Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 29
að það er hans verkefni að skrifa um þjóð sína, hann hefur fundið verkefni sitt; að vera íslenskur rit- höfundur. Ég held hann hafí hugsað um það, um tíma, að vera maður eins og Gunnar Gunnarsson, sem skrifaði í Danmörku og Kristmann Guðmundsson, sem var í Noregi. En ég veit ekki til að Halldór hafi skrifað neitt á dönsku, utan þessar smásögur sem komu út þegar hann var 17 ára. Þegar hann fór til Bandaríkjanna fann hann hvað best hvað hann var mikill íslendingur. Þegar hann sá þetta land sem var stærst í heimi, þá endurvakti það þjóðernisvitund hans. Áður hafði hann hugsað sér að starfa á „hugsjónagrundvelli al- heimsborgarans, “ en nú fann hann hversu mikilvægur arfur íslands var. Hann skrifaði þá einum vini sínum frá San Fransiskó: „Ég er íslendingur. Hinn fullkomni íslend- ingur. Það er þetta sem ég hef verið að læra undanfama mánuði.“ Það má segja að Halldór hafí orðið sósíalisti í Bandaríkjunum, en þó ekki mjög kreddufastur. Enda segist hann ekki hafa orðið sósía- listi af lestri fræðibóka, heldur af því að hafa séð atvinnuleysi í stór- borgum Bandaríkjanna. Þetta var á kreppuárunum. Þessi reynsla er nokkurs konar undirstaða bóka hans á 4. áratugnum. Þær voru Salka Valka, Sjálfstætt fólk og Ljósvíkingurinn. Þetta finnst mér ekki hafa breyst svo mikið fyrr en á seinni árum. í bókum eins og Brekkukotsannál, frá 1957, er spennan orðin lægri. Hann segir þar um bækur sem voru í Brekkukoti, „þær voru sagðar öfugt við það sem við kennum við danska rómani." Og hann segir um þær að „líf sögumanns komi aldrei málinu við og þaðan af síður skoð- anir hans, en söguefnið eitt var látið tala.“ Þama er þessi afstaða orðin leiðarstjama hans sem rithöfundar. Hann fínnur að íslenska bók- menntahefðin, eins og hún birtist í íslendingasögum, er sterk í honum. Þegar hann skrifaði íslands- klukkuna var hann mikið í íslend- ingasögum. Hann segir í viðtali um íslandsklukkuna: „Viðkvæminin var tíska hjá rómantíkerunum, en nú,“ og þá á hann líkast til við hin harðsnúna stfl, eins og Hemingway, „er tískan að vera með kaldhæðni í stað viðkvæmni." Hann hefur mmtítT MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987 sjálfur verið að reyna að forðast þetta tvennt og reyna, eins og hann segir, „ að sjá hlutina utan frá í staðinn fyrir innan frá.“ Þetta er það sem hann hefur reynt að gera í Islandsklukkunni, segir hann. Hér er hann kominn með íslend- ingasögumar sem nokkurs konar fyrirmynd. Þegar hann var ungling- ur, aftur á móti, hafði hann skrifað Einari Ólafí Sveinssyni bréf. Einar hafði sent honum Heimskringlu þegar hann var í klaustrinu, til að hann héldi við íslenskri málkennd sinni. í bréfínu til Einars segir hann: „Snorri, og þessir gömlu karlar. Þeir leggja mesta áherslu einmitt á það sem nútímahöfundar leggja minnsta áherslu á, nefnilega að búa til kontúmr og þeir em allir í því að tína saman einhver hundleiðinleg fakta, sem enga skepnu geta in- tresserað." Þama er hann að afneita íslensku bókmenntahefðinni. En svo fer hann að semja íslandsklukkuna mörgum áram seinna þar sem hann beitir starfsaðferðum þessara gömlu karla og notkun þessara aðferða hefur stöðugt aukist hjá honum. Á seinni ámm, frá og með Brekkukotsannál, er eins og þessi rósemi og þetta hlutleysi, sem hann hefur fundið í fomsögunum, séu orðin eins konar leiðarstjama hans þegar hann skrifar sjálftir. Og um leið getur maður sagt að kennisetn- ingar og skoðanakerfí séu liðin hjá, eða hann sér þetta eins og úr fjar- lægð. í staðinn em komin einföld og uppmnaleg mannleg verðmæti sem hann hefur mest fundið hjá íslenskri alþýðu og ekki síst hjá gömlu fólki. Ég endaði fyrilestur minn á litlu kvæði sem hann er með í bókinni „í túninu heirna." Hann er að tala um bemsku sína í Laxnesi og yrkir um túnið heima. Hann lítur til baka. Hann hefur fengið útsýni yfír víðemi mannlífsins sem hann hafði talað um.“ Að lokum, hvaða áhrif hefur Laxness haft á bókmenntahefðina? „Það er kannski fremur fyrir yngri íslenska höfunda að svara þessu. En eitt veit ég, íslenskur skáldskapur getur ekki orðið eins eftir Laxness." VIÐTAL: SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR FLUG OG BILL Nú er kominn tími til að bregða undir sig betri hjólunum og fljúga til Luxem- borgar og rúlla um Evrópu fyrir lítinn pening. Terra býður einstaklega lágt verð á fluginu og bíllinn kostar sama og ekkert. Dæmi um Terruverð á flugi og bíl fyrir 4 í tvær vikur: Fíat Panda: Ford Sierra: kr. 11.731 pr. mann kr. 14.012 pr. mann Ford Fiesta: Ford Scorpio: kr. 12.156 pr. mann Ford Escort: kr. 12.960 pr. mann kr. 17.033 pr. mann Innifalið i verði er flug (KEF-LUX-KEF) og bíll.með ótakmörkuðum akstri, kaskótryggingu og söluskatti. Öll verðin miðast við 2 fullorðna og tvö börn á aldrinum 2-12 ára. Hittu starfsfólk Terru að máli og það opnar þér dyr að töfrum Evrópu. VERÐKYNNING Nokkur dæmi um verð: Verð pr. stk. kr.: Kerti................................. 80,00 Kveikjulok........................... 320,00 Kveikjuhamar ........................ 131,00 Blaðka í blöndung.................... 155,00 Bensínvír............................ 725,00 Bremsuslangaframan .................. 665,00 Bremsuklossasettframan ’72-’84 .... 690,00 Bremsuklossasett aftan ’72-'84 ...... 690,00 Hleðslujafnarakúia................. 1.890,00 Stýrisendi .......................... 595,00 Hjólapakkdós ......................... 120,00 Liðhúsapakkdós........................ 350,00 Vatnskassi.......................... 9.705,00 Klafafóðring ......................... 310,00 Jafnvægisstangafóðring ............... 225,00 Gormar framan og aftan............. 2.081,00 Stýrishöggdeyfir.................... 1.105,00 Höggdeyfar, framan og aftan......... 1.550,00 Hliðarlistasett 2. og 4. dyra....... 6.900,00 Þurrkublað............................ 347,00 Hraðamælasnúra ’72-’84 ............... 725,00 Notkun viöurkenndra varahluta er trygging fyrir hámarks endingu með lágmarks kostnaði. Hekla hf. selur aðeins viðurkennda vara- hluti með ábyrgð, á hagstæðu verði. Kynntu þér okkar verð áður en þú leitar annað, það getur borgað sig. Símar: 695500 og 695650
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.