Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚU 1987
„Þetta var ofboðsleg skepna
og sá stærsti hérna úr Víði-
dalsá, a.m.k. í mörg herrans
ár. Þeir komu meira að segja
yfir frá Vatnsdalsá til þess að
skoða laxinn," sagði Snorri
Hauksson, kokkur i veiðihúsinu
við Víðidalsá i samtali við
Morgunblaðið í gær, en þar
veiddist á sunnudaginn 32
punda lax, sá stærsti sem vitað
er til að veiðst hafi á þessu
sumri. Það var bandarískur
stangveiðimaður, Ralph Peters
að nafiii, sem veiddi laxinn á
flugu sem heitir Blue Nellie nr.
6, i veiðistaðnum Kæli. Laxinn
var tröll að vexti, 111 senti-
metra langur og svo leginn að
menn töldu líkast til réttilega,
að hann hefði verið 1-2 pundum
þyngri nýgenginn í ána. Það
var annars með ólikindum
hversu illa þessi stórlax stóð
sig, hann var kominn á land
MMr
eftir aðeins 20 mfnútna glímu
og má riQa upp tíl saman-
burðar rimmu Guðmundar
Ólafssonar við 30 punda laxinn
í Dalsárósi í fyrra, sá fiskur
gaf ekki sinn hlut fyrr en eftir
hart nær fimm klukkustundir
og er það Ult til afspumar fyr-
ir lax Peters þótt úthald lax
Guðmundar hafi verið miklu
meira heldur en í meðalagi
geti talist. „Peters ræddi ekki
mikið um laxinn, þetta virðist
aUt saman hafa verið óskaplega
rólegt og hann hélt að við vær-
um að stríða sér þegar við
vorum að tala um metlax. „Ég
hef hann grunaðan um að hafa
strandað tröllinu á grynning-
um,“ bætti Snorri kokkur við.
Annars hefiir veiðin gengið
nokkuð vel í Víðidalsá í sumar
og laxinn verið veiyu fremur
vænn. Þannig hafa 42 laxar
veiðst sem vegið hafa 20 tíl 32
pund, en á hádegi i gær höfðu
alls 616 laxar veiðst. Sem dæmi
um stórkostlega meðalvigt
benti Snorri kokkur á nýlega
útfyUta síðu í veiðibókinni. Þar
var að finna tvo smálaxa, 3 og
5 punda, aðrir skráðir fiskar
voru þetta 10 pund og upp í
20 pund. Á einni og sömu
síðunni voru sex laxar frá 20
og upp í 24 pund og þannig
mætti áfram telja.
Yfir 1500 úr Laxá í
Þing.
„Laxá er komin yfír 1.500
laxa, um það bil 1.513 voru komn-
ir úr henni á sunnudagskvöld og
svo hefur eitthvað bæst við, enda
veiðist meira og minna alla daga
eins og gefur að skilja. Það er
gríðarmikið af stórum laxi í Laxá
í sumar og það líður ekki sú vakt
að menn setja ekki í og ná eða
missa 18 til 22 punda fiska. Þeir
stærstu ennþá eru þó ekki nema
24 pund, en við förum ekki að
tala um virkilega stórlaxa fyrr en
þeir eru orðnir enn þyngri. Við
vitum af slíkum fískum í ánni,
spuming hvort þeir nást,“ sagði
Orri Laxárfélagsformaður Vig-
fússon í samtali í gær. Laxá í
Aðaldal er því eins og oft áður
sú áin sem flesta gefur laxana
og hún virðist ekki líkleg til að
hverfa úr þeim sessi þetta suma-
rið.
Hálft þúsund úr Laxá
á Asum
Um 500 laxar eru komnir úr
perlunni Laxá á Ásum eftir því
sem Morgunblaðið kemst næst og
hefur veiði verið góð að undan-
fömu, dagveiði á stöng farið upp
í 30 og 31 lax þegar best heftir
látið, en margt af laxinum er
smár og gefur það stórveiðimönn-
um meiri möguleika á að ná háum
tölum. Þó em stórir fískar innan
um og nokkrir 20 punda fískar
hafa verið dregnir upp úr. Mikill
lax er í ánni og að sögn sjón að
sjá atganginn í Langhyl eins og
oft áður.
Norðurá lífleg
Lífleg veiði hefur verið í
Norðurá síðustu vikumar og em
komnir á níunda hundrað laxar á
land, þar af a.m.k. þrír 20 til
22,5 punda. All mikill lax er kom-
inn í ána og genginn upp um allt.
Er t.d. fyrir löngu kominn lax
fram fyrir Króksfoss.
Morgunblaðið/Snorri Hauksson
Ralph Peters t.v. og Lúter Eínarsson leiðsögumaður halda á risalaxinum á milli sín.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum
Vikan 20.-24. júlí
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hsasta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 39,50 25,00 32,99 374,0 12.339.618
Ýsa 65,50 28,50 40,83 30,6 1.248.336
Karfi 22,50 13,00 16,81 18,4 309.512
Grálúða 22,00 16,00 16,55 6,3 110.126
Koli 29,00 15,00 21,82 7,0 152.791
Ufsi 25,40 15,00 21,40 21,1 451.809
Hlýri 14,40 11,00 12,37 5,3 66.144
Annað - - 44,73 4,0 183.131
Samtals 31,81 467,0 14.861.467
FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík
Hœsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur _ _ 34,51 71,0 2.448.821
Ýsa - - 35,31 40,5 1.429.371
Karfi - - 16,42 56,7 931.920
Koli - - 30,63 64,9 1.987.952
Ufsi - - 18,44 12,1 222.476
Steinbítur - - 12,84 2,5 222.476
Hlýri - - 14,68 2.2 32.886
Grálúða - - 19,00 1,9 36.290
Langa - - 14,14 1,6 22.496
Samtals 28,23 253,6 7.157.639
Fiskverð á uppboðsmörkuðum
27. júlí
FISKMARKAÐUR hf. f Hafnarfirði
. Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verðfkr.)
