Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
3
510 ítalir
ferðast um
hálendið á
Fiat Panda
Á ÍTALÍU hefur undanfarið ver-
ið boðið upp á allsérstæðar ferðir
til Islands. Það er ferðafélagið
Safariland, sem hefur sérhæft
sig í ævintýraferðum á Fiat
Panda fjórhjóladrifsbilum, sem
skipulagt hefur þtjár slikar
hringferðir um Island. Fyrsta
ferðin verður dagana 26. júlí til
7. ágúst og síðan með tæplega
tveggja vikna millibili. 170
manns taka þátt i hverri i ferð
og munu því alls um 510 ítalir
ferðast um ísland á þennan hátt
í sumar.
Sjötíu Fiat Panda-bifreiðir koma
til landsins af þessu tilefni ásamt
nokkrum sérútbúnum þjónustubif-
reiðum sem munu fylgja bílalestinni
og aðstoða ef á þarf að halda. Þátt-
takendur sofa í tjöldum ofan á
bílunum og verða 2-3 í hverju tjaldi.
Þetta er þriðja Safariland-ferðin,
sem farin er, en áður hefur ferðafé-
lagið Safariland farið um Afríku
og Ástralíu á Pöndunum. Auglýst
verð fyrir svona ferð er frá 2,5
milljónum ítölskra líra og hærra eða
um 75.000 krónur.
Saltsíldarviðskiptin:
Viðræður
hafnar við
Sovétmenn
FYRSTI viðræðufundur íslend-
inga og Sovétmanna um saltsíld-
arkaup þeirra síðarnefndu fyrir
haustið var í Reykjavík á föstu-
dag og er annar fundur boðaður
á mánudaginn.
Af hálfu Sovétmanna eru hér
fulltrúar Sovrybflot, sem nú sér um
allan út- og innflutning á fiski og
sjávarafurðum í Sovétríkjunum.
Hefur þessi stofnun tekið við af
Protentorg, sem áður sá um
saltsíldarsamningana við íslendinga
en hefur nú tekið við landbúnaðar-
viðskipt.um.
Gunnar Flóvenz, framkvæmda-
stjóri Síldarútvegsnefndar, sagði
við Morgunblaðið í upphafi funda-
lotunnar að þessar viðræður væru
á bytjunarstigi og ekkert hægt að
segja að svo stöddu um gang þeirra.
47 hval-
iráland
Nú eru komnir á land 47
hvalir hjá Hval hf. í Hval-
firði, allt Iangreyðar.
Bæði hvalveiðiskipin, Hvalur
8 og Hvalur 9, komu í höfn á
föstudag og voru samtals með 4
hvali. Þau eru farin aftur til
veiða. Vertíðin hefur nú staðið
í tæpar þrjár vikur.
Fyrirlestur í
Norræna húsinu
EDWARD Fry heldur fyrirlestur
í Norræna húsinu á sunnudag
um alþjóðlegu listsýninguna í
Kassel í Þýskalandi.
Edward Fry er bandarískur list-
fræðingur sem skrifað hefur fjölda
bóka um nútímalistfræði. Fyrirlest-
urinn hefst kl. 17.
ÞÚ GETUR DVALIÐ í:
OG HEIMSÓTT FLEIRI LÖND í SÖMU FERÐINNI
t.d.: Vikuferð 11.-18. júlí Lignano + Svartiskógur. Verð frá 26.800.-
Landsliðið í handbolta, þeir sem unnu heimsmeistarana, hvíla sig á Lignano. Hvað með þig?
Það eru margir möguleikar á Ítalíu. Sólar- og strandlíf. ítölsk menning og rómuð matargerðarlist. Þú getur
stundað baðstrendur eða farið í bátsferð og skemmtisiglingar til Grikklands og Tyrklands. Einnig getur þú
ekið um Útsýnarveginn yfir Alpana til Þýskalands og flogið heim frá Basel. Spumingin er bara hvað viltu gera?
28.600.- 3 vikur
FRÍKLÚBBURIM OG 77/IM
WRNERÁ COSTA DEL SOL
Þann 18. júlí heldurTina hljómleika á Costa
del Sol. Fríklúbburinn hefur tryggt sér um 200
miða. Næstu brottfarir 9. og 16. júlí
Örfá sæti laus.
paðeralitaðverðavitlaust
Ferdaskrifstofan
0TSÝN
jBetri
kostur
Austurstræti 17, sími 26611
Metsölublað á hveijum degi!