Morgunblaðið - 05.07.1987, Blaðsíða 48
©
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGÚR 5. JÚlJ 1987
4M
GARÐ YRKJUSTÖRF
ÁÍSLANDI
ENNÞÁÁ TILRAUNASTIGI
Það er óhætt að segja að
Reykjavík man tímana
tvenna hvað varðar gróður-,'
far, því um það leyti, sem
bærinn fær kaupstaðarrétt-
indi árið 1786 fara litlar
sögur af gróðri í Reykjavík.
Eitthundrað árum seinna
skrifar Schierbeck land-
læknir, sem vann mikið
tilraunastarf í garðrækt í
hjáverkum: „í görðum í
Reykjavík sjálfri eru nokkr-
ir ribs-runnar og einstöku
reynitré, sem eigi lítur út
fyrir að þrífist vel.“
Þeir, sefn bjuggu í Reykjavík
á árum seinni heimsstyijald-
arinnar muna vel eftir því
hvemig Reykjavik leit út þá. Stór-
felldir flutningar manna til höfuð-
borgarinnar ollu því að heilu
borgarhverfin risu án þess að menn
sinntu umhverfi sínu í neinu. Fram-
boð tijáplantna og annars gróðurs
var lítið. Menn höfðu hugann ein-
faldlega við annað, að sinna
nýsköpun atvinnulífsins og koma
sér fyrir. A árunum eftir stríðið
komst þó skriður á ræktumarmálin
og nú má segja að Reykjavík sé
orðin græn, því tré og annar gróður
setja svip sinn á borgina en höfuð-
borgin er nú stærsta tijáræktar-
svæði landsins.
Margir hafa lagt hönd á plóginn
við ræktun gróðurlendis í
Rætt við garðyrkjustjóra Reykjavíkur, Jóhann Pálsson.
Jóhann Pálsson garðyrkjustjóri í Grasagarðinum í Laugardal. Eitt helsta áhugamál Jóhanns, sem er
grasafræðingur, eru tiiraunir með nýjar tegundir tijáa og runna.
almenningsgörðum áður. Þar má
líka finna rósir og sírenur, sem er
óalgengt að hafa í ódekruðum görð-
um sem þessum."
— Bemm við ef til vill full mikið
í garðana okkar?
„Það má kannski segja það, því
garðrækt er handavinna og hún er
dýr í nútímaþjóðfélagi. En borgin
vill skapa fólkinu góð skilyrði til
útivistar og stuðla að fegurra, holl-
ara og öruggara umhverfi. Það
skiptir þó miklu máli að það sem
gert er á grænu svæðunum komi
vel út í viðhaldi."
— Verða fleiri útivistarsvæði
tekin í gegn á næstunni?
„Já. Byijað var á endurbótum á
Einarsgarði í fyrra og þeim verður
haldið áfram í sumar. Því næst
verður tekið til við endurbætur á
umhverfi Ijamarinnar, sem er án
efa með vinsælli útivistarsvæðum
borgarinnar.
Þá er hafíst handa við þann hluta
Laugardalsins, sem snýr að Reyja-
veginum en þar eiga að skiptast á
bflastæði og garðar. Við höfum sett
niður mikið grenibelti við gervigras-
völlinn, sem á eftir að skapa þar
gott skjól, ég tala ekki um þegar
trén verða orðin sautján metra há
eftir fimmtíu ár. í Laugardalnum á
eftir að verða ákaflega skemmtilegt
og fjölbreytilegt útivistarsvæði því
auk íþróttaaðstöðunnar er gert ráð
fyrir að þar verði húsdýrasafn,
fiskasafn og margs konar lystigarð-
ar með fjölbreyttri tómstundaað-
stöðu fyrir böm. í Laugardalnum
verður Tónlistarhöllinn, sem mun
Jóhann segistgjarnan vilja aðsem flestar íbúðargötur íReykjavík verðieins ogsuðurhlutiLaufásvegar-
ins, sem er vafinn í fjölbreyttan gróður. Ekki er ólíklegt að svo verði í framtíðinni, þvíReykvíkingar
hugsa vel um garða sína, auk þess sem ræktun tijáa gengur bara nokkuð vel í höfuðborginni.
Reykjavík, bæði starfsmenn hjá ríki
og borg og borgaramir sjálfir.
Höfuðráðunautur borgarinnar í
ræktunarmálum er Jóhann Pálsson
garðyrkjustjóri. Verksvið hans er
að hafa umsjón með uppbyggingu
og umhirðu hinna fjölbreyttu úti-
vistarsvæða borgarinnar, hann er
einnig ritari umhverfismálaráðs
Reykjavíkur. Jóhann tók við starfi
sínu um áramótin 1985-1986. Áður
var hann forstöðumaður Lysti-
garðsins á Akureyri eða í sjö ár,
þar sem hann gerði ýmsar tilraunir
með gróður. Jóhann er grasafræð-
ingur að mennt. Við ræddum við
hann á dögunum meðal annars um
það, sem efst er á baugi hjá Garð-
yrkjudeild Reykjavíkurborgar í
nánustu framtíð?
„Eins og við vitum hefur
Reykjavík vaxið ákaflega ört óg því
hafa framkvæmdir eins og malbik-
un, hellulögn gangstétta og ræktun
grænna svæða ekki alltaf haldist í
hendur. Ennþá á víða eftir að ganga
frá grænum reitum, sem munu
hafa forgang,“ sagði Jóhann. „Við
leggjum einnig áherslu á að mynda
skjól með trjágróðri og byggja upp
stóru útivistarsvæðin.
Á síðastliðnu ári voru gerðar
úrbætur á gamla Víkurkirkjugarð-
inum eða Fógetagarðinum eins og
hann hefur oft verið nefndur í seinni
tíð. Tekin hafa verið burt gömul tré
í lélegu ástandi og í staðinn settur
runnagróður, sem við höfum ekki
notað áður í skrúðgarða.
Einnig hafa staðið yfir endurbæt-
ur á Hallargarðinum síðan í fyrra-
sumar. Stéttimar þar hafa verið
endurbyggðar og skipt um gróður
í beðum þar sem hann hefur verið
lélegur. Það er eins með Hallargarð-
inn og Víkurgarðinn að við gróður-
setjum ýmsar tijá- og runnategund-
ir, sem ekki hafa verið notaðar í
Matfurtarækt íreykvískum görðum oggróðurskálum mættigjarnan
vera meiri, segir Jóhann. Við rákumst á þennan matjurtagarð í
Langagerðinu.
Hafist hefur verið handa viðþann hluta Laugardalsins, sem snýr
að Reykja veginum, en þar eiga að skiptast á bílstæði oggarðar.