnir á land og nýlega kom sá
stærsti til þessa á land, 29 punda
fískur, sem Sigurður Einarsson
veiddi í Hnausastreng á maðk.
Laxinn var 106 sentimetrar á
lengd og gríðarlega þykkur,"
sagði Ingibjörg Þorkelsdóttir í
veiðihúsinu Flóðvangi við Vatns-
dalsá í samtali við Morgunblaðið
í gærdag.
Að sögn Ingibjargar er meðal-
þungi veiddra laxa trúlega milli
14 og 16 pund og mikið er af laxi
í ánni. Tveir 9 punda fiskar eru
minnstir til þessa. Mest er veitt á
maðk og spón, en einstaka menn
reyna flugu og gera það gott.
Laugardalsá:
Nóg af laxi en
hann tekur ilia
„Við opnuðum 13. júní og
fyrsta hollinu gekk frekar vel,
veiddi 10 laxa, en síðan hefur
þetta verið tregt og f gær voru
komnir 20 laxar á land. Það er
ekki vegna laxleysis, þvert á móti,
það er talsvert gengið í ána og
laxinn er kominn alveg upp í vatn.
Teljarinn hefur mælt 156 laxa og
það er töluvert af físki fyrir neðan
hann einnig. Málið er, að það er
sól og blíða alla daga og laxinn
tekur því illa. Þetta breytist trú-
lega ekki fyrr en veður breytist,"
sagði Sigutjón Samúelsson á
Hrafnabjörgum í samtali við
Morgunblaðið í gær er hann var
inntur eftir veiðinni í Laugardalsá
við Djúp. Hann sagði stærsta lax-
inn til þessa 15 punda, en
meðalþungann í kringum 12 pund.
Stórlaxar í Hvítá
Fyrstu laxamir hafa veiðst í
Hvítá í Ámessýslu. Veiði var strax
í opnun á Iðunni og í fyrradag
veiddust fyrstu laxamir í Snæ-
foksstöðum, en þá bar þar að Jón
Jónasson, gamalreyndan Hvítár-
kappa. Hann gerði sér lítið fyrir
og dró tvær rokvænar hrygnur á
land fyrir neðan Lambaberg. Lax-
amir vom 20 og 16 pund og
fregnir herma að Jón hafi misst
enn stærri físk og sleit sá fískur
þótt sterkt hafí verið undir. Lax-
amir tóku maðk. Þá hefur frést
af líflegri veiði í Langholti og í
landi Kiðjabergs og Hests veiddist
bæði lax á fyrsta degi og töluvert
sást af laxi stökkvandi á breið-
unni fram undan veiðihúsinu.
Stangveiðifélag Reylqavíkur er
með síðastnefnda svæðið á leigu
og býður þar veiðileyfí á afar viðr-
áðanlegu verði. Nú er í fyrsta
skipti veitt þama á stöng, en dijúg
netaveiði hefur verið þama í gegn-
um árin. Laxinn sem veiddist vóg
12 pund og eins og svo víða það
sem af er, þá hristi miklu stærri
fískur sig af.
Lifnar yfír Elliðaánum?
Eindæma slök veiði hefur verið
í Elliðaánum það sem af er, í gær
vom aðeins um 20 laxar komnir
á land og fregnir bámst af fá-'
dæma lystarleysi laxa þar sem
agn veiðimanna var annars vegar.
Jón Jónasson með hrygnumar
sínar stóru af Snæfoksstaða-
svæðinu í Hvitá.
Lítil hreyfíng hefur verið lengst
af á laxinum, en síðustu daga
hefur aðeins ræst úr. Teljarakass-
inn, sem hafði vart hreyfst dögum
saman með 40—50 laxa talda,
rauk allt í einu upp í 112 og von-
andi veit það á gott. Það er sem
sé reytingur af laxi í ánni, en
dæmalaust latur að hreyfa sig.
Lítið vatn, blíðviðri og hár vatns-
hiti hjálpast að með laxinum gegn
veiðimönnum.
26 pundari úr
Miðfjarðará
Af því að verið er að ræða um
stórlaxa, þá er þess að geta, að
í fyrradag veiddist í Miðijarðará
næst stærsti lax sem vitað er til
að veiðst hafí á þessu sumri. Það
var Ágúst Kárason sem laxinn
dró, 26 punda hæng, sem greip
svartan Tóbíspón í Armótahyl
Vesturár og Miðfjarðarár. Fyrsta
veiðidaginn í ánni veiddist 25
punda hængur í Hlaupunum í
Austurá. Þetta árkerfí á því annan
og þriðja stærstu laxa sumarsins.
Fiskmarkaður Suður-
nesja í burðarliðnum
BÚIST er við, að gengið verði „Þetta form gefur hins vegar
formlega frá stofnun Fiskmark-
aðar Suðurnesja hf. á framhalds-
stofnfundi, sem boðaður hefur
verið í Glaumbergi í Keflavík í
kvöld. Að sögn Sigurðar Garð-
arssonar, framkvæmdastjóra
Voga hf., sem er einn af stofnað-
ilum, verður hér um að ræða
svokallaðan fjarskiptamarkað,
þar sem salan fer fram án þess
að skipin þurfi fyrst að koma til
hafnar til löndunar.
