Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 26

Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 Bretland: Utgáfii London Daily News hætt St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frimannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. DAGBLAÐIÐ London Daily News, sem var í eigu blaðakóngsins Robert Maxwell og hóf göngu sína 24. febrúar síðastliðinn, lagði upp laupana á föstudaginn var. Talið er, að Maxwell hafi tapað á milli 40 og 50 milljónum punda (2,5-3 milljörðum ísl. kr.) á ævintýrinu. Robert Maxwell sagði, að þetta nýja blað, það eina sem hann hefur átt frumkvæðið að, hefði ekki selst nógu vel, þar sem það hefði ekki náð 100.000 eintökum í sölu. Lág- markið eftir hálft ár átti að verða 200.000 eintök á dag. Fyrirsjáan- legt hefði verið, að það næði aldrei að rétta úr kútnum, og þess vegna hefði hann ákveðið að hætta útgáf- unni. Allri ritstjóminni var tilkynnt að koma á fund með Maxwell rúmlega tólf á föstudag, og áttu allir von á, að eigandinn ætlaði að stappa stálinu í sína menn. En Maxwell tilkynnti þeim þess í stað, að frá og með þeim degi yrði útgáfunni hætt. Upphaflega ætlaði Maxwell að gera London Daily News að síðdeg- isblaði í Lundúnaborg til að keppa við Evening Standard. En síðar ákvað hann, að þetta yrði blað, sem kæmi bæði út á morgnana og síðdegis. Sú ákvörðun kom mörgum á óvart, því að þau blöð, sem þann- ig em rekin í Bandaríkjunum, hvíla ekki á fjárhagslega sterkum grunni. Viðbótar-morgunútgáfa jók undir- búningskostnaðinn við blaðið um 60%. Sama dag og London Daily News kom út í fyrsta sinn, endur- vakti Rothermere lávarður, eigandi Evening Standard, gamalt blað sitt, London Evening News. Það var selt á 15 pence, en London Daily News á 20 pence. Maxwell lækkaði blað sitt í 10 pence og sagði, að blaðsölumenn þyrftu ekki að skila neinu fé til blaðsins. Mikil átök Suður-Kórea: Tugir manna far- ast í mikluni flóðiun Seoul, Reuter. ÓTTAST er, að 90-100 manns Margar ástæður eru taldar liggja til þessa ósigurs Maxwells. Markað- ur fyrir síðdegisblöð í Lundúnum er staðnaður, og það er erfitt að fara inn á markað, sem ekki er í vexti. London Daily News réðst inn á markað, sem gamalgróið blað hafði, í stað þess að finna eigin markað. Maxwell ætlaði að hefja útgáfuna í nóvember, en blaðið kom ekki út fyrr en í febrúar, og gaf það keppinautum hans meira ráð- rúm til að láta sér detta í hug mótleik. Til að bæta gráu ofan á svart ákvað Maxwell að fara í stríð við London Evening News, sem ruglaði einungis blaðakaupendur og hafði þau áhrif, að þeir héldu sig áfram við sitt gamla blað. AÐ MINNSTA kosti fimmtíu og tveir létust og tuttugu slösuðust er tvær hópferðabifreiðar rákust saman á hraðbraut i Suðaustur- Brasilíu i fyrrinótt. Þetta er annað stórslysið, sem verður á þjóðvegum Brasiliu á tveimur dögum. hafi látið lifið í miklum flóðum og aurskriðum, sem urðu í gær í Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu. 20.000 manns flýðu heimili sín Slysið átti sér stað skammt frá Belo Horizonte, höfuðborg fylgisins Minas Gerais. Önnur bifreiðin fór yfir á rangan vegarhelming og skall á hinni á miklum hraða. Aðkoman var hrikaleg að sögn sjónarvotta, og einn þeirra sagði: „ Vegurinn leit út eins og vígvöllur, lík manna, enda eru lægstu borgarhlutarnir i Seoul og næsta nágrenni undir vatni. Flóðin hafa valdið skemmdum eða eyðilagt rúmlega 4000 hús í Seoul og aurskriðumar hafa slitið kvenna og bama vom dreifð út um allt. Þetta var hræðilegt." A aðfaranótt laugardags létust 28 manns, þar af 16 böm, er of- hlaðin fólksflutningabifreið hrapaði um 90 metra niður í árgii nálægt bænum Barra do Sao Fransisco. 