Morgunblaðið - 26.07.1987, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1987
3
Kraft- og blýminna bensín
Leiðir til 2% hækkunar á útsöluverði
Á laugardag var væntanlegur
til landsins fyrsti farmurinn af
blýminna bensíni en selt hefur
verið hingað til. Blýmagn í
bensíni mun nú lækka úr 0,40
g/1 í 0,15 g/1. Einnig mun oktan-
tala venjulegs bensíns lækka
úr 93 oktan í 92 oktan. Þessar
breytingar munu koma til
framkvæmda jafhóðum og
birgðir bensínstöðva endurnýj-
ast.
í samningi um olíukaup sem
Islendingar gerðu við Sovétmenn
síðastliðið haust eru ákvæði þess
efnis að Sovétmenn geti ákveðið
að selja okkur blýminna bensín
þegar þeim hentar á árinu og
verði bensínið þá eftirleiðis með
sama blýmagni. Þetta er fyrsti
farmurinn samkvæmt þessu
ákvæði samningsins. Jafnframt
breytist oktanmagn bensínsins og
var sú breyting ekki að ósk íslend-
inga. Olíufélögin mótmæltu
þessari lækkun en sú lækkun var
ekki tekin til greina og borið við
tæknilegum ástæðum, að sögn
olíufélaganna.
Ennfremur var svo kveðið á í
samningnum að 0,4 g/1 bensín
yrði keypt á sama grunnverði og
0,15 g/1 bensín, en vegna meira
blýinnihalds var veittur afsláttur
frá því verði. Sá afsláttur fellur
nú niður og hækkar innkaupsverð
bensínsins af þeim sökum um 5%.
Hækkun útsöluverðs er þó minni
vegna vægis innkaupsverðs. Að
óbreyttum öðrum þáttum verð-
lagningar mun því verð á þessu
nýja bensíni verða u.þ.b. 2% hærra
en núverandi útsöluverð.
Jón Páll
sá sterk-
asti
JÓN PÁLL Sigmarsson varð sig-
urvegari á mótinu Sterkasti
maður sem uppi hefúr verið, er
haldið var við miðaldakastala í
Skotlandi. Jón Páll fékk 28 stig
af 30 mögulegum og vann í átta
keppnisgreinum af tíu. Jón Páll
setti einnig á mótinu nýtt heims-
met í réttstöðulyftu aflrauna-
íþrótta. Hann lyfti léttilega 1.153
pundum, sem er rúmlega hálft
tonn.
i Tveir keppendur voru á mótinu,
auk Jóns Páls, þeir Capes frá Bret-
landi og Kazmaier frá Bandaríkjun-
um, en þessir þrír hafa oftast unnið
titilinn Sterkasti maður í heimi.
Kazmaier fékk 16 stig í keppn-
inni og vann í tveimur greinum af
tíu mögulegum, en Capes varð í
þriðja sæti í öllum greinum og lauk
keppninni með 10 stigum. Þetta er
í fýrsta skipti sem Kazmaier tapar
í keppni.
Trésmiðja
Stykkishólms
býður 17,3
milljónir í
íþróttahús
Stykkishólmi.
TILBOÐ í fyrsta áfanga
íþróttamiðstöðvar í Stykkis-
hólmi voru nýlega opnuð í
skrifstofú Stykkishólmsbæjar.
I þessum fyrsta áfanga felst
uppsteypa hússins og frágang-
ur að utan.
Lægsta tilboð var frá Trésmiðju
Stykkishólms hf. tæplega 17,3
milljónir króna sem er 86,8% af
kostnaðaráætlun Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen hf. Næst-
lægsta tilboðið var frá trésmiðj-
unni Ösp hf. tæplega 17,9
milljónir sem er 89,8% af áætlun.
Tvö önnur tilboð bárust í verkið
sem bæði voru yfir kostnaðaráætl-
un. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp
á 19,9 milljónir.
Framkvæmdir eiga að hefjast
strax og á verkinu að ljúka fyrir
15. júlí 1988. Ekki er búið að
semja við verktaka en eftir að
búið er að fara yfir tilboðin verður
samið við lægstbjóðanda.
Arni
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Vie ERUM BYRJUÐ AÐ TAKA VIÐ PÖNTUNUM í
HAUST-OG
VETRARFERÐIRNAR
LÚXEMB0RG
Sérstaklega ódýrar helgar-
ferðir til Lúxemborgar
október og nóvember.
GLASGOW:
Viku- og helgarferðir.
Þægileg hótel íhjarta borgarinnar.
LONDON:
Viku- og helgarferðir.
Hagstæð innkaup, fjölbreytt leikhús-
og tónlistarlíf. Heimsins mesta úrval
matsölu- og skemmtistaða.
Betri
hostur
Forvitnilegt mannlíf, þverskurð-
uralheimsins.
íþróttaviðburðir, listasöfn og
heimsfrægar byggingar.
Vinsælu, þægilegu Lundúna-
ferðirnar með þaulkunnugum
fararstjóra Útsýnar.
)