Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 30

Morgunblaðið - 28.07.1987, Side 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚU 1987 „Þetta var ofboðsleg skepna og sá stærsti hérna úr Víði- dalsá, a.m.k. í mörg herrans ár. Þeir komu meira að segja yfir frá Vatnsdalsá til þess að skoða laxinn," sagði Snorri Hauksson, kokkur i veiðihúsinu við Víðidalsá i samtali við Morgunblaðið í gær, en þar veiddist á sunnudaginn 32 punda lax, sá stærsti sem vitað er til að veiðst hafi á þessu sumri. Það var bandarískur stangveiðimaður, Ralph Peters að nafiii, sem veiddi laxinn á flugu sem heitir Blue Nellie nr. 6, i veiðistaðnum Kæli. Laxinn var tröll að vexti, 111 senti- metra langur og svo leginn að menn töldu líkast til réttilega, að hann hefði verið 1-2 pundum þyngri nýgenginn í ána. Það var annars með ólikindum hversu illa þessi stórlax stóð sig, hann var kominn á land MMr eftir aðeins 20 mfnútna glímu og má riQa upp tíl saman- burðar rimmu Guðmundar Ólafssonar við 30 punda laxinn í Dalsárósi í fyrra, sá fiskur gaf ekki sinn hlut fyrr en eftir hart nær fimm klukkustundir og er það Ult til afspumar fyr- ir lax Peters þótt úthald lax Guðmundar hafi verið miklu meira heldur en í meðalagi geti talist. „Peters ræddi ekki mikið um laxinn, þetta virðist aUt saman hafa verið óskaplega rólegt og hann hélt að við vær- um að stríða sér þegar við vorum að tala um metlax. „Ég hef hann grunaðan um að hafa strandað tröllinu á grynning- um,“ bætti Snorri kokkur við. Annars hefiir veiðin gengið nokkuð vel í Víðidalsá í sumar og laxinn verið veiyu fremur vænn. Þannig hafa 42 laxar veiðst sem vegið hafa 20 tíl 32 pund, en á hádegi i gær höfðu alls 616 laxar veiðst. Sem dæmi um stórkostlega meðalvigt benti Snorri kokkur á nýlega útfyUta síðu í veiðibókinni. Þar var að finna tvo smálaxa, 3 og 5 punda, aðrir skráðir fiskar voru þetta 10 pund og upp í 20 pund. Á einni og sömu síðunni voru sex laxar frá 20 og upp í 24 pund og þannig mætti áfram telja. Yfir 1500 úr Laxá í Þing. „Laxá er komin yfír 1.500 laxa, um það bil 1.513 voru komn- ir úr henni á sunnudagskvöld og svo hefur eitthvað bæst við, enda veiðist meira og minna alla daga eins og gefur að skilja. Það er gríðarmikið af stórum laxi í Laxá í sumar og það líður ekki sú vakt að menn setja ekki í og ná eða missa 18 til 22 punda fiska. Þeir stærstu ennþá eru þó ekki nema 24 pund, en við förum ekki að tala um virkilega stórlaxa fyrr en þeir eru orðnir enn þyngri. Við vitum af slíkum fískum í ánni, spuming hvort þeir nást,“ sagði Orri Laxárfélagsformaður Vig- fússon í samtali í gær. Laxá í Aðaldal er því eins og oft áður sú áin sem flesta gefur laxana og hún virðist ekki líkleg til að hverfa úr þeim sessi þetta suma- rið. Hálft þúsund úr Laxá á Asum Um 500 laxar eru komnir úr perlunni Laxá á Ásum eftir því sem Morgunblaðið kemst næst og hefur veiði verið góð að undan- fömu, dagveiði á stöng farið upp í 30 og 31 lax þegar best heftir látið, en margt af laxinum er smár og gefur það stórveiðimönn- um meiri möguleika á að ná háum tölum. Þó em stórir fískar innan um og nokkrir 20 punda fískar hafa verið dregnir upp úr. Mikill lax er í ánni og að sögn sjón að sjá atganginn í Langhyl eins og oft áður. Norðurá lífleg Lífleg veiði hefur verið í Norðurá síðustu vikumar og em komnir á níunda hundrað laxar á land, þar af a.m.k. þrír 20 til 22,5 punda. All mikill lax er kom- inn í ána og genginn upp um allt. Er t.d. fyrir löngu kominn lax fram fyrir Króksfoss. Morgunblaðið/Snorri Hauksson Ralph Peters t.v. og Lúter Eínarsson leiðsögumaður halda á risalaxinum á milli sín. Fiskverð á uppboðsmörkuðum Vikan 20.-24. júlí FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hsasta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 39,50 25,00 32,99 374,0 12.339.618 Ýsa 65,50 28,50 40,83 30,6 1.248.336 Karfi 22,50 13,00 16,81 18,4 309.512 Grálúða 22,00 16,00 16,55 6,3 110.126 Koli 29,00 15,00 21,82 7,0 152.791 Ufsi 25,40 15,00 21,40 21,1 451.809 Hlýri 14,40 11,00 12,37 5,3 66.144 Annað - - 44,73 4,0 183.131 Samtals 31,81 467,0 14.861.467 FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Hœsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur _ _ 34,51 71,0 2.448.821 Ýsa - - 35,31 40,5 1.429.371 Karfi - - 16,42 56,7 931.920 Koli - - 30,63 64,9 1.987.952 Ufsi - - 18,44 12,1 222.476 Steinbítur - - 12,84 2,5 222.476 Hlýri - - 14,68 2.2 32.886 Grálúða - - 19,00 1,9 36.290 Langa - - 14,14 1,6 22.496 Samtals 28,23 253,6 7.157.639 Fiskverð á uppboðsmörkuðum 27. júlí FISKMARKAÐUR hf. f Hafnarfirði . Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verðfkr.) Þorskur 37,50 34,00 35,17 71,9 2.528.127 Ýsa 98,00 90,00 95,90 2,8 271.550 Karfi 19,00 17,30 18,04 48,1 868.470 Lúða 130,00 60,00 80,57 0,6 45.434 Koli 23,40 15,30 17,45 1,0 16.643 Ufsi 25,00 13,00 24,79 4,3 107.745 Steinbítur 18,30 18,30 18,30 0,4 7.183 Samtals 29,63 130,6 3.870.310 I dag verða seld úr togaranum Karlsefni um 60 tonn af karfa, 27 tonn af þorski og 15 tonn af grálúðu og af togbátnum Eini um 60 tonn, mest þorskur, en einnig ýsa og ufsi. FAXAMARKAÐUR hf. f Reykjavík Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð vorð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 45,00 45,00 45,00 1,3 59.850 Koli 33,00 30,50 32,60 10,9 354.411 Samtals 33,79 12,3 415.662 Aflinn sem seldur var í gær var af dragnótabátum. í dag verða seld 50 tonn af þorski úr Ásþóri og 15 tonn úr dragnótabátum, fyrst og fremst af kola. Ekkifrá ísfugli MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi frá Alfreð Jóhannssyni, framkvæmdastjóra Hreiðurs hf.: „Að gefnu tilefni vilja forsvars- menn ísfugls koma því á framfæri að þeir lqúklingar, sem talið er að hafí orsakað matarsýkingu nú fyrir skömmu í JL-húsinu, voru ekki frá ísfugli. Einnig er rétt að taka fram, að allt er gert af fyrirtækisins hálfu til að koma í veg fyrir að salmon- ellusýking geti aftur komið upp vegna kjúklinga frá fyrirtækinu. Frá áramótum hafa verið tekin sýni daglega úr slátrun frá hveijum bónda. Sýnin eru tekin úr hálsa- skinnum og saur, en þar fínnst salmonellan, sé hún til staðar. Salmonellusýkillinn deyr við 65 gráðu hita, en allir þeir, sem eldað hafa kjúkling, vita, að þeir eru yfír- leitt steiktir í ca. klukkutíma við 200—250 gráður, þannig að hættan er vægast sagt lítil sé meðhöndlun- in rétt. Aðalatriðið er að nota ekki sömu flát og áhöld fyrir hrátt kjöt og steikt. Þetta á reyndar við um meðferð á öllu lqoti." MiHílandaflug: Ekki hægt að lenda á Keflavík- urflugvelli FARÞEGAÞOTA Flugleiða sem var að koma frá London þurfti í gær að lenda á Reykjavíkur- flugvelli þar sem mikil þoka var í Keflavík. Vélin var að koma frá London með 164 farþega innan- borðs. Það kemur ekki oft fyrir að Keflavíkurflugvöllur lokist að sögn Sæmundar Guðvinssonar blaðafull- trúa Flugleiða, en rétt fyrir kl. 1 síðastliðna nótt lenti Boing 727 200 á Reykjavíkurflugvelli þar sem ekki var hægt að lenda í Keflavík vegna þoku. Farþegamir urðu meðal ann- ars fyrir þeim óþægindum að þurfa að sjá af tollinum sínum. Ymsir munu óhressir með slíka meðferð, meðal annars vegna þess að eina leiðin til að flytja bjór löglega inn í landið er að kaupa hann á Keflavíkurflugvelli. Reykjavíkurflugvöllur er fyrsti varaflugvöllur fyrir Boing-vélamar en DC-8 þotumar geta hvorki lent þar né á Akureyri ef ófært er um Keflavík og verða því að snúa til baka til Glasgow. GENGIS- SKRÁNING Nr. 136 - 27. júlí 1987 Kr. Kr. Toll- Ein. Kl.09.15 Kaup Sala Gengi Dollari 39,150 39,270 39,310 SLpund 62,849 63,042 62,550 Kan.dollari 29,340 29,430 29,338 Dönskkr. 5,5726 5,5896 5,5605 Norskkr. 5,7688 5,7865 5,8310 Sænskkr. 6,0721 6,0907 6,1228 Fi.mark 8,7340 8,7607 8,7806 Fr.franki 6,3555 6,3750 6,4167 Rolg. franki 1,0207 1,0239 1,0319 Sv.franki 25,5632 25,6415 25,7746 Holl. gyllini 18,7828 18,8404 19,0157 V.-Þ. mark 21,1564 21,2213 21,4012 Ítlíra 0,02923 0,02932 0,02952 Austurr.sch. 3,0093 3,0186 3,0446 Port escudo 0,2703 0,2711 0,2731 Sp.peseti 0,3090 0,3100 0,3094 Jap.yen 0,26195 0,26276 0,26749 írsktpund 56,695 56,869 57,299 SDR (Sérst.) 49,6889 49,8410 50,0442 Ecu,Evr. 43,9361 440708 44,3316 Belg.fr. Fin 1,0169 1,0200 nlilVik'.tji ! 1 A uflouv loiuubi i» uiiiy i'jiiðí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.