64 slösuðust. sundur síma- og rafmagnsstrengi og marga vegi út úr borginni. Han- fljótið, sem rennur í gegnum borgina, flæddi yfir bakka sína enda var rigningin á aðeins einni nóttu hvorki meiri né minni en 22 sm. Björgunarmenn hafa fundið lík 80 manna og 12 er enn saknað. Chun Doo Hwan, forseti Suður- Kóreu, fór um flóðasvæðin í gær og skoraði hann á embættis- og lögreglumenn að gera allt, sem í þeirra valdi stæði, til að hjálpaþeim, sem eiga um sárt að binda. Skipaði hann einnig varaliði hersins að taka þátt í björgunar- og endurreisnar- starfinu. Þetta er f þriðja sinn á einum mánuði, að mikil flóð verða í Suður-Kóreu. Fellibylurinn Thelma oili dauða 335 manna fyrir hálfum mánuði og í síðustu viku fórust 158 í flóðum um mitt landið. Tvö stórslys í Brasilíu Rio de Janeiro, Reuter. fylgdu í kjölfar þessa á síðdegis- blaðamarkaði Lundúnaborgar. Þeim átökum lauk svo með fullum ósigri Roberts Maxwells síðastliðinn föstudag. íbúar í Seoul óðu vatnið í kné eftir gífurlegar rigningar, 22 sm úrkomu á einni nóttu. Vitað er, að 80 manns hafa farist og 12 er enn saknað. Taiwan: Er frelsið kvíðvænlegt? Jóhanna Kristjónsdóttir skrifar frá höfuðborgfinni Taipei. „VAR íslensk kona að spyija um lýðræði hér?“ Svo hölluðu þeir Chin og Lin sér aftur á bak og skrfktu svo hamslaust að ég hélt helst að froskalappirnar, sem voru réttur númer ca. sex, myndu standa í þeim. „Þeir eru sniðugir hér,“ sagði Lin og brosti enn. „Þeir afnema herlög eftir 38 ár. Þá halda allir í útlöndum að Taiwan sé að verða lýðræðisríki. En þeir setja örygg- islög í staðinn og þau eru ósköp svipuð ef út í það er farið. Hvað sem nú líður staðhæfing- um þeirra félaga má merkja breytingar. Þessa daga, sem ég hef verið hér á Taiwan, hafa ver- ið boðaðar ótrúlega margar . Innan skamms geta Taiwanar til dæmis fengið að nota kreditkort og það sem meira er, þeir mega kaupa sér báta — að ýmsum skil- yrðum uppfylltum þó. Hingað til hefur það verið óhugsandi; hvað nú ef þeir notuðu bátinn til að sigla til Rauða Kína? í morgun var leiðari í China Post þar sem vegnir voru kostir þess og gallar að Taiwanar færu utan til náms. Niðurstaðan var sú að kostimir væru fleiri, þó að ekki yrði horft fram hjá þeirri staðreynd að einstaka menn létu kannski fallerast og færu að halda að annars staðar væri betra en hér og færu að haida að annars staðar væri betra en hér. En sem sagt — að uppfylltum vissum skil- yrðum mætti taka þetta til athugunar. Þetta sætir meiri tíðindum en í fljótu bragði mætti ætla því að nær algert bann við því að fara úr landi hefur gilt í 38 ár. Að undanskildum æðstu embættis- mönnum, vel vemduðum íþrótta- mönnum og stöku öðrum. Fyrstu áhrifin er komið er til Taiwan — þessarar fallegu eyjar rétt undan ströndum Kína — em einfaldlega þau að maður fellur í stafí. Hér er lifað og látið eins og Taiwan sé hið eina sanna Kína, uppi á meginlandinu hafl fáeinir úrgir kommúnistar hrifsað land- skika og ráðskast með hann eins og ekkert sé sjálfsagðara. Á meg- inlandinu er fólkið kúgað og ofsótt og það býr við kröpp kjör og of- beldi í hvívetna. Á meðan blómstr- ar „Lyðveldið Kína“, hið eina og sanna sem hetjan Chiang Kai Chek sáiugi fór með hingað undan byssukjöftum kommúnista. Að- eins tímabundið, eins og