Þorskur 37,50 34,00 35,17 71,9 2.528.127
Ýsa 98,00 90,00 95,90 2,8 271.550
Karfi 19,00 17,30 18,04 48,1 868.470
Lúða 130,00 60,00 80,57 0,6 45.434
Koli 23,40 15,30 17,45 1,0 16.643
Ufsi 25,00 13,00 24,79 4,3 107.745
Steinbítur 18,30 18,30 18,30 0,4 7.183
Samtals 29,63 130,6 3.870.310
I dag verða seld úr togaranum Karlsefni um 60 tonn af karfa, 27
tonn af þorski og 15 tonn af grálúðu og af togbátnum Eini um 60
tonn, mest þorskur, en einnig ýsa og ufsi.
FAXAMARKAÐUR hf. f Reykjavík
Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð vorð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 45,00 45,00 45,00 1,3 59.850
Koli 33,00 30,50 32,60 10,9 354.411
Samtals 33,79 12,3 415.662
Aflinn sem seldur var í gær var af dragnótabátum. í dag verða
seld 50 tonn af þorski úr Ásþóri og 15 tonn úr dragnótabátum,
fyrst og fremst af kola.
Ekkifrá
ísfugli
MORGUNBLAÐINU hefur
borizt eftirfarandi frá Alfreð
Jóhannssyni, framkvæmdastjóra
Hreiðurs hf.:
„Að gefnu tilefni vilja forsvars-
menn ísfugls koma því á framfæri
að þeir lqúklingar, sem talið er að
hafí orsakað matarsýkingu nú fyrir
skömmu í JL-húsinu, voru ekki frá
ísfugli.
Einnig er rétt að taka fram, að
allt er gert af fyrirtækisins hálfu
til að koma í veg fyrir að salmon-
ellusýking geti aftur komið upp
vegna kjúklinga frá fyrirtækinu.
Frá áramótum hafa verið tekin sýni
daglega úr slátrun frá hveijum
bónda. Sýnin eru tekin úr hálsa-
skinnum og saur, en þar fínnst
salmonellan, sé hún til staðar.
Salmonellusýkillinn deyr við 65
gráðu hita, en allir þeir, sem eldað
hafa kjúkling, vita, að þeir eru yfír-
leitt steiktir í ca. klukkutíma við
200—250 gráður, þannig að hættan
er vægast sagt lítil sé meðhöndlun-
in rétt. Aðalatriðið er að nota ekki
sömu flát og áhöld fyrir hrátt kjöt
og steikt. Þetta á reyndar við um
meðferð á öllu lqoti."
MiHílandaflug:
Ekki hægt
að lenda á
Keflavík-
urflugvelli
FARÞEGAÞOTA Flugleiða sem
var að koma frá London þurfti
í gær að lenda á Reykjavíkur-
flugvelli þar sem mikil þoka var
í Keflavík. Vélin var að koma frá
London með 164 farþega innan-
borðs.
Það kemur ekki oft fyrir að
Keflavíkurflugvöllur lokist að sögn
Sæmundar Guðvinssonar blaðafull-
trúa Flugleiða, en rétt fyrir kl. 1
síðastliðna nótt lenti Boing 727 200
á Reykjavíkurflugvelli þar sem ekki
var hægt að lenda í Keflavík vegna
þoku. Farþegamir urðu meðal ann-
ars fyrir þeim óþægindum að þurfa
að sjá af tollinum sínum. Ymsir
munu óhressir með slíka meðferð,
meðal annars vegna þess að eina
leiðin til að flytja bjór löglega inn
í landið er að kaupa hann á
Keflavíkurflugvelli.
Reykjavíkurflugvöllur er fyrsti
varaflugvöllur fyrir Boing-vélamar
en DC-8 þotumar geta hvorki lent
þar né á Akureyri ef ófært er um
Keflavík og verða því að snúa til
baka til Glasgow.
GENGIS-
SKRÁNING
Nr. 136 - 27. júlí 1987
Kr. Kr. Toll-
Ein. Kl.09.15 Kaup Sala Gengi
Dollari 39,150 39,270 39,310
SLpund 62,849 63,042 62,550
Kan.dollari 29,340 29,430 29,338
Dönskkr. 5,5726 5,5896 5,5605
Norskkr. 5,7688 5,7865 5,8310
Sænskkr. 6,0721 6,0907 6,1228
Fi.mark 8,7340 8,7607 8,7806
Fr.franki 6,3555 6,3750 6,4167
Rolg. franki 1,0207 1,0239 1,0319
Sv.franki 25,5632 25,6415 25,7746
Holl. gyllini 18,7828 18,8404 19,0157
V.-Þ. mark 21,1564 21,2213 21,4012
Ítlíra 0,02923 0,02932 0,02952
Austurr.sch. 3,0093 3,0186 3,0446
Port escudo 0,2703 0,2711 0,2731
Sp.peseti 0,3090 0,3100 0,3094
Jap.yen 0,26195 0,26276 0,26749
írsktpund 56,695 56,869 57,299
SDR (Sérst.) 49,6889 49,8410 50,0442
Ecu,Evr. 43,9361 440708 44,3316
Belg.fr. Fin 1,0169 1,0200
nlilVik'.tji ! 1 A
uflouv loiuubi i» uiiiy i'jiiðí