Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 29

Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 29 P • Ýmsir höfðu af þessu áhyggjur og bentu á hina hröðu uppbyggingu Sovétflotans á sama tíma. Reyndu Norðmenn að fá Bandaríkin til að sýna flota sinn á Noregshafi, þó ekki væri nema að æfíngum, en með litlum árangri. Fór svo að ýmsir norskir og amerískir sérfræð- ingar létu í ljós þá skoðun, að Sovétríkin réðu í raun yfir Noregs- hafí, það væri orðið „Mare Sovietic- um“. Þetta gilti allt upp að Austíjörðum. ísland miðstöð á varnarsvæði Við þessar aðstæður höfðu hem- aðaryfírvöld Bandaríkjanna þá vamarstefnu að draga línu um GIUK-hliðið, frá Grænlandi yfír ís- land til Skotlands. Þama voru kafbátar þeirra látnir skipa sér og flugvélar frá Keflavík og flugvöllum á Skotlandi sveimuðu yfír til að hindra að sovéski flotinn kæmist framhjá íslandi suður í Atlantshaf ef ófriður brytist út. Meðfylgjandi kort úr rússnesku riti sýnir hvemig sovésk hemaðar- yfírvöld litu á vamarkerfí NATO umhverfís ísland í nóvember 1976 (Úr Moroskoi Shomik). Norskar skýringar á merkjum eru efst til vinstri á kortinu. A þessum áram höfðu vamir á GIUK-svæðinu umhverfís ísland úrslitaþýðingu fyrir allt norðanvert Atlantshaf. Var því tekið til við að styrkja viðbúnað á. þessu svæði, fyrst og fremst á íslandi. Fyrsta skrefíð var að senda til íslands AWACS-ratsjárflugvélar 1978, meðal annars vegna þess að tvær af fjóram ratsjárstöðvum á landinu höfðu eyðilagst í óveðram, á Langanesi og Vestfjörðum. Þess- ar flugvélar era fljúgandi stjóm- stöðvar, sem hafa mikla þýðingu. Næst var tekið til við að endumýja olíugeymakerfið, og var bygging mannvirkjanna í Helguvík hafín. Þá var KC-135 eldsneytisflugvél staðsett í Keflavík til að fylla á vélar á flugi. Síðan komu nýjar og fleiri orrastuflugvélar til landsins, F-15 af fullkomnustu gerð, og reist vora fyrir þær sprengjuheld skýli. Gervihnattasamband og önnur flar- skipti vora stóraukin og undirbúin bygging neðanjarðarstjómstöðvar. Endurbygging ratsjárstöðvanna var samþykkt og bygging flugstöðvar- innar hraðað. Fleira mætti nefna. Allt stuðlaði þetta að því að Keflavík gæti fyrirvaralaust tekið við miklum liðsstyrk og fjölda flug- véla, ef til ótíðinda drægi. Nýjar hugmyndir vestra Bandaríski flotinn er voldugur heima fyrir og undi illa sínum hag. Flotaforingjar og sérfræðingar, til dæmis í Navy War College í New- port, tóku að móta hugmyndir um endurreisn flotans og breyta flota- stefnunni. Þetta gerðist 1979-82, og smám saman tóku nýjar hug- myndir að heyrast í þingsölum í Washington og fjölmiðlum. Þegar Ronald Reagan varð forseti breytt- ist hin pólitíska staða, og endur- bygging landvama hófst í stóram stíl. Einn veigamesti þáttur hennar var að auka flotann í 600 skip. John Lehman varð flotamálaráð- herra og er kallaður faðir hinnar nýju flotastefnu. Hann sagði: „Svar okkar við ógn sovéskra kafbáta gegn líflínu okkar yfír Atl- antshaf getur ekki verið það eitt að koma upp óvirkum kafbátavöm- um ( GIUK-hliðinu. Hin mikla aukning sovéska flotans hvað stærð og gæði snertir kallar á algera end- urskoðun bandarískrar flota- stefnu ... Svarið og sú stefna, sem við nú mótum, eru ljós: Uppbygging flotans til að endurheimta öll ráð á hafínu og þróun stefnu, sem gerir okkur kleift að hafa yfírburði á norður- og suðursvæðum NATO. Þar með munum við þvinga Sovét- ríkin í vamarstöðu." Hugmyndin er að gera flotasókn norðaustur fyrir ísland, meðfram ströndum Noregs allt norður í Bar- entshaf. Kafbátar eiga að fara fyrir, heija árásir á eldflaugakaf- báta Sovétríkjanna, sem era þar norðurfrá, og þar með þvinga Rauða flotann til að hörfa norður eftir, kjamorkuflotanum til vamar. Síðan eiga amerísk flugvélamóður- skip að sækja inn í Noregshaf, tryggja flugvelli í Norður-Noregi og gera árásir á Kolasvæðið. Með þessu á að fást tangarhald til að knýja Sovétríkin til að semja fljót- lega um frið (War termination leverage). Miðað er við að allt þetta gerist án þess að gripið sé til kjam- orkuvopna. Þessar hugmyndir era nátengdar atburðum annars staðar. Þær byggjast á því að ófriður bijótist út eða berist til Mið-Evrópu, þar sem Sovétríkin era talin hafa vera- lega yfírburði á landi. NATO á því að nota flotastyrk sinn til að gera gangsókn annars staðar, þar sem Sovétríkin era talin veikari, eins og á norðurslóðum. Það er ekki aðeins verið að veija einstök lönd eins og Noreg, heldur er ætlunin að vinna heildarstríðið á skömmum tíma án þess að gripið verði til kjamorku- vopna. Raunar eiga þessi vamar- áætlun og 600 skipa flotinn fyrst og fremst að fæla Sovétríkin frá og hefja nokkra sinni stríðið, en þessi leið á að tryggja sigur ef fælingin bregst. Þetta er í mjög stuttu máli hin nýja flotastefna Bandaríkjanna, og bygging tæknilega fullkominna herskipa stendur sem hæst. 600 nýtísku skip eiga að vera til um 1990. Ekki hefur stefnan verið formlega lögð fyrir NATO, enda era stóra NATO-ríkin flest í miðri Evr- ópu og vilja leggja áherslu á þær vígstöðvar. Þessi stefna er ekki óumdeild í Bandaríkjunum, hvað þá öðram NATO-ríkjum. Margir sérfróðir menn, þeirra á meðal reyndir flota- foringjar, hafa bent á, að stór- hættulegt sé að senda flugvélamóð- urskip inn á Noregshaf, þar sem Rússar hafí mikla möguleika á að sökkva þeim. Óvíst er talið, að yfír- burðir í lofti verði nægilega tryggðir og fleira er fundið að hugmyndinni. Viðhorf Islendinga Hafið milli íslands, Grænlands og Noregs var í 20-30 ár eftir ófrið- inn fjarlægt og friðsælt. Nú er það morandi af vígvélum risaveldanna, og yrðu þar vafalaust stórátök í ófriði. Þama era yfir 40 sovéskir kafbátar með kjamorkuflugskeyti, en það era vopn Sovétríkjanna til að fæla NATO frá stríði. Fælingar- stefnuna nota bæði risaveldin jafnt. Auk þess er þama mikill sovéskur floti, sem gæti reynt að bijótast framhjá íslandi suður í haf til að ijúfa siglingaleiðir. Bandaríkjamenn eiga einnig íjölda árásarkafbáta, sem eru þama norðurfrá eða einhvers staðar til reiðu, til að ráðast á þá sovésku. Bandaríkin hóta með hinum nýja flota að ráðast með flugvélamóður- skip inn á Noregshaf. Hið fyrsta, sem íslendingum gæti komið til hugar, er að af tvennu illu sé skárra fyrir okkur að víglínur færist norður í höfín en að þær séu um ísland sjálft. En landið okkar er þó enn sem fyrir í miðri hringiðunni. Allar hugmyndir um hlutlaust og vopnalaust ísland eru fjarlægari raunveraleika en nokkra sinni fyrr. Þrátt fyrir aðild að Atlantshafs- bandalaginu og vamarsamninginn hafa fslendingar nokkra sérstöðu, sem bæði risaveldin virðast taka tillit til. Sovétríkin hafa ekki beðið um að herskip þeirra fengju að kaupa olíu á íslandi eða koma þang- að í opinbera heimsókn í ein 20 ár. Rannsóknar- og njósnaskip þeirra koma sjaldnar í höfn en áður. Flug- vélar þeirra koma að landinu um 170 sinnum á ári, en fara ekki inn fyrir 12 mflna landhelgina. Þeir virða fískveiðilandhelgina. Rússar vilja sýnilega halda frið við okkur á diplómatíska vísu, og ef til vill er það boðskapur til fleiri en okkar. Bandaríkjamenn hafa vamarliðið á íslandi, en því er skorinn þröngur stakkur samkvæmt vilja íslendinga. Þeir halda sér nákvæmlega við það samkomulag. í nýju flotastefnunni virðist ekki gert ráð fyrir flotastöð eða beinni aðstöðu á íslandi. Á ófriðartímum kjmni þetta að horfa öðra vísi við. Þeir myndu að minnsta kosti sækja hingað eldsneyti og fjöldi flugvéla mundi aukast mikið. Sosus, AWACS og fjarskipti hjálpa þeim í friði jafnt sem ófriði. Öll þessi þróun mála hefur valdið miklu meiri umræðum í öðram lönd- um en hér, til dæmis í Noregi. Þar hafa menn áhyggjur. Norðmenn vilja geta varið sig og þeir óska fullvissu um að bandamenn þeirra muni ekki svíkja þá. En þeir hafa líka áhyggjur af því, að ný, hörð flotastefna úr vestri kunni að styggja Sovétmenn og skapa of mikla spennu á norðurslóðum. í umræðum er það meðal annars gagnrýnt, að flotastjóm NATO á Atlantshafi sitji í Norfolk, allangt sunnan við Washington, óravegu frá Noregshafi og Barentshafí. Væri ekki eðlilegra að þessi stjóm- stöð væri í Norðvestur-Evrópu? Ef svo ætti að verða kæmi aðeins til greina að flytja SACLANT (en svo kallast yfirflotaforingi NATO á Atlantshafi) til íslands eða Skot- lands. Það mundi kalla á 5-10 sinnum meiri umsvif en vamarliðið hefur nú, 10-20.000 manns til við- bótar og flotastöð í Hvalfírði. íslendingar gangast aldrei inn á það. Auk þess mundu Bandaríkja- menn sennilega aldrei samþykkja ísland eða Skotland í þessu sam- hengi af pólitískum ástæðum. Því fylgja raunar margir kostir að SACLANT sé í Norfolk og hafi mörg störf, m.a. sem yfirmaður Atlantshafsflota Bandaríkjanna. Hann hefur miklu fleiri skip og menn til umráða, ef á reynir. Norðmenn velta fyrir sér, hvort Evrópubandalagið verði ekki póli- tískt vamarbandalag og þeir geti hallað sér meir að því og Vestur- Evrópu. Ekki eiga íslendingar kost á slíku, því þeir era úti í miðju hafí, mitt á milli heimsálfanna. Ef Bandaríkin draga heri sína frá Evr- ópu eða hrekjast þaðan, mun ísland fá stóraukna þýðingu fyrir þá sem vamarstöð fyrir Norður-Ameríku. Landafræðin segir okkur það, og hún segir sjaldan ósatt. Hernema Sovétríkin ísland? Það er athyglisvert í skrifum um öryggismál Norður-Atlantshafs- svæðisins í seinni tíð, að nú er oftar en áður rætt um þann möguleika, að Sovétríkin hememi ísland í upp- hafí styijaldar. Hér er ekki átt við nýútkomna skáldsögu, enda þótt höfundur hennar njóti viðurkenn- ingar fyrir þekkingu sína á þessum málum. Þetta nýja tal byggist á þvf, að Sovétríkin era orðin miklu öflugri en áður, sérstaklega á sjó og í lofti, og þau ráða yfír svo mikilii tækni, að stóraukin virðing er borin fyrir þeim. Þessi breyting gerðist árin 1960-80, meðan flotaveldi NATO hnignaði. Ekki er þetta hræðslu- áróður heldur tæknilega raunhæft og eðlilegt umhugsunarefni. íslendingar hafa ekki fylgst vel með þessari þróun, ekki rætt hana af faglegri alvöra sín á milli eða við aðra, eins og þörf væri. í nýút- kominni norskri bók stendur þessi setning um viðhorf Islendinga: „Það er ekki til nein skýrsla um ísland og flotastefnuna." Höfundur er aendiherra íslands I SvíþjM. Skálholtshátíðin vel sótt í fögru veðri Selfossi. SKÁLHOLTSHÁTÍÐ var haldin á sunnudaginn í fallegu veðri, sól og hita. Hátíðin hófst með klukknahringingu og organleik en síðan gengu prestar og bisk- upar í skrúðgöngu til messu. Hátíðin var vel sótt og naut fólk- ið dvalarinnar, enda skartaði náttúran og víðsýnt var til allra átta af staðarhlöðunum. Meðal gesta á hátíðinni voru Þorsteinn Pálsson forsætisráðherra og kona hans, Ingibjörg Rafnar. Séra Svafnir Sveinbjamarson gat þess í prédikun sinni að Skálholt hefði tvímælalaust hlutverki að gegna á hverfulum tíma og þrátt fyrir áherslubreytingar í samfélag- inu. Það vora sr. Olafur Skúlason vígslubiskup, sr. Guðmundur Óli Ólafsson og sr. Tómas Guðmunds- son prófastur sem þjónuðu fyrir altari. Meðhjálpari var Bjöm Er- lendsson. Trompetleikaramir Jón Sigurðsson og Jón Hjaltason léku í messunni. Skálholtskórinn söng undir stjóm Ólafs Siguijónssonar og organleikari var Friðrik Vignir Stefánsson. Raddsetning mesunnar var gerð af dr. Róbert A. Ottóssyni. Að lokinni messu nutu gestir ýmist veðurblíðunnar eða fengu sér kaffí og meðlæti á hótelinu á staðn- um. Samkoma hófst síðan í kirki- Auður Hafeteinsdóttir og Bryndís Pálsdóttir fluttu sónötu fyrir tvær fiðlur. unni með orgelleik Friðriks' Vignis Stefánssonar. Því næst flutti ræðu Kristinn Kristmundsson, skóla- meistari á Laugarvatni. Hann ræddi sögu Skálholts og sagði meðal ann- ars að staðurinn gæti uppfyllt þörf fyrir trúarlega og menningarlega miðstöð. Varðandi skólastarfíð í Skálholti sagði hann þörf fyrir skólastofnun sem hefði önnur markmið en skólastarf almennt. Þeir Jón Sigurðsson og Jón Hjaltason léku á trompet verk eftir Henru Purcell, Trampet voluntary. Auður Hafsteinsdóttir og Bryndís Pálsdóttir léku sónötu fyrir tvær fiðlur. Sr. Halldór Reynisson flutti ritningarlestur og bæn og samkom- unni lauk síðan með almennum söng. _ sig. Jóns.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.