Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 31

Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987 31 Eiríkur og Leistur á æfíngn landssliðsins á Hellu á laugardaginn. Morgunblaðið/Valdimar Kristiimon Landsliðið í hestaíþróttum: Evrópumeistar- inn Benedikt Þorbjörnsson tekur sæti hans í liðinu Ljóst er nú að Eirfkur Guð- mundsson sem átti að keppa á heimsmeistaramótinu í hesta- iþróttum fer ekki á mótið sem keppandi þar sem hestur hans Leistur frá Keldudal stóðst ekki dýralæknisskoðun sem hestarnir verða ganga f gegnum áður en þeir fara utan. Hestarnir voru skoðaðir á Hellu á laugardaginn þar sem landsliðið var við sameiginlegar æfíngar yfir helgina. Verða hestamir skoðaðir aftur rétt fyrir brottför 4. ágúst en Brynjólfúr Sandholt dýralæknir sem skoðaði hestana taldi engar líkur á því að Leistur yrði orðinn góður fýrir þann tíma. I stað Eiríks inn í liðið kemur evrópumeistarinn í fimmgangi Benedikt Þorbjömsson með Brand frá Runnum en þeir voru aðeins hársbreidd frá því að vinna sér sæti í liðinu í úrtökunni fyrr í þessum mánuði. Benedikt hafði verið valinn liðsstjóri skömmu eftir úrtökuna en ekki er ljóst hver mun taka við stöðu hans. Aðrir hestar landsliðsins komust áfalla- laust í gegnum skoðunina. Evrópumeistarinn Benedikt Þorbjömsson með Brand fyrir utan stóð- hestahúsið á Hellu. Leistur er sem kunnugt er Is- landsmethafi í bæði 150 og 250 metra skeiði og þykir þessi breyting á liðinu veikja von Islendinga um HM-titil í 250 metra skeiði. Ekki er þó öll von úti því auk þess sem Brandur er vel liðtækur kappreiða- vekringur hefur Spói frá Geirshlíð sem Reynir Aðalsteinsson keppir á náð mjög góðum tímum í skeiðinu. Leistur haltur og Eiríkur fellur út Hjartans þakkir til þeirra Jjölmörgu œttingja og vina sem glöddu mig á nírœÖis afmœli mínu þann 22. júlí sl. Guö blessi ykkur öll. Sigríður Ögmundsdóttir, Klapparstíg 13, Njarðvik. IMotuð tæki til sölu: SCHAEFF SKB 800 A traktorsgrafa árgerð 1982, skotbóma. Úttak fyrir glussahamar. Drif á öllum. Þessi vél getur unnið sem traktorsgrafa, hjóla- skófla, lyftari eða orkugjafi fyrir fleyg. Vél í góou ástandi. Verðhugmynd 2300 til 2500 þúsund kr. eftir greiðslufyrirkomulagi. v/ LYFTARAGÁLGI aftan á traktor. Lyftigeta 1.7 tonn. Lyftihæð 3.3 m. Hentar á 50 hestafla traktor eða stærri. Verðhugmynd 40.000 kr. DTSMKTDTjDG^ FUNAHÖFDA 1 - REYKJAVÍK S. 91-685260 Blaóburóarfólk óskast! Afinæliskveðja: Helge Rosenberg framreiðslumaður Helge vinur minn Rosenberg er engum manni líkur. Hann var á engum sérstökum aldri þegar við kynntumst fyrir mörgum árum. En þegar hann segist vera orðinn sjö- tugur í dag tek ég það vitanlega gott og gilt. Þó grunar mig að þetta sé helber leikaraskapur í karlinum því það er ógerlegt að sjá hvort hann hefur elst eða yngst síðustu tuttugu árin. Helge Rosenberg var tvímæla- laust einn flinkasti veitingamaður í Reykjavík á sínum tíma. Þegar matreiðsla og framreiðsla hlutu lög- gildingu iðngreina á íslandi var öllu starfandi fólki í faginu gefinn kost- ur á að ganga undir sveinspróf á Hótel Valhöll. Yfirvöldin kvöddu Helge Rosenberg til að prófa alla þessa kollega sína og gefa einkunn- ir, þá komungan manninn. Helge er sonur hinna þekktu Rosenberg-hjóna, en faðir hans kom til landsins snemma á öldinni og hóf hér veitingarekstur, sem varð umfangsmikiil með árunum. Helge starfaði við hlið foreldra sinna og síðast á Hótel ísland uns hótelið brann í seinni heimsstyijöld. Þá lagði Helge vinur minn öll hefð- bundin störf á hilluna og hefur— gengið sínar eigin götur síðan. Hann ríkti sem kóngur í sínu kjallaraveldi, fyrst á Flókagötunni og síðan á Miklubraut. Þangað hef- ur sótt úrval af góðu fólki sem jafnan hefur daginn fyrir sér. Helge hefur reynst hirð sini bæði harður og ljúfur húsbóndi og herra. Gengið bæði hægt og hratt um gleðinnar dyr. Svipmikil blanda af hinum full- komna vert og reiðum veraldar- manni. Ýmist glaðvær götustrákur eða mjög hávær heimsspekingur. í hópi Helge voru margir kallaðir en fáir útvaldir. Enda lætur Helge Rosenberg sér ekkert mannlegt óviðkomandi og allra síst það sem honum kemur alls ekki við. Hvort sem Helge vinur minn Rosenberg er sjötugur í dag eða ekki, og hvort sem honum líkar það betur eða verr, þá sendir fjölskylda mín og ég honum afmæliskveðjur. Engum manni er Helge líkur. Athugið: Aðeins tii afleysinga ! AUSTURBÆR Bollagata Bragagata Laugavegur neðri Skólavörðustígur Óðinsgata Lindargata frá 40-63 KÓPAVOGUR Borgarholtsbraut Kópavogsbraut frá 84-113 o.fl. Þinghólsbraut 40-48 ÚTHVERFI VESTURBÆR Aragata BREIÐHOLT Stekkjahverfi Austurgerði SELTJARNARNES Unnarbraut Skólabraut flfottgttitlrfafrife

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.