Morgunblaðið - 05.07.1987, Side 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987_________________________
Reiðhöllin að komast í gagnið:
HM-kandídat-
arnir riðu á vaðið
Landbúnaðarsýmngin verður haldin þar í ágúst
REIÐHÖLLIN sem er í byggingu
á félagssvæði Fáks var í fyrsta
skiptið notuð fyrir keppni á
hrossum á föstudaginn þegar
keppendur í úrtöku fyrir heims-
meistaramótið glímdu þar við
hlýðnikeppnina. I ráði er að vigja
reiðhöllina næstkomandi föstu-
dag og verður þá efnt til fjöl-
Trausti Þór Guðmundsson var fyrstur til að ríða í formlegri sýningu í reiðhöllinni og var hann á hest- breyttrar hrossasýningar.
inum Loftfara frá Hafnarfirði. I gólfinu er hvítur skeljasandur en hann var settur sérstaklega fyrir
vígsluna sem verður á föstudag. Heimsmeistarakandídatarnir létu
vel af reiðhöllinni að öðru leyti en
því að þeim fannst völlurinn heldur
gljúpur. Á milli 50 og 60 manns
fylgdust með keppninni en hluti
áhorfendastúkunnar er kominn
upp. Unnið er nú af kappi við að
loka höllinni og að lokinni vígsluat-
höfn verður sett trégólf á völlinn
sem verður þar meðan á Land-
búnaðarsýningunni stendur, en hún
verður haldin þama um miðjan
ágúst.
Morgunblaðið/V aldimar Kristinsson
Umframbirgðir
kindakjöts:
Kjötinu
ekki hent
straxeftir
slátrun
SÚ SPURNING hefur vaknað
eftir að svokallaðar umfram-
birgðir af kindakjöti hafa verið
urðaðar undanfarið á ruslahaug-
um Reykjavíkurborgar, hvort
ekki væri ódýrara fyrir ríkissjóð
að fleygja kjötinu strax eftir
slátrun og losna þannig við
geymslu- og vaxtakosnað. Kostn-
aður rikisins vegna þess kjöts
sem nú er búið að urða er talinn
vera um 36 miiyónir króna, þar
af er geymsiu- og vaxtakostnað-
ur rúmar 11 miiyónir.
Guðmundur Sigþórsson, skrif-
stofustjóri í landbúnaðarráðuneyt-
inu, var spurður þessarar
spumingan „Nei, við reiknum ekki
með því frá upphafi að henda þurfi
kjöti, það er neyðarráðstöfun, en
hvað varðar vextina þá er þar ekki
um beinan kostnað að ræða. Vext-
imir em tilkomnir vegna verðbólgu,
krónan er sífellt að lækka gagnvart
erlendum gjaldmiðlum. Við höfum
alltaf lagt mikla áherslu á að flytja
kjötið út jafnóðum í eins miklum
mæli og hægt er, en þegar það tekst
ekki leggst á þessi vaxtakostnað-
ur,“ sagði Guðmundur.
Ástæðu þess að ekki tókst að
selja kjötið sem nú er flutt á haug-
ana, sagði Guðmundur vera fyrst
og fremst þá, að á síðastliðnu
hausti var töluvert fækkað af full-
orðnu fé og því væri framleiðslan
of mikil. Þá væri Noregsmarkaður,
sem áður var stór hluti markaðsins,
nú alveg að lokast. Hann sagði
ennfremur að áformað væri að
skera niður 40 þúsund til viðbótar
í ár og næsta ár, samkvæmt bú-
vörusamningi við bændur, og sá
niðurskurður væri hátt í 1.000 tonn
af kjöti á markaðinn. Með þessum
niðurskurði yrði dregið verulega úr
framleiðslu á kindakjöti á næstu
árum, þó það nú skapaði offram-
leiðslu.
Helgarveðrið:
Þurrt um sunn-
anvert landið
ÞURRT verður um sunnanvert
landið um helgina og víða létt-
skýjað þó eitthvað þykkni
væntanlega upp eftir því sem á
liður.
Hitastig verður á bilinu 12-16
stig. Um norðan- og austanvert
landið verður hins vegar þoka, suddi
og rigning. Hitastig verður þar 7-10
stig-
VEÐDEILD
ÚTVEGSBANKA ÍSLANDS HF.
hefur tekið til starfa
Fyrsta útboð veðdeildarinnar er alls að
fjárhœð 65 milljónir króna.
UM ERAÐ RÆÐA VERÐTRYGGÐ EINGREIÐSLUBRÉF.
SKULDABRÉF ÞESSI ERU AÐ UPPHÆÐ
KR. 100 ÞÚSUND OG KR. 250 ÞÚSUND
SKULDABRÉF AÐ UPPHÆÐ
KR. 100 ÞÚSUND
Frá einu til fjögurra ára.
Eingreiðslubréf.
Ávöxfun umfram verðbólgu:
Eins árs bréf 9,7% ársávöxfun
Gjalddagi 1. júií 1988
Tveggja ára bréf 9,7% ársávöxfun
Gjalddagi 1. júlí 1989
Priggja ára bréf 9,5% ársávöxfun
Gjalddagi 1. júlí 1990
Fjögurra ára bréf 9,3% ársávöxfun
Gjalddagi 1. júlí 1991
SKULDABRÉFAÐ UPPHÆÐ
KR 250 PÚSUND
Til þriggja og fjögurra ára.
Eingreiðslubréf.
Ávöxfun umfram verðbólgu:
Þriggja ára bréf 9,5% ársávöxfun
Gjalddagi 1. júlí 1990
Fjögurra ára bréf 9,3% ársávöxfun
Gjalddagi 1. júlí 1991
VEÐDEILDARBRÉF
ÚTVEGSBANKA ÍSLANDS HF.
ER HÆGTAÐ KAUPA
Á ÖLLUM AFGREIÐSLUSTÖÐUM BANKANS.
ÞAU ERU EINNIG TIL SÖLU HJÁ HELSTU
VERÐBRÉFASÖLUM.
iVIEiÐiDiEi l ,L D
ÚTVEGSBANKA ÍSLANDS HF
Austurstrœfi 19