Morgunblaðið - 05.07.1987, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 5. JÚLÍ 1987
45
Og að Elliðaeyingunum sjálfum
meðtöldum voru því um 130 manns
í veislunni. Þarna var mættur heið-
ursfélagi veiðifélagsins, Tóti á
Kirkjubæ, þrátt fyrir háan aldur og
stirða ganglimi. Ekkert gat meinað
honum að vera viðstaddur þessa
stóru stund.
Fólkið var ferjað út í eyna á vél-
bátnum Draupni og tók siglingin
20 mínútur. Síðan fluttu Léttir og
Vinur fólkið upp að flánni við Páls-
nef þar sem gengið, eða öllu heldur
stokkið, var í land. Aðallendingar-
staðurinn í Elliðaey er annars
austan megin á eynni og þar er
landtakan mun auðveldari en við
Pálsnef. Elliðaeyingarnir höfðu rað-
að sér með strekkt bönd á bratt
einstigið upp á eyna og gekk vel
að koma gestunum upp bergið.
Þórarinn Sigurðsson var veislu-
stjóri, klæddur uppá í kjól og hvítt,
en á strigaskóm. Hreppstjórinn í
Elliðaey, Guðni Hjörleifsson, lýsti
framkvæmdum og notaði tækifærið
til að skjóta nokkrum léttum að
öðrum úteyjarkörlum sem voru við-
staddir, sem auðvitað svöruðu fyrir
sig í sama tón. Það er ríkjandi hjá
úteyjarmönnum að nota sérstakt
tungutak þegar þeir talast við en
allt er þetta þó í besta bróðemi.
Elliðaeyingum bárust margar góðar
gjafir til hússins, blóm og heilla-
óskir.
Að ræðuhöldum loknum er menn
höfðu skálað í kampavíni fyrir
framtakinu var efnt til mikillar
grillveislu þar sem nokkur hundruð
pylsur með öllu hurfu ofan í án-
ægða veislugesti. Flugeldum var
skotið á loft og kveiktur var stór
varðeldur. Allir sungu gömlu góðu
lögin í sönnum Vestmannaeyjastíl.
-hlq.
EPSON PC*
EPSON PC+ er ein hraðvirkasta PC-
TURBO tölvan á markaðnum
V30 örgjörvi (8086 samhaefður með tvö-
falda tiftíðni: 4,77 MHz og 7,16 MHz
Grafísk skjástýring: Hercules samhæfð
og litgrafík
Vinnsluminni: 640 þús. stafir
Raðtengi og hliðtengi
Rauntímaklukka með dagatali og vekjara
MS-DOS 3.1
12“ einlita skjár svart/hvítur
Einstaklega fyrirferðarlítil
Sérlega hagstætt verð
EPSON
H
F=
ÁRMÚLA11 SlMI 6B15QO
ABOT
A VEXTI
GULLS ÍGILDI
0FULL VERÐTRYGGING.
0 VEXTIR OG VAXTAÁBÓT.
ð FRJÁLS ÚTTEKT HVENÆR SEM ER,
ÁN ÚTTEKTARKOSTNAÐAR.
@ FULLIR VEXTIR STRAX FRÁ INNLEGGSDEGI.
ÞETTA ER ÞAÐ SEM VIÐ KÖLLUM SKÍNANDIÁVÖXTUN
ÖÐRU NAFNI: INNLÁNSREIKNINGUR MEÐ ÁBÓT.
ÚTVEGSBANKI ISLANDS HF
ÖFLUGUR BANKI