Sigurður sagði að ástæðan fyrir
því að þetta form hefði orðið fyrir
valinu væri sú að stofnaðilar, sem
væru ýmsir fískverkendur á Suður-
nesjum, teldu ekki á sínu færi að
raska hafnarmálum þar með því að
taka ákvörðun um gólfmarkað í
einhveijum ákveðnum höfnum.
Sveitarstjómir á Suðumesjum
hefðu ekki haft fmmkvæði að stofn-
un þessa fiskmarkaðar og raunar
ekki sýnt málinu áhuga, ólíkt því
sem átti sér stað þegar fískmarkað-
ir vom stofnaðir í Reykjavík og í
Hafnarfirði.
Ekið á bíl
og brott
LÖGREGLAN í Reykjavík biður
ökumann amerískrar bifreiðar,
sem var ekið á kyrrstæða bifreið á
fimmtudag í fyrri viku, um að gefa
sig fram.
Hvít Saab-bifreið stóð við Ásvalla-
götu 56, fímmtudagskvöldið 18. júní
kl. 18.45. Stórri, amerískri bifreið var
ekið á vinstra framhom Saab-bifreið-
arinnar, en ökumaður stöðvaði ekki,
heldur ók á brott. Ökumaðurinn er
beðinn um að hafa samband við slysar-
annsóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík. Þá em þeir, sem kunna
að hafa séð atburðinn, einnig beðnir
um að gefa sig fram.
bátunum möguleika á að landa í
hvaða höfn sem þeir vilja, og hent-
ar á vissan hátt okkar svæði
ágætlega. Við emm með þessu að
reyna að aðlaga okkur að aðstæðum
sem við búum við,“ sagði Sigurður
ennfremur. Hann sagði að uppboðin
fæm þannig fram, að menn söfnuð-
ust saman á ákveðnum stað á
ákveðnum tíma, þar sem bátamir
hefðu meldað sig inn með upplýs-
ingar um magn og samsetningu
afla. Síðan byðu menn í aflann á
staðnum, í gegnum fjarskipti við
bátana. Sigurður sagði að ekki hefði
verið tekin ákvörðun um san\astað
fyrir Fiskmarkað Suðumesja hf.,
en kvaðst reikna með að það yrði
að vera á tveimur stöðum á Suður-
nesjum. Hann sagði að gert væri
ráð fyrir markaðurinn tæki til
starfa í september næstkomandi.
GENGIS-
SKRÁNING
Nr. 114 - 23. júní 1987
Kr. Kr. Toll-
Ein.Kl. 09.15 Kaup Sala Gengi
Dollari 39,090 39,210 38,990
Stpund 62,309 62,501 64,398
Kan.dollarí 29,304 29,394 29,108
Dönskkr. 5,6352 5,6525 5,6839
Norskkr. 5,7898 5,8076 5,7699
Sænskkr. 6,0921 6,1108 6,1377
Fi.mark 8,7332 8,7601 8,8153
Fr.franki 6,3533 6,3728 6,4221
Belg.franki 1,0225 1,0256 1,0327
Sv.franki 25,4940 25,5723 26,7615
Holl.gyllini 18,8114 18,8691 18,9931
V-Þ. mark 21,1893 21,2543 21,3996
ítlira 0,02935 0,02944 0,02962
Austurr.sch. 3,0150 3,0243 3,0412
Port escudo 0,2721 0,2730 0,2741
Sp.pesetí 0,3067 0,3077 0,3064
Jap.yen 0,26679 0,26761 0,27058
írsktpund 56,731 56,905 57,282
SDRjSérst.) 49,8446 49,9981 50,0617
Eeu,Evr6pum. 43,9508 44,0858 44,3901
Hámarkshraðinn:
Breytingin á ekki
alls staðar við
ÞÆR breytingar, sem nú hafa
verið gerðar á reglum um há-
markshraða á þjóðvegum með
bundnu slitlagi, eiga ekki við
um alla slíka vegi.
Þeir vegir, sem breytingin nær
til, era sérstaklega auðkenndir.
Breytingin á ekki við um vegi sem
liggja um þéttbýli, til dæmis
Hafnarfjarðarveg, Reylqanes-
braut og Álftanesveg. Af frétt
Morgunblaðsins í gær af þessum
breytingum hefði mátt ráða að
90 kílómetra hámarkshraði væri
nú leyfílegur á öllum þjóðvegum
með bundnu slitlagi, en það er
ekki rétt. Almennur hámarkshraði
á vegum utan þéttbýlis er sem
fyrr 70 kílómetrar á klukkustund.
Okumenn era því beðnir um að
gæta að því hvaða hámarkshraði
er gefínn til kynna á umferðar-
skiltum, áður en þeir þrýsta um
of á bensíngjöfína.