Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
Vogalax hf.:
Endurheimtum-
ar orðnar 12%
Hafbeitarstöðin Vogalax hf. hefur endurheimt 4.300 laxa í sum-
ar, eða um 12%, miðað við að síðastliðið sumar var sleppt þaðan
36.000 sjógönguseiðum. Samtals eru komnir 4.300 laxar í stöðina
og mest 800 laxar á einum degi, en það var 23. júli síðastliðinn. Að
sögn Vilhjálms Guðmundssonar framkvæmdastjóra eru þetta bestu
heimtur frá því að stöðin tók til starfa 1979.
Vogalax hf. sleppti 400.000 sjó-
gönguseiðum í vor og eru það
rúmlega tíu sinnum fleiri seiði en
sleppt var í fyrra. Næsta ár á að
sleppa 1.700.000 seiðum og árið
1989 2-2,5 milljónum seiða. Vil-
hjálmur sagði að nú stæðu yfír
miklar framkvæmdir hjá stöðinni í
Vogum á Vatnsleysuströnd sem
gerðu kleift að ala upp 2,5 milljón-
ir sjógönguseiða á ári.
„Endurheimtur hafa verið mjög
góðar síðustu árin," sagði Vilhjálm-
ur, „en nú stefnir í algjört met sem
sýnir að hafbeit á góða framtíðar-
möguleika á íslandi. í lok júlí árið
1985 voru heimtur 6,5%, en 12,6%
í lok ársins. í júlí í fyrra voru heimt-
ur 5,6% og 9,7% í ársiok. Þess má
geta að 8-12% endurheimtur eru
taldar góðar."
Vogalax hf. selur mest af laxi
til Bandaríkjanna en einnig til
Spánar, Danmerkur, Bretlands og
Hollands.
Steypustyrktaijámið tilbúið til flutnings. Morgunbiaðið/EG
Ratsjárstöðvarnar á Gunnólfs víkurij alli og í Stigahlíð:
Morgunblaðið/Snorri Hauksson
Stærsti lax sumarsins til þessa:
32 punda hæng-
ur úr Víðidalsá
Á þriðja hundrað tonn af steypu-
styrktarjárni fara í stöðvarnar
Vogum.
JÁRNAVINNUMENN hjá ís-
lenskum aðalverktökum á
Keflavíkuflugvelli hafa undan-
fama daga unnið við að klippa
og beygja steypustyrktaijám,
sem síðan verða sett í gáma og
flutt út á land vegna byggingar
ratsjárstöðva á Gunnólfsvíkur-
Qalli og f Stigahlíð.
Það eru alls á þriðja hundrað
tonn af steypustyrktarjámi sem
fara í byggingamar, en þar af era
um 25 tonn sem jámavinnumenn
hjá íslenskum aðalverktökum
hafa verið að vinna á lager að
sögn Sveins Brynjólfssonar verk-
stjóra. Steypustyrktaijámið hefur
verið beygt í vinkla, lykkjur og
fleira samkvæmt teikningum, en
jám sem ekki verður beygt verður
flutt óunnið á byggingarstaðina.
Jámavinnumenn hjá íslenskum
aðalverktökum hafa ekki áður
unnið steypustyrktaijám fjarri
byggingarstað eins og í þessu til-
felli, því vinnan hefur öll farið
fram á byggingarstað. EG
Bandarískur stangveiðimaður,
Ralph Peters að nafni, veiddi á
sunnudaginn 32 punda lax f Víði-
dalsá og er það stærsti lax sem
vitað er til að hafí veiðst það sem
af er laxveiðivertíðinni. Laxinn,
sem var leginn hængur, veiddist
í veiðistað sem heitir Kælir og
gein hann yfír flugu að nafni
Blue Nellie nr. 6. Hængurinn
stóri stóð sig illa, lét ná sér eftir
aðeins 20 mfnútna glímu, en við-
ureignir við slíka stórlaxa standa
oft yfir svo klukkustundum
skiptir.
Stórlaxaveiði hefur annars verið
á dagskrá í Víðidalsá svo og fleiri
ám, svo sem Vatnsdalsá og Laxá í
Aðaldal, svo einhveijar séu nefnd-
ar. Meira hefur verið af stóram
stórlaxi en í áraraðir og sem dæmi
má nefna, að nú þegar hafa 42 lax-
ar veiðst í Víðidalsá sem vegið hafa
20 til 32 pund. Er þá ótalinn aragrú-
inn sem vegur 15 til 19 pund, en
af slíkum löxum er nóg í Víðidaln-
um. Þó má búast við því að
meðalþunginn fari lækkandi, því
von er á smálaxagöngum í ána á
næstunni.
Sjá bls. 30: Eru þeir að fá’ann.
Járaamenn hjá íslenskum aðalverktökum vinna steypustyrktarjám sem fer í ratsjárstöðvar á Gunn-
ólfsvíkurQalli og f Stigahlfð.
Landsvirkjun ræðir við ríkisstjórnina:
Vill losna imdan gjaldi
af lántökum erlendis
Telur það þýða 2,4% hækkun á gjaldsskrá fyrirtækisins
HALLDÓR Jónatansson, for-
stjóri Landsvirkjunar, segir
að Landsvirkjun geti þurft
að hækka verðskrá sína um
2,4% ef stjórnvöld verða ekki
við beiðni fyrirtækisins um
að það verði undanþegið er-
lendu lántökugjaldi. Halldór
hefur rætt við Friðrik Soph-
usson iðnaðarráðherra um
þetta erindi Landsvirkj unar
og í dag mun hann ræða við
Jón Baldvin Hannibalsson
fjármálaráðherra. Halldór
Sigurður Þórðarson skipað-
ur vararíkisendurskoðandi
SIGURÐUR Þórðarson hef-
ur verið skipaður vararíkis-
endurskoðandi. Hann tekur
við starfínu í september-
mánuði. Þetta starfsheiti
var stofnað þegar ríkisend-
urskoðun var færð undir
Alþingi með lögum sem gildi
tóku í ársbyijun.
Forsetar Alþingis réðu í sam-
ráði við ríkisendurskoðanda í
starfíð. Sigurður, sem er löggilt-
ur endurskoðandi, hefur unnið
hjá fj ármálaráðuneytinu og
ríkisendurskoðun undanfarin
fímmtán ár. Hann gegnir
nú starfi skrifstofustjóra
ráðuneytisins.
„Vararíkisendurskoðandi er
staðgengill ríkisendurskoðanda.
Þá mun hann að líkindum hafa
umsjón með nýjum verkefnum
embættisins sem eru eftirlit með
framkvæmd fjárlaga, aðstoð við
þingnefndir og stjómsýsluend-
urskoðun meðal annars. Það var
stefna með þessari lagasetningu
að embættið hefði virkara eftir-
lit með meðferð og nýtingu á
ríkisfé, en á starfssviði þess er
fyrst og fremst að koma auga
á það sem miður fer og gera
athugasemdir," sagði Sigurður
í samtali við Morgunblaðið.
segir einnig að lántökugjaldið
geti hækkað stofíikostnað
Blönduvirkjunar um 3%.
„Það kom fram í samþykkt
stjómar Landsvirkjunar að þessi
gjöld munu ekki hafa áhrif á lán-
tökuáform Landsvirkjunar, en
hins vegar beinlínis leiða til hækk-
unar á raforkuverði í landinu,"
sagði Halldór í samtali við Morg-
unblaðið. Hann sagði að eignarað-
ilar Landsvirlg'unar, ríkið,
Reykjavíkurborg og Akureyrar-
bær, væru allir meira og minna í
ábyrgð fyrir skuldbindingum fyr-
irtækisins, en ekki ríkið eitt.
Halldór sagði að fyrirtækið
ætti ekki í önnur hús að venda
en hækka gjaldskrá sína, ef ekki
yrði fallist á undanþágubeiðnina.
Hann sagði að lánsfjárþörfín við
Blönduvirkjun fram til ársins
1991 væri samtals 4 milljarðar
króna. Með þessari nýju skatt-
heimtu sagði Halldór að bygging-
arkostnaður af Blönduvirkjun
hækkaði um 3%, eða 180 milljón-
ir króna.
„Auðvitað gefur það augaleið
að stofnkostnaðarhækkun af
þessari stærðargráðu kemur til
með að Ieiða til hækkunar á raf-
orkuverði, þegar fram í sækir,"
sagði Halldór.
Jökuldalur:
Bíll ónýtur
efltir veltu
BIFREIÐ fór út af veginum á
Jökuldal í gær, valt um 30 metra
og gjöreyðilagðist. Ökumann
sakaði ekki.
Tildrög óhappsins vora þau að
sögn lögreglunnar á Egilsstöðum
að bifreiðin var að koma yfír blind-
hæð og stóð þá kind á miðjum vegi
og hreyfði sig hvergi. Ökumaður
reyndi að beygja fram hjá kindinni
en missti stjóm á bifreiðinni með
þeim afleiðingum að hún valt niður
snarbrattan kant. Að sögn lögregl-
unnar var það mesta mildi að
ökumann skyldi ekki saka.