Morgunblaðið - 26.07.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JÚLÍ 1987
Fornleifafiindir á höfuðborgarsvæðinu
Sleggjusteinar, nianns-
hár og klébergsbrot
f VIÐEY er verið að undirbúa
byggingu jarðhúss sem verður
þjónustuhús við Viðeyjarstofu,
en þar vantar ýmsa aðstöðu svo
sem snyrtiaðstöðu fyrir gesti.
Þar fer nú fram könnunarupp-
gröftur og að sögn Margrétar
Hallgrimsdóttur, sem hefur um-
sjón með framkvæmdunum í
Qarveru Sigurðar Bergsteins-
sonar fornleifafræðings, hafa
fleiri kassar verið fylltir með
hlutum og brotum sém fundist
hafa.
V „Það merkilegasta sem fundist
hefiir er niðurgrafinn kjallari sem
fylltur hefur verið af móösku eftir
að hætt var að nota hann og hlað-
inn veggur sem við fylgjum við
uppgröftinn," sagði Margrét í sam-
tali við Morgunblaðið. Hún sagði
að um auðugan garð væri að gre-
sja í Viðey og alltaf kæmi meira
og meira í ljós. Þama væru hleðslur
á hleðslur ofan, fundist hefðu leyfar
af öskulagi frá Kötlugosi frá 1500,
landnámslagið og að öllum líkindum
væru þau nú komin niður á miðalda-
lag. Hún sagði of snemmt enn að
segja um aldur kjallarans og vegg-
hleðslunnar miklu, en til stæði að
senda kol í svokallaða C-14 grein-
ingu sem veitir mjög nákvæmar
upplýsingar um aldur.
Meðal muna sem fundist hafa er
sleggjusteinar, klébergsbrot, eld-
færi, mannshár, dýrabein og margt
fleira.
Morgunblaðið/Þorkell
Hlaðinn veggur hefur fundist sem nær yfir allt uppgreftrarsvæðið
í Viðey
X
Fornleifar á Bessastöðum
Kínverskt postu-
lín af fínustu gerð
Á BESS ASTÖÐUM er uppgreftri
nú að ljúka en þar hafa fomleifa-
fræðingar verið að störfum siðan
í byrjun mai. Fundist hafa hleðsl-
ur og rústir af hluta Kpnungs-
Aðalstræti:
Þetta hefiir veríð ævin-
týralegnr uppgröftur
- segir Margrét
Hallgrímsdóttir
fornleifafræðingnr
„ÞETTA hefur verið ævintýra-
legur uppgröftur og um margt
óvenjulegur. Það hefur bæði
flætt vatn inn í gmnninn þegar
stórstreymt er og skemmdarverk
verið unnin. Á timabili leit ekki
út fyrir að margt merkilegra
fomleyfa fyndist hér, en úr
þessu öllu hefur ræst,“ sagði
Margrét Hallgrímsdóttir fom-
leifafræðingur um uppgröftinn í
Aðalstræti. Þar hefur meðal ann-
ars fundist kritarpípuhaus frá
17. eða 18. öld og hús sem hugs-
anlega er frá tímum Innrétting-
anna um 1750.
Verið er að grafa í efri hluta'lóð-
arinnar og þar er verið að ljúka við
að hreinsa fram húsarústir
Margrét segir að séu að mir
kosti frá tímum Innréttinganna um
1750 og hugsanlega töluvert eldri.
Rústimar hafa varðveist mjög vel,
kaffærðar undir um 200 ára gömlu
móöskulagi, auk þess sem yfir þeim
var steypt gólf frá Fjalakettinum.
Um nokkuð stórt hús að ræða, en
það var einn veggur þess sem eyði-
Iagður var að nóttu til
skömmu. Uppgreftrinum i Að
stræti lýkur um mánaðamótin.
Nýlokið er við að hreinsa fram
hafa mjög vel. Margrét heldur
minnsta kosti 200 ára gamall.
Morgunblaöið/Emar b'alur
gamlar húsarústir sem varðveist
hér á kritarpípuhaus sem er að
garðs og húsagarði hans. Hluti
Konungsgarðs er undir gólfi
Bessastaðastofu og verður vænt-
anlega til sýnis á einhvem hátt
að sögn Guðmundar Ólafssonar
fomleifafræðings sem umsjón
hefiir með framkvæmdunum.
Meðal annars sem fundist hefiir
era brot úr kínversku postulíni
af finustu gerð.
Fyrir skömmu var grafið upp hús
sem Guðmundur Ólafsson telur vera
forvera Bessastaðastofu, sameigin-
legt amtmanns- og landfógetahús
frá því um 1740. „ Byggingasaga
Bessastaða er mjög flókin, húsin
hafa verið margbyggð upp og end-
urbætt. Þetta hús sem við höfum
fundið núna bendir til að sá hluti
Konungsgarðs sem er undir Bessa-
staðastofu sé eldri en við héldum,
að öllum líkindum frá því á fyrri
hluta 17. aldar," sagði Guðmundur.
Meðal muna sem fundist hafa
við uppgröftinn á Bessastöðum er
postulín frá ýmsum tímum, meðal
annars brot af kínversku postulíni
af fínustu gerð. Það reyndist við
aldursgreiningu vera frá 18. öld,
en einnig hefur komið upp mikið
af postulíns- og leirkerabrotum frá
17. og 19. öld.
Unnið við fornleifauppgröft i Viðey,
fornmuna hefiir fundist þar í sumar.
Viðeyjargröftur:
en
þar
á
að
koma
MorgunblaðiO/Porkeu
upp jarðhýsi aftan við Viðeyjarstofu. Margt
4för■
%
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
Að sjálfsögðu var haldin kveðjuveisla kvöldið áður en sænsku krakk-
arnir héldu tíl sfns heima fyrr i vikunni.
Alþjóðleg unglingaskipti:
Tíu sænskir krakkar dvöldu
hjá íslenskum fíölskyldum
FYRR i sumar fóra 10 íslenskir
krakkar út til Svfþjóðar á vegum
aaiwtakanna Alþjóðlegar sumar-
búðir barna og dvöldust þar i
tvær vikur þjá sænskum Qöl-
skyldum. Börnin á þeim heimil-
um sem þau dvöldu á f Sviþjóð
fylgdu þeim siðan heim til ís-
lands og bjuggu á heimilum
þeirra i tvær vikur. Hér á landi
fóra krakkarnir meðal annars í
útilegur, stuttar ferðir út á land
og héldu partý. Að sjálfsögðu var
svo haldin veisia kvöldið áður en
sænsku krakkarnir héldu heim
fyrr i vikunni.
Markmið samtakanna Alþjóðleg-
ar sumarbúðir bama, CISV, er auk
unglingaskipta af þessu tagi, að fá
böm frá öllum löndum til að koma
saman í sumarbúðum og fræða
hvert annað um þjóðlönd sín og
leggja grundvöll að umburðarlyndi
og skilningi á hinum ólíku kynþátt-
um, siðavenjum og trúarbrögðum.
Stofnað er til búða í ólíkum löndum
og em bömin sem í þær fara ellefu
ára gömul og dveljast saman í ijór-
ar vikur. Allir krakkar geta fengið
að dveljast í sumarbúðum af þessu
tagi og er hægt að fá nánari upplýs-
ingar hjá CISV ísland, Pósthólf 86,
210 Garðabær.
Tvisvar hafa verið haldnar slíkar
búðir hér á landi. í Hlíðardal árið
1984 og á Laugalandi í Holtum á
síðasta ári. Næst er ráðgert að
halda búðir á íslandi árið 1989.