Taipei er höfuðborg „kínverska lýðveld- isins tfrrabundið, er líka bara tímaspursmál, hvenær þjóðemis- Götumynd frá Taipei sinnar og föðurlandsvinir á meginlandinu hrista af sér ok kommúnista og sameinast hinum frelsisunnandi bræðmm á Taiw- an. Þessi tilflnning ákveðins óraun- vemleika varir þó ekki lengi. Hér búa 20 milljónir sem á þessum 38 ámm hafa byggt upp háþróað framleiðsluþjóðfélag. Og ekki er náttúmauðlindunum fyrir að fara — hér er engin olía eða neitt það sem getur breytt lífínu í lúxus með fáeinum handasveiflum. Þetta fólk hefur byggt þjóðfélag með því að strita í sveita síns andlitis í 38 ár, og gerir enn. Sú fádæma iðju- og vinnusemi sem að baki liggur er verð allrar virð- ingar og umhugsunar. Þess vegna er heldur ekki hægt að afgreiða Taiwan sem eitthvert skondið platríki sem hefur það að helstu hugsjón að beijast gegn kommún- istum. í upphafi, það er árið 1949, var kannski ekki hugað að ýkja mörgu öðm. Nú eftir 38 ára til- vem byggist lífið ekki lengur á hugsjónum gegn meginlandi Kína heldur á því að reyna að horfast í augu við vemleika sem Chiang Kai Chek hefði ugglaust kallað landráð en felst einfaldlega í því að þetta þjóðfélag er að færast í annan jarðveg og hefur sannað rétt sinn sem slíkt. Með nýrri kynslóð og kynslóðum sem sætta sig ekki við heilaþvott eldri kyn- slóðarinnar. Taiwanar em glaðsinna og brosmildir. Samt veit ég ekki svo glöggt hversu glaðir þeir em í alvöm. í upplýsingabókum er miklu plássi eytt til að lýsa taum- lausri hamingju þeirra. Þeir brosa, þeir lyfta á sér munnvikjunum og skríkja. En ég er ekki viss um augun. Svo fínnur maður líka kvíðann þrátt fyrir fágað yfírborð. Kvíða, sem m.a. sprettur af því sem er að gerast í Hong Kong og Macau, kínverskum landsvæðum undir yfirráðum Breta og Portúgala, sem eiga að renna undir hið „skelfilega meginland" fyrir lok aldarinnar. Hér hefði enginn trúað því fyrir fáeinum ámm að þetta gæti gerst. Og hvar stendur „kínverska lýðveldið" þá? Smátt og smátt hafa fyrrverandi vina- þjóðir með Bandaríkin í broddi fylkingar látið ginnast af tali vondra kommúnista. Þannig að Taiwan er ekki lengur fulltrúi Kína og hefur aðeins stjómmála- samband við fáeinar þjóðir í Afríku. Allt þetta er reynt að skýra í opinberum plöggum, sem eiskulegir starfsmenn utanríkis- ráðuneytisins hafa fært mér í tonnatali. En einhvem veginn fær maður samt undrafljótt á tilfinn- inguna að þeir trúi ekki sjálfir þessum hástemmdu skýringum. Og að þeir séu hræddir og viti ekki lengur hvað snýr upp og hvað snýr niður. Það sem var hvítt árið 1949 og svart árið 1949 er kannski öðm vísi á litinn núna þegar öll kurl koma til grafar. Getur verið að málin hafí flækst? Eða tíminn hafí liðið og breytt þessari mynd? Hlutföllin hafa greinilega raskast en þá er spum- ingin hvaða litir em komnir í staðinn. „Nei“, sögðu þeir Schiu og Lin og skríktu glaðlega, sem við höfð- um lokið tíunda réttinum og skáiuðum í kínversku hrísgrjónavíni. „Synir Chiangs Ching Kuo munu alls ekki taka við. Hann gat tekið við af föður sínum Chang Kai Chek af því að hann var svo klár maður. Chiang Ching Kuo á þijá syni. og þeir em svo vitlausir að það dytti eng- um í hug að láta þá taka við.“ Svo hölluðu þeir sér aftur í stól- unum, teygðu munnvikin upp að eyrum og sögðu glaðlega: „Þú ferð vonandi ekki að birta nöftiin okkar í íslenska blaðinu, þá mætti halda að við væmm ekki hamingj- usamir."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.