Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 24

Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 Filippseyjar: Þingræði endurreist eftir fímmtán ára hlé Manilu, Reuter. STJÓRN með forsetatilskipun- um lauk á Filippseyjum í gær þegar Corazon Aquino, forseti eyjanna, setti þing landsins, hið fyrsta þjóðkjörna í 15 ár. Með setningunni hefur frú Aquino uppfyllt loforð sitt um endur- reisn lýðræðis á eyjaklasanum, en því hét hún fyrir 17 mánuð- um, þegar hún Jtomst til valda f blóðsúthellingalausri byltingu. „Lýðræðisöflin hafa nú endur- heimt þennan helgidóm frelsisins," sagði Jovito Salonga, forseti öld- ungadeildarinnar, í tilfínningaríkri ræðu sinni í þinghúsinu, sem Marcos, fyrrverandi forseti, lét loka með lási og slá þegar hann lýsti yfír gildistöku herlaga árið 1972. Marcos aflétti lögunum árið 1981 og vann forsetakosningar sama ár. Arið 1984 setti hann þingið á ný, en völd þess voru takmörkuð við vilja Marcosar þar sem dagskrá þingfunda var háð samþykki hans. Salonga og Ramon Mitra, sem báðir voru pólítískir fangar í valda- tíð Marcosar, voru kjömir forsetar þingdeildanna tveggja — öldunga- deildar og fulltrúadeildar — en stjómskipun á Filippseyjum var upphaflega sniðin eftir hinni banda- rísku. „Við erum staðráðnir í því að byggja [réttlátt þjóðfélag] á rústum hinnar spilltu harðstjómar," sagði Salonga öldungadeildinni og var góður rómur gerður að máli hans. Stjómarflokkur Aquino, Þjóðar- aflið, er með drjúgan meirihluta í báðum deildum, en allir þingmenn stjómarandstöðunnar utan einn kusu að sveija ekki embættiseið. Óttast var að stuðningsmenn Marcosar kjmnu að vera með róstur við þingsetninguna, en svo fór þó ekki, en vinstrisinnar mótmæltu þeirra í stað. Til mótvægis komu um 200 fylgismenn frú Aquino sam- an fyrir utan þinghúsið og fögnuðu ákaft. Nokkur tvísýna er annars í inn- anlandsmálum Filippseyja. Annars vegar vegna sjálfstæðisbaráttu múslima og hins vegar vegna skæruhemaðar kommúnista. Aquino hefur gefíst upp á að reyna að friðmælast við kommúnista og stofnaði nýverið svokallaðar al- þýðuhersveitir til þess að beijast gegn þeim. Ennfremur hafa sátta- tilraunir við múslimi runnið út í sandinn í bili, þar sem leiðtogar þeirra vildu ekki sætta sig við boð Aquino um takmarkaða sjálfstjóm. Reuter Forsetar þingdeildanna, Jovito Salonga og Ramon Mitra, stóðu ásamt öðrum þingmönnum upp til þess að hylla fí*ú Corazon Aquino við þinsetninguna í gær. Tveir fyrram varnarmálaráðherrar Frakklands: Vilja nifteindasprengjur í V-Þýskalandi Vestur-Berlin, Reuter. TVEIR fyrrum vamarmálaráð- herrar Frakklands sögðu i gær, að Frakkar ættu að koma fyrir nifteindasprengjum í Vestur- Þýskalandi og styrkja þannig varnir beggja þjóðanna gegn Sovétrikjunum. Charles Hemu, vamarmálaráð- herra í ríkisstjóm Sósíalistaflokks- ins og Francois Mitterrands, sagði í viðtali við Vestur-Berlínarblaðið Tageszeitung, að öryggi þjóðanna yrði best tryggt með því, að Frakk- ar settu hluta af eldflaugum sínum upp í Vestur-Þýskalandi. Frakkar eiga 44 Pluton-eldflaug- ar, sem draga 120 km, en eru nú að endumýja eldflaugavamimar með Hades-flaugunum, sem eru miklu fullkomnari og geta hitt skot- mörk í allt að 350 km fjarlægð. Þær geta borið nifteindasprengjur. Sagði Hemu, að eitt mikilvæg- asta verkefni næsta forseta í Frakklandi væri að semja við Vest- ur-Þjóðveija um þessi vopn. „Ég tel það nauðsynlegt, að Hades-flaug- unum, búnum nifteindasprengjum, verði komið fyrir á vestur-þýsku landi," sagði Hemu og Pierre Mes- smer, fyrrum vamarmálaráðherra og frammámaður í flokki Jacques Chirac, forsætisráðherra, hefur tek- ið undir þau orð. Eyðingarmáttur nifteinda- sprengna felst ekki í sprengikraftin- um, heldur í geisluninni, sem drepur allt, sem lífsanda dregur, en lætur byggingar og búnað ósnert. Frakkar og Vestur-Þjóðveijar hafa mikinn hug á að auka hemað- arlegt samstarf sín í milli og er nú verið að koma á fót sameiginlegri herdeild. Andlát Malcolms Baldríge: Helsti höfímdur viðskipta- stefíiu Bandaríkjanna allur N». , ’ *P*Í%>-* . <v : ; t s * * Baldridge féU af baki þegar hesturinn hrasaði og varð síðan undir honum. Hann lést síðar af inn- vortis meiðslum á sjúkrahúsi i Kalifomíu. Frá Jóni Ásgeirí Sigfurðssyni, fréttarítara Morgunblaðsins í Bandaríkjunum Sviplegt fráfall Malcolms Baldrige viðskiptaráðherra setur ríkisstjóm Ronalds Reagan í tals- verðan vanda. Baldrige var helsti talsmaður skeleggari afstöðu ríkisstjómarinnar tU ósann- gjarara viðskiptahátta þjóða, sem taldar eru tíl bandamanna Bandaríkjamanna og hann vUdi ráða niðurlögum gifurlegs við- skiptahalla Bandaríkjanna með auknum útflutningi, meðal ann- ars tíl Kina og Sovétrilgaima. Um þessar mundir takast Banda- ríkjaþing og forsetaembættið á um mikUvægt frumvarp tU við- skiptalaga, og torveldar fráfáU Baldrige að Reagan nái að afla sjónarmiðum stjómar sinnar fylgis. Malcolm Baldrige lést af slys- förum síðastliðinn laugardag, þegar reiðhestur hans féll aftur fyrir sig og varð Baldridge undir honum. Hjarta hans hætti að slá um hríð, en það tókst að lífga hann við. Nokkru síðar lést Baldrige á skurð- borðinu á sjúkrahúsi í Norður- Kalifomíu, vegna mikilla blæðinga í kviðarholinu öllu. Viðhorf Malcolms Baldrige áttu vinsældum að fagna á Bandaríkja- þingi, en ríkisstjómin reynir um þessar mundir að fá felld ýmis haftaákvæði úr frumvarpi til við- skiptalaga, sem báðar deildir þingsins hafa nýlega afgreitt fyrir sína hönd. Dauði ráðherrans gerir ríkisstjóminni erfíðara fyrir að ná fram þeim lagabreytingum sem hún óskar eftir. Baldrige þótti raunsær talsmaður viðskiptafrelsis og helsti hvatamað- ur harðandi afstöðu ríkisstjómar Reagans í viðskiptum við Japan og önnur erlend ríki. Kunnugir segja að hann hafí breytt viðskiptaráðu- neytinu úr annarsflokks opinberri skrifstofu í áhrifamikla og ábyrga stjómarstofnun. Baldrige var einn áhrifamesti viðskiptaráðherra Bandaríkjanna frá því að Herbert Hoover gegndi því embætti, en Hoover fór reyndar úr því ráðu- neyti í forsetastól árið 1928. Þeim sem hafa boðið sig fram til forseta- embættis hefur orðið tíðrætt um viðskiptamálin að undanfömu. Stuðningfsmaður George Bush Malcolm Baldrige var forstjóri Scovill fyrirtækisins í Connecticut- fylki áður en hann tók við ráð- herraembætti. Hann stjómaði kosningaskrifstofu George Bush varaforseta í Connecticut fyrir kosningamar árið 1980. Getgátur voru uppi um að Bush mundi gera Baldrige að fjármálaráðherra ef hann næði forsetakjöri árið 1988. „Mac Baldrige var einstakur sóma- maður og ráðvandur embættismað- ur,“ sagði Bush varaforseti eftir að fregnaðist af slysinu. “Hann var mikill heiðursmaður og fastur fyrir í öllum málum." Ronald Reagan þekkti Baldrige lítið árið 1980 og valdi hann til að gegna ráðherraembætti vegna með- mæla George Bush. En með forset- anum og viðskiptaráðherra tókst fljótlega vinskapur, ekki síst vegna sameiginlegs áhuga á hesta- mennsku. Þegar Reagan lét hringja í Baldrige árið 1980 og ætlaði að bjóða honum ráðherrastól, svaraði Midge kona Malcolms í símann og sagði að hann kæmist ekki í símann þar sem hann væri upptekinn. Þeg- ar spurt var við hvað hann væri upptekinn, var svarið það að hann væri í útreiðartúr. Reagan skellti sér á lær þegar hann frétti af þessu svari og sagði: „Þetta er maður að mínu skapi.“ Þeir fóru síðar saman í reiðtúra. Malcolm Baldrige fæddist í Oma- ha í Nebraskafylki árið 1922 og var því 64 ára þegar hann lést. Hann útskrifaðist í ensku frá Yale-háskól- anum í New Haven eftir síðari heimsstyijöldina og skrifaði lokarit- gerð um breska miðaldaskáldið Geoffrey Chaucer. Hann starfaði sem jámiðnaðarmaður hjá verk- smiðju í Cleveland og yarð þar forstjóri 13 árum síðar. Árið 1962 var hann ráðinn sem forstjóri Sco- vill verksmiðjanna, sem seldu ýmsar framleiðsluvörur fyrir um milljarð dollara, er Baldrige tók við ráð- herraembætti í ríkisstjóm Reagans. Baldrige var reyndur hestamaður og fær kúreki, hann tók oft þátt í kúrekamótum á yngri ámm og hélt þeim hætti á ráðherratíma sínum. Sanngirni í viöskiptum Baldrige var helsti talsmaður harðnandi afstöðu Bandaríkjanna til rílq'a sem urðu uppvís að ósann- gjömum viðskiptaháttum, eins og þegar deila spannst milli Japans og Bandaríkjanna útaf örtölvusölu. Japanir viku frá samkomulagi um verðlag á örtölvum, með þeim af- leiðingum að Bandaríkin settu innflutningsgjöld á valdar japan- skar vörutegundir. Þegar Baldrige færði það fyrst í mál við forsetann að taka þyrfti af meiri hörku á slíku framferði bandalagsþjóða, efaðist Reagan um skynsemi þess, þar eð aðrir ráð- herrar lögðust gegn slíkri „við- skiptahafta“-stefnu. En margir bandarískir framleiðendur höfðu komið að máli við Baldrige og kvartað yfír ósanngimi erlendra aðila. Þrálátur viðskiptahalli

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.