Morgunblaðið - 28.07.1987, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 28. JÚLÍ 1987
35
veiða hvalina.
Og þarmeð blasir hið nýja for-
ystuhlutverk okkar við.
Meðan aðrar þjóðir dröslast enn
með rándýra sjálfstæða vísinda-
starfsemi höfum við tekið vísindin
í þágu atvinnuveganna og gert
þetta prinsíp vort að lýsandi for-
dæmi heimsbygðarinnar.
Þessi nýi vísindaskilningur er
framlag okkar til heimsins og bygg-
ist vissulega á arfínum frá spá-
mönnum fimta og sjötta áratugsins.
Og fleira fylgir á eftir.
Nú er að koma upp annað mál
sem leiðir það berlega í ljós að
hvergi munu íslensk stjórnvöld
kvika af markaðri braut þessarar
alþjóðaforystu sinnar. Fyrir Mann-
réttindanefnd Evrópuráðsins í
Strassburg liggur kæra Jóns Krist-
inssonar vegna brota á sáttmála
um iýðræðislega réttarfarsskipan
sem Landinn vitaskuld líka hefur
undirritað. Samkvæmt þeim sáttála
má það ekki gerast að sama yfír-
valdið standi mann að verki, ransaki
brot hans og dæmi hans síðan til
straffs. En þetta hefur hér viðgeng-
ist lengi að því er sérfræðingur
Ríkissjónvarpsins á þessu sviði, Sig-
urður Líndal, hermir. Og þetta er
arfur frá einveldistímanum þegar
lögin voru í þágu kóngs og embætt-
ismanna hans, bætir sérfræðingur-
inn við.
Nánari eftirgrenslan fjölmiðla
hefur leitt það í ljós að þessi mein-
bugur á lýðræðinu var engum
hulinn þegar við skrifuðum undir
Mannréttindasáttmála Evrópuráðs-
ins á sínum tíma.
Undirskrift okkar var einber
vísindatilraun einsog þáttakan í
Hvalveiðiráðinu.
Enda voru lögin um Ransóknar-
lögreglu ríkisins árétting á því að
ákvæði Mannréttindasáttmála Evr-
ópuráðsins kæmu okkur ekki við.
Og dómarar Sakadóms héldu vita-
skuld áfram að bijóta hliðstætt
prinsíp 10 sinnum á dag og fara
með ákæruvaldið jafnframt dóms-
valdinu í flestum málum einsog
hverjir aðrir atvinnukleifhugar.
Ráðuneyti dómsmála á Landinu
bláa ætlar sér bersýnilega að halda
málstað vísindréttarfarsins til
streitu. Um það verður látið sverfa
til stáls í Strassburg í haust með
æmum tilkostnaði því hér er um
miklar upphæðir að tefla einsog sjá
má og heyra á umælum flestra
embættismanna sem spurðir hafa
verið álits. Sigurður Gizurarson
bæjarfógeti dregur álit þeirra allra
raunar saman í eina setningu þegar
hann er intur eftir því hvort ekki
beri að breyta réttarkerfínu héma
frá einveldisháttum til samræmis
við sáttmála lýðræðisþjóðanna og
skilja að embætti bæjarfógeta og
lögreglustjóra. Þá segir hann:
„Ég tel það vera prinsíprétt ef
ríkið telur sig hafa efni á því að
aðskilja dóms- og framkvæmda-
vald.“
Þetta er kjami málsins: Ef við
höfum ekki efni á nútímaréttarfari
lýðræðisþjóða grípum við bara til
forystuhlutverksins og sendum
harðsnúið lið af lærisveinum spá-
manna vorra tilað kenna þeim í
Strassburg hvað vísindalega kórrétt
sögulegt réttarfar er miklu hag-
kvæmara en lýðræðisbullið.
Vitaskuld mun þessi nefnd óðar
skilja hvað á spýtunni hangir þegar
forvígismaður hins sögulega
vísindaréttarfars endurtekur það-
sem hann sagði við DV um málstað
þeirra ráðuneytismanna:
„Helsta vöm ráðuneytisins í mál-
inu er sú að þrátt fyrir að sýslumað-
ur sé bæði dómari og yfirmaður
lögreglunnar hafi Jón Kristinsson
fengið réttláta meðferð."
Það er vitaskuld hagkvæmara
fjárhagslega séð að Þorsteinn Geir-
son ákveði það sjálfur hvort við
hljótum réttláta meðferð helduren
að tryggja réttlátt dómskerfí útum
alt land. Enginn getur efast um
það. Réttlætið verður því ódýrara
sem það er á færri manna höndum.
Spumingin verður þá bara sú
hvort Mannréttindanefndin muni
skilja þetta hagkvæmnissjónarmið
og samþykkja hina vísindalegu og
sögulegu vemdunarafstöðu dóms-
málaráðuneytis okkar í réttarfars-
málunum.
Sumir efast um það.
Þó undarlegt megi virðast hefur
íslenska sjónarmiðið til vísinda átt
nokkuð örðugt uppdráttar víða er-
lendis, hversu hagkvæmt sem það
er. Meiraðsegja lögfræði heimtar
víða í löndum að fá að vera sjálf-
stæð grein og óháð öllum hag-
kvæmnissjónarmiðum.
En stjómvöld okkar munu berj-
ast fyrir hinum séríslensku hags-
munum í Jónsmálinu engu síðuren
hvalveiðimálunum. Því stolti sínu
verður útvalin þjóð að halda.
Væri þetta mál einvörðungu í
höndum innlendra embættismanna
þykist ég vita að því mundi vera
borgið. Héreftir sem hingaðtil
mundi þá valin hin sögulega helg-
aða vísindaréttarfarsleið sem búin
er að spara okkur stórfé öldum
saman.
Þá væri stolti okkar borgið.
Og væri þjóðarstoltið í heilli höfn
(undir farsælli forystu framsóknar-
manna) efast ég heldur varla um
það að þjóðin upptil hópa mundi
héreftir sem hingaðtil geta sætt sig
lengi lengi við konunglega stjórnar-
skrá frá 1874, sakarákvæði til
vamar illu umtali um kóngsböðuls-
embættið danska sem löngu er nú
aflagt, almenn hegningarlög sem
vom á sínum tíma kópémð eftir
lagagerð í Hitlersþýskalandi, rétt-
arvenjur sem einlægt krulla saman
ákæmvaldi og dómsvaldi, brengla
framkvæmdarvaldi og dómsvaldi í
eitt, selja dómumm sjálfdæmi um
mistök sín og fleira og fleira kon-
unglegt athæfí.
Vitaskuld jafngildir þetta afsali
margra réttinda sem aðrar og
ómerkilegri þjóðir daglega verða
aðnjótandi, en hveiju má ekki útval-
in þjóð vera reiðubúin að afsala sér
tilað varðveita þjóðarstoltið og hinn
stórfenglega arf spámanna sinna.
Þetta em hvorteðer ekki nema
skitin gmndvallarréttindi sem út-
valið fólk hefur lítið með að gera.
Höfúndur er rithöfiwdur.
ASEA Cylinda
þvottavélar ★ sænskar og sérstakar
Fá hæstu neytendaeinkunnir fyrir þvott, skoiun,
vindingu, taumeðferð og orkusparnað. Efnis-
gæði og öryggi einkenna ASEA. Þú færð ekki
betri vélar!
iFQniX
HATUNI 6A SlMI (91)24420
UUSCHEN
sturtuklefar og baðveggir í áli, lit og hvítu.
Heilir sturtuklefar m/botni, hitara og
dælu. Tilvaldir fyrir sumarbústaði.
Verð frá kr. 10.900.00.
A. Bergmann,
Stapahrauni 2, Hafnarfirði,
s. 651550.
V ið flytjum inn norsk gæðatjöld sem eru níðsterk, falleg og einstaklega endingargóð.
Þú færð þau í Kaupfélaginu á sér-
staklega hagstæðu verði.
GLÆSILEG TJÖLD Á GÓDU VERDI
Hústjald, 9rrr IIIIiIIIIIIIIIIIIIIÍIIÍIIIIIII!