Morgunblaðið - 28.07.1987, Qupperneq 25
f
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
25
Billy Joel tryllir
sovéskan æskulýð
Moskvu, Reuter.
BANDARÍSKA poppstjarnan
Billy Joel, sem nú er á tónleika-
ferðalagi í Sovétríkjunum, hefur
gTeinilega hrifið sovéskan æsku-
lýð með sér svo jafina má við æði
það er greip unglingstúlkur á
bítlaárunum. Herma fregnir firá
Moskvu að á fyrstu tónleikum
hans á sunnudag hafi aðdáendur
Joels dansað og sungið fyrir
framan sviðið og á göngum, en
slíkt er mjög óvenjulegt þar
eystra.
Uppselt var á tónleikana, sem
fram fóru á Ólympíuleikvanginum,
og þóttu áheyrendur vera með fjör-
ugasta móti. Vanalega er mjög
öflug öryggisgæsla á tónleikum
sem þessum og áheyrendum meinuð
öll „borgaraleg skrílslæti", en að
þessu sinni virtust varðhundar kerf-
isins vera hjálparvana.
Billy Joel flutti tveggja tíma
langa dagskrá með samblandi rokks
og ballaða og vakti svo mikla hrifn-
ingu að unglingar flykktust hundr-
uðum saman upp að sviðinu til þess
að komast í nánarí snertingu við
átrúnaðargoðið. Þeim varð líka að
ósk sinni, því Joel fór fram að sviðs-
brún og tók í hendur æstra aðdá-
enda sinna.
Joel flutti öll vinsælustu lög sín,
en af þeim á hann ógrynni. Það lag
sem mesta hrifningu vakti var þó
bítlalagið gamla, „Back In The
USSR“, sem hann söng við eigin
píanóundirleik eftir að hann var
klappaður upp.
Ráðgert er að Joel flytji tvo tón-
leika til viðbótar í Moskvu, en þá
taka við aðrir þrennir í Leníngrad.
Sjaldgæft er að vestrænar popp-
stjömur haldi tónleika í Austurvegi,
enda má benda á að það tók tvö
ár fyrir Joel að semja við sovésk
stjómvöld um fyrirkomulag þeirra.
Gengi gjaldmiðla
Lundúnum, Reuter.
RÓLEGT var á gjaldeyrismörk-
uðum í Evrópu í gær og Iítið um
sveiflur. Ótti við hækkun olíu-
verðs vegna spennunnar á
Persaflóa er þó viðvarandi.
Breska sterlingspundið seldist á
1,6007 Bandaríkjadali í Lundúnum
á hádegi í gær. Gengi annarra
gjaldmiðla var með þeim hætti að
dalurinn kostaði:
1,3340 kanadíska dali,
1,8500 vestur-þýsk mörk,
2,0833 hollensk gyllini,
1,5310 svissneska franka,
38,33 belgíska franka,
6,1575 franska franka,
1339 ítalskar lírur,
149,35 japönsk jen,
6,4500 sænskar krónur,
6,8000 norskar krónur og
7,0225 danskar krónur.
Gull kostaði 453,10 Bandaríkja-
dali únsan.
Aldrei
gefíst
upp
Einbeitnin skín úr hveijum
andlitsdrætti Hughs Herr,
tuttugu og tveggja ára
Bandaríkjamanns, sem hér
sést klífa þverhníptan
granítvegg Qallsins Canon í
Eldorado Springs. Hugh
missti báða fætur er hann
hrapaði í klettum fyrir fimm
árum, en hann sætti sig ekki
við að eiga að verða bundinn
í hjólastól það sem eftir væri
ævinnar. Hann lét útbúa
fjaðrandi gervifætur, sem
hann getur smellt á mjaðm-
arliðina, og á endanum eru
eins konar Qallgönguskór
með gripsóla. Nú prílar Qall-
göngugarpurinn af meira
kappi en nokkru sinni fyrr.
Það er greinilega ekki gefist
upp á þessum bæ þótt á
móti blási.
Malcolm Baldridge
Bandaríkjanna, sem náði 170 mill-
jörðum dollara á síðasta ári, var
önnur röksemd fyrir „viðskipta-
hömlum til vamar viðskiptafrelsi".
Baldrige orðaði þessa afstöðu
sína þannig í viðtali við New York
Times í aprfl siðastliðnum: „Til
frambúðar hlýtur hagsæld í heimin-
um að grundvallast á viðskipta-
frelsi. En öðru hveiju þurfum við
að gera kröfur um sanngimi í við-
skiptum, enda byggist viðskipta-
frelsi á því að til sé lagarammi sem
tryggir sanngimi í viðskiptum." Oft
tala menn um viðskiptahömlur, með
því að nefna þær viðskiptasann-
gimi, segir til skýringar í New
York Times.
Baldrige vildi beita bandarískrí
viðskiptalöggjöf af meiri hörku en
áður hafði tíðkast og sú stefna var
tekin árið 1985. Samt sem áður
naut Malcolm Baldrige almennrar
hylli erlendis og var sjaldan gang-
rýndur. Nobuo Matsunaga sendi-
herra Japans í Washington sagði í
viðtali fyrir tveimur mánuðum,
„ágreiningur okkar er aldrei til traf-
ala. Ég dáist að persónutöfrum
hans. Mac Baldrige er kúreki í anda
- mér geðjast vel að honum."
Baldrige lagði jafnframt mikla
áherslu á draga úr viðskiptahalla
Bandarflqanna með því að að auka
erlend viðskipti, einkum útflutning.
f
Hann gekkst fyrir því að teknir
vom upp opnari viðskiptahættir við
Kína, meðal annars verslað með
tæknibúnað af ýmsu tagi. Á tíma
Reagans stjómarinnar hafa við-
skipti Bandaríkjanna við Kína
tvöfaldast. Þá hóf Baldrige að opna
viðskiptin við Sovétríkin árið 1985,
en þá höfðu slík samskipti legið
niðri í sjö ár vegna Afganistanst-
ríðsins.
Effcirmaður Baldrige
Enn hefur ekki hafist skipuleg
leit að eftirmanni Baldrige við-
skiptaráðherra og verður Clarence
Brown, vararáðherra og fyrrum
futttrúadeildarþingmaður frá Ohio-
fylki, væntanlega skipaður við-
skiptaráðherra til bráðabirgða.
Stórblaðið New York Times sagði
í gær að sá liklegasti til að taka
við af Baldrige sé S. Bmce Smart
Jr., sem núna gegnir embætti í al-
þjóðaviðskiptadeild ráðuneytisins
og er aðstoðarviðskiptaráðherra.
Bmce Smart átti dijúgan þátt í
að móta harðnandi afstöðu Reagan
stjómarinnar til viðskipta milli ríkja
og lýtur starf hans að þeim mikil-
væga málaflokki. Ýmsum í Wash-
ington þykir því rökrétt að Smart
verði fyrir valinu sem eftirmaður
Baldrige.
Sjávarútvegsráðuneytið í Wash-
ington heyrir undir viðskiptaráðu-
neytið. Aðstoðarviðskiptaráðherra
og um leið sjávarútvegsráðherra
heitir Dr. Anthony Calio og er hann
jafnframt fulltrúi Bandaríkjanna í
Alþjóða hvalveiðiráðinu. Hann átti
vísan stuðning Malcolms heitins
Baldrige í glímunni við íslendinga
um hvalveiðar og stjómaði nýyfir-
staðinni viðræðulotu við Halldór
Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra,
í Washington. Telja má víst að
vegna sviplegs fráfalls bandaríska
viðskiptaráðherrans, verði einhveij-
ar tafír á viðræðum vegna hval-
veiðideilu Íslands og Banda-
ríkjanna.
„Við hörmum þetta sviplega frá-
fall Baldridges," sagði Halldór
Ásgrímsson þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann vegna
slyssins. „Ég átti ágætt samstarf
við hann og hann var vinsamlegur
í okkar garð. Hann var hins vegar
mjög stefnufastur og hafði ákveðn-
ar skoðanir á málum.
LEIÐANDI I VEROLD TÆKNIÞROUNAR HJOLBARÐA
GOODfYEAR
GOODYEAR
WRANGLER JEPPADEKK
Þér eru allar leiðir færar á Wrangler jeppadekkjum.
Dekk sem eru byggð til að endast._
PRISMA