Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
19
Sigluflörður:
Vörubifreið valt
Siglufirði.
STOR vöruflutning-abifreið valt
á Þormóðsgötu á Siglufirði um
í síðustu viku. Bíllinn er af gerð-
inni Volvo og er talið að hann
sé ónýtur.
Bifreiðin var með uppfyllingar-
efni á pallinum og var að sturta því
í skurð, sem grafinn hafði verið í
götuna, þegar óhappið varð. Engin
slys urðu á fólki. Bfllinn er í eigu
bæjarins.
Matthías
Túnfiskur á uppboðsmarkaði í Japan
anskra eftirlitsmanna var þegar
verkstjórinn í fískvinnslustöð hér í
N-Noregi heyrðist tauta, „það er
mikið að helv... japsinn biður ekki
um bláeygðan skötusel með gullfyll-
igar í endajöxlunum". Eins og áður
hefur komið fram er ein ástæðan
fyrir hinni miklu fískneyslu sú að
Japönum fínnst fískur hreint og
beint góður. í öðrum löndum finnst
neytendum fískur oft á tíðum hálf
vondur en éta hann samt vegna
hollustunnar. Japaninn vill hinsveg-
ar fínna ekta fiskibragð, helst án
sósu eða annars sem breytir bragð-
inu. Minnsti snefill af aukabragði
þýðir að varan er fallin á prófínu.
Hefð er fyrir neyslu á hráum físki
og það segir sig sjálft að hreinlæti
við framleiðslu og ferskleiki vörunn-
ar verður að vera fyrsta flokks.
Trúlega er nauðsynlegt að ákveðin
hugarfarsbreyting þurfí að eiga sér
stað, á öllum stigum framleiðslunn-
ar, ef auka á útflutning til Japan
og ná þar toppverði.
Millíliðakerfið
Eitt af þeim atriðum sem gerir
Japansmarkaðinn flókinn og erfið-
an eru allir milliliðimir. Frá því
fískurinn kemur inn í landið fer
hann um ótal hendur áður en hann
kemst á disk neytandans. Talað er
um „hin sex nauðsynlegu þrep" í
dreifíngarkerfinu. Hver milliliður
tekur sitt, og þetta getur leitt til
allt að tíföldunar í verði frá fram-
leiðenda til neytenda. Mikil sam-
staða er meðal milliliðanna sem
halda fast í þetta hefðbundna kerfí.
Hver og einn þeirra kaupir bara af
þeim sem er í næsta þrepi fyrir
ofan þá sjálfa í dreifíngarstiganum
og selur aðeins þeim sem eru í
næsta þrepi fyrir neðan. Af þessu
leiðir að erfítt er að losna við milli-
liðina. Megnið af útflutningnum frá
Norðurlöndum er selt til stórfyrir-
tækja sem em efsti liðurinn í
dreifíngarkerfínu. Þessi fyrirtæki
em geysiöflug, með skrifstofur víða
um heim og þess vegna er algegnt
að fískútflytjendur komist eingöngu
í samband við þau. Nánari þekking
á dreifíngarkerfinu er því oft lítil.
Með auknum útflutningi og kunn-
áttu getur þó verið að leiðir skapist
til að selja nær neytandanum eða
á annan hátt verði hægt að spara
milliliðakostnað. Aukin þekking á
japönskum verslunar- og viðskipta-
háttum er nauðsjmleg ef góður
árangur á að nást. Oft hefur heyrst
að Japanir séu refír í viðskiptum
og eflaust er dálítið til í því. Hér
er þó ekki átt við sviksemi heldur
ýmsar viðskiptavenjur sem em
öðmvísi en við eigum að venjast.
Einkennandi er þar langtíma hugs-
unarháttur, ná settum markmiðum
í framtíðinni jafnvel þótt einhveiju
þurfi að fóma af skammtíma hags-
munum.
Eins og áður segir er Japans-
markaður athyglisverður fyrir
íslendinga og getur hann orðið okk-
ur þýðingarmikill. En hann er
nýlega kominn til sögunnar og þar
af leiðandi lítið þekktur. Það er því
eðlilegt að við sem emm að mennta
okkur í sjávarútvegsfræðum höfum
mikinn áhuga á að kynnast landinu
nánar. Það er hægt að læra mikið
af bókum en eigi að síður er mikil-
vægt að upplifa hlutina sjálfur, sjá
með eigin augum. Japansferðin
okkar í sumar kemur til með að
taka 2 vikur og segir sig sjálft að
það er allt of stuttur tími til að
kynna sér hlutina rækilega. Hins-
vegar emm við vel undirbúnir og
staðráðnir í að leita svara við eins
mörgum spumingum og hægt er.
í lok þessa pistils vil ég þakka,
fyrir hönd okkar íslendinganna
þriggja sem þátt þökum í ferðinni,
eftirfarandi fyrirtækjum og stofn-
unum fyrir fenginn fjárstuðning;
Sölusambandi Hraðfrystihúsanna,
Sambandi ísl. Fiskframleiðenda,
Sjávarafurðadeild Sambandsins,
Sjávarútvegsráðuneytinu og Flug-
leiðum.
Höfundur er nemandi ÍSjávarút-
vegsháskólanum í Tromsö.
Morgunblaðið/Matthías
Óhappið varð er vörubifreið var að sturta uppfyllingaefhi á Þormóðs-
götu
Við höfum opnað nýja fullkomna Olís-smurstöð
að Fosshálsii.Þar fæst smurþjónusta fyrir allar
stærðir og gerðir bíla, frá stærstu vörubílum
til minnstu fólksbíla. Fljót og örugg þjónusta!
BILABORG HF.
FOSSHÁLSi 1, S.68 12 99.