Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
Þar sem
háir
hamrar rísa
úr sjó
- sýningarferð Sóma-bátanna
til Færeyja
Á SÓLRÍKUM föstudagsmorgni fyrir einni og hálfri viku flaug
blaðamaður Morgunblaðsins til Færeyja ásamt fulltrúum
nokkurra íslenskra fyrirtækja og fulltrúa Útflutningsráðs
íslands. Tilgangur farar þeirra var sá að kynna frændum okkar
Færeyingum báta og búnað frá þessum fyrirtækjum til
smábátaútgerðar, tilgangur undirritaðs að fylgjast með og sjá
hversu til tækist, en hér var haldið á ný mið í kynningu á
íslenskri framleiðslu.
I
Hjólin slepptu brautinni
og flugvélin klifraði í
heiðið. Framundan var
vikusýningarferð í Fær-
eyjum um borð í tveim átta metra
löngum íslenskum trefjaplastbát-
um af gerðinni Sómi 800. Hönnuð-
ur og framleiðandi bátanna,
Guðmundur Lárusson í Hafnar-
flrði, ætlaði að sigla þeim til
eyjanna ásamt tveimur sonum
sínum og fjórða manni. Nú átti að
reyna nokkuð nýtt í íslensku mark-
aðsstarfí erlendis.
Morgunblaðið/Jóhann Viðar fvarsson
Sóma-bátur svo ógnarsmár á
siglingu á milli tveggja bergrisa
í Vestmannabjörgum.
Það er víða fallegt og friðsælt í
færeyskum bæjum. Frá höfninni
í Vestmanna á Straumey. Fiski-
bátur með gamla færeyska
laginu, sem að sögn heimamanna
er komið beint frá vikingaskip-
unum, í forgrunni.
Nýjungar í mark-
aðsstarfi íslenskra
fyrirtækja
Útflutningsráð íslands hefur
haft forgöngu um stofnun útflutn-
ingshópa fyrirtækja síðustu
misseri. Í hveijum hópi eru nokkur
fyrirtæki sem gera út á sama eða
svipaðan markað, en eru samt ekki
í samkeppni hvert við annað. Hug-
myndin að baki útflutningshópun-
um er sú að mynda öflugri
sölueiningar og veita stjómendum
fyrirtækjanna færi á að’ ræða í
einlægni saman vandamál sem upp
koma og nýjar hugmyndir. Þau
fyrirtæki, sem nú ætluðu að kynna
framleiðslu sína í Færeyjum með
allnýstárlegum hætti, mynda til
samans annan útflutningshópinn
sem búið er að stofna. I þessum
útflutningshópi em fímm íslensk
fyrirtæki sem framleiða búnað til
smábátaútgerðar. Bátasmiðja
Guðmundar framleiðir Sóma-bát-
ana. Þeir eru hraðskreiðir fískibát-
ar og hefur Guðmundur náð góðri
markaðshlutdeild á íslandi, 42%
að sögn fulltrúa Útflutningsráðs,
en ekki selt á erlendan markað svo
heitið geti enn sem komið er. DNG
á Akureyri framleiðir tölvustýrðar
handfæravindur eða snellur eins
og Færeyingar segja. NORM-EX
í Hafnarfirði framleiðir fiskiker í
mörgum stærðum. íseind hf setur
saman olíueyðslumæla og annars
konar rafeindamælitæki og Sjóvél-
ar hf bjóða upp á línuspil.
Fljótandi vörusýn-
ing
í Færeyjum er útgerð smábáta
umtalsverð, en þar eru ekki haldn-
ar sjávarútvegssýningar eða
almennar vörusýningar. Því geta
íslenskir framleiðendur ekki farið
þá leið til að sannfæra Færeyinga
um ágæti vöru sinnar. Þá var það
að mönnum datt í hug að setja
búnað frá hinum fyrirtækjunum í
útflutningshópnum um borð í báta
frá Bátasmiðju Guðmundar og
sigla þeim til Færeyja. Með því
móti væru fyrirtækin komin með
sína eigin hreyfanlegu vörusýn-
ingu beint til væntanlegra kau-
penda, trillukarlanna, í höfninni á
hveijum stað. Það er bæði ódýrara
en að leigja bás á venjulegri vöru-
sýningu erlendis og það næst til
fiskimanna sem ekki myndu gera
sér ferð til annarra bæja til að sjá
slíka sýningu að sögn aðstandenda
þessarar sýningar. Þetta mun vera
nýmæli í kynningu á íslenskum
vörum, sem virðisc eiga mjög vel
við í þessu tilfelli þegar litið er til
þess hvers eðlis vörumar eru og
hvar kaupenduma er að finna.
Við landkrabbarnir sem flugum
til eyjanna fórum þangað á föstu-
degi, en bátamir lögðu ekki í hann
fyrr en eldsnemma á laugardags-
morgni. Var því beðið með mikilli
eftirvæntingu í Þórshöfn eftir
fréttum af því hvemig bátunum
reiddi af á hinni 250 sjómílna löngu
leið yflr Atlantshafíð. En þeir kom-
ust báðir hæglega yfír, enda veður
afbragðsgott á leiðinni, sól og létt
gola.
Yfir 70% Færeyinga
heimsótt
Ætlunin var að heimsækja
fímmtán bæi á átta eyjum með
samtals yfir 70% af íbúum Fær-