Morgunblaðið - 28.07.1987, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.07.1987, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 Bílaflotinn fyrir utan Framtíðina hús Sveins Egilssonar í Skeifunni Safariferð ítal- anna 170 hafin Morgunblaðið/Þorkell Þröstur tapaði fyrir Blatny ÞRÖSTUR Þórhallsson tapaði fyrir Blatny frá Tékkóslóvakíu i gær í 8. umferð á heimsmeistara- móti unglinga i skák fyrir 20 ára og yngri, sem haldið er í Baguio á Filippseyjum, og er í 15.-20. sæti á mótinu með 4,5 vinninga. Hannes Hlífar Stefánsson gerði jafintefli við Dharmy fi-á Indó- nesíu og er með 2,5 vinninga. I 7. umferð, sem tefld var á sunnudag, gerði Þröstur jafntefli við Hellers frá Svíþjóð og Hannes tapaði fyrir Tan frá Singapore. Efstur á mótinu eftir átta um- ferðir er Anant frá Indlandi með 6,5 vinninga. í 2.-3. sæti eru Ivan- chuk frá Sovétríkjunum og Del- campo frá Mexíkó með 6 vinninga og í 4.-5. sæti eru Klinger frá Aust- um'ki og Blatny frá Tékkóslóvakíu með 5,5 vinninga. Serper frá Sov- étríkjunum er með 5 vinninga og biðskák og Agdestein frá Noregi er með 5 vinninga ásamt fleirum. 9. umferð verður tefld í dag, en alls verða tefldar 13 umferðir á mótinu eftir Monrad kerfí. Færeyjar: Lögðu af stað á 71 Fiat Panda bíl í gær HÓPUR italskra ferðamanna, 170 talsins, lagði af stað i ferð um Islands i gær á 71 Fiat Panda bíl. Bílarnir, sem eru sérstaklega útbúnir, voru fluttir hingað til lands vegna ferðarinnar. Gert er ráð fyrir að leiðangurinn taki niu daga. Undirbúningur ferðarinnar hófst fyrír einu ári þegar leiðir voru kann- aðar. ítalska ferðaskrifstofan Safariland stendur fyrir ferðalaginu en ferðaskrifstofan Samvinnuferð- ir/Landsýn hefur annast skipulagn- ingu hér á landi. í för með ítölunum er íslenskur fararstjóri. Ferðinni var í gær heitið á Þing- völl, Laugarvatn, Geysi og Gullfoss og í nótt var gist í Hvítámesi. Síðan verður haldið sem leið liggur yfir Morgunblaðið/BAR Morgunblaðið/BAR Matthías Á. Mathiesen samgöngurádherra klippir á boröann í gær. Þar með hófet níu daga safariferð 170 ftala um ísland. Báðir Sóma-bát- arnir seldir með öllum búnaði Viðtökur mun betri en við áttum von á segir Jens Ingólfsson mark- aðsstjóri hjá Útflutningsráði Kjöl og til Blönduóss. Komið verður við í Búðardal og síðan ekinn Vest- fjarðahringurinn. Þá verður haldið austur um Norðurland, að Öskju, suður fyrir Vatnajökul og síðan til Reykjavíkur. GENGIÐ var ft’á sölu á báðum bátunum af gerðinni Sómi 800 í gærkvöldi, en bátarnir voru í sýningarferð um Færeyjar alla síðustu viku. Þeir voru seldir Hallvarður Einvarðsson ríkissaksóknari: Dómurínn talar sínu máli „HÆSTIRETTUR hefur komist að niðurstöðu í þessu réttarfars- lega álitaefiii og dómurinn talar sínu mali,“ sagði Hallvarður Einavarðsson ríkissaksóknari í samtali við Morgunblaðið í tileftii af þeim dómi Hæstaréttar að hann væri vanhæfur til að Qalla um mál forráðamanna Hafskips vegna bróðurtengslanna við Jó- hann S. Einvarðsson, fyrrum varaformann bankaráðs Útvegs- bankans. Hallvarður vildi leggja á það áherslu að hér væri um réttarfars- legt álitaefni að ræða, sem dómstól- ar einir væru bærir að skera úr um. „Álitaefninu er nú lokið og dóms- málaráðherra tekur málið nú til afgreiðslu og athugunar." Hallvarður sagðist ekki vanur að tjá sig um dóma Hæstaréttar á opinberum vettvangi en því væri ekki að neita að hann væri ósam- mála niðurstöðunni. „Ég taldi mig á engan hátt vera þannig tengdan þessu máli, að mér bæri að víkja sæti og að bróðurtengsl mín við Jóhann yllu vanhæfí taldi ég fjarri lagi. Hæstiréttur var hins vegar ekki á sama máli og við það situr.“ Um alla umfjöllun fjölmiðla um þetta mál sagði Hallvarður einungis að við slíku mætti alltaf búast, starfsvettangur ríkissaksóknara væri þess eðlis. Um þau ummæli eins verjenda forráðamanna Hafskips, að rann- sókn málsins væri, í kjölfar dóms Hæstaréttar, ónýt og að hefja þyrfti hana að nýju sagðist Hallvarður ekki sjá hvemig svo mætti vera, en kaus að tjá sig ekki frekar um það atriði. Hallvarður var að lokum inntur álits á þeim ummælum eins veijend- anna, að honum væri vegna þessa máls ekki lengur vært í embætti ríkissaksóknara. „Þessi ummæli em ekki svaraverð," sagði ríkissak- sóknari. Ragnar Kjartansson, iyrnim stjórnarformaður Hafskips: Munum kreflast opinberrar rannsóknar á málsmeðferðinni „VIÐ stefiium að því að fara fram á opinbera rannsókn á allri meðferð þessa máls; úrskurður Hæstaréttar eykur verulega líkurnar á því,“ sagði Ragnar Kjartansson, fyrrum stjómar- formaður Hafekips í samtali við Morgunblaðið. Graskögglaverksmiðjur ríkisins leigðar og seldar ÞRJÁR graskögglaverksmiðjur sem áður vom i eigu ríkisins em nú komnar í hendur einkaaðila. Verksmiðjumar í Ólafedal og Flatey vora seldar en Stórólfe- vallabúið er leigt til þriggja ára. Rikið á enn graskögglaverk- smiðju í Gunnarsholti. Þar er engin framleiðsla í ár og framtíð- in í óvissu. Óli Þ. Óskarsson er kaupandi graskögglaverksmiðjunnar í Flatey. Umsamið verð var 20 milljónir króna, að sögn Sigurðar Þórðars- sonar skrifstofustjóra fjármála- ráðuneytisins. Fóðuriðjan í Ólafsdal var seld félagi heimamanna fyrir 10 milljónir króna. Stórólfsvallabúið tóku á leigu Stefán Gunnarsson og Ragnar Kristjánsson. Þeir hafa for- kaupsrétt að verksmiðjunni að þremur árum liðnum. í leigusamn- ingi segjast þeir ætla að framleiða lífrænan áburð, ræktun akurlendis og tilraunir. í Flatey og Ólafsdal verða áfram framleiddir grasköggl- ar. Rannsóknarbeiðni þessi mun að sögn Ragnars fyrst og fremst bein- ast að rannsóknarmeðferð skipta- réttar og rannsóknarlögreglunnar og byggja á þeirri skýrslu, sem hann samdi í vetur, þar sem gerðar voru tæplega 200 athugasemdir við meðferðina. „Beiðnin mun beinast að þeirri rökstuddu fullyrðingu að rannsóknin hafí einkennst af hlut- drægni og ekki miðað að því að fá fram hið sanna í málinu. Samhliða yrði krafíst rannsóknar á margvís- legum mistökum í rannsóknarmeð- ferð, réttmæti forsendna gæslu- varðhaldskröfu, opinberrar umfjöllunar rannsóknaraðila á mál- inu og eftir atvikum fleiri atriðum. Meginatriðið að okkar mati er það, að rannsóknaraðilar hafi ekki farið eftir lagafyrirmælum um að ránn- saka beri mál af þessu tagi bæði með hliðsjóna af sekt og sakleysi. í og með þess vegna er mál þetta komið í ógöngur, sem ég hef trú á að nýr og óháður saksóknari og ný, óvilhöll rannsókn muni leysa úr.“ Ragnar taldi ekki nokkum vafa ieika á því að rannsókn þessa máls væri orðin markleysa. „Hafi Hall- varður verið vanhæfur til þess að fjalla um málið sem ríkissaksókn- ari, þá gefur það auga leið að hann er líka vanhæfur sem rannsóknar- lögreglustjóri." o INNLENT með öllum sýningarbúnaði og er söluverð þeirra talsvert hærra en hér á landi að sögn Jens Ingólfssonar markaðs- stjóra hjá Útflutningsráði Islands, sem er fararstjóri í sýningarferðinni. Söluverð Sóma-báta mun vera um tvær og hálf milljón króna hér heima. Jafnframt heftir borist pöntun á þriðja bátnum, en árs- afgreiðslufrestur mun nú vera á Sóma-bátum vegna mikillar eftirspumar hér á landi. Bátarnir fóru báðir til bæjarins Vestamanna á Straumey og voru afhentir hinum nýju eigendum þegar í gærkvöldi sagði Jens. Vest- manna var fýrsti opinberi viðkomu- staður bátanna í sýningarferðinni og þar skoðuðu hinir nýju eigendur þá. Þriðji báturinn sem hefur verið pantaður fer líka til bæjarins. NORM-EX, eitt fyrirtækjanna fímm sem kynnti framleiðslu sína í ferðinni, hefur selt hundrað og fímmtíu fískikör sagði Jens, og hefði getað selt meira, en fyrirtæk- ið hefði ekki bolmagn til að standa undir stærri pöntun í bili. Stærsti heildsali Færeyja og umboðsmaður NORM-EX, Hans Hansen, keypti annan bátinn, en fískimaður hinn, að sögn Jens In- gólfssonar, og bankastjóri Sjó- vinnubankans í Vestmanna pantaði þann þriðja. Samkomulag hafí orðið með aðilum um að segja ekki frá verði bátanna, en það hafi verið allverulega hærra en þeir eru seldir á hér heima. Annar hafí þó verið dýrari hinn vegna aukabúnaðar. Jens sagði að vörusýningin um borð í bátunum hefði tekist betur en bjartsýnustu menn hefðu átt von á. Alls ekki hefði verið ætlun- in að selja í þessari ferð. Hún hafi átt að vera kynning fyrir sölu- starfí sem búið hafi verið að skipuleggja fyrir næstu þijú árin og byija ætti í haust. En bátamir hefðu verið seldir til að liðka fyrir um framhaldið. Sagði Jens að þeir sem stóðu að sýningunni væru nú eltir uppi af mönnum sem væru að íhuga kaup á Sóma-bátum, því enn væri ekki búið að ákveða sölu- aðila í Færeyjum og menn vissu ekki hvert þeir ættu að snúa sér. Væru Sóma-menn mjög þreyttir og mjög ánægðir, en þeir og flest- ir aðrir sem að sýningunni stóðu kæmu heim með leiguflugi í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.