Morgunblaðið - 26.07.1987, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1987
33
KROSSGÁTA
Ályktun Landssambands bakarameistara:
Gleymdist brauðið?
í fréttatilkynningu Qármála-
ráðuneytisins vegna breytinga á
tekjuöflun ríkissjóðs segir m.a.:
„Undanþága matvöru frá söluskatti
hefur m.a. verið gagnrýnd fyrir það
að undanþágan taki eins til allrar
matvöru þar á meðal lúxusvöru,
sem að jöfnu finnst ekki á borðum
þeirra sem undanþágunni er ætlað
að þjóna. Með breytingum þessum
er sneitt fram hjá skattlagningu
flestrar þeirrar matvöru sem telst
til brýnustu nauðsynja auk þess sem
skatturinn verður lægri en á ann-
arri vöru.“
Með þessi rök að leiðarljósi ákvað
ríkisstjórnin að leggja söluskatt á
alla matvöru nema kjöt, fisk, mjólk,
nýtt grænmeti og ávexti.
Væntanlega ber að skilja þetta
sem svo, að aðrar matvörur en hér
greinir teljist lúxusvörur eða að þær
teljist ekki til brýnustu nauðsynja-
vöru á sama hátt og þær sem áfram
verða undanþegnar söluskatti. Hér
bregður nýrra við. Á sjöunda ára-
tugnum var söluskattur á öllum
matvörum. Hann var síðan felldur
niður í tveimur skrefum. Fyrst var
ákveðið að undanþyggja kjöt, fisk,
mjólk, grænmeti, ávexti og brauð-
vöru söluskatti. Síðan voru þessar
undanþágur rýmkaðar og öll mat-
vara felld þar undir, m.a. umræddar
lúxusvörur. Nú þegar horfið er aft-
ur að því að undanþyggja aðeins
brýnustu nauðsynjavöru söluskatti
er brauðvara ekki talin þar með
eins og áður. Hvað hefur breyst?
Telur ríkisstjómin brauð vera lúx-
usvöru, eða gleymdi hún brauðinu?
Brauð er ekki síður stór hluti af
daglegri neyslu landsmanna en kjöt,
fískur, grænmeti og ávextir. Því
verður brauð ekki útilokað úr þess-
um hópi, ef minnka á framfærslu-
byrðina. Sama gildir gagnvart
hollustusjónarmiðum. í manneldis-
markmiðum manneldisráðs er
sérstaklega bent á að stórlega þurfi
að auka daglega neyslu á kom-
vörum, fiski og grænmeti. Ef
ríkisstjórnin ætlar að vera sjálfri
sér samkvæm og stuðla að fyrir-
byggjandi heilsuvemd, sem er
næsta stórverkefni heilbrigðisþjón-
ustunnar, er hollt mataræði eitt af
lykilatriðunum. Læknar (og aðrir
sérfræðingar) manneldisráð,
Hjartavemd og aðrir aðilar er láta
sig þessi mál varða hafa hvatt til
þess að mörkuð verði skýrari opin-
ber stefna í manneldismálum. Það
verður því hvorki varið út frá holl-
ustu né framfærslusjónarmiðum,
að leggja söluskatt á brauð, en
ekki kjöt, fisk, nýtt grænmeti og
ávexti.
Landssamband bakarameist-
ara ítrekar það sjónvarmið að
það sé misráðið að skattleggja
alla matvöru. Sérstaklega þær
hollustuvörur er vega hvað
þyngst í daglegri neyslu manna,
eins og brauð gerir.
er kosturinn
Ýfir 1000 síður.
Nýja vetrartískan á alla
fjölskylduna.
Búsáhöld - leikföng -
sælgæti - jólavörur -
o.fl. - o.fl.
Verðpr.listaerkr. 190.-
sem er líka innborgun
v/fyrstu pöntun.
(Kr. 313.-í póstkröfu.).
l