Morgunblaðið - 05.07.1987, Page 26

Morgunblaðið - 05.07.1987, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987 Með kveðju frá Rússlandi Það gekk ekki vandræðalaust fyrir sig að koma hinum rándýra myndaflokki Péturmiklié skjáinn en Sjónvarpið sýnir hann nú á miðvikudagskvöldum. Hanna Schygulla og Maximilian Schell í hlutverkum sínum í framhaldsmyndaflokknum Pétur mikli. Pétur mikli, hinn átta stunda langi fram- haldsmyndaflokkur sem sýndur er á miðvikudagskvöldum hjá Sjónvarpinu, er einn af þessum fjölþjóðaþáttum sem býður uppá fleiri fræga leikara en Óskarsverðlaunahátíðir, lítur stórfeng- legar út en Versalir, aukaleikararnir kæmustu varla fyrir í Laugardalshöllinni og búningar og leikmyndir kosta meira en Leifs Eiríkssonar-flugstöð, fullbúin. Auðvitað eru þetta ýkjur, en kannski ekkert umtalsverðar. Þið vitið hvernig húsgangurinn hljóðar: Það er allt svo stórt íTexas. Eða í þessu tilviki hjá NBC- sjónvarpsstöðinni. Pétur mikli kostaði a.m.k. 27 milljónir dollara (rúmur milljarður ísl.) og á meðal leikara í myndaflokknum eru Maximilian Schell, Vanessa Redgrave, Laurence Olivier, Omar Sharif, Trevor Howard, Lilli Palmer, Hanna Schygulla og Ursula Andress. Ekki slæmt leikarapartý það. Flokkurinn var tekinn á heimaslóðum Péturs mikla í Rússlandi og varð þar með fyrsta leikna Bandaríska kvikmyndin sem gerð hefur verið á meðal Rússa síðan kvikmyndasögur hófust. Það var hinn annars stirðbusalegi félagi Brésnef, sem veitti leyfið í óútskýrðu þíðukasti. En það gekk síður en svo vandræða- laust fyrir sig að framleiða myndaflokkinn i Rússlandi. Við þekkjum öll söguna af Pétri mikla. Árið 1697 tók hann sér hið frjósamasta frí frá störfum og varð fyrsti Rússakeisarinn til að ferðast með friði út fyrir landsteinana. í 18 mánuði gekk hann á milli allra helstu borga i Evrópu, drakk í sig vestrænar hugmyndir og tækni og snéri aftur til að leiða Rússa inn í samtímann. Besta sagan gerðist aftur á móti næstum þremur árhundruð- um síðar, eins og Richard Zoglin rakti í grein í vikuritinu Time þegar þættirnir voru sýndir vestra. Bandarískt sjónvarps- lið leggur í annað ferðalag í þetta sinn til Sovétríkjanna að gera smáþáttaröð um Pétur mikla. En það gengur ekki sem best frá upphafi og jafnvel fyrir upphafið því áður en höfundur framtaksins nær að stíga á rússneska jörð er hann rek- inn. Hið þunglamalega skrifræðisbákn í Moskvu og hræðilegir kuldar valda ótelj- andi töfum og harðræði. Þá verður stjarna þáttanna lasin og neyðist til að hætta áður en kvikmyndun lýkur að fullu. í hlutverk hans er settur í óreyndur leik- ari sem lítur ekkert ósvipað út og Schell. Það nálgast því kraftaverk að mynda- flokkurinn skyldi yfirleitt ná á skjáinn. Tilurð alls vafstursins má rekja til ársins 1982 þegar framleiðandinn Lawrence Schiller (Söngur bööulsins) fékk þá hug- mynd að gera sjónvarpsþætti eftir ævisögu Péturs mikla sem Robert K. Massie skráði og hlaut mikið lof fyrir en hún kom út árið 1980. Schiller fékk leyfi Kremlverja til að kvikmynda í Sovétríkjun- um en samningur þar að lútandi varð litlar 130 síður að lengd. Schiller hamr- aði hann saman ásamt sovétmönnum sem sóttust eftir að fá að hafa puttana í kvikmyndahandritinu en fengu ekki. Og áður en leið á löngu fékk Schiller það ekki heldur. Hann þótti of eyðslu- samur og í ágúst árið 1984, eftir nokkrar tökuvikur í Vín, rak NBC hann. Tökur voru þegar orðnar þremur dögum á eftir áætlun og Schiller hafði eytt um 800.000 dollurum meira en fjárhagsáætlun leyfði. Eftirmaður hans sem framleiðandi og leikstjóri var Marvin Chomsky, sem verð- launaður var fyrir sjónvarpsþættina Helförin (Holocaust). Hann fékk verkefn- ið í hendur þegar sjö mánaða tökur í Rússlandi voru að hefjast. Vandamál skutu upp kollinum næstum samstundis. Fyrst týndust hárkollurnar á allt leikara- liðið og fundust ekki í þrjár og hálfa viku. Kvikmyndaliðinu þótti allur aðbúnaður hinn óþægilegasti, það treysti ekki mikið hinu sovéska flutningakerfi og salernis- Omar Sharif í hlutverki ráðgjafa Péturs; leið heldur illa í Rússlandi. Trevor Howard leikur Isaac Newton sem Pétur mikli hitti raunar aldrei nema í myndaflokknum. pappírinn var hrjúfur. „Ég átti þarna óyndislegar stundir," sagði Omar Sharif, sem leikur einn af ráðgjöfum Péturs. Honum dauðleiddist hið sovéska kjúkl- inga og kartöflu fæði og gerði sér ferð til Parísar þar sem hann keypti ótiltekið magn af íúnfiski í dollum, flaug með það aftur til Sovét og borðaði einn síns liðs uppi í rúminu sínu á kvöldin. Og eftir því sem leið á kvikmyndunina fór rússneski veturinn að láta að sér Laurence Olivier leikur Vilhjálm Englandskonung. Vanessa Redgrave leikur Soffiu, systur Péturs. kveða. Kvikmyndaliðið varð að breiða teppi yfir tæki sín til að verja þau kuldan- um og Ijósaperur í kösturum sprungu tíöum vegna hitabreytinganna þegar þeir voru færðir í hús. Eftir tannaglamur og skjálfta á ísköldum tökustöðunum voru fengnar tvær stórar rútur fyrir leik- arana að skipta um búninga í. Og í febrúar árið 1985, mánuði áður en hann átti að byrja að leikstýra í Þýsku óper- unni í Berlín, fékk Schell flensu sem varði í fjórar vikur. Með væntanlegt leikstjórn- arverkefni á herðunum og ókláraðan myndaflokk gat Schell ekki bara legið kyrr eins og hver annar sjúklingur heldur dróst á lappir til að leika í nokkrum atrið- um í Leningrad áður en hann hvarf á brott. „Stundum var ég eins og hálf meðvitundarlaus," sagði hann síðar. Framleiöendurnir gripu þá til þess ráðs, verandi stjörnulausir á elleftu stundu, að fletta í gegnum leikaraskrá í London og völdu Denis De Marne til að fara með hlutverk Péturs í þeim fáu atrið- um sem eftir voru. Schell neitaði í fyrstu að tala inná myndina fyrir hann en gaf svo undan. Annars hafði Schell mikið gaman af því að segja frá því er hlé gafst frá tökum þegar hann og meistari Orson Welles fundu upp smáþáttaröðina (miniseries). „Það var fyrir um 15 árum á Frönsku TÍveríunni. Við Orson hittum kvikmynda- ramleiðanda að máli og ræddum við hann um þá hugmynd Orsons að leik- stýra nýrri útgáfu af Glæpi og refsingu en í henni átti ég að leika Raskolinkov. Við sökktum okkur í samræðuna og ég sagði þegar frá leið að það þyrfti minnst þrjár aðskildar myndir - eina sem gerðist fyrir glæpinn, eina um glæpinn og eina sem gerðist eftir glæpinn. „Það er rétt," sagði Orson, „bókin er svo mikilfengleg að það væri hægt að gera mynd um hvern kafla fyrir sig.“ Framleiðandinn var orðinn hinn órólegasti og spratt ioks á fætur og hvarf svo við brjálæðingarnir sátum einir eftir. Við höfðum, langt á undan okkar samtíð, fundið upp smá- þáttaröðina." En aftur í alvöruna. „Það eru mörg þemu í myndaflokknum um Pétur mikla- baráttan um völdin á milli Péturs mikla og Soffíu (Vanessa Redgrave) systur hans, ástarsamband hans og Katrínar (Hanna Schygulla), bygging Pétursborg- ar og stirðlegt samband Péturs mikla og Alexar (Boris Plotnikov) sonar hans - en mig grunar að áhorfendur eigi eftir að hafa mestan áhuga á þessu gríðar- lega stóra og hrífandi landi sem kallað er Rússland," segir leikstjórinn Marvin J. Chomsky. Hann segir það ekki vera neina slysni að enn sé litið á Pétur mikla sem þjóðhetju því hann bar ætíð hag þjóðar sinnar fyrir brjósti. „Það hefur svo margt verið sagt um hann, svo margt gott og svo margt slæmt. En það er eitt sem allir eru sammála um og það er tryggð hans við fööurlandið. Eins og rússneska skáldiö Alexander Pushkin sagði einu sinni: „Pétur reisti Rússneska hestinn á afturlappirnar